Morgunblaðið - 21.04.1959, Blaðsíða 1
24 siður
46. árgangur
Þriðjudagur 21. apríl 1959
Prentsmiðja MorpunblaðstaOi
Önnur umræða fjárlaga á Alþingi:
Stöðvunarstefnan markar fjár-
lagaafgreiðsluna - Ekki dreg-
/ð úr nauðsynjaframkvæmdum
Eysteini svo mikið i mun oð bera af »
sér sakir oð hann beid ekki eftir að
fjármálaráðherra talaði
ÖNNUR umræSa um fjárlagafrumvarp fyrir árið 1959 fór fram í
sameinuðu Alþingi í gær. Hófust umræður um fjárlögin um kl. 2
síðdegis í gær og var ekki lokið er blaðið fór í prentun, en gert
var ráð fyrir, að umræðunni lyki í nótt. Eins og áður hefur verið
skýrt frá, skilaði fjárveitinganefnd áliti í þrennu lagi. Sjálfstæðis-
menn og Alþýðuflokksmenn skiluðu sameiginlegu áliti, en Alþýðu-
bandalagsmenn og Framsóknarmenn nefndarálitum hvor í sínu lagi.
Magnús Jónsson hafði framsögu af hálfu 1. minnihluta nefndar-
innar, Sjálfstæðis- og Alþýðuflokksmanna. Flutti hann ítarlega
og skilmerkilega ræðu þar sem hann gerði grein fyrir afgreiðslu
fjárlaga, sem dróst að þessu sinni vegna stjórnarskiptanna og
vegna þess, að fjárlagafrumvarp var ekkert undirbúið í tíð fyrr-
vcrandi stjórnar, enda engin samstaða um lausn efnahagsmál-
ann innan V-stjórnarinnar. Samkomulag Sjálfstæðisflokksins og
Alþýðuflokksins hefði markazt af því, að stöðva skriðu dýrtíðar-
innar og leiða þróun efnahagsmálanna í jafnvægisátt. Þessi stefna
hefði markað afgreiðslu fjárlaganna, en þó hefði verið lögð áherzla
á að draga ekki úr nauðsynjaframkvæmdum.
Ræða Magnúsar Jónssonar er birt í heild inni í blaðinu.
Karl Guðjónsson, íormaður
fjárveitinganefndar, hafði fram-
sögu fyrir 2i. minnihluta nefnd-
arinnar, fulltrúa Alþýðubanda-
lagsins. Skýrði hann frá því, að
enda þótt alger samstaða hefði
verið í fjárveitinganefnd um
margar breytingartillögur við
fjárlagafrumvarpið, hefði nefnd-
in þó skipzt, er kom til afgreiðslu
á tillögum stjórnarstuðnings-
manna um tekjuáætlun og lækk-
unartillögur á útgjaldaliðum.
Karl Guðjónsson kvað Alþýðu-
bandalagið mundi styðja þær til-
lögur Sjálfstæðismanna og Al-
þýðuflokksmanna, að 25 milljón
kr. greiðsluafgangi frá fyrra ári
yrði varið til að mæta útgjöld-
um þessa árs og að tekjuáætlun
fjárlaga yrði hækkuð um 68,6
milljónir. Stefnumunur Alþýðu-
bandalagsins og stuðningsflokka
stjórnarinnar væri í því fólgin,
að Sjálfstæðismenn og Alþýðu-
flokksmenn vildu lækka fram-
lög til opinberra framkvæmda,
en hin almenna tillaga Alþýðu-
bandalagsins væri ekki varðandi
almenna framkvæmdaliði, heldur
varðandi rekstur ríkisstofnana.
Legði Alþýðubandalagið þann-
ig til, auk tillagna við einstaka
liði, að stjórnarráðið, utanríkis-
þjónustan, dómgæzlan, lögreglu-
stjórnin og toll- og skattstofnan-
irnar færi niður kostnað sinn að
meðaltali um 5% og spari þann-
ig þjóðinni 6 milljónir kr. Væri
í þessu skyni lagt til, að sendi-
ráðin í Ósló, Stokkhólmi, Lond-
Framíh. á bls. 2.
