Morgunblaðið - 21.04.1959, Qupperneq 11
T>ri('Siuclan,m- 91 apríl 1959
MORCUNBLAÐIÐ
11
Margvísleg verkefni í
málefnum öryrkja
Pæða Gunnars Thoroddsen á Alþingi um
nefndarkosningu um oryrkjamál
Á FUNDI sameinaðs Alþingis sl.
miðvikudag var tekin til fyrri
umræðu tillaga til þingsályktun-
ar um kosningu milliþinganefnd-
ar um öryrkjamál. Fyrsti flutn-
ingsmaður tillögunnar, Gunnar
Thoroddsen, 6. þingmaður Reyk.
víkinga, hafði framsögu fyrir
henni og mælti á þessa leið:
Gunnar Thoroddsen: Herra for-
seti. í sambandi við umræður um
frv. til laga um íramlengingu á
vöruhappdrætti Sambands ísl.
berklasjúklinga, var allmjö'g rætt
um öryrkjamálin í heild. í fjá-
hagsnefnd Ed. voru meðal annars
fengnar umsagnir og upplýsingar
frá ýmsum félögum öryrkja. Um
leið og ákveðið var af n. að mæla
með frv., urðu nefndarmenn allir
sammála um að flytja hér í sam-
einuðu þingi till. til þál. um kosn-
ingu milliþingan. um öryrkjamál,
Ég skal ekki fara ýtarlega út i
þessi mál að þessu sinni, aðeins
stikla á stóru.
Hér eru til nokkur félög, sem
vinna að öryrkjamálum, Sam-
band isl berklasjúklinga, sem
unnið hefur þrekvirki á þessu
sviði, meðal annars við byggingu
og starfsemi Reykjalundar, Styrkt
arfélag lamaðra og fatlaðra, I
Blindrafélagið, Blindravinafélag- j
ið, Sjálfsbjargarfélögin sem eru j
félög fatlaðra, og ennfremur fé-
lagið Heyrnarhjálp. Þessi félög
hafa unnið mjög merkilegt starf.
Gerðar hafa verið tilraunir til
þess að stofna samtök öryrkja-
félaganna um land allt, en ennþá
hefur það ekki tekizt. Hins vegar
er mikil nauðsyn á því, að mál
þetta sé tekið til heildarathugun-
ar og reynt að samræma alla
starfsemi í þessum efnum.
Ég skal aðeins nefna hér nokk-
ur hin helztu viðfangsefni og
verkefni, sem athuga þarf í sam-
bandi við öryrkjamálin.
í fyrsta lagi er brýn nauðsyn að
hafa starfandi rannsóknarstöð,
sem rannsakar vinnuhæfni öryrkj
anna, þ. e. a. s. gerir, með aðstoð
lækna, sálfræðinga og annarra
sérfræðinga, rækilega athugun á
því, hvers konar starf muni helzt
vera við hæfi hvers einstaks ör-
yrkja.
í nánu sambandi við þetta
standa leiðbeiningar til öryrkj-
anna um val á starfi eða námi,
sérstaklega ef um ungt fólk er að
ræða.
í þriðja lagi koma vinnulækn-
ingar.
í fjórða lagi vinnustofur og
verkstæði, sem hafa það hlutverk
að endurþjálfa til vinnu þá, sem
misst hafa að einhverju leyti orku
sína. Yfirlæknirinn í Reykjalundi
tjáði okkur í n., að yfirleitt mundi
það vera eitt til tvö ár, sem ör-
yrkjar þyrftu að vera á slíkum
vinnustofum til þjálfunar og
kennslu, áður en þeir gætu hafið
að nýju eðlilegt starf í hinu
frjálsa athafnalífi. Auk þess eru
slíkar vinnustofur nauðsynlegar
fyrir þá öryrkja, sem heilsu sinn-
ar vegna geta ekki farið út í hið
frjálsa athafnalíf, en verða að
vera áfram á slíkum stofnunum.
1 fimmta lagi má nefna vinnu-
heimili, þaT sem öryrkjarnir geta
einnig átt heima. Á þetta m. a.
við þá sem heilsu sinnar vegna
getu ekki sótt langt á vinnustað
og þurfa því að hafa svipaða að-
stöðu, eins og er á Reykjalundi.
í sjötta lagi má nefna hina
brýnu nauðsyn lamaðra og fatl-
aðra að greiða fyrir smíffi tækja
og gervilima. Þó að hér séu til
færir menn á því sviði, þá er
þörfin svo mikil, að þeir geta
hvergi nærri annað eftirspurninni
og verða sumir öryrkjanna að
bíða jafnvel eitt til tvö misseri
eftir að fá hina nauðsynlegustu
gervilimi. Hér þarf að bæta úr,
bæði með því að fá fleiri sérfræð-
inga og með kaupum hinna nauð-
synlegustu tækja til slíkrar fram.
leiðslu.
í sjöunda lagi má nefna vinnu-
miðlun. í reglugerð um Ráðning-
arstofu Reykjavíkurbæjar 1954 og
í hina almennu reglugerð ríkis-
ins um vinnumiðlun frá 1956 voru
tekin upp ákvæði um að
vinnumiðlunarstofur eiga m. a.
eftir föngum að útvega öryrkjum
atvinnu. í áttunda lagi þarf að
skipuleggja sem bezt lánastarf-
semi fyrir öryrkjana. Margir
þeirra geta stundað vinnu, ef þeir
fá fyrirgreiðslu með hagkvæm-
um lánum til að kaupa sér nauð-
synleg tæki og koma þannig s;álí
ir undir sig fótunum.
