Morgunblaðið - 03.05.1959, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 03.05.1959, Qupperneq 16
16 MOnCVWBLAfílÐ Sunnudagur 3. mai 1959 S/ölug á morgun: Sólveig Jónsdóttir frá Nesi við Seltiörn SJÖTUG verður á morgun frú Sólveig Jónsdóttir, í Nesi við Sel- tjörn Sólveig er fædd 4. maí 1889 að Vík í Innri-Akraneshreppi. Foreldrar hennar voru hjónin Sigríður Ólafsdóttir og Jón Sig- urðsson, útvegsbóndi I Vík. Föð- ur sinn missti Sólveig 6 ára gömul og ólst hún upp með mðður sinni ásamt tveimum öðrum systkinum, Soffíu, sem er fimm árum eldri og Sigurjóni sem var yngri. Sól- veig varð snemma liðtæk til allra starfa og hefur mér verið sagt að um fermingu hafi hún verið eins dugleg til útivinnu eins og rösk- ustu lcarlmenn. Innan við tvítugt fluttist Sólveig til Reykjavlkur með móður sinni og bróður, fór hún þá að læra saum á vetrum en fór í fiskivinnu eða kaupavinnu á sumrin. Sólveig giftist 2.3 ára göm ul Gunnsteini Einarssyni, bónda og skipstjóra í Skildingarnesi, hann var ekkjumaður og átti 3 börn, auk þess fylgdu heimilinu gamalmenni svo að það var nóg verkefni sem biðu ungu konunnar er tók við hinu stóra heimili í Skildingarnesi, svo bættust fljót- lega við hennar eigin börn, sem urðu 7 eða 10 með stjúpbömun- um. Nú kom í góðar þarfir það sem hún hafði þegar lært í skóla lífsins. Fáar hafa frístundirnar irðið og lítill svefntími, því að loknu dagsverki settist hún við I saunva bæði við að fata f jölskyJd- 1 una og vinna fyrir aðra utan | heimilis. Árið 1919 seldu þau hjón in Skildingarnesið, en keyptu Nes j II. við Seltjörn og fluttust þang- að. Þar ráku þau eingöngu bú- skap, lögðu mikið í að færa út ræktun og bæta jörðina. Þó að Sólveig hefði þungt heimili og oft við erfið kjör að búa hefur hún ætíð verið veitandi á lífsleið sinni, enda ótaldir þeir hlutir, er hún hefur rétt að þeim, sem illa voru settir eða áttu við vanheilsu að búa, slík vinsemd við þá sem hart hafa orðið úti er ríkur þátt ur í skapgerð hennar. Árið 1935 missti hún stjúpson sinn, eftir langvarandi sjúkdóm og árið eftir son sinn 14 ára gamlan af slys- förum, eftir það bar Gunnstsinn aldrei sitt bar og andaðist af hjai-taslagi 1937. Þetta voru þung áfödl og hefur gengið nær Sól- veigu þó hún bæri ekki harm sinn á torg, þó sumt af börnun- um væru uppkomin voru þau yngstu í ómegð og tímar mjög slæmir, en hún rak búið með frá- bærum dugnaði og hagsýni. Enda tokst henni að yfirstíga efnahags- örðugleikana og sjá frám á ör- ugga framtíð fyrir sína. En þessi sigur var dýrkeyptur, hið mikia starfsþrek hefur látið undan, fyr- ir aldur fram og hefur hún nú Five Keys við komuna til Reykjavíkur. Hljómleikar Five Keys afhurða skemmtilegir SÖNGKVINTETTINN Five Keys, sem er skipaður fimm amerísk- um svertingjum söng í fyrsta um langt skeið átt við mjög vond- an sjúkdóm að stríða og þurft að líða mikla þjáningar, þó er hug- urinn enn sem fyrr, fullur af þrótti og lifandi af starfsþráa. Ég vil svi óska Sólveigu til ham- ingju með afmælisdaginn og vona að hún megi lifa marga gleði- stundir í hópi afkomehda simra og skilduliðs. , — Kunnugur. sinn hér á landi á hljómleikum í Austurbæjarbíói í gærkvöldi. Kvintettinn söng nær tuttugu lög hvert öðru skemmtilegra. Skiptust þar á