Morgunblaðið - 15.02.1959, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 15.02.1959, Qupperneq 6
e MORCUNBL4ÐIÐ Sunnudagnr 15. febr. 1959 150 ár liðin frá fœðingu Abrahams Lincolns ÞANN 12. FEBRÚAE voru 150 ár liðin frá fæðingu Abrahams Lincolns. Hann fæddist í ofur fá- tæklegum bjálkakofa í Kentucky, aem þá var nýbyggjaland í Banda- ríkjunum. Þetta fátæka barn átti eftir að rísa til æðstu mannvirð- ixiga og verða einn mesti spek- rngur og sérkenilegasti persónu- leiki veraldarsögunnar. Abraham Lincoln er nú án efa ▼irtastur og elskaðastur allra for- »eta Bandaríkjanna. Hann er jafn ▼el meira metinn, en sjálf frelsis- hetjan hershöfðinginn Georg Washington. Hann er þó ekki mik- ilsmetinn fyrst og fremst vegna sigursins í þrælastríðinu, heldur vegna þess að andi hans og lífs- speki hefur enn slíkan kraft, að það lýsir bandarisku þjóðinni á hverri stund gegnum misviðri ald- anna. ★ LINCOLN var mjög sérkennileg- nr maður. Hann gekk aldrei í neinn skóla, samt varð hann fremsti menntamaður, og einn stærsti meistari enskrar tungu, sem nokkurntímann hefur verið uppi. Hann skrifaði ekki leikrit eins og Shakespeare, heldur eru verk hans pólitískar ræður, bréf og smásögur sagðar við kunningj- ana. 1 þessum myndum málsins birtist Lincoln, sem hinn stórkost- legi meistari í að túlka hugsanir sínar, hugsanir, sem virtust ná yfir óravíddir. Þannig fulikomn- aði hann enska tungu, svo að hún varð öðrum tungum hæfari til að túlka hugsjónir, skap og geð- brigði. Áhrif Abrahams Lincolns ná þó langt út fyrir hinn Engilsax- neska heim. Hann verður hvaðan úr heiminum sem menn líta til hans brautryðjandi lýðræðishug- sjónarinnar. Hann hafði forustu í því að afnema þrælahaldið í Bandaríkjunum, enginn harmaði það meira en hann, að slíkt skyldi kosta blóðsútheliingar og bræðra- ▼íg. En frelsi svertingjunum til handa var aðeins Htill þáttur í miklu víðtækari hugsjón um frelsi öllum mönnum og öllum þjóðum til handa, hvar sem þeir eru í ver- öldinni og hvaða litarhátt sem þeir bera. ★ ABRAHAM LINCOLN var stjóm málamaður, en hann var heiðarleg ur stjórnmálamaður. Allan stjórn- málaferil sinn var hann sjálfum sér samkvæmur. Hann varaði við því hve stjómmálamönnum hættir við því í harðskeyttri baráttu að taka upp óheiðarlegar aðferðir, hann fyrirleit lygar og sjálfshól, *n beitti stöðugri sjálfsgagnrýni ▼ið sjálfan sig og fylgismenn sína, jafnvel í öllum aðgerðum í hinni heitu og hatursfullu borgarastyrj- öld. Má rifja upp eina sögu um þetta: Einu sinni kom sendinefnd frá einu Norðurríkjanna til hans í borgarastyrjöldinni og hafði prestur einn orð fyrir henni. Hann lýsti þeirri von sinni, að Guð væri á bandi Norðurríkjanna. Lincoln •varaði strax. Það er ekki aðal- atriðið, hvort Guð er á okkar bandi, heldur hvort við erum á bandi Guðs. ★ HÉR Á EFTIR verða nú rakin í stuttu máli helztu æviatriði Abrahams Lincolns: Sem fyrr segir fæddist hann í rikinu Kentucky, sem er í Alleg- hany-fjöllum austarlega í Banda- ríkjunum. Föður hans farnaðist ekki vel þar og flutti hann sig því enn vestur á bóginn til Indiana og enn síðar til Iilinois í Miðríkjun- wm. 12 ára missir hann móður eína og í öllum uppvextinum vand- ist hann harðri líkamlegri