Morgunblaðið - 24.02.1959, Síða 18
18
MORGl’NBLAÐI»
Þriðjudagur 24. febr. 1959
Úr skýrslu
framgang
aðarþing
ANNAR fundur búnaðarþings
var haldinn í gær. Var þar sam-
þykkt eitt kjörbréf og lögð fram
3 ný mál. Búnaðarmálastjóri
flutti skýrslu um framgang mála
þeirra er siðasta búnaðarþing
samþykkti. Að siðustu flutti Ey-
vindur Jónsson erindi um reynslu
bú.
í upphafi ræðu sinnar bauð
búnaðarmálastjóri þingfulltrúa
velkomna til starfa. Þetta væri
fyrsta búnaðarþing eftir nýjar
kosningar. Væru því nokkrir nýir
menn á þessu þingi, en aðrir
hefðu horfið. Bauð ræðumaður
nýja fulltrúa velkomna en þakk-
aði þeim, er nú hættu þingsetu,
vel unnin störf.
Öll búnaðarsambönd
fengið ráðunauta
Búnaðarmálastjóri gat þess að
nú hefðu öll búnaðarsambönd
landsins fengið ráðunauta í þjón-
ustu sína. Þá drap hann nokkuð
á ósk Búnaðarsambands Skagfirð
inga um að fá að ráða til $ín
vélaráðunaut með sömu kjörum
og aðrir ráðunautar hefðu. Kvað
hann vilja stjórnarinnar _ að
greiða fyrir því að vélaráðunnaut
ar fengjust.
Þá vé'k búnaðarm:lastjóri að
einstökum málum er afgreidd
voru frá búnaðarþingi í fyrra.
Vegna samþykktar um athug-
un á kalkþörf ræktarlanda kvað
ræðumaður stjórnina hafa snúið
sér til Tilraunaráðs jarðræktar
en á vegum þess færi nú fram
rannsókn á þessu sviði og yrðu
niðurstöður birtar, er ráðið teldi
það fært.
Um erindi varðandi kornrækt,
þar sem lagt var til að stjórn
B.í. hlutaðist til að frumvarp til
kornræktarlaga væri lagt fyrir
Alþingi, kvað búnaðarmálastjóri
það mál vera í athugun enn.
Vegna samþykktar um inn-
flutning varahluta til landbúnað-
arvéla, var bæði landbúnaðar-
ráðuneytirtu og innflutningsskrif
stofunni skrifað og haldið uppi
munnlegum áróðri fyrir þessu
máli. Það mundi hafa borið nokk
urn árangur. Hins vegar yæri
þetta mikið vandamál.
| Ræktun holdanauta
Vegna samþykktar um ræktun
holdanauta kvað ræðumaður all-
mikið hafa verið unnið að mál-
inu undir stjórn þeirra Ólafs
Stefánssonar og Halldórs Páls-
sonar. Byrjunarframkvæmdir
vegna þessa máls mundu kosta
12—1300 þús. kr. og væri fyrir-
hugað að deila þeim kostnaði nið
ur á þrjú ár. Farið hefði verið
fram á það við Alþingi að veitt
yrði á fjárlögum framlag til til-
raunabús í holdanautarækt.
Frumvarp til laga um álag til
— Minning
Framh. af bls. 12.
Hann andaðist 8. febrúar 1959
og fór útför hans fram í gær.
Sár harmur er kveðinn að hans
nánustu svo og kunningjum hans
og vinum.
Þó að Sigurður virtist stundum
hrjúfur í fasi, skein alltaf í ljúf-
rnennið undir niðri.
Reykjavikurbær mun æ minn-
ast hans með þökk, sem eins er
byggði þessa borg, og sumir munu
kannski raula fyrir munni sér
við og við það, sem einu sinni
var til hans kveðið:
Ég er ekki í villu að vaða,
víst er það að rétt ég sé.
Milli hárra húsaraða
hillir undir Sigga P.
18. febrúar 1959.
B. Th.
Frá Búnaðarþingi:
búnaðarmálastjóra um
mála er síðasta bún-
afgreiddi
eflingar hagfelldri áburðarnotk-
un þar sem gert er ráð fyrir Vi %
álagi á heildsöluverð áburðarins
og tvöfalt hærri upphæð frá ríkis
sjóði. Frumvarpið var sent land-
búnaðarráðuneytinu, en hefir
ekki enn verið lagt fram á Al-
þingi.
