Morgunblaðið - 15.02.1959, Blaðsíða 9
Sunnudagur 15. febr. 1959
MOKCTJffnLABIB
Ef maður kemst í góðan og ró
legan farveg rennur
maður í honum áfram
Spjallað við Kristin Pétuisson,
blikksmið, sjötugan
EINN af elztu og merkustu iðn-
aðarmönnum þessarar börgar
Kristinn Pétursson, blikksmiður,
er sjötugur á morgun. Hann er
Vesturbaeingur í húð og hár, fædd
ur á Vesturgötu 22, 16. febrúar
1879. Foreldrar hans yoru Anna
Bjarnadóttir frá Hafnarfirði og
Pétur Jonsson frá Skógarkoti í
Þingvallasveit. Kvæntur er Krist
inn Guðrúnu Ötiadóttur sern
einnig er hreinræktaður Vestur
ba irigur, fædd á Vesturgö'u 4L
sem ér á móti húsi þeirra hjón-
áni a.
í tilefni þessara merku tímamóta
í ævi Kristins, gekk tíðindamað-
ur MbL á fund hárs í gærmorgun.
Vrr hann þá við vinnu ?i:ia í
blikksmiðj unni á Ægisgötunni.
Býndi hann fýrst blikksmiðjuna,
sem er mikið fyrirtæki og vinna
þar nú um 30 manns. Skýrði Krist
inn svo frá, að þegar þeir bræður
Bjarni og hann hefðu tekið við
rekstri blikksmiðjunnar við lát
föður þeirra árið 1908, hefðu þeir
unnið þar við þriðja Og fjórða
mann. Þegar fyrirtækið stækk-
aði og skriftir jukust, tók Bjarni
þær að sér, en þeir bræður ráku
blikksmiðjuna í félagi unz Bjarni
lézt fyrir þremur árum.
— Þetta samstarf okkar bræðr-
anna Var mjög gott og þar bar
- Abraham Lincoln
Framh. af bls. 6
Þegar eygja mátti sigurinn yfir
Suðurríkjunum heyiðust há-
værar raddir um það I
Norðurríkjunum, að hnyktkja nú
á og láta grimmilegar hefndir
koma fram yfir Suðurríikjamönn-
um. Slíkt var þó Lincoln alger-
lega á móti skapi og hann tók
upp ákveðna baráttu gegn hatr-
inu og hefndarþorstanum. Þegar
hann átti að flytja hina miklu
aigurræðu eftir styrjöldina, flutti
hann undarlega og hjartnæma
ræðu, þar sem hann nefndi hvergi
orðið „sigur“ heldur eina þjóð,
sem nú yrði að binda um sárin.
Við þetta sljákkaði í þeim sem
vildu halda sigurhátíð. Það var
hin fræga ræða hans um „hefndar-
hug til einskis" (malice towards
none), en lokaorð hennar voru
þessi, eins og þau njóta sin bezt
á enskri tungu:
„With malice toward none;
■with charity for all; with firm-
ness in the right, as God gives us
to see the right, let us strive on
to finish the work we are in; to
bind up the nations wounds, to
care for him who shall have borne
the battle, and for his widow, and
hi,s orphan — to do all which
may achieve and cherish a just
and lasting peace among ourselves,
and with all nations".
EN LINCOLN átti ekki að auðn-
ast að koma á slíkum réttlátum
friði, því að þann 14. apríl 1865,
þegar hann var að horfa á leik-
sýningu í Ford-leikhúsinu réðst
Suðurríkjamaður einn inn í stúku
hans, dró fram skammbyssu og
skaut hann til bana. Morðinginn
hrópaði „Sic semper tyrannis" en
það þýðir „svo fer jafnan fyrir
harðstjórunum“. Er það mál
manna, að aldrei í veraldarsög-
unni hafi verið mælt óviðurkvæmi-
legri orð.
aldrei skugga á. Síðan bróðir
minn dó höfum við mágkona mín
rekið þetta í félagi. Hefur engin
breyting orðið önnur en sú, að
nú er Bjarni sonur minn framkv.-
stjóri og Pétur sonur minn er
yfirmaður á verkstæðinu ásamt
mér. Ég hef nú unnið við blikk-
smíði í rösk fimmtíu ár og hef
ég sjálfur gengið í vinnuna frá
fyrstu tíð. Maður hefur lengst
af staðið á steingólfinu og áður
fyrr var vinnudagurinn lengri en
nú tíðkast. Ég hef alltaf. haft
mikla vinnugleði og ég heid að
það sé það dýrmætasta sem nokk
ur maður getur öðlazt.
