Morgunblaðið - 26.04.1959, Qupperneq 1
24 siðwr
46. árgangur
93. tbl. — Sunnudagur 26. apríl 1959
Prentsmiðja Mor junblaðs
Vegur Alþingis vex vib að
verða réft mynd af
þjóðarviljanum
Framsókn á sjálf sök á einangrun
sinni. Hún hafði aðstöðu til
að semja v/ð alla hina flokkana
f
Ur rœðu Bjarna Benediktssonar á
föstudagskvöldið
Umræður á Alþingi um kjör-
dæmamálið héldu áfram í fyrra-
kvöld fram að miðnætti og hóf-
ust svo aftur eftir hádegi á laug-
ardag, og var þá búizt við að
þær myndu standa fram eftir
degi. Fyrstur ræðumanna var
Páll Þorsteinsson, sem talaði í 1 Vz
klukkutíma til viðbótar nær
tveggja tíma ræðu, sem hann
hélt daginn áður.
í frásögn Mbl. af þesum um-
ræðum í gær var þar horfið frá
að segja frá umræðunum, að Hall-
dór Sigurðsson þingmaður Mýra-
manna var að flytja aðra ræðu
sína þann dag.
Er hann hafði lokið að tala,
kvaddi sér hljóðs að nýju Bjarni
Benediktsson 1. þingmaður Reyk-
víkinga. Hann ítrekaði það sem
hann hafði sagt í fyrri ræðu
sinni, að allt mól þetta hefði ver.
ið lengi undirbúið og þaulrætt og
ekki hefði andstæðingum fr’im-
varpsins heldur verið varnað
máls í því á Alþingi. Þeir hefðu
meira að segja kvartað yfir því
við fyrstu umræðu um málið, að
útvarpsumræður skyldu fara
fram um það, það hefðu verið
þeir, sem ekki vildu, að umræð-
uf um það heyrðust inn á hvert
heimili.
Kúvending Framsóknar
Bjarni sagði, að eðlilegt væri að
viðhorf manna á kjördæmaskipt-
ingu hefðu tekið breytingum frá
því síðasta kjördæmabreyting var
gerð fyrir 17 árum, vegna þess að
gjörbreyting hefði orðið í byggð
landsins á þessum tíma. Hefðu
menn stundum skipt um skoðun
á skemmri tíma og mætti benda
á það, að Framsóknarmenn hefðu
ekki þurft nema 1 mánuð frá því
að þing Framsóknarmanna kom
saman hér í Reykjavík og þar til
þingmenn þeirra á Alþingi bera
fram allt aðrar tillögur í kjör-
dæmamálinu, en flokksþingið
samþykkti.
Nú leggja Framsóknarþing-
menn til að uppbótarþingsætum
verði haldið þvert ofaní flokks-
samþykktir sínar og þvert ofan
í sínar eigin ræður hér, þar sem
þeir úthúða uppbótarsætakerfinu.
Byggja ekki á sýsluskiptingunni
Ræðumenn Framsóknar hafa
sagt að ekki mætti skipta Reykja-
vík vegna þess að hún væri eitt
hérað, ein heild. En hvað þá um
samþyktir Framsóknar um að
skipta öllu landinu nema Reykja-
vík í einmenningskjördæmi? Átti
þá að skipta tvímennings
kjördæmunum í tvö kjördæmi,
eða áttu þau að missa annan þing
mann sinn? Hér á þingi hafa þeir
þó ekki borið fram tillögur um
slíkt, heldur vilja þeir halda tvi-
menningskjördæmunum. Sýnir
þetta hve röksemdafærsla Fram-
sóknarmanna er laus í reipunum.
Sama er að segja um þau rök
þeirra að hvert lögsagnarum-
dæmi sem hefur sjálfstæðan fjár-
hag sé sjálfstætt kjördæmi. Hvers
vegna bera Framsóknarmenn þá
ekki fram tillögur um að t. d
Húsavík, Sauðárkrókur, Neskaup-
staður, eða Bolungarvík og hið
gamla sýslufélag Austur-Barða-
strandarsýsla verði sjólfstæð kjör
dæmi? Sannleikurinn er sá, að
tillögur Framsóknarmanna brjóta
á móti meginþáttum þeirrar eigin
hugsunar. Enda er engin heilleg
hugsun í tillögum þeirra. Þar ræð
ur alger hentistefna, miðuð við
það eitt, að Framsóknarflokkur-
inn haldi áfram óeðlilega mörg-
um þingmönnum.