vinnu, •kógarhöggi og landbroti. Honum ▼ar létt að tala og hlýða með at- hygli á það sem aðrir sögðu. Um skólagöngu var ekki að ræða í landi frumbýlinganna, en Lincoln elskaði bækur og las þær bækur upp til agna sem hann náði í. Fremsta kennalubók hans var Biblían, Róbinson Krúsó og sið- ar leikrit Shakespears. Hann tók fyrir að læra lögfræði af sjálf- um sér og fékk leyfi til að stunda málflutning í bænum Springfield í Illinois. ★ ABRAHAM LINCOLN ákvað ung ur að árum að gerast stjómmála- maður. Það virtist þó ekki liggja vel fyrir honum, því að hann var á yngri árum feiminn og ófram- færinn. Til skamms tíma hafa að- dáendur Lincolns viljað halda því fram, að hann hafi aldrei viijað troða sér fram í stjórnmálabar- áttunni. Rannsóknir á æviferli hans sýna þó að þetta er rangt. Hann stefndi markvisst að frama á stjórnmálasviðinu, en þurfti að beita þeim mun meiri sjálfsaga sem hann var óframfærinn að eðli. Máiflutning sinn í réttarsölum Springfields notaði hann til að fullkomna ræðuflutning sinn. Hann var ekki mikill lögfræðing- ur, en brábt fór að fara orð af mælsku hans. 1 Springfield bjó hann ásamt öðrum manni í einu litlu herbergi og varð það brátt samkomustaður ungra manna og vettvangur stjórnmálarifrildis. Þangað tíðk- aði meðal annars komu sína ann- ar ungur lögfræðingur í Spring- field Stephen A. Douglas, sem var demokrati meðan Lincoln var repu blikani. Rifust þeir oft langt fram á næstur um póltík, en brátt átti það rifrildi eftir að færast á æðri staði. Er mjög undarlegt hvernig örlög þessarra tveggja manna úr herberginu í Spring- field áttu eftir að fléttast saman og skapa örlagaríkan þátt í sögu Bandaidkjanna. ★ í SPRINGFIELD kvæntist Lin- ooln Mary Todd. Hann hafði ætíð verið óheppinn í kvennamálum sín um, enda mjög óframfærinn og ðlögulega vaxinn, 194 sentimetrar á hæð og mjór eins og þvengur. Mary Todd virtist fyrst ungra stúlkna skilja það, að fyrir þess- um unga manni myndi bíða mikill frami og frægð. Hún tók hann með trompi og e.t.v. hefur það haf t nokkur áhrif á hann, að giftingin styrkti hann pólitískt í Illinois, því að ætt henar var stór og áhrifa- mikil. Á seinni árum Lincolns varð kona hans honum mikil byrði, mjög eyðslusöm og glysgjöm og oft svo afbrýðisöm, að stappaði nærri geðveiki og olli hr.eykslun- um. Var fjölskyldulíf þeirra á margan hátt óhamingjusamt. ★ SVO snúið sé aftur að gtjómmála- ferli Lincolns þá var hann fyrst kosinn til þings Illinois og fór stöðugt meira orð af málsnilld hans. Eftir nokkur ár var hann kosinn til fu-lltrúadeildar Banda- ríkjaþings og fluttist til Washing- ton. Frægð hans sem ræðuskör- ungs jókst enn. Hins vegar fékk hann lítinn frama vegna þess, að hann var oft gagnrýninn og bein- skeyttur í orðum jafnt við sam- herja sem andstæðinga. I’ór áhugi hans á stjórnmálum nú dvin- andi um tíma. Þá gerðist það árið 1854, að demokratar og þar fremstur í flokki fyrrnefndur Stephan Dougl as, sem nú var einn helzti foringi demokrataflokksins fengu sam- þykkt í þinginu hin svonefndu Kansas-Nebraska lög. Deilurnar um þrælahaldið í Suð urríkjunum voru byrjaðar og þótti Norðurríkjamönnunum þrælahald- ið vera bandarísku þjóðinni til ævarandi svívirðingar. Stöðugt voru