róleg lög og lög í nokkurskonar rokkstíl. Fyrsti tenórsöngvari kvintettsins söng að jafnaði einsöng í rólegu lög- unum og hefur líklega aldrei fyrr heyrst jafn bjartur tenórsöngur á hljómleikum hér. Sviðframkoma þeirra Five Keys var einkar skemmtileg, og látbragðsleikur þeirra í siðasta laginu var frábærlega skemmti- legur, má með sanni segja að áhorfendur hafi velzt um í sæt- um sínum af hlátri. Enginn vafi leikur á, að Bivé Keys er allra skemmtilegasta atr- iði sem hingað hefur komið er- lendis frá. Er ánægjulegt til þess að vita að svo vel skyldi hafá tekizt til um val hjá Blindrafé'- laginu, er það efnir til skemmf- anahalds til styrktar blindraheim ili sínu. Enda létu áheyrendur hrifningu sína óspart í Ijós, því söngvararnir ætluðu ekki að sleppa af sviðinu fyrr en þeir höíðu sungið nokkur aukalög, og þá jók það enn á hrifninguna að eitt aukalagið var íslenzka lagið Ljúfa vina og sungu þeir það á isienzku. Þá átti K.K. sextettinn stóran þátt í þessum skemmtilegu hljóm leilcum því hann lék undir söngn um af mikilli smekkvísi (voru kannske fullsterkir) og léku jafn framt nokkur lög sjálfstætt með hinum skemmtilegu söngvurum hljómsveitarinnar þeim Elly Vil- hjálms og Ragnari Bjarfnasyni, sem sönnuðu en ná ný, að þau eru bæði skínandi góðir söngvarar og framkoma þeirra á sviði er að verða tl fyrirmyndar. Ég vil eindregið hvetja fólk til að láta skemmtun þessa ekki fara framhjá sér, því mér þykir ótrú- legt að von verði á öðru eins atr- iði hingað til lands um árabil. Aflafrétt frá Akranesi AKRANESI, 2. maí: — Fimmtu- dagsafli Akranesbáta var um 200 tonn alls og voru hæstu bátar með yfir 20 tonn: Sigrún 26,6 tonn, Ólafur Magnússon 25,5 tonn og Reynir 21 tonn. — Hæsta trillan var með 2ð4 tonn af slægðum fiski þennan dag. — Oddur. 9 LESBÓK BARNAKNA LESBÓK BARNANNA 9 unum og honum fannst sér sortna fyrir augum. En þá var eins og gamla góða vélin hans iðraðist þess, hversu illa hún hafði hagað sér. Á síðustu stundu tókst honum að koma hreyflinum í gang. Jón beit á jaxlinn, greip um hæðarstýrið og beindi vélinni í krappri beygju upp á við. Gamli hreyf- illinn tók á öllu, sem hann átti til og vængirnir svignuðu, svo að það brakaði og brast í þeim. Myndu þeir þola það feiknarlega átak, sem þurfti til að knýja vél- ina upp? Það tókst. Fáum sek- úndum áður en vélin hefði steypzt ofan á hús- in, hafði hún rétt sig við og hækkað flugið. — Skömmu siðar lenti hún heilu og höldnu á flug- vellinum. Vinir Jóns þyrptust að til að óska honum til hamingju með hvernig honum tókst að afstýra slysinu. En þeim gafst ekki langur tími til að fagna hetjunni. Varla var hann kominn út úr vél- inni, þegar boð bárust um, að hann ætti strax að mæta á skrifstofu flug- félagsins. F ramkvæmdast j órinn var alvarlegur, þegar hann heilsaði Jóni. Hann skýrði honum frá því, að félagið væri í þann veg- inn að verða gjaldþrota og yrði að hætta starf- semi sinni. — En, bætti framkvæmdastjórinn við, þó var eitt úrræði til, sem hefði getað bjargað þeim út úr erfiðleikun- um. Hann hafði fengið tilboð um ,að félagið tæki að sér gullflutning- ana frá námasvæðinu hin um megin við fjöilin. Gullið átti að flytja í bankann í Árbæ. Áður hafði gullið verið flutt á hestum, en í seinni tið