í níunda lagi er margvisleg
félagsleg fyrirgreiffsla, sem ör-
yrkjunum er nauðsynleg, svo sem
húsnæði og fjölmargt fleira. Og
í tíunda lagi vil ég nefna það,
með hverjum hætti megi afla
fjármagns til allra þessara marg-
háttuðu verkefna. Samband ísl-
berklasjúklinga hefur með vöru-
happdrættinu í undanfarin ára-
tug aflað mikils fjár og byggt
fyrir það Reykjalund með sínum
miklu og glæsilegu vistarverurn
og ágætu verkstæðum. Sum önn-
ur samtök öryrkja hafa fengið að-
stöðu til vissrar fjáröflunar, t. d.
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
nokkurt álag á eldspýtustokka.
1952 samþykkti Alþingi lög um
erfðafjársjóð, en hlutverk hans
er „að veita lán og styrki, til þess
að koma upp vinnuheimilum,
vinnustofum, og vinnutækjum
fyrir öryrkja“. Þessi sjóður mun
nú vera um 5,3 millj. kr., en úr
honum hafa ekki verið veittar
nema 800 þús. kr., þannig að
handbært fé sjóðsins var um sl.
áramót vera um 4Vz millj. kr. Hér
er því töluvert fjármagn fyrir
hendi, sem nota má í þessu skyni.
Auk þess bætist árlega álitleg
fúlga í þenna sjóð.
Þetta eru nokkur meginatriði,
sem taka þarf til athugunar og
sem verða verkefni þeirrar milli-
þinganefndar, sem ég vænti að
hæstv. Alþ. fallist á að kjósa.
Um tölu öryrkja á íslandi liggja
ekki fyrir nákvæm gögn. Vafa-
laust eru þeir ekki undir 2000,
og er það vissulega mikilsvert,
bæði fyrir þá sjálfa og fyrir þjóð-
félagið í heild, að nýta sem bezt
þá orku, þá vinnugetu, sem þeir
hafa eða geta endurheimt með
skynsamlegri þjálfun, kennslu og
öðrum aðgerðum hins opinbera.
Ég legg til, að þessari till. verði
vísað til síðari umræðu og hátt-
virtrar fjárveitinganeíndar.
AlSf á sama stað
Hjólbarlsr m
590x13
500x14
500x15
550x15
560x15
590x15
650x15
700x15
710x15
700/760x15
800/820x15
MICHEIIN
BARUM
500x16
525x16
600x16
650x16
750x16
165x400
450x17
550x18
700x20
750x20
900x20
1100x20
Sendum gegn póstkröfu hvert á land sem er
Eglll VilhjáimssoB hf.
Laugaveg 118, sími 2-22-40
(JTBOD
Tilboð óskast í mótasmíði á 245 fermetra húsi, sem
er kjallari og 4 hæðir.
Upplýsingar (ekki í síma) gefnar á skrifstofu
MÁLFLCTNINGSSTOFA
Sigurður Reynir Pétursson hrl.
Agnar Gústafsson hdl.
Gísli G. Isleifsson hdl.
Austurstræti 14
Sníðum og málum skilti.
AUGLÝSINGA Sandblásum í gler og plast.
8. Málum á bifreiðir.
SKILTAGERÐIN Ý Öll skilti frá okkur eru málm
jjHraunteig l'fe .J húðuð, og eru því örugg fyrir
Sími 36035 ryði. — Munið sandblásnu
jluggaskiltin hjá okkur.
Sendum sýnishorn.
Amerísk. hjón
óska eftir 3ja til 4ra herbergja íbúð Fqtt full-
orðið í heimili.
Upplýsingar í síma 23986.
íbúðoihæð í Vesturbænum
helzt Melunum, óskast til kaups. Stærð 130—150
femr — Þarf ekki að vera laus til íbúðar.
RANNVEIG ÞORSTEINSDÓTTIR hrl.
Málflutningsskrifstofa — Fasteignasala
Norðurstíg 7. Sími 19960
KYR TIL SÖLIJ
Nokkrar góðar ungar kýr til sölu. Upplýsingar í
síma 50830.
Tíf leigu
skrifstofuherbergi í Austurstræt 12.
Uppl. í síma 13851.
íbúð óskast
Hefi kaupanda að góðri 2ja—3ja herbergja íbúð.
Mikil útborgun. íbúðin þarf ekki að vera laus fyrr en
í fyrsta lagi 1. okt. n.k. Uppl, gefur (ekki í simi).
Jón N Sigurffsson, hæstaréttarlögmaffur Laugav. 16.
Byggingarfélag verkamanna
Reykjavtk
Tveggja herbergja íbúð til sölu í I byggingarflokki.
Félagsmenn skili umsóknum sínum á skrifstofu fé-
lagsins í Stórholt 16 fyrir 25. þ.m.
STJÓRNIN
Czechoslovak Ceramics — Prag.