Morgunblaðið - 14.04.1959, Page 22

Morgunblaðið - 14.04.1959, Page 22
22 htojtnrmnr 401 n Þriðjudagur 14. apríl 1959 Hafnarfjörður Fermingarbörn! — Tek myndir í kvöld og n. k. þriðjudags- kvöld. — ANNA JÓNSDÓTTIR Nýkomib Kjólatvíd Kjóla-frolle Margir litir. VÍK Laugavegi 52. Hjólbarðar «g slöngur fyrirliggjandi. — 640x13 450x15 560x15 600x15 670x15 710x15 475x16 500x16 525x16 550x16 600x16 og jeppa 450x17 165x400 750x20 825x20 900x20 1000x20 COLUMBUS h.f. Brautarholti 20. Rýmingarsalan Hvítir næJon sloppar. Morgun- kjólar og sloppar. Úlpur, stutt- jakkar. Blússur. peysur, pils. Barnakjólar. — Efni í .úrvali. Vesturgötu 3. ÓIIÍRT TÖkum upp í dag hinar eftir- spurðu Karlmannaskyrtur vero akins 65,- tvíd Karlmannanáttföt 106,- settið Notið tækifærið, því um tak- markaða birgðir er að ræða. LT SKÓUVOlBISTIt 22 Alberf Cuðmundsson kjörinn form. ÍR Clœsilegur árangur* ÍR-inga í öllum greinum á s.l. ári Sigurgeir Sigurjónsson haeRtaréttarlögmaftur. AðalstræU 8. — Simi 11043. AÐALFUNDUR íþróttafélags Heykjavíkur var nýlega haldinn. Urðu þá formannaskipti í félag- inu. Jakob Hafstein baðst undan endurkosningu eftir 5 ára starf sem formaður félagsins. í han- stað var kjörinn sem formaður Albert Guðmundsson stórkaup- maður, hinn kunni knattspyrnu- kappi. Jakob Hafstein flutti skýrslu stjórnarinnar og bar hún með sér glæsilegan framgang félagsins á íþróttasviðinu. Þakkaði Jakob ÍR- ingum traust og vináttu þau 5 ár sem hann hefur verið formaður félagsins en 'hann gaf ekki kost á sér til formennsku aftur. Ingi Þór Stefánsson las re’kn- inga félagsins í fjarveru Finn- T'L SOLU AUSTIN 8 model ’46. — Upp- lýsingar í síma 7286, Keflavík- urflugvelli. íbúð til sölu Ný þriggja herb. íbúð við Sund- laugaveg, er til sölu. — Upplýs ingar í síma 15843, eftir kl. 6,30 daglega. • KÖLDU ROYAL-BÚÐINGARNIR eru bragðgóðir og handhægir. Nýkomið kuldaskór Tékknesku kuldaskórnir. margeftirspurðu fyrir kven- fólk og unglinga, komnir aftur. — SKÓSALAN Laugavegi 1. Albert Guðmundsson bjarnar Þorvaldssonar gjaldkera. Voru reikningarnir samþykktn- einróma og án umræðna. ★ Skýrsla stjórnarinnar bar með sér að sjaldan eða aldrei hefur félagið verið jafn sterkt íþrótta- lega séð. í öllum deildum félags- ins, 6 að tölu, hefur verið starfað að miklu fjöri og afrek félags- manna hafa verið mikil. Frjálsíþróttamenn félagsins unnu á liðnu ári mikla og marga sigra og t. d. átti ekkert félag jafnmarga meistara í öllum ald- ursflokkum og ÍR. Af afrekum bar hæs't afrek Vilhjálms Einars- sonar í þrístökki á Evrópu- meistaramótinu í Stokkhólmi en þar hlaut hann bronsverðlaun, eini fslendingurinn sem hlaut stig á því móti. Aðeins tveir íslend- ingar voru meðai 10 beztu manna á afrekaskrá Evrópu, ÍR-ingarnir Valbjörn Þorláksson og Vilhjálm- ur Einarssoa * Skíðamenn færðu félaginu marga sigra. Ekkert félag fékk fleiri meistara á Reykjavíicur- mótinu og félaginu féilu í skaut fleiri meistarastig á landsmótinu en öðrum félögum ¥ Glæsilegust er þó kanrske sig- urganga ÍR í sundi. Rís þar nafn Guðmundar Gíslasonar hæst. Setti hann annað árið í röð lt' ísl. met og