hafði gulllestin oft sætt árásum ræningja og gull- grafarnir orðið fyrir miklu tjóni. Þess vegna var nú talað um að flytja gullið loftleiðis. Hvort það tækist var að miklu leyti undir Jóni og „Eld- ingunni" komið. Slikt flug var áhættusamt, þar sem leiðin iá yfir fjöllótt og hættulegt land. En gullgrafarnir myndu borga vel og ef fyrsta ferðin heppnaðist, átti Jón að fá nýja flugvél. —• Framkvæmdastjórinn i lauk máli sinu með því að spyrja Jón, hvort hann vildi taka þetta að sér. Jón sagðist hiakka til að eiga svona ævintýra- lega ferð fyrir höndum og i hann og . „Eldingin“ | mundu gera eins vel og þau gætu. Framkvæmdastjórinn lofaði honum að gert skyldi vera við gömlu vél ina hans eftir föngum. — Hreyfillinn yrði að vinna vel til að lyfta vélinni fullhlaðinni upp í mörg þúsund metra hæð, svo að hún slyppi við fjallstind- ana. Síian kvaddi hann Jón og árnaði honum allra heilla í förinni, sem átti að hefjast morguninn eftir. Þeir myndu tæplega hafa verið eins bjartsýn- ir, ef þeir hefðu vitað, að uppi á loftinu yfir skrif- stofunni, hafði skuggaleg ur náungi falið sig. Hann hafði heyrt hvert orð af því, sem fram fór. Um kvöidið, þegar Jón hélt heim af flugvellin- um, átti hann leið um dimma götu í útjaðri þorpsins. Maður nokkur, sem Jón ekki þekkti, gekk þá í veg fyrir hann. „Halló, Jón“, sagði hann, „lagleg flugsýning þetta, sem þú s ýndir okkur í dag. Komdu inn í krána og fáðu þér eitt glas.“ „Nei, takk“, sagði Jón stuttaralega, honum leizt illa á þennan náunga. En ókunni maðurinn var sýnilega ekki á því að gefast upp. „Hefurðu ekki tíma til að ræða svo- lítið um viðskiptamál?" spurði hann. „Eg stunda engin við- skipti, þú hlýtur að fara mannavilt", svaraði Jón um leið og hann hraðaði sér af stað. „Þetta verður sjálfsagt skemmtileg ferð, sem þú leggur upp í á morg- un!“ „Hvað veizt þú um það?“ Meira. Ráðning 'á krossgátu Lárétt: 1. et, 4. ljón, 6. gæjar, 8. S.Ó., 9. ar, 11. lýsi, 12. ára, 13. ak. Lóðrétt: 1. egg, 2. æja, 3. in, 4. ljósa, 5. óra, 7. æsir, 10. rik, 11. lá. Nú á að grafa jarðgöng gegn um hæsta f jall Evrópu, Mont Blanc og gera þar bílabraut. Byrj- að er á verkinu, en gert er ráð fyrir, að það taki þjú ár að Ijúka því. Jarðgöngin stytta leið- ina milli Parísar og Mil- anó um 300 km. Sjálf verða göngin 7 km. löng og 9 metra há. Auðvitað verða þau öll raflýst og komið verður fyrir tækj- um sem gefa frá sér vatns úða, svo að hitinn í göng- unum verði ekki of hár. Búist er við að árlega fari 600 þús. bílar um jarðgöngin með um það bil 1% milljón farþega. í göngunum verða 24 viðgerðarstöðvar, sem geta framkvæmt minni háttar viðgerðir á bílum, svo að ekki verður langt á næsta „verkstæði“. Kostnaðurinn við jarð- göngin skiptist jafnt milli Frakklands og ftalíu, sem eiga sinn helminginn hvort í þessu mikla mann virki. Gyða Ólafsdóttir, Vest- urgötu 117, Júlíana Bjarnadóttir, Vesturgötu 123 og Júlía Baldursdótt- ir, Bakkatúni 6, allar á Akranesi, vilja skrifast á við stúlkur eða drengi 12 —14 ára. — Anna Nína Stefnisdóttir, Nýbýlavegi 34a, Kópavogi (sem hef- ur mestan áhuga á teikn- ingu og dansi) við dreng eða stúlku 12—13 ára. — Guðmundur Halldórsson, Rauðalæk, Holtum, Rang. við pilt eða stúlku 13— 15 ára og Sigurður R. Kjartansson, