Morgunblaðið - 15.02.1959, Side 17
Sunnudagur 15. febr. 1959
MORCTllSfíLAfílÐ
17
Baráltan innan
kommúnistaflokk-
anna verður þeim
sagði ungverski rithöíundutinn Tamas
Aczel í gær
UNGVERSKI Stalinverðlauna-
höfundurinn Tamas Aczel flutti
í gær fyrirlestur á vegum
Frjálsrar menningar í Sjálfstæð-
ishúsinu og talaði um vonbrigði
ungverskra rithöfunda yfir
kommúnismanum.
Aczel hóf mál sitt með því að
draga upp mynd af ástandinu í
Ungverjalandi eftir fyrri heims-
styrjöldina, þegar lénsbarónar
og fasistar réðu þar lögum og
lofum. Menntamenn, rithöfund-
ar og æskumenn yfirleitt voru af
eðlilegum ástæðum vinstrisinn-
aðir. 1 seinni heimstyrjöldinni
fylktu ungir rithöfundar sér und-
ir vígorð kommúnismans, af því
þeim fannst sósíaldemókratar of
reikulir í ráði og máttlausir.
Þessir ungu rithöfundar og raun-
ar æskumenn yfirleitt trúðu í
einlægni, að kommúnisminn
mundi ráða bót á ástandinu og
tryggja betri framtíð.
Rajk-réttarliöldin voru
upphafið
Tíu árum síðar snerust flestir
þessara manna gegn flokki sín-
um, eftir að þeir höfðu lifað eitt
mesta kúgunartímabil í sögu
landsins. Hvað hafði gerzt?
Á Vesturlöndum eru menn vel
kunnugir hinni frækilegu
baráttu Ungverja í uppreisninni
1956, en menn vita minna um
hinn eiginlega undanfara hennar,
baráttuna í sjálfum kommúnista-
flokknum, sem hófst fyrir alvöru,
þegar hin margumtalaða hláka
gekk yfir kommúnistaheiminn.
Ungir höfundar höfðu helgað
flokknum alla krafta sína, vegna
þess að þeir trúðu á framtíðina
og yfirlýst markmið flokksins.
En svo gerðust einkennilegir at-
burðir. Árið 1949 var einn kunn-
asti og valdamesti leiðtogi komm-
únistaflokksins, Rajk, dæmdur
fyrir njósnir og líflátinn. Rajk
hafði stjórnað neðanjarðarhreyf-
ingu flokksins á stríðsárunum,
meðan Rakosi sat í Rússlandi,
hann hafði verið leiðtogi ung-
versku hersveitarinnar í spænsku
borgarastyrjöldinni. Nú kom
hann fram fyrir dómarann eftir
stutta fangelsisvist og játaði á sig
ótrúlegustu sakir. Réttarhöldin
voru opinber, og var mikið veð-
ur út af þeim bæði í blöðum og
útvarpi. Þau ollu miklum von-
brigðum í landinu, enda voru
þetta fyrstu sýndarréttarhöldin,
og þau urðu upphaf ógnatim-
ans.
Grunsemdir þaggaSar nið'ur
Ungu rithöfundarnir van-
—Spurning dagsins
Framh. af bls. 4
og sýnt sig í verkunum; því verð
ur ekki neitað, hvernig sem menn
annars líta á trúariðkanir þeirra.
En landinn segir við því aðeins:
Þeir eru ekki eins og fólk er flest,
og það mun rétt vera.
Þetta má víst ekki lengra vera,
þótt margt sé ósagt. En ástandið,
sem nú var lýst, mun haldast að
mestu í tíð núlifandi kynslóðar,
hvað sem síðar verður. Ég er
gamall fríkirkjusinni, í hugsun,
en hefi nú undanfarna áratugi
unnið að eflingu þessara mála í
þjóðkirkjunni, eins og mörgum
mun kunnugt. Ef óáran heldur
áfram í mannfólkinu, er ekki að
vita nema hún leysist upp og
frjáls kirkja taki við í „frjálsu
landi“ og fái afhentan sinn
mikla skerf, sem hún á inni hjá
ríkinu?.
treystu samt ekki flokknum og
leiðtogunum, sagði Aczel. Þeir
trúðu því sem fram kom í rétt-
arhöldunum, og ef upp komu efa-
semdir, voru þær þaggaðar nið-
ur. Ár ógnanna og þagnarinnar
fóru í hönd. Aczel var blaðamað-
ur og ferðaðist um landið; hann
sá hvað var að gerast, fólk var
fyrirvaralaust fangelsað, flutt
burt eða drepið, en hann hélt að
þetta væru mistök einstakra
flokksmanna, og því sendi hann
miðstjórn flokksins kvartanir og
ábendingar, en þeim var aldrei
svarað. Hann trúði enn á kenn-
inguna, en hélt að framkvæmd
hennar væri í ólestri vegna
slæmra leiðtoga. En hvarvetna
varð hann var við óttann hjá
fólkinu. Það neitaði að tala, þó
það væri vingjarnlegt og bros-
milt.