Órólegar kosningar
ALSÍR, 20. apríl. NTB-Reuter: —
Gaullistaflokkurinn UNA tryggði
sér 14 af 75 meðlimum borgar-
stjórnarinnar í Algeirsborg á
sunnudaginn var. Fékk hann því
jafnmarga menn kjörna og öfga-
flokkur þjóðfylkingarinnar í
Alsír, sem berst fyrir því að land
ið verði innlimað í Frakkland.
Þjóðfylkingin er andvíg stefnu
de Gaulles í Alsír-málum.
í dag hófust í Alsír kosningar
í bæjum og þorpum, þar sem
íbúar af evrópsku bergi brotnir
eru færri en þúsund. Munu þær
standa fram á sunnudag, og verða
þær látnar fara fram á afmörk-
uðum svæðum í einu, svo að ör-
yggishersveitirnar geti verndað
kjósendur og varið kjörstaði.
Fyrsti dagur kosninganna kost-
aði 18 manns lífið, en auk þess
særðist fjöldi manns vegna
sprengjutilræða víðs vegar um
landið.
Sendiherronn slnpp naumlegn
PANAMA CITY, 20. apríl. —
NTB-Reuter. —• Skipið, sem
flutti fyrrverandi sendiherra
Panama í Lundúnum, dr. Ao-
berto Arias og kona hans, hina
heimsfrægu brezku balletdans-
mey, Margot Fonteyn, slapp í dag
til Bilboa eftir að stjórnarvöld-
in í Panama höfðu sent út hand-
tökutilskipun á Arias. Balboa er
undir lögsögu Bandaríkjastjórnar
við Panamaskurðinn.
í fyrstu var ekki vitað að Arias
væri á skipinu, þegar það lenti
í Balboa. Samkvæmt AFP-frétt
sendi ríkisstjórnin út stóran her-
styrk til að stöðva skipið, en
Arias var grunaður um að standa
í sambandi við byltingarhreyf-
ingu, sem reynt hefur að ná völd-
um í Panama. Leitin að skip-
inu hófst eftir að þrír fiskimenn
höfðu sagt frá því, að þeir hefðu
orðið vitni að því að miklum
vopnabirgðum var komið í land
í Panama frá skipinu, sem Arias
var á. Nákominn vinur Arias var
handtekinn eftir að vopnabirgð-
ir fundust á heimili hans.
Christian A. Herter.
Kjartan J. Jóhannsson
Byltmgarforin*-
inn drap sig
LA PAZ, 20. apríl. — NTB-AFP.
— Foringi sósíalistísku falang-
istahreyfingarinnar í Bolivín,
Oscar Unsage de la Vega, og
einn af lífvörðum hans frömdu
sjálfsmorð eftir misheppnaða
byltingartilraun um helgina. —■
Samkvæmt fréttum Bólivíu-
stjórnar var uppreisnin bæld nið-
ur á tæpum degi án hjálpar hers-
ins. Allt er með kyrrum kjörum
í landinu, og samt hefur verið
lýst yfir hernaðarástandi.
Kjartan J. Jóhonnsson, irombjóð-
ondi Sjólfstæðismnnna d ísnfirði
ÍSAFIRÐI, mánudag. — Á fjölmennum fundi fulltrúaráðs Sjálf-
stæðisfélaganna á ísafirði, sem haldinn var fyrir skömmu, va*
einróma samþykkt að skora á Kjartan J. Jóhannsson, alþingis-
mann, að vera í kjöri fyrir Sjálfstæðisflokkinn hér á ísafirði við
alþingiskosningar í sumar. Hefur hann fallizt á að verða við
þessari áskorun og er framboð hans því ákveðið.
Kosinn á þing árið 1953
Kjartan J. Jóhannsson var
fyrst kosinn á þing fyrir Isa-
Herter skipaður ufan-
ríkisráðherra Banda-
ríkjanna
AUGUSTA, Georgia, 20. apríl. —
NTB-Reuter. Eisenhower Banda-
ríkjaforseti tilkynnti á laugardag-
inn, að hann hefði valið Christian
. Herter i embætti utanríkisráð.
herra, en hann hefur verið að-
stoðarutanrikisráðherra undanfar
in tvö ár og gegnt embætti utan-
ríkisráðherra í forföllum Dulles-
ar, sem þjáist af alvarlegu krabba
meini.
í dag lagði forsetinn tillögu
sina um útnefningu Herters form
lega fyrir öldungadeildina en sam
kvæmt stjórnarskrá Bandaríkj-
anna verður öldungadeildin að
samþykkja útnefninguna, áður en
hún tekur gildi.
Utanríkismálanefnd öldunga-
deildarinnar hefur verið kvödd
saman til fundar á morgun til
að afgreiða málið, og er búizt
við að sú afgreiðsla taki stutta
stund.
fjarðarkaupstað árið 1953 meS
miklu fylgi kjósenda. Hefur
hann síðan verið þingmaður
kaupstaðarins og reynzt hinn
ötulasti málssvari bæjarbúa á
Alþingi. Nýtur hann mikils og
vaxandi trausts í bænum. Munu
ísfirðingar hafa hug á að gera
kosningu hans sterkari en
nokkru sinni fyrr í kosningunura
í sumar.
— Fréttaritari
Sfefán Jóhann sendi•
herra í Tyrklandi
HINN 18. apríl sl. afhenti Stefán
Jóhann Stefánsson Tyrklandsfor-
seta trúnaðarbréf sitt sem sendi-
herra fslands í Tyrklandi með að
setri í Kaupmannahöfn.
- (Frá utanríkisráðuneytinu).
Heimköllun sendiherra íslands
hjá NATO og í Lon-
don vekur athygli
KAUPMANNAHÖFN, 20. apríl.
— Einkaskeyti til Mbl. —
Lundúnafréttaritari danska
blaðsins „Politiken“ skýrir
frá því, að það sé almennt álit
manna, að sambandið milli
íslands og Bretlands hafi
versnað verulega eftir hina
harðorðu orðsendingu Breta,
sem var birt í gær, þar sem
Bretar neita að senda Fleet-
wood-togarann „Carella“ aft-
ur til Islands, svo íslenzkur
dómstóll geti fjallað um mál
hans.
Stjórnmálafréttaritari
„Daily Telegraph“ telur senni
legt að orðsendingin geti leitt
til þess, að sljórnmálasam-
band landanna verði rofið,
a. m. k. á þann hátt að sendi-
herrar landanna verði ekki
sendir aftur til starfa.
Blaðið skýrir frá því að sendi-
herra Íslandsí Lundúnum fari
heim á þriðjudag (21. apríl) og
sendiherrann hjá Atlantshafs-
bandalaginu fari einnig heim til
íslands, sennilega til að ræða við
ríkisstjórnina um næsta skref
sem taka beri vegna hinna sí-
felldu brota Breta innan íslenzkr
ar fiskveiðilögsögu.
o o o
Mbl. sneri sér í gær til Bjarna
Guðmundssonar blaðafulltrúa og
spurðist fyrir um það, hvað ut-
anríkisráðuneytið hefði um frétt-
ina að segja. Ilann kvað dr.
Kristin Guðmundsson sendi-
herra í London koma heim í dag
(þriðjudag) samkvæmt ósk utan-
ríkisráðuneytisins til viðræðna
við ríkisstjórnina. Hans G. And-
ersen sendiherra hjá NATO hefði
komið til landsins um helgina,
en hann sótti afmælisliátíð At-
lantshandalagsins í Washing-
ton og kom hér við á Ieiðinni til
Parísar samkvæmt ósk utanríkis-
ráðuneytisins. Þegar þessi um-
mæli blaðafulltrúans voru borin
undir Guðmund t. Guðmundsson
utanríkisráðherra kvað hann
engu við þau að bæta. Hér væri
um að ræða venjulega heim-
kvaðningu sendiherranna til við-
ræðna um ýmis mikilvæg mál-
efni.
Þriðjudagur 21. april.
Efni blaðsins m.a.:
Bls. Kirkja Óháða safnaðarins.
— 6: Eimskip flutti 225 þús. smál. si.
ár.
Áburðarverksmiðjan framleiddi
89 þús. tonn af kjarna.
— 8: Bókaþáttur „í kompaníi við al-
lífið“.
— 10: Berlín — Tveir heimar austuri
og vesturs.
— 11: Margvísleg verkefni í málefn-
um öryrkja.
— 12: Forystugreinin — „Fjárlögin á
lokastigi“.
„Ég vil lifa“ — harmasaga
Barböru Graham.
— 13: Ræða Magnúsar Jónssonar við
umræður um fjárlög á Alþingi.
— 15: Hlustað á útvarp.
Ályktun landsfundar um kirkja
mál og áfengismál.
★---------------------------*