Morgunblaðið - 21.04.1959, Page 24
VEÐRI**
SA-grola, dálítil rigning'
,Ég vil lifa'
Sjá bls. 12.
89. tbl. — Þriðjudagur 21. aprfl 1959
Bretar svara mót-
mælaorðsendingu
UTANRÍKISRÁÐUNEYTINU
barst sl. laugardag svar brezku
ríkisstjórnarinnar við mótmæla-
orðsendingu þeirri, sem ráðu-
neytið bar fram við brezka sendi
ráðið 26. marz sl., er brezkt her-
skip hindraði varðskipið Þór að
taka brezka togarann Carella,
sem staðinn var að ólöglegum
veiðum á Selvogsgrunni um 8,5
sjómílur innan íslenzkrar fisk-
veiðilögsögu. Jafnframt því sem
borin voru fram harðorð mót-
mæli vegna atburðar þessa, var
þess krafizt af hálfu ríkisstjórn-
ar fslands, að brezka stjórnin
gerði þegar í stað ráðstafanir til
að hið íslenzka varðskip gæti
haldið áfram töku landhelgis-
brjótsins eða honum snúið við
til íslenzkrar hafnar til þess að
íslenzkur dómstóll gæti fjallað
um mál hans.
í svari sínu, sem sendifull-
trúi Bretlands í Reykjavík af-
henti utanríkisráðuneytinu sl.
laugardag (18. apríl), endurtekur
brezka stjórnin fyrri yfirlýsing-
ar um að hún viðurkenni ekki
fiskveiðilögsögu fslendinga utan
þriggja mílna landhelgi og vé-
fengi því rétt íslenzkra varð-
skipa til þess að taka erlend skip
„á höfum úti“, eins og það er
orðað, eða veita þei meftirför,
nema um sé að ræða brot, sem
framin séu innan þriggja mílna
landhelgi.
Brezka stjórnin heldur þvi og
fram, að togarinn Carella hafi
ekki verið innan fjögurra mílna
markanna samkvæmt reglugerð-
inni frá 1952 um fiskveiðilög-
sögu íslands, og neitar því að
viðurkenna staðsetningu togarans
samkvæmt mælingum hins ís-
lenzka varðskips.
Þá neitar brezka ríkisstjórnin
að verða við kröfunni um að
um mál togarans verði fjallað
af íslenzkum dómstólum, þar eð
hún telur að jjeglugeðin um 12
mílna fiskviðilögsögu íslands sé
ógild að alþjóðalögum. Vernd sú,
sem hið brezka herskip veitti
togaranum hafi verið utan 3ja
sjómílna yfirráðaréttar íslands
og því heimil samkvæmt alþjóða
lögum, en auk þess sé það ekki
á valdi brezku stjórnarinnar að
fyrirskipa brezkum fiskiskipum
að halda til erlendrar hafnar.
Loks tekur brezka stjórnin
Afli Akranesl>áta
AKRANESI, 21. apríl. — Ellefu
bátar voru á sjó héðan í gær,
sunnudag, og fengu alls 137 lest-
ir. Aflahæstir voru Sigrún 22
lestir, Höfrungur 21 lest og Keilir
17 lestir. Á laugardaginn lönduðu
19 bátar og höfðu þeir samtals
223 lestir. Þá voru aflahæstir Sig
urvon með 28 lestir, Sæfari 24
lestir. Minnstur afli hvorn dag-
inn var tæpar tvær lestir á bát.
Á laugardaginn reru 11 trillur
héðan og fiskuðu vel. Hæst var
Sæljón með 2,5 lestir, þá Már
2,3 lestir og fjórar fiskuðu um
1,5 lestir hver. — Oddur.
Málvcrkasýningu
Karls Kvarans
lýkur annað kvöld
MÁLVERKASÝNING Karls
Kvarans í Bogasal Þjóminjasafns
ins hefur nú staðið í eina viku.