Tillögur um búnaðarháskóla
voru sendar landbúnaðarráðu-
neytinu og eftirgrennslun um
framgang þess máls ítrekuð í
haust. Engin skrifleg svör hafa
fengizt og frumvarp ekki verið
lagt fram á Alþingi um málið.
Frumvarp til laga um útflutn-
ing hrossa var afgreitt á Alþingi
með nokkrum breytingum frá því
er Búnaðarþing afgreiddi það og
breytingar hafa verið gerðar á
því síðan að ósk hrossaræktar-
ráðunauts.
Frumvarp til laga um jarðhita
dagaði uppi á Alþingi í fyrra og
hefir ekki verið lagt fram á ný.
Vegna tillögu um breytingu á
girðingarlögunum gat búnaðar-
málastjóri þess að nefnd væri
tekin til starfa, er vinna mundi
að enlurskoðun þeirra laga.
Tillaga um eftirgjöf harðinda-
lána var afgreidd til Alþingis.
Elliheimili í sveit
Vegna ályktunar um stofnun
elliheimila í sveitum var öllum
sýslufélögum landsins skrifað um
málið og hafa svör borizt frá um
helmingi þeirra. Stjórnin teldi
rétt að málið yrði tekið fyrir í
nefnd að nýju og srörin athuguð.
Vegna erindis um vistun fólks
til bústarfa var ráðinn nýr starfs-
í TILEFNI þess að Glímufélagið
Ármann heldur nú hátíðlegt 70
ára afmæli sitt verður efnt tii
sundmóts í kvöld í Sund-
höll Reykjavíkur. Undanfarin 32
ár hefur starfað sérstök sund-
deild innan félagsins og hafa á
því tímabili komið fram margt
góðra sundmanna og sundkvenna.
Einnig hefur það átt mjög góðum
sundknattleiksmönnum á að skipa
nú um áratuga skeið. Á sundmót-
inu í kvöld verður keppt
í 8 einstaklingssundum og tveim
boðsundum. Keppnisgreinar eru
100 metra skriðsund karla, þar
mætast meðal annars Pétur Krist-
jánsson fyrrverandi methafi og
Guðmundur Gíslason núverandi
methafi, í 100 metra skriðsundi
kvenna eru 5 keppendur og þar á
meðal Ágústa Þorsteinsdóttir, í
200 metra bringusundi karla verð
ur mjög skemmtileg keppni eins
og ávallt áður. í 50 metra bringu-
sundi kvenna keppa m.a. Hrafn-
hildur Guðmundsdóttir ÍR og Sig-
rún Sigurðardóttir úr Hafnarfirði
en sú fyrrnefnda setti met á síð-
asta móti. Auk þess verður keppt
í 50 metra baksundi kvenna, 100
metra bringusundi drengja, 100
metra baksundi karla og 50 metra
skriðsundi drengja en í unglinga-
sundunum koma til keppni margt
efnilegra unglinga. Boðsundssveit
ir keppa í 4x50 metra fjórsundi
ÍÞRÓTTAFÉLAG Menntaskólans
á Laugarvatni hélt innanfélags-
mót í frjálsíþróttum innanhúss sl.
laugardag. Keppt var m.a. í há-
stökki án atrennu og þar keppti
sem gestur Vilhjálmur Einarsson
ÍR.
Vilhjálmur sem nú er skóla-
stjóri héraðsskólans að Laugar-
vatni náði geysigóðum árangri.
karla og 4x50 metra skriðsundi
kvenna. Er ekki að efa að góður
árangur náist í harðri og tvísýnni
keppni í kvöld. Sundæf-
ingar hjá Sunddeild Ármanns eru
NORÐURLANDAMEISTARA-
MÓT í handknattleik kvenna (ut-
anhúss) fer fram í Þrándheimi
(og nágrenni) í Noregi og hefst
19 .júlí. Ákveðið er að landslið
íslands taki þátt í keppninni og
verður það í annað sinn er ísl.
kvenfólk tekur þátt i Norður-
landakeppni í handknattleik.