Og ástæðan til þess að Fram-
sóknarmenn vilja ekki skipta
Reykjavík upp í einmennings-
kjördæmi er hvorki söguleg né
héraðsleg, ástæðan er sú ein, að
þá yrði útilokað, að Framsóknar-
flokkurinn fengi nokkurn þing-
mann kosinn þar. Og sama er að
segja um Akureyri.
Framsókn vildi aldrei semja
Bjarni Benediktsson tók það
skýrt fram í ræðu sinni, að ef
Framsóknarflokkurinn hefði vilj-
að leita samninga um málefna-
lega lausn þessa máls. þá hefði
enginn flokkur haft betri aðstöðu
til að koma skoðunum sínum
fram, en einmitt hann.
Framsóknarflokkurinn var í
mörg ár í samstarfi með okkur
Sjálfstæðismönnum og við vor-
um margir í þeim flokki, sem
.vildum kanna hvort mögulegt
væri að ná samkomulagi um ein-
menningskjördæmi. Landsfund-
ur okkar 1953 samþykkti heimild
til að semja hvort sem heldur
væri um einmenningskjördæmi
eða mörg stór kjördæmi með
Framh. á bls. 2.
Á kænum yíir
Atlantsliaf
LONDON, 25. apríl. — Sex banda
rískir herflugmenn og einn
Breti létu úr höfn á Bretlandi
í dag á tveimur smábátum. Er
ætlun þeirra að sigla yfir þvert
Atlantshaf, til Miami á Florida,
vegalengdin er um 6,000 mílur.
Vésteinn Guðmundsson
Þorgils Guðmundsson
Einkennilegt
loftfar
FRANSKUR stjörnufræðingur
Audoin Dolfuss, náði í vikunni
43,000 feta hæð í all einkennilegu
loftfari. Festi hann 100 smábelgi,
fyllta vetni, á 1,500 feta langan
nælonkaðal, sem síðan var fest-
ur við loftþétta kúlu, er vísinda-
maðurinn hélt sig í með tæki
sín. Ætlun hans var að komast
upp í 82,000 feta hæð til þess að
skoða Venus, sem nú er næst
jörðu.
Ekki komst Dolfuss nema lið-
lega helming leiðarinnar, því
fleiri belgir sprungu á uppleið-
inni en hann hafði búizt við,
þeir þoldu ekki þensluna, voru
ekki jafnsterkir og hann ætlaði.
Þetta voru belgir, sem notaðir
eru til þess að flytja veðurathug-
unartæki upp í háloftin.
Framhoðslisti Sjálfstæðis-
flokksins í Eyjafjarðarsýslu
Akureyri, 25. apríl.
Á FJÖLMENNUM fundi trúnað-
armanna Sjálfstæðisflokksins í
Eyjafjarðarsýslu, sem haldinn
var hér á Akureyri síðastliðinn
sunnudag var einróma ákveðið,
hverjir skyldu verða í framboði
af hálfu flokksins í sýslunni við
kosningarnar í vor. Samþykkt
var að fara þess á leit við eftir-
talda fjóra menn, að þéir skipi
lista flokksins, og hafa þeir allir
samþykkt að verða við beiðninni:
Magnús Jónsson, alþingismað-
ur, Reykjavík.
Árni Jónsson, tilraunastjóri,
Akureyri.
Vésteinn Guðmundsson, verk-
smiðjustjóri, Hjalteyri.
Þorgils Gunnlaugsson, bóndi, |
Sökku, Svarfaðardal.
Magnús Jónsson er Eyfirðing-
um og raunar alþjóð svo kunn-
ur, að ekki er þörf að kynna
hann í löngu máli. Hann hefir
nú setið á Alþingi síðan á kjör-
tímabilinu 1949—’53 er hann tók
sæti sem varaþingmaður Stefáns
Stefánssonar £ Fagraskógi. Hann
hefir flutt mál Eyfirðinga af ein-
urð og dugnaði. Magnús hefir
Indverjar œtla að gera
Tíbet að leppríki
— segja kínverskir
kommúnistar
Hong Kong, 25. apríl.—
ALLUR blaðakostur kín-
verskra kommúnista réðst í
dag harkalega á Nehru og'
Indverja og sakaði ind-
verska forsætisráðherrann
um að hafa á prjónunum
ráðagerðir um að gera Tíbet
að leppríki Indlands.