uppi kröfur um það meðal Norðurríkjamanna, að afnema þrælahald, þar sem það væri ó- samboðið menningarríki. En Suð- urríkjamenn stóðu fast gegn öll- um sMkum afskiptum af innan- ríkismálum þeirra. En með þessum lögum ætl- uðu Suðurríkjamenn að víkka stór lega út svæði þrælahaldsins. Með þeim var þrælahald leyft, ekki að- eins í Suðurríkjunum, heldur og í framtíðarlöndum bandarísku þjóðarinnar fyrir vestan Missi- ■■ ABRAHAM LINCOLN sippi. Óhemjuleg reiði breiddist út um Norðurríkin við samþykkt þess ara laga, því að ef þau fengju að standa óhögguð var hindruð út- færsla hinnar frjálsu stjórnskip- unar Norðurríkjanna og þá hefði þróunin orðið sú, að meirihluti hinna núverandi Bandaríkja hefðu orðið þrælaríki, eins og Suðurrík- in. ★ VIÐ ÞETTA vaknaði á ný stjóm- málaáhugi Lincolns. Stephen Douglas fór nú í leiðangur um í ■ 1 Wm Wæt3$WITwWs , skrifar úr daglega lífinu , Mjóu hælarnir ska'ræðisgripir MÖRGUM kann að finnast að mjóu tízkuhælarnir á skóm blessaðs kvenfólksins sé efni á kvennasíðu og það mál komi karlmönnum ekki við, hversu vel vakandi sem þeir eru. En þetta er mesti misskilningur, það sann- ar eftirfarandi dæmi. Maður nokkur hér í bænum sat eitt kvöldið eftir vinnutíma makindalega í hægindastól með dagblaðið sitt og naut þess að geta látið fara vel um sig, því öll kvöld undanfarin eitt eða tvö ár hafði hann rétt gleypt í sig kvöldmatinn og rokið svo í nýju bygginguna sína, smíðað, málað, lagt gólfdúka o. m. fl. langt fram á nótt. Nú sat hann semsagt inni í stofu í nýja húsinu, og í fjarska heyrðist malið í eigin- konunni og vinkonu hennar frammi í eldhúsi. En Adam var ekki lengi í Paradís. Konurnar kölluðu á hann fram í kvöld- kaffið, og þá uppgötvaði hann hræðilegan sannleika. Nýi, dýri gólfdúkurinn, sem hann hafði haft svo mikið fyrir að leggja, var alsettur smáum hringjum. Vin- konan hafði spígsporað um eld- húsið á dýrindis skóm með mjó- um málmhælum og sett för í allan dúkinn. Þetta varð til þess að maðurinn strengdi þess heit að hleypa engri konu framar inn £ húsið, fyrr en búið væri að skoða fótabúnað hennar og ganga úr skugga um að plöturnar væru ekki eyddar undan mjóu stál- hælunum. Lái honum það hver sem vill. Annars hefur kvenfólkið líka sína afsökun. Það á í stöðugu stríði við mjóu tízkuhælana. Séu þeir úr tré eða plasti eiga þeir það til að brotea á versta tíma, svo ekki er um armað að ræða en að hoppa á einum fæti á næstu bílastöð, ef hinn hællinn fer þá ekki líka undan þessum ofur- þunga, en séu þeir úr málmi með leðurplötu undir, er varia hægt að ganga á þeim í tvo daga, áður en komið er upp í máiminn, svo það er engu líkara en sá gamli með hófinn sé á ferð, þegar tízku- drósin kemur tiplandi eftir gang- stéttinni, og glymur í við hvert spor. Skóhlífarnar koma hér að engu gagni, því þessi spjót sting- ast fyrr en varir gegnum sólann eða út í gegnum skóhlífina til hlið ar, ef leðurplata er sett í hælinn. Velvakandi treystir sér ekki til að koma með neina tillögu til úr- bóta og dettur ekki í hug að hefja baráttu gegn mjóu hælun- um — því tízka* er herra sem lætur hlýða sér alveg skilyrðis- laust. Tæknilegir örðugleikar FYRIR nokkrum árum, senni- lega árið 1954 eða 1955, átti Velvakandi tal við símayfirvöldin um það, hvernig stæðiáþví aðnær hvergi væru almenningssímar í bænum og fékk þær upplýsingar, að það stafaði af smávægilegum tæknilegum örðugleikum í sam- bandi við sjálfvirka símakerfið eða eitthvað þess háttar. Hvernig sem það nú var, þá var því spáð að þessir tæknilegu erfiðleikar hlytu að leysast á næstunni, og þá væri hægt að fara að hugsa fyrir almenningssímaklefum. Nú eru semsagt liðin nokkur ár, alltaf er verið að stækka síma- kerfið, en ekki bólar á almenn- ingssímunum. Erlendis eru víða almenningssímar, svo einhvern veginn hefur þar veii* hægt að leysa hina tæknilegu hlið þessa máls. Almenningssímar, sem fólk hefur aðgang að fyrir vissa borg- un, eru nauðsynlegir, ekki gízt í bæ, þar sem fólk getur ekki feng- ið einkasíma þegar það þarf á hon um að halda. Símar í mjólkur- búðum og söluturnum geta ekki komil í staðinn fyrir símaklefa fyrir almenning. Þar er ekkert næði og þessi fyrirtæki eru ekki skyldug til að lána hverjum sem er síma. Er nú ekki rétti tíminn til að koma upp nokkrum almennings- símum, úr því unnið er að stækk- un bæjarkerfisins? heimaríki sitt Illinois til að skýr» afstöðu sína við setningu hinna nýju lag'a. En Lincoln fór í kjöl- far hans og svaraði honum með þrumandi ræðum. Frægust þeirra er ræða Lincolns í bænum Peoria 16. október 1854, sem er talin fyrsta stóra ræða hans. Upp úr þessu var republikana- flokkurinn stofnaður og komst Lincoln nálægt því að verða for- setaefni hans í kosningunum. 1 þeim forsetakosningum var demo- krati kosinn forseti. Ilom það í ljós að republikanarnir, andstæð- ingar þræ'.ahald'sins fengu tæpast nokkurt einasta atkvæði í Suður- ríkjunum og virtist þá sem svo myndi verða um alla framtíð, að republikani yrði ekki kosinn for- seti Bandaríkjanna. Hélt nú baráttan um þrælahald- ið enn áfrarn um skeið og gekk á ýmsu. Með samtökum republikana vestan Missisippi tókst að hindra útbreiðslu þess til þeirra héraða. ★ ÁRIÐ 1860 var rúncoln svo kjör- inn forsetaefni republikana og þann 6. nóvember sama ár, gerðist sá atburður, sem tíðindum þótti sæta, að Lincoln náði kosningu sem forseti Bandaríkjanna. Baráttan gegn þrælahaldinu hafði fyrst og fremst beinzt gegn útbreiðslu þess vestur á bóginn og það eru ekki líkur fyrir því, að Lincoln hefði sem forseti Banda- ríkjanna þegar beitt sér fyrir af- námi þess í Suðurríkjunuim. Hann skildi það, að slíkt væri ekki hægt að gera i einu vetfangi. En Suð- urríkjamenn voru skelfingu lostn- ir yfir því, að hið ótrúlega hafði gerzt, republikani hafði náð kosn- ingu, og hann var enginn annars en Abraham Lincoln helzti bar- áttumaðurinn fyrir afnámi þræla- haldsins. X UNDRUN Suðurríkjamanna og ótti yfir þessum atburði nægði einn til þess að ríkið Suður-Karo- lina ákvað þann 20. desember 1960 að segja sig úr ríkjasan.bandinu og á eftir fylgdu ellefu önnur ríki og mynduðu með sér Suður- ríkjasambandið. Hófst upp úr þvi hin ægilega borgarastyrjöld, sem hefur verið nefnd Þrælastríðið og stóð S 4 ár. Var það hlutverk Abrabams Linoolns að stjóma baráttu Norðurríkjanna í þeim hernaði. Hann hafði sigur en lengur varð honum ekki lífs auðið. Framih. á bls. 9.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.