—. Áður fyrr var blikksmíðin
nokkuð árstíðabundin og sáralitið
að gera annað veifið. Það var
ekki fyrr en upp úr nýári sem
farið var að útbúa fyrir þilskipin.
Þá smíðuðum við dósir á haust-
irt og suðum niður fyrir bæj-
arbúa.
Kristinn segir mér, að betra
muni fyrir okkur að ræða saman
á heimili hans, en í hávaða blikk-
smiðjunnar. .Þegar við erum búnir
að koma okkur fyrir í þægilegum
stólum á vistlegu heimiíi þeirra
hjóna béini ég til hans nokkrum
spurningum um það, sem á dag-
ana hafi drifið.
—- Það er ekki frá mörgu merki
legu að segja. Maður hefur ekki
lent í mörgu og þeir erfiðleikar,
sem mætt hafa á lífsleiðinni fyrn
ast þegar frá líður, því tíminn
læknar öll sár. Ég vann þrjú ár
við verzlun áður en ég byrjaði
blikksmíðinni. Svo var ég tvo
vetur í Iðnskólanum. Þá var mað
ur líka að fikta við íþróttir í
æsku, en ég hætti því fljótlega,
því ég fór úr liði í öxlinni.
— Það var ekki mikill tími
til íþróttaiðkana á þeim árum.
Maður vann frá kl. 7,30 á morgn
ana til kl. 8 á kvöldin og fór
síðan út á Mela til að sparka
fótbolta. Ég lagði stund á knatt-
spyrnu, glímu og leikfimi og var
í öllum þremur félögunum, K. R.,
í. R. og Ármanni. Var ég einn
af stofnendum f. R. og raunar K.
R. líka, því K. R. var ekki stofnað
öðru vísi en að við komum saman
suður á Melum strákar frá 10
til 20 ára gamlir og lÖgðum sinn
25-eyringinn hver í fótbolta.
Frú Guðrún ber okkur kaffi og
undir borðum er spjallað um alla
heima og geima, en það spjall
var ekki ætlað til birtingar og
það verður ekki birt. Nokkrar
setningar langaT mig þó til að
hafa eftir Kristni, þvi mér finnst
þær lýsa ævi hans og honum sjálf
um samkvæmt þeirri augr.abliks-
mynd, sem ég fékk í gærmorgun.
Við ræddum um ýmsar venjur og
siði og hvernig menn biðu heim
einum vana eða óvana og gætu
svo ekki losað sig við hann. Þá
sagði Kristinn:
— Ef maður kemst í góð.m og
rólegan farveg rennur maður í
honum áfram, en þeir sem eru
svo óheppnir að lenda út af spor-
inu á unga aldri eiga oft erfitt
með að fóta sig eftir það.
Við ræðum um hlutverk ;.íTn-
aðarmannsins og um það segir
Kristinn:
— Það er gaman að sjá hlutina
skapast í höndunum og við iðn-
aðarmennirnir skiljum alltaf eftir
eitthvað af okkur sjálfúm í því,
sem við vinnum. Við viljum líka
frárhleiða góðá hluti, svo við get-
umí alitáf vefið þekkt-r fyrir að
meðganga það sem við höfum
gert. Ég vil geta .þess, að þrátt
fýrir mikla vinnúgleði hef ég allt
af hlakkað til að koma heim að
loknu dagsverki, enda átt góða
konu.oj? gott heimili.
Krisiinn .Péturssqn blikksmið-
Mr er ekki maður langskólageng-
inn/ Þó þarf ekki að ræða lengi
við hánn til að komast að raun
um að hann er vel sjálfmenntaður
og' Víðá heima í .bókmenntum. í
samtali okkar varð honum nokk-
uð tíðvitnáð til Ijóða Þorsteins
Erlingssonar og aðspurður sagði
hann .mér, að .hann .væri sitt
mesta eftirlætisskáld. En h'ann
hafði einnig á hraðbérgi stökur
og spákmæli eftir Stephan G.
Stephansson.
Ég þakL.. Kristní og konú hans
góðar veitingar og skemmtilegar
viðræður og óska þeim tii ham-
ingu með afmælisdaginn.
J H. A.
Nýjar gerðir Kanler«-
mjaðmabelti
SÁPUHÚSIÐ
Austurstræti 1.
