Morgunblaðið - 15.02.1959, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 15.02.1959, Qupperneq 1
24 síður Framsókn lögleiddi stór kjördœmi og hlutfallskosningu til \ Dulles i Bonn Búnaðarþings Gefur slikt kosningafyrirkomulag iil Alþingis orð/ð bændum og strjál- býlinu til tjóns? Allir frjálslyndir menn verða að sam- einast um að Alþingi verði rétt mynd af vilja þjóðarinnar ÁRIÐ 1937 samþykkti Búnaðarþing nýjar reglur um kjördæma- skipun og kosningar til þessarar virðulegu samkomu íslenzkra bænda. Voru þar upp teknar merkilegar nýjungar. Ákveðið var að öllu landinu skyldi skipt í 10 stór kjördæmi og að allir 25 fulltrúar á Búnaðarþingi skyldu kosnir með hiutfallskosningum i þessum kjördæmum. Ekki er annað vitað en að gott samkomulag hafi ríkt á Búnað- arþingi um þessa skipulagsbreytingu. Forystumenn bændastéttar- innar, og bændur almennt, töldu það spor í réttlætisátt að fulltrúar á sjálft stéttaþing bænda skyldu framvegis kosnir hlutfallskosn- ingu í stórum kjördæmum. Einnig var það talið stuðla að auk- inni samvinnu bænda og nánari samtökum milli héraða, að kjör- dæmin skyldu stækkuð. Áhrif frá frv. Hannesar Hafstein Margt bendir til þess, að þessi nýja kjördæmaskipun til Búnaðarþings hafi átt rætur í frumvarpi því, sem Hannes Hafstein flutti á Alþingi árið 1905 um stór kjördæmi og hlut fallskosningar til Alþingis. Ýmsir af helutiu sSuðnings- mönnum þess frumvarps tóku þátt í stofnun Framsóknar- flokksins eða voru honum nátengdir. Má þar nefna Pét- ur Jónsson á Gautlöndum, Þórhall biskup Bjarnarson og Jónas Jónsson frá Hriflu. 7. og 8. gr. laga Búnaðar- félagsins Síðan 1937 hefur hin nýja kjör- dæmaskipun í aðalatriðum gilt í kosningum til Búnaðarþings. Þó hafa nokkur kjördæmi verið klofin, og eru nú 17 af 25 fulltrú- um á Búnaðarþingi kosnir með hlutfallskosningu i 2ja til 5 manna kjördæmum, en 8 eru kosnir í einmenningskjördæm- um. Vegna þess, að hlutfalls- kosningar í stórum kjördæmum eru nú mjög ræddar með þjóð inni, telur Morgunblaðið rétt að birta þær greinar úr lögum Bún aðarfélags fslands, sem ákvæðin um kjördæmi og kosningar fel- ast £. Fara 7. og 8. gr. laganna hér á eftir: 7. gr. Búnaðarþingsmenn skulu kosnir með hlutfallskosningu í eftirgreindum kjördæmum: 1. Kjalnesinga, ar nær yfir Gullbringu- og Kjósarsýslu, ásamt Reykjavik og Hafnar fjarðar- og Keflavíþur- kaupstað. 2. Borgfirðinga, or nær yfir Mýra- og Borgarfjarðar- sýslur og Akraneskaupstað. 3. Dalamanna og Snæfellinga, er nær yfir Dala-, Snæfells- ness og Hnappadalssýslur. 4. Vestfirðinga, er nær yfir Austur og Vestur-Barða- strandar-, Vestur- og Norð- ur-ísafjarðarsýslur, Isafjarð arkaupstað og Strandasýslu. 5. Húnvetninga, er nær yfir Húnavatnssýslur. 6. Skagfirðinga, er nær yfir Skagafjarðarsýslu og Sauð- árkrókskaupstað. 7. Eyfirðinga, er nær yfir Eyja fjarðarsýslu með Akureyr- arr, Ólafsfjarðar- og Siglu- fjarðarkaupstað, ásamt Sval barðsstrandar og Grýtu- bakkahreppum í Suður-Þing eyjarsýslu. 8. Þingeyinga, er nær yfir Þing eyjarsýslur og Húsavíkur- Framh. á bls. 2 Þegar Dulles kom úr Evrópu- förinni á dögunum hélt hann beint til sjúkrahússins — og nú hefur komið í ljós, að krabbameinið þjáir Dulles enn. Þessi mynd er merkileg að því leyti, að hún var tekin skömmu áður en þeir Dulles og Adenauer kvöddust — og Adenauer var síðasti stjórn- málaforinginn, sem Dulles heimsótti i Evrópuförinni. — Vafi þykir nú leika á því, að Dulles eigi afturkvæmt í ut- anríkisráðherrasæti sitt sakir sjúkdóms síns, sem erfiðastur er nú viðfangs allra sjúkdóma. En það var ekki að sjá á Dulles, að hann kenndi meins, þegar hann kvaddi Adenauer. — Síður en svo. — Á vestur- leið hafði Dulles viðkomu á Keflavíkurflugvelli, eins og | kunnugt er. \ Dulles sjúkur af krabbameini Hugað á geislalækningar fremur en uppskurð Washington, 14. febr. ÞAÐ VAR tilkynnt í Wash- ing'ton í dag, að John Foster Dulles, utanríkisráðherra, Veður hamlaði frekari leit að Júlí í gær Leitarsvæðið stækkað í dag ER MBL. átti tal við Slysa- varnafélag íslands í gær- kvöldi, var ekki vitað til þess, að unnt hefði verið að halda uppi leit að togaran- um Júlí í gær vegna þess, hve veður var óhagstætt á leitarsvæðinu. - Samkvæmt upplýsingum Veðurstofunn- ar, var þar vestan-hvass- viðri, snjókoma og um 6 stiga frost. — Nokkuð var veðrið tekið að lægja í gær- kvöldi, og bjóst