Þar eru til sýnis 23 gouachmynd-
ir eftir listamanninn. Hefur að-
sókn að sýningunni verið góð og
nokkrar myndir selzt.
Nú fara að verða síðustu for-
vöð að sjá sýningu þessa. Henni
lýkur á miðvikudagskvöld.
fram, að hún telji líklegustu
leiðina til þess að koma megi í
veg fyrir að atburðir sem þessi
endurtaki sig — meðan ekki liggi
fyrir niðurstaða væntanlegrar al
þjóðaráðstefnu vorið 1960 um
réttarreglur á hafinu — að fund-
in verði bráðabirgðalausn varð-
andi fiskveiðar hér við land,
annaðhvort með samningaviðræð
um eða með því að visa málinu
til alþjóðadómstólsins.
(Frá utanríkisráðuneytinu).
Mjög umfangsmik.il rann■
sókn á starfsemi H í 5
á Keflavíkurflugvelli
Ol'iufélagið h.f. dregst einnig inn
i málið
~3>
Jóhann Hafstein
Tímamót í íslenzk-
um stjórnmálum
Jóhann Hafstein frummælandi á
Varðarfundi í kvöld
LANDSMÁLAFÉLAGIÐ Vörður
heldur fund í Sjálfstæðishúsinu
í kvöld kl. 8,30. Umræðuefni
þessa fundar verður: Tímamót í
íslenzkum stjórnmálum, frum-
mælandi Jóhann Hafstein banka-
stjóri.
Á undanförnum mánuðum
hafa orðið mikil umskipti á vett-
vangi stjórnmálanna. Vinstri
stefnan beið mikið gjaldþrot þeg
ar fyrrverandi ríkisstjórn hrökkl
aðist frá völdum í desember sl.
Þá hófst atburðarás, sem nú hef-
ur leitt til samstöðu allra flokka
nema Framsóknarflokksins um
bætta kjördæmaskipan. Þessa
dagana er frumvarp til stjórnar-
skrárbreytingar til umræðu á Al-
Aílohrofa
í Keflavík?
SÆMILEG aflahrota virðist
vera að byrja á miðum Kefla-
víkurbáta eða að minnsta
kosti vona menn að svo sé,
sagði fréttaritari Mbl. þar,
seint í gærkvöldi. Þá voru
ekki margir bátar komnir að,
en þeir sem komnir voru,
höfðu ágætisafla, allt upp í 30
til 40 lestir. Gegnum talstöð
hafði heyrzt að þeir bátar, sem
enn voru úti, væru með allt
upp í 70 lestir.
Friðrik liafnaði
í 7.-9. sæti í skák-
mótinu 1 Moskvu
SKÁKMÓTINU í Moskvu lauk á
sunnudag. Þau urðu endanleg úr-
slit á mótinu að Smyslov,
Spassky og Bronstein (allir Rúss-
ar) voru efstir með 7 vinninga
hver. í 4—6 sæti dr. Filip Tékkó-
slóvakíu, Vasykov Rússl. og Por-
tish Ungverjal. með 6 vinninga
og í 7—9 sæti eru Aronin Rússl.,
Milev Búlgaríu og Friðrik ÓI-
afsson með 5 vinninga hver. 10.
er Simagin Rússl. með 4*4 vinn-
ing, 11. Bent Larsen Danmörku
með 4 vinninga og 12. Lutikov
Rússl. með 314 vinning.
f siðustu umferð mótsins urðu
úrslit þau að Bent Larsen vann
Lutikov, Portish og Spassky
ski/du jafnir, sömuleiðis Friðrik
Ólafsson og Smyslov, einnig dr.
Filip og Milev svo og Bronstein
og Aronin og Simagin gegn
Vasyukov.
þingi. Framundan eru kosningar
og barátta fyrir miklu réttlætis-
máli. Kjördæmabreytingin mun
valda þáttaskilum í íslenzkum
stjórnmálum.