. . 4
•VKIPAUTGCRÐ RIKISINS
HERÐUBREIÐ
austur um land tú Vopnaf jarðar
hinn 19. þ.m. — Tekið á móti flutn
ingi til Hornafjarðar, Djúpavogs,
Breiðdalsvik, Stöðvarfjarðar, —
Borgarf jarðar og Vopnafjarðar, á
morgun. — Farseðlar seldir á
miðvikudag. —
SKJALDBREIÐ
vestur um land til Akureyrar
hinn 20. þ.m. — Tekið á móti flutn
ingi til Tálkn-af jarðar, áætlunar-
hafna við Húnaflóa og Skaga-
fjörð og til Ólafsfjarðar á morg-
un. Farseðlar seldir á fimmtudag.
So/ex-
blöndungur fyrir
Ford Prefect
Ford, 4 cyl.r 1928—’£1
8'koda
Tatra
Fiat 1400
Standard
Rover
og fleira. —
P. Stefánsson hf,
Hverfisgötu 103,
VOLKSWAGEN
Nýlcomnir ýmsir hlutir fyrir
VOLKSWAGEN
Hillur undir mælaborð
Hillur aftan við aftursæti
Benzíninælar, margar gerðir
Vaeuuinnmælar
Slundaklukkur
Flauluhringar
Flaulur (lúðrar)
Aurhlífar, ný gerð
Brettahlífar, aftan og fram-
an
Felgultringir
Rúðuþveglar, rafknúnir og
venjulegir
Gólfinottur, ýmsar gerðir og
litir
Hlifar á stuðarajárn
Krómlistar á þakrennur
Lásar á gírstiing og stýri, sem
útiloka að bílnum verði
stolið
Nýjasta gerS stefnuljósa
(Blossaljós)
Vindlakveikjarar
Krómhlífar undir hurðar-
handföng
Aukasólhlífar, inni
Farangursgrindur
Benzínbrúsar
PSlefúnsson fiL
| Hverfisgötu 103
ÞÓRARINN JÓNSSON
LÖGGILTUR DÓMTÚLKUR OG
SKJALAÞÝÐANDI í ENSKU
KIKKJUHVOLI— SÍMI 186S5.
9
l\iýjar vörur
\lýtt verð
flvítir stórisar
með blúndu, í breiddum 90
cm., 95 cm., 115 cm., 120
cm., 170 cm. — Verð frá
35,75 m. —
Gardínutau abstrakt-
munstrað
Sérlega falleg. — Verð
24,95, breidd 120 cm.
Hvítt, röndótt damask
Sérlega fallegt og gott. —
Breidd 140 cm. kr. 27,50 nt.
Mislitt, röndótt damask
blátt, bleikt og grænt. —
Breidd 140 cm, kr. 30,65 m.
Lakaléreft
vaðmálsvend. Sérlega gott.
Breidd 140 cm., 23,85 m.
ýmá-köflótt
ikyrtu-flúnel
tilvalið í drengjaskyrtur. —
Breidd 80 cm, kr. 15,70 m.
5 mismunandi gerðir.
Kjólaefni
Margar gerðir. Tilvalin í
fermingarkjóla. — Verð frá
kr. 55,85 m.
Dívanteppi
Margar gerðir. — Verð frá
kr. 115,00.
Blúndudúkar og dúllur
Margar gerðir. — Verð
frá kr. 8,65 stk.
Sófapúðar, uppsettir
Verð frá 129,00.
Sldhúsgardínutau
með pífu
Breidd 80 cm., 15,00 m.
Eldhúsgardínutau
með búsáhalda-munstri. —
Breidd 80 om, kr. 29,00 m.
Baðmullargarn
I hnotum og hespur. Marg-
ir litir. Lágt verð.
Hvítt vatt
Breidd 90 cm., mjög gott. —
kr. 10,50 m.
Sportsokkar
á telpur og drengi. Allar
stærðir. Mjög fallegir. Verð
frá 12,20 parið.
Dömu fingravettlingar
Sérlega góðir og fallegir. —
Verð frá 41,10 parið.
Fyrir fermingu
Hvít l>lóm
Hvítir hanzkar
Hvítar slæður
Hvítir vasaklútar
Bútasala
næstu duga. —
Vörur sendar gegn
póstkröfu hvert á land sem
er. — Sími 16804.
Verzl. Anna
Gunnlaugsson
Laugavegi 37.