Versta afturhald sögunnar
Hver var ástæða þess að við
sáum ekki hvað raunverulega
var að gerast? spurði Aczel. Hún
var sú að við vorum einangraðir.
Við vorum riddarar hinnar nýju
valdastéttar, lifðum í fallegum
húsum, ókum góðum bílum og
töluðum og skrifuðum fyrir
munn fólksins, sem við lifðum
á. En við vorum algerlega ein-
angraðir og vissum ekkert hvað
gerðist með þjóðinni.
að fjörtjóni
Valdastéttin átti rætur sínar í
lægri stéttum þjóðfélagsins, en
jafnskjótt og byltingarsinnarnir
komust til valda urðu þeir aftur-
haldssamari og sinnulausari en
nokkur önnur stétt fyrr eða síð-
ar. Þetta var eins konar við-
hafnarmikill dauði, sagði Aczel.
Við vorum ófrjóir, hugsuðum
enga nýja hugsun, áttum enga
ferska tilfinningu. Við vorum að-
eins áróðursmenn og trúboðar,
og það sem við skrifuðum var
bæði ósatt og fyrir neðan allar
hellur bókmenntalega.
Byltingu afstýrt
Svo kom dauði Stalins 1953 og
skömmu síðar uppreisnin í Ber-
lín. í valdastétt Sovétríkjanna
urðu ýmsar breytingar. Valda-
mennirnir sáu ýmis uggvænleg
merki við sjóndeildarhringinn.
Nokkrir helztu leiðtogar ung-
verskra kommúnista voru kvadd
ir til Moskvu, þar sem Rakosi
var skammaður blóðugum
skömmum, m. a. af Beria, sem
viku síðar var fangelsaður. Nið-
urstaðan varð sú, að Imre Nagy
var gerður forsætisráðherra í
stað Rakosis, sem var áfram
framkvæmdastjóri flokksins. —
Hér er að finna rætur uppreisn-
arinnar, sem var gerð löngu síð-
ar. Landið var þegar á þessum
tíma á barmi byltingar, en Rúss-
ar fundu það á sér og komu í
veg fyrir hana með því að gera
breytingar á forustunni.
Ný viffhorf
Undir stjórn Nagys hófst nýtt
skeið. Rithöfundarnir sáu nú, að
grunsemdir þeirra höfðu verið á
rökum reistar, og þeir hófu bar-
áttuna innan flokksins. Þeir
komust í nánari snertingu við
líf fólksins og skrifuðu um það,
eins og þeim fannst réttast og
sannast. Þeir veigruðu sér ekki
heldur við að lýsa ógnaröldinni,
sem ríkt hafði áður. Þetta olli
miklum viðsjám innan flokksins,
en foringjarnir fengu við ekkert
ráðið. Nagy var mjög góðgjarn
og réttsýnn maður, hann var
fyrst og fremst búfræðingur og
vísindamaður, en lítill stjórn-
málamaður og ekki mikill leið-
togi. Hann átti samt stærri þátt
í undirbúningi byltingarinnar en
nokkur annar einstaklingur.
Fangelsin opnuff
Nú gerðust nefnilega þeir at-
burðir, sem voru eiginlega síð-
asti hlekkurinn í orsakakeðjunni.
HESTAMANNAFÉLAGIÐ
FAKUR
Ársnatíð
félagsins
verður haldin laugardaginn 21. febr. í Tjarnarcaft- •
hefst með borðhaldi kl. 7 e.h.
Skemmtiatriði :
1. Ávarp.
2. Skemmtiþáttur Fáks-félaga eftir Guðmund-
Sigurðsson. Flytjendur: Sigurffur Ólafsson,
Árni Tryggvason og Brynjóifur Jóhannes-
son.