Á Varðarfundinum í kvöld
mun Jóhann Hafstein taka mál
þessi til meðferðar. Ekki er ólík-
legt að Sjálfstæðisfólk muni fjöl
menna á fund, sem fjallar um
svo þýðingarmikil mál.
BLAÐINU barst i gær eftir-
farandi fréttatilikynning l)rá
utanríkisráðuneytinu:
„Að undanförnu hefur farið
fram opinber rannsókn á starf-
semi Hins íslenzka steinolíu-
hlutafélags á Keflavíkurflugvelli.
Rannsóknin hefur reynzt mjög
umfangsmikil og mun því drag-
ast nokkuð að henni verði að
fullu lokið. I sambandi við rann-
sóknina hefur það nú komið
fram, að Olíufélagið h.f. hefir
einnig átt hlutdeild að viðskipt-
Froskmaður
mun aðstoða
síldarbátana
AKRANESI, 21. apríl. — Frosk-
maðurinn hér, Hafsteinn Jóhanns
son, mun hafa ákveðið að fara
norður í sumar um síldveiðitím-
ann á hraðbát sínum, Eldingu,
sem er 12 tonn að stærð og geng
ur 18 mílur. Ætlar hann að að-
stoða síldarbátana, ef þess gerist
þörf. — Oddur.
Inflúensan breiðist
ört út í Reykjavík
INFLÚENZSUFARSÓTT hefur
breiðzt ört út í Reykjavík síð-
ustu dagana. Er veikin mjög smit
andi, svo á sumum heimilum
liggja heilu fjölskyldurnar og orð
in eru brögð að því að fólk
vanti á vinnustaði.
Hér mun ekki vera um sérstaka
tegund af inflúenzu að ræða, sam
kvæmt upplýsingum, sem blaðið
fékk í gær frá skrifstofu borgar-
læknis. Virðist veikin ekki leggj-
ast frekar á einn aldurflokk en
annan, og eftir því að dæma hve
margir veikjast hlýtur að vera
langt síðan nákvæmlega þessi vír
us var hér á ferðinni síðast.
Inflúenza þessi byrjar venju-
lega með þurrahósta. særindum
íhálsi og beinverkjum og fylgir
henni hár hiti. Tekur veikin yfir
leitt 3—4 daga, en henni getur
fylgt kvef, sem verður stundum
nokkuð þrálátt. Fólk ætti því að
fara vel með sig fyrstu dagana
eftir að það kemur á fætur.
Vaðlalieiði og
Öxnadalsheiði
færar
AKUREYRI, 21. apríl. — Allir
vegir hér í nágrenni Akureyrar
eru nú færir og ennfremur heið-
arnar, bæði austur og vestur á
bóginn. Lokið var að ryðja Öxna-
dalsheiði síðastliðinn laugardag
og Vaðlaheiði var rudd í dag. Eng
in aurbleyta er á vegunum, en
nokkur klaki mun þó vera í þeim.
Færi er því ágætt enn sem kom-
ið er.
um á Keflavíkurflugvelli. Ráðu-
neytið hefir því í dag gefið út
viðbótarskipunarbréf til umboðs
dómarans, sem rannsókn málsins
hefur með höndum, þar sem lagt
er fyrir hann að rannsaka einnig
starfsemi Olíufélagsins h.f. á
Keflavíkurflugvelli“.
Benedikt Jónasson
á Sey ðisf irði látinn
BENEDIKT Jónasson kaupmaður
á Seyðisfirði lézt í gær tæpra 75
ára að alri. Hann var um skeið
verzlunarstjóri fyrir Hinar sam-
einuðu íslenzku verzlanir á Vest-
dalseyri, en keypti síðar eignir
félagsins þar og starfrækti verzl-
un og fiskþurrkun og síðar verzl
un á Búðareyri um skeið. Bene-
dikt átti sæti í bæjarstjórn Seyð-
isfjarðar um langt skeið. Hann
var vararæðismaður Þjóðverja á
Seyðisfirði og síðustu árin bóka-
vörður við bókasafnið þar.