Veðurstofan við, að það mundi enn ganga eitthvað niður í nótt. Leitin að Júlí hefir nú staðið síðan þriðjudaginn 10. febrúar, en síðast heyrðist í togaranum á sunnudagskvöld, eins og kunnugt er. — Má segja, að vonir manna um að togarinn sé ofansjávar dvíni með degi hverjum, en þó er þess að gæta, að skilyrði til leitar hafa yfirleitt verið mjög óhagstæð. Blaðið fékk þær upplýsingar hjá Slysavarnafélaginu í gær- kvöldi, að það hefði farið þess á leit, að leitarsvæðið yrði stækk að nokkuð. Mun þvi í dag verða leitað lengra til austurs en áður. í Reutersskeyti, sem barst frá Halifax í gær, segir að á föstu- daginn hafi orðið að fresta leit úr lofti að Júlí. Þær níu flug- vélar, sem þátt tækju í leitinni, hefðu orðið að snúa aftur til stöðva á Nýfundnalandi. þjáist af krabbameini. Dull- es var skorinn upp við kvið- sliti í Walter Reed sjúkra- húsinu í gær — og við þenn- an uppskurð komust læknar að því, að ekki hafði tekizt að komast fyrir sjúkdóminn, sem gerði vart við sig fyrir tveimur árum. — Þá var Dulles skorinn upp við krabbameini. ★ í tilkynningu, sem gefin var út um líðan Dulles í dag — og und- irrituð af Eisenhower forseta, sagði, að læknar gerðu sér ekki grein fyrir á hvaða .stigi krabba- meinið væri, en geislalækninga- tæki yrðu reynd þegar og Dulles hefði náð sér eftir uppskurðinn í gær. Ekki kemur fram í til- kynningunni, að haft sé í hyggju að reyna annan uppskurð til þess að vinna bug á meininu. ★ Eisenhower forseti heimsótti Dulles í dag og sagði forsetinn að heimsókninni lekinni, að Dulles hefði verið glaður og reifur, upp skurðurinn við kviðslitinu hefði tekizt eins og vonir stóðu til — og væri ráðherrann furðu bratt- Kvaðst Eisenhower vona, að Dulles mætti aftur verða heill — og bandaríska þjóðin ætti eftir að njóta starfsorku hans enn um skeið. Notaði forsetinn og tæki- færið til þess að færa Dulles þakkir fyrir hið ómetanlega starf, sem hann hefði þegar unnið þjóð sinni. Ljóst er, að Sulles verður að dveljast í sjúkrahúsi margar vik ur þó svo að batahorfur verði betri en hægt er að vona. Þess vegna leysti Eisenhower Dulles frá utanrikisráðherrastörðum um stundarsakir — og mun Hart- er aðstoðarutanríkisráðherra gegna störfium hans fyrst um sinn. Ilarter hefur verið í orlofl, en snéri til Washington strax i dag, er honum barst fregnin um það hver sjúkdómur Dulles værL ★ Báðar deildir Bandaríkjaþings fluttu Dulles í áag þakkir fyrir hið mikla og óoigingjarna starf hans í þágu þjóðar sinnar og lýð- ræðishugsjónarinnar — og Mac- millan fór miklum viðurkenning- arorður um starf Dulles á undan. förnum árum og sendi honum innilegustu þakkir og kveðjur brezku þjóðarinnar. — Adenauer minntizt og hin fórnfúsa starfs Dullesar í þágu lýðræðisþjóð- anna. Kýpurráðstefna á þriðjudaginn LONDON, 14. febrúar. — Miklar vonir eru bundnar við ráðstefnu þá, sem hefst í Lundúnum á þriðjudaginn og fjalla mun um Kýpurdeiluna — á grundvelli samkomulags þess, sem forsæt- is- og utanríkisráðherrar Grikk- lands og Tyrklands gerðu með sér í Zúrich í vikunni. Brezka stjórnin hefur boðið til fundarins forsætisráðherrum Tyrklands og Grikklands, utan- ríkisráðherrum beggja landanna, sem staddir eru í Lundúnum, svo og Makariosi erkibiskupi, öðrum leiðtogum griskumælandi Kýpur- búa og leiðtogum tyrkneskætt- aðra Kýpurbúa. Mun Makarios fara flugleiðis til Lundúna á morgun og hefur hann látið í ljós góðar vonir um að Kýpurdeilan verði nú loksins leyst. Sunnudagur 15. febr. Efni blaðsins er m.a.: Bls. 2: Við viljum ekki byggja upp menninguna í landinu á kostn- að mannúðarinnar. Ræða Ólaft Thors fyrir frv. um vöruhapp- drætti S.Í.B.S. — 3: Sr. Óskar J. Þorláksson: Harmt efni hafsins. Úr verinu, eftir Einar Sigurðs- son. —- 6: 150 ár liðin frá fæðingu Abra- hams Lincolns. — 8: Stutt samtal við systur Fulbertu í Landakoti. •- 9: Spjallað við Kristin Pétursson blikksmið sjötugan. — 10: Ágreiningur um greiðslutíma, grein eftir Jón Sigurðsson, alþm. — 12: Forystugreinin: Framsókn er bölvaldur bænda. — 13: Reykjavíkurbréf. — 15: Fólk í fréttunum. Lesbók barnanna. — 16: Lesbók barnanna. — Skák. — 17: Baráttan innan kommúnista- flokkanna verður þeim að fjör- tjóni. Frá fyrirlestri ungverska rithöfundarins Tamas Aczel. — 22: Olíuverðið mundi að öllum lík- indum hækka. Frá umræðum á Alþingi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.