Nehru ræddi við Dalai Lama í
gær í fyrsta sinn eftir að Lama
kom til Indlands á flótta sínum
undan kínverskum kommúnist-
um. Ræddust þeir lengi við og að
loknum fundinum lét Nehru svo
um mælt að Indverjar mundu
taka vel á móti Panchen Lama
eða hverjum öðrum fulltrúa kín-
verskra kommúnista, sem vildi
koma til Indlands og ræða við
Dalai Lama um framtíðarsambúð
Tíbets og Kína. Var þetta almennt
skilið svo sem Nehru vildi opna
Framh. á bls. 23.
haft á hendi mörg trúnaðarstörf
og þýðingarmikil fyrir Sjálfstæð-
isflokkinn og verið framkvæmda-
stjóri hans nú um allmörg ár.
Magnús er maður einkar vin-
sæll meðal Eyfirðinga, hvar í
flokki sem þeir standa, enda fer
hann aldrei í flokks- eða mann-
greinarálit, þá er til hans er
leitað með fyrirgreiðslu, er al-
þingismenn títt inna af hendi.
Árni Jónsson tilraunastjóri hef-
ir nú í áratug staðið fyrir til-
raunastöðinni hér á Akureyri og
er eyfirzkum bændum vel kunn-
ur. Árni hefir jafnan frá því
hann fluttist hingað tekið virkan
þátt í félagsmálum og þá fyrst
og fremst þeim, er að búskap og
öðrum áhugamálum bænda hafa
lotið. Árni Jónsson hefir við
tvennar undanfarnar alþingis-
kosningar skipað annað sæti list-
ans í sýslunni.
Vésteinn Guðmundsson verk-
smiðjustjóri á Hjalteyri skipar
nú þriðja sæti listans. Hann hef-
ir um langt árabil unnið ötul-
lega að framgangi mála Sjálf-
stæðisflokksins í Eyjafjarðar-
sýslu. Vésteinn er fæddur 1914
að Hesti í önundarfirði, sonur
Guðmundar bónda Bjarnasonar
og konu hans Guðnýjar Arngríms
dóttur. Hann varð stúdent 1935
og lauk prófi í efnaverkfræði frá
D.T.H. í Kaupmannahöfn 1940.
Hann vann að loknu prófi við
niðursuðuverksmiðju £ Keflavík,
síðan við hraðfrystihús í Innri-
Njarðvík, og verkfræðingur Hjalt
eyrarverksmiðjunnar hefir hann
verið frá 1941, og frá 1947 hefir
hann verið framkvæmdastjóri
verksmiðjunnar. Vésteinn hefir
auk þessa unnið að endurbótum
Framh. á bls. 2. j
Arias flóttamaður -
Fonteyn s/app, en..?
PANAMA, 25. apríl. — Roberto
Aias, sem Panamastjórn hefur
leitað mjög undanfarna daga,
hefur leitað hælis í braziliska
sendiráðinu í Panama og beðizt
hælis, sem pólitískur flóttamaður.
Braziliski sendiherrann hefur í
hyggju að fá íeyfi til þess að
flytja Arias úr landi — og bíður
nú svars stjórnar sinnar við því
hvort honum sé heimilt að gera
þessa tilraun.
Panamastjórn hefur nú upp-
lýst, að eiginkona Arias, brezka
balletdansmærin, Margot Font-
eyn, sem sat í fangelsi í sólar-
hring í Panama en var sleppt og
komin er til Bretlands, hafi verið
sek um þátttöku í áformum um
að seeypa stjórn Panama af stóli.
Sönnunargögn hafi nú fundizt,
en of seint. Verið geti, að Bret-
ar verði beðnir að framselja kon
una Panamastjórn til yfirheyrslu.
★------------------------★
JUurgMElíIa&i&'
Sunnudagur 26. april
Efni blaðsins m. a.:
Bls. 3: Sumri fagnað (Kirkjuþáttur).
Úr verinu.
— 6: Frú Voillery kveður éftir M
ára dvöl á íslandi.
— 8: Sitt af hverju tagi.
— 10: Fólk í fréttunum.
~ 12: Forystugreinin: Skuggi vinstri
stjórnarinnar.
Brúðkaup í írlandi (Utan ir
heimi).
— 13: Reykjavíkurbréf.
— 14: Ferming í dag.
— 15—16: Barnalesbókin.
— 16: Skák.
— 22: íþróttafréttir.
★------------------------*
L