Benedikt var fréttamaður Morg
unblaðsins á Seyðisfirði um langt
árabil.
Bruni á
Akureyri
AKUREYRI, 21. apríl. — Kl. 7,12
í morgun var slökkviliðið hér í
bæ kvatt að húsinu nr. 45 við
Strandgötu, sem er eign Odds
Ágústssonar kaupmanns. Á efri
hæð hússins var mikill eldur í
einu herbergi. en í því bjó kona
sem fyrir hálfri stundu var far-
in til vinnu sinnar, er þetta gerð-
ist. Þótt herbergið væri alelda
tókst fljótlega að ráða niðurlög-
um eldsins.
Hér er um að ræða gamalt timb
urhús og má telja fullvíst að
geysimiklar skemmdir hefðu orð
ið á húsinu bæði af eldi og vatni,
ef slökkviliðið væri ekki búið
jafngóðum tækjum og raun ber
vitni. Eldurinn var kæfður með
háþrýstiúða og urðu því vatns-
skemmdir sáralitlar, lítilsháttar
á næsta lofti fyrir neðan.
Innanstokksmunir í herbergi
konunnar eyðilögðust, en þeir
voru óvátryggðir. Kviknað mun
hafa í út frá rafmagnshitakönnu.
— Vignir.
írskir sjómenn hverfa vonsviknir
heim úr skiprúmi hér
Neyðarástand heima hjá þeim vegna
vanskila við þá
SÍÐDEGIS í gær sátu fimm blá-
fátækir írar á Hjálpræðishern-
um, vonsviknir menn yfir íslands
ferð sinni, en hingað höfðu þeir
komið til sjómennskustarfa, en
allir eru þeir fiskimenn heima í
írlandi. Þeir fara væntanlega
heim í dag, þar eð þeir telja að
samningar hafi verið brotnir á
sér. Telja þeir sig eiga 80—100
sterlingspunda kröfu, hver um
sig á útgerðina sem- þeir störfuðu
hjá.
Þessir írar eru úr hópi 15, sem
komu hingað til lands 2. febrúar
síðastl. Voru þeir ráðnir til starfa
hjá Jóni Gunnarssyni í Hafnar-
firði.
írarnir skýra svo frá að samn-
ingar hafi verið brotnir á sér, allt
frá því er þeir komu til landsins.
Hafi þeir því orðið að leita aðstoð
ar ræðismanns íra hér, Ólafs Hall
grímssonar. Fyrir milligöngu
hans hefur írska utanríkisráðu-
neytið tekið að sér að greiða fyrir
þá flugfarið heim. Jafnframt
hafa þeir leitað aðstoðar lögfræð-
inga og mun mál sjómannanna
koma fyrir Sjó- og verzlunardóm
Hafnarfjarðar er fjalla mun um
kröfur íranna.
Það er einkum í sambandi við
yfirfærslu á launum þeirra til
heimsendingar, er írarnir telja
sig hafa verið svikna. Hingað
hafi þeir komið, vegna þess að
þeim hafi verið boðið upp á mun
betri kjör en heima í bænum
Wicklow. I gær voru írarnir
fimm svo illa á vegi staddir pen-
ingalega, að írski ræðismaðurinn
varð að hjálpa þeim um tóbak.
Einn íranna hefur skýrt frá
því, að í bréfi að heiman, hafi
sér verið skýrt frá því að barna-
verndarnefndin þar muni þá og
þegar taka börn hans í sína um-
sjá, vegna þess hve mikill skort-
ur er ríkjandi á heimili hans.
Allir eru fimmmenningarnir
fjölskyldumem með 3—4 börn á
framfæri sínu.
Einn íranna var farinn áður
heim, en þeir níu sem eftir eru,
munu reyna að fá hlut sinn rétt-
ann og munu ekki vera á förum
heim, a.m.k. ekki í bili.
J