3. Einsöngur: Guðmundur Jónsson, ópern-
söngvari, með undirleik Fritz WeisshappeL
4. Dans.
Aogangskort verða afhent í skrifstofu félagsins, Smiðju-
stíg 4 og hjá Kristjáni Vigfússyni, Lindargötu 26 á morg-
un og næstu daga.
SKEMMTINEFNDIN
Fangelsin og þrælabúðirnar voru
opnaðar, og út kom fólkið sem
þar hafði setið og var mörgum
okkar gleymt. Margir þessara
manna voru persónulegir vinir
rithöfundanna, og þeir sögðu
sögur af reynslu sinni. Janos
Kadar var meðal þeirra sem
sögðu Aczel ófagrar sögur af
pyndingum og svívirðingum ógn-
arskeiðsins. Aldrei fyrr í sögu
Ungverjalands höfðu böðlarnir
verið jafn önnum kafnir.
Heilög reiffi
Þegar við heyrðum þessar sög-
ur, sagði Aczel, fylltumst við
reiði, hatri og skömm, bæði í
garð flokksins og I garð okkar
sjálfra, því við höfðum átt þátt
í öllum þessum hörmungum, þó
við gerðum okkur þess ekki fulla
grein. Við vorum fylltir sams
konar heilagri reiði og þeirri,
sem upphaflega fékk okkur til
að ganga í kommúnistaflokkinn.
Nú beindist þessi reiði gegn
þessum sama flokki. Og þetta
varð upphaf einhverrar hörð-
ustu baráttu í ungverskum bók-
menntum. Við vorum kallaðir
fyrir flokksforingjana og okkur
var hótað öllu illu, en þegar
þeir komust að raun um að við
vissum allt sem þeir höfðu alltaf
vitað, þá var ósigur þeirra vís.
Hættulegasta fyrirbæriff
Þessi misklíð innan valda-
stéttarinnar og flokksins er
hættulegri en nokkuð annað fyr-
ir hið kommúníska skipulag. Það
eru meðlimir valdastéttarinnar,
menntamenn, vísindamenn og
rithöfundar, sem á endanum
munu gera út af við flok.kinn, en
ekki kjarnorkusprengjan. Þetta
kann að taka langan tíma, en
það gerist fyrr eða síðar. Bar-
áttan við „endurskoðunarstefn-
una“, sem nú er háð um allan
heim, er talandi tákn um þetta.
Ef til vill er það veigamesta af-
leiðing ungversku byltingarinn-
ar að veikleikar kommúnista-
flokksins komu fram í dagsljósið,
að það varð lýðum ljóst, að sjálf
hin innri rök kommúnismans
leiða ævinlega til kúgunar og
upplausnar, sagði Tamas Aczel
að lokum.
Stutt ávarp
Þegar Aczel hafði lokið máli
sínu, ávarpaði Sigurður A
Magnússon blaðamaður hann
nokkrum orðum á ensku, en
flutti síðan stutt ávarp á ís-
lenzku til fundarmanna, þar sem
hann ítrekaði merkingu ung-
verska blóðbaðsins fyrir okkur
Islendinga.
Borðstofuhúsgögn
úr tekki, mahony, eik og birki. Kommóður og bóka-
hillur.
Lágt verð, góðir greiðsluskilmálar.
3 HÚSGAGNAVERZLUN
Guðmundar Guðmundssonar
Laugaveg 166
Kópavogur
Skemmtifundur
.Sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi verður í Breiðfirð-
ingabúð þriðjudaginn 17 þ.m. og hefst kl. 20,30.
D a g s k r á :
Félagsvist.
Ávarp: Sveinn Einarsson
D ANS
Skemmtinefndin
■ Örðsending
frá Bólsturgerðinni
Skipholti 19.
Höfum nú aftur á boðstólum eftirtalin úrvals húsgögn
Sófasett útskorin, — Hringsófasett, — Armstólasett,
Sett með póleruðum sökkli, — Létt sett,
Svefnsófar, — Stakir stólar.
Tekk húsgögn:
Borðstofusett, — Sófaborð 3 gerðir, mjög ódýrt
Kringlótt borð, afar falleg.
Ú r mahoný:
Kringlótt borð með ópal gleri, 4 stærðir,
Skókassar.
Öll okkar húsgögn seljast með afborgunum, ef óskað er
Greiðsluskilmálar eftir samkomulagi.
Sendum gegn póstkröfu um land allt.
Bólsturgerðin h.f
Skipholti 19 — Sími 10388