var heiðraður af ÍSÍ fyrir. Á sundmótum í vetur hafa ÍR-ingar á flestum mótum hlotið fleiri sigra en félagsmenn annarra félaga s-manlagt, og alltaf flesta. ★ Handknattleik ___m félagsins skipuðu sér í raðir beztu hand- knattleiksmanna landsins. Þeir urðu fyrsí' til a áralanga sigurgöngu Hafnfirðinga, á ís- landsmótinu 1958 og urðu í öðru sæti á því móti á eftir KR. Körfuknattleiksflokkar féiags- ins stóðu sig með prýði. Stúikurn- ar urðu íslandsmeistarar en pilt- arnir urðu Reykjavíkurmeistarar. Flokkum félagsins hefur í vetur vegnað mjög vel. Áhuginn á fimleikum heíur glæðzt og er æft í fimm flokkum karla og kvenna undir merki ÍR. Er Jakob Hafstein hafði flutt skýrslu stjórnarinnar flutti hann ávarp til ÍR-inga. Hvatti hann þá til þess að herða sig — einkum að því er snertir félagsstarfsemina. Samheldni, traust og skilningur, vinnusemi og gleði til félagslegs samstarfs jafnt ir.návið sem útávið væri ekki sem skyldi og starfið hvíldi á of fárra manna höndum, sagði Jakob Hafstein. Félög á borð við ÍR 'væru orðin mikil fyrirtæki sem krefðust mik- illar vinnu margra manna, en gildi starfs þessara félaga væri þjóðfélagsleg verðmæti sem allir sannir og góðir íslendingar ættu að taka höndum saman um að hlúa að og hinu opinbera bæri að styrkja þetta starf enn meira en gert væri. Við stjórnarkjör var Ajbert Guðmundsson, stórkaupm. éin- róma kjörinn formaður en aðrir í stjórn Sigurjón Þórðarson vara- formaður, Finnbjörn Þorvaldsson gjaldkeri, Ingi Þór Stefánsson meðstjórnandi og Atli Steinars- son ritari. ★ Fráfarandi formaður óskaði hinni nýju stjórn gs— og gengis og gat sérstaklega hins nýkjörna formanns er væri víðkunnur íþróttakappi, viðurkenndur dugn- aðar- og drengskaparmaður, sem myndi lyfta nafni ÍR hærra og hærra og efla félagið að þroska og virðingu. Svanberg Þórðarson ÍR Rvíkurmeistari í svigi Sigraði einnig í ,,Stefánsmótinu" C-flokkur: 1. Þórir Lárusson, ÍR, 2. Þorkell Þorkelsson, KR, 3. Ásgeir Christiansen, SKH. Drengjaflokkur: 1. Davíð Guðmundsson, KR, 2. Þorsteinn Þorvaldsson, KR, 3. Troels Bendtsen, KR. REYKJAVÍKURMÓT í stórsvigi var haldið sl. sunnudag í Skála- felli. KR sá um mótið. Veður var gott og færi ágætt. Keppendur voru á milli 30 og 40 frá 3 félög- um. — Úrslit urðu þessi: A-flokkur: 1. Svanberg Þórðarson, ÍR, 2. Stefán Kristjánsson, Á, 3. Úlfar Skæringsson, ÍR, 4. Valdimar Örnólfsson, IR, 5. Ólafur Nilsson, KR. (Sami tími). Keppni fór ekki fram í B-fl. C-flokkur: 1. Ágúst Björnsson, ÍR, 2. Þórir Lárusson, ÍR, 3. Hreiðar Ársælsson, KR. Drengjaflokkur: 1. Troels Bendtsen, KR, 2. Herbert Ólafsson, KR, 3. Davíð Guðmundsson, KR. ★ SL. laugardag var haldið Stefáns mót (seinni hluti), sem frestað var vegna veðurs helgina þar á undan. Mótið fór fram í Skála- felli. KR sá um mótið. Keppt var í svigi. Úrslit urðu þessi: A-flokkur karla: 1. Svanberg Þórðarson, ÍR. 2. Stefán Kristjánsson, A, 3. Guðni Sigfússon, ÍR, 4. Ásgeir Eyjólfsson, A. B-flokkur: 1. Björn Steffensen, KR, Englíind Skotl. 