Undirbúningur undir utanför
stúlknanna er hafinn fyrir all-
löngu og hafa þær stundað auka-
æfingar af miklum áhuga. HSÍ
hefur nú valið 21 stúlku til sér-
stakra æfinga og í maíbyrjun verð
ur endanlegt landslið og vara-
stúlkur valdar úr þeim hópi.
Stúlkurnar 21, sem valdar hafa
verið til æfinganna eru þessar:
Gerða Jónsdóttir, María Guð-
mundsdóttir, Guðlaug Kristins-
dóttir, Perla Guðmundsdóttir,
Erla ísaksen, Inga Magnúsdóttir,
Hrönn Pétursdóttir, allar úr KR.
Sigríður Lúthersdóttir, Rut Guð-
Hann stökk 1,68 metra, sem er
nýtt ísl. met. Það gamla var 1,66
og átti hann það.
Þessi árangur Vilhjálms er
næst bezti árangur sem náðst
hefur í þessari grein í heiminum.
Heimsmetið á Norðmaðurinn Ev-
andt 1,73 m. Þess má geta að
Vilhjálmur var mjög nærri því
að fara yfir 1,71 metra.
á þriðjudögum og fimmtudögum
frá kl. 7.00—8.30 og sundknatt-
leikur á mánudögum og miðviku-
dögum frá 9.50—10.40. Þjálfari er
Ernst Backman.
mundsdótir, Þuríður Kjartans-
dóttir, Þórunn Erlendsdóttir, Jóna
Bárðardóttir, Liselott Oddsdóttir,
allar úr Ármanni. Frá Fram hafa
verið valdar Olína Jónsdótir,
Ingibjörg Hauksdóttir og Ingi-
björg Jónsdóttir. Frá Þrótti:
Helga Emilsdóttir, Katrín Gúst-
avsdótir. Frá Val: Sigríður Sig-
urðardóttir. Frá Víking: Þórunn
Pétursdóttir. Frá ísafirði: Stein:
unn Annasdóttir. Átta þessara
súlkna voru með í landsliðsför-
inni á Norðurlandamótið 1956.
Undanfarnar vikur hafa stúlk-
urnar æft saman sem fyrr segir.
Hafa æfingarnar verið einu sinni
í viku á vegum HSÍ, en auk þess
hafa stúlkurnar æft hjá sínum
félögum. Nú verða upp teknar
úthaldsæfingar og strax og veð-
ur leyfir verður æfingum enn
fjölgað og útiæfingar upp tekn-
ar.
í Norðurlandamótinu, sem
stúlkurnar fara til, taka þátt Dan
ir, sem eru núverandi Norður-
landameistarar kvenna, Svíar og
Norðmenn ,áuk ísl. stúlknanna.
Finnar senda ekki lið að þessu
sinni.
ísl. stúlkur tóku fyrst þátt í
þessu móti 1956. Þá voru öll
Norðurlandaliðin með. ísland
hafnaði þá í 4. sæti, vann Finn-
land, en tapaði fyrir Dönum, Sví-
um og Norðmönnum, Leikur liðs-
ins þá vakti athygli og þá áunnu
stúlkurnar sér reynslu sem koma
mun þeim að góðu haldi í mótinu
í sumar.
HSÍ hefur skipað landsliðs-
nefnd fyrir kvennaflokkinn.
Hana skipa Valgeir Ársælsson,
form. og Frímann Gunnlaugsson
I og þjálfar Frímann liðið.
Vilhjálmur náði öðrum
bezta árangri í heimi
/s/. stúlkur á Norður-
landamót í handknattleik
maður % hluta ársins Gísla Krist
jánssyni til aðstoðar. Bauð bún-
aðarmálastjóri hinn nýja starfs
mann Ingólf Þorsteinsson, vel-
komin til starfs. Um annan lið
þessa erindis, er fjallar um að
endurskoðun fari fram á vinnu-
hjúalöggjöfinni, var ekkert að
segja. í því máli hefði ekkert
verið unnið enn.