1:0 I LANDSLEIK, sem fram. fór á Wembley leikvanginum á laug- ardag sigraði England Skotland með einu marki gegn engu. Yf- irburðir Englendinganna voru töluvert meiri en úrslitin gefa til kynna, en þeir hefðu hæglega get að sigrað með fjögurra til fimm marka mun. Miðjutríóið: Broad- bent, Charlton og Haynes sýndu mjög mikil tilþrif í þessum leik, léku með hröðu stuttu samspili og skemmtilegum skiptingum. Framverðirnir ensku áttu og góð- an leik. Wright, sem lék sinn 100. landsleik gætti skozka miðherj- ans Herd sem sást varla koma við knöttinn, svo vel var hans gætt af hinum 35 ára fræga fyr- irliða enska liðsins. Skozka liðið hafði ekki hraða á við Englend- ingana og áttu sárafá skot á mark. Brown markvörður Skota varði mörg hættuleg skot meist- aralega. Nemendatónleihar Demetz verSa í Gamia Bíói nk. þriðjudag Landsliðsmenn við æíingar á Seljadal ÍSAFIRÐI, 10. apríl: — Hér hef- ur snjóað töluvert undanfarna daga svo kominn er þó nokkur snjór. í dag var hér í bænum hið fegursta veður, logn og glamp andi sólskin með vægu frosti. Skíðaþjálfarinn austurríski, sem þjálfar landsliðsskíðagarpana, er með þá við æfingar uppi á Selja- dal og er þar mikill og góður snjór svo skilyrði til æfinga munu vart öllu ákjósanlegri. Nokkrir skíðamenn aðrir njóta þar leið- beininga hins snjalla skíðaþjálf- ÍTALSKI söngkennarinn Vin- cenzo Maria Demetz, sem hér hefur haldið söngskóla undan- farin ár, efnir til söngskemmt- unar með nemendum sínum næstkomandi þriðjudagskvöld, 21. apríl, ki. 7 síðdegis í Gamla Bíói. Á tónleikunum koma fram níu af nemendum Demetz, konur og karlar, og auk þess syngur Jón Sigurbjörnsson sem gestur, en hann var einnig á sínum tíma nemandi Demetz. Sungnir verða einsöngvar og tvísöngvar, og auk þess kemur fram kór undir stjórn Ragnar Björnssonar. Þetta er í þriðja sinn, sem De- metz gefur Reykvíkingum tæki- færi til að hlýða á söng nem- enda sinna, og hafa tónleikar þessir náð vinsældum meðal bæjarbúa. — Á söngskránni verða að þessu sinni lög eftir fimm íslenzka höfunda og tíu er- lenda, þar á meðal er lag eftir Demetz sjálfan. — Geta má þess, að kór hefur ekki áður komið fram á nemendatónleikum De- metz. Upphaflega átti að halda tón- leika þessa fyrir rúmum mánuði, I en vegna veikinda i liði söngvar- anna og fleiri óviðráðanlegra or- saka, varð að fresta þeim, og hef- ur ekki reynzt unnt að halda þá fyrr en nú, á þriðjudaginn kem- ur. — Miðar þeir, sem á sínum tíma var búið að selja á tónleik- unum, gilda að sjálfsögðu nú, en auk þess verður nokkuð af að- göngumiðum til sölu næstu daga í Bókaverzlun Sigfúsar Eymunds son í Austurstræti og hjá Lárusi Blöndal á Skólavörðustíg. Lögreglukóriim söng í Borgarnesi BORGARNESI, 13. apríl — Lög- reglukór Reykjavíkur hélt söng- skemmtun í samkomuhúsinu í Borgarnesi á sunnudaginn. Söng stjóri var Páll Kr. Pálsson og við hljóðfærið Guðlaug Sverris- dóttir, lögreglukona. Einsöngvari kórsins var Gunnar Einarsson. Á söngskránni voru 12 lög eftir inn lenda og erlenda höfunda. Kórn- um var mjög vel tekið og varð hann að endurtaka mörg lögin og syngja aukalög. Allir söng- mennirnir voru í einkennisbún- ingi lögreglunnar. — F. Þ.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.