Erindið um búfjártryggingar
hafði verið kynnt í Frey og
hreppabúnaðarfélögunum skrif-
að um málið. Enn hafði ekki kom
ið nema eitt svar, en á þessu
ári mætti hins vegar vænta að
fyrir lægi hver væri raunveru-
legur vilji bænda í þessu.
Erindi yfirdýralæknis um
slátrun stórgripa o.fl. hefir verið
til afgreiðslu hjá Framleiðslu-
ráði landbúnaðarins.
Innfl. á ómöluðu korni
Búnaðarmálastjóri kvað all-
mikið hafa verið gert vegna er-
indis um innflutning á ómöluðu
korni. Þetta væri stærra og viða-
meira mál en menn hefðu al-
mennt gert sér grein fyrir. Leit-
að hafði verið til fóðurfræðings
Atvinnudeildar Háskólans, Pét-
urs Gunnarssonar. 'Hefði hann
farið til Danmerkur og kynnt sér
málið. Lægi skýrsla hans fyrir.
Einnig hefði erindið verið sent
SÍS og Innflytjendasamtökun-
um. SíS hefði unnið talsvert að
málinu og svar væri væntanlegt
frá Innflytjendasamtökunum.
Vegna erindis um reynslubú
hafði búnaðarsamböndunum ver-
ið skrifað, en aðeins fá svör bor-
ist. Þá hafði Eyvindur Jónsson
farið utan og m.a. kynnt sér
þessi mál á Norðurlöndum.
Frumvarp um sauðfjárbaðanir
væri nú til afgreiðslu á Alþingi.
Tillaga til þingsályktunar varð
andi byggðasöfn send mennta-
málaráðherra en ekkert verið
gert í málinu enn.
Frumvarp til laga um varnir
gegn útbreiðslu kartöfluhúðorms
o. fl. er ekki enn orðið að lögum.
Ræktun og útflutn. hrossa
Um framgang tillögu til
þingsál. varðandi ræktun og út-
flutning hrossa. Ekki hafði tekizt
að fá Gunnar Bjarnason leystan
frá kennarastöðu, eins og óskað
var. . Tamninganámskeið væru
starfandi á bændaskólunum,
á Akureyri, í Skagafirði og víðar.
Vegna áskorunar til SÍS að
gangast fyrir útflutningi hrossa
hafði verið gerð ein tilraun af
hálfu sambandsins og af því til-
efni hefði Gunnar Bjarnason
m.a. farið utan. Hreyfing væri
talsverð á þessu máli og teldi
hrossaræktarráðunautur ástæðu
til bjartsýni um framgang þess.
Végna tillögu um aukna veður-
þjónustu væri nú unnið að athug
un á breytingu í þessu efni. Ætti
fulltrúi frá búnaðarsamtökunum
hlut að þeirri athugun.
Frumvarp til umferðarlaga
hefði verið afgreitt frá Alþingi.
Vegna hinna geigvænlegu slysa
við akstur dráttarvéla mundi
Þórður Runólfsson öryggismála-
stjóri flytja erindi um þetta mál
á yfirstandandi búnaðarþingi.
Vegna tillögu um aðild B.í. að
Evrópska búfjárræktarfélaginu
samþykkti stjórnin að gerast aðili
að því að leggja fram í því skyni
6000 kr. ársframlag.
Tillaga til þingsál. um áburð-
arframleiðslu. Ekki væri hægt
að vænta aðgerða fyrst um sinn
í því máli vegna rafmagnsskorts.
Tillaga til þingsál. um útrým-
ingu mæðiveiki í fjárskiptahólfi
Suður-Dala og víðar vísað til
sauðfj ársj úkdómanef ndar.
Hér hefir í fáum dráttum verið
drepið á flest þeirra mála er
búnaðarmálastjóri taldi ástæðu
til að gefa skýrslu um, en alls
afgreiddi síðasta búnaðarþing 41
mál.
Að lokinni ræðu búnaðarmála-
stjóra flutti Eyvindur ráðunaut-
ur erindi um reynslubú og lýsti
þeim kynnum, er hann hefði haft
af þeim á Norðurlöndum s.l. sum
ar. Nánar verður frá því erindi
sagt síðar.
Næsti fundur búnaðarþings
verður á morgun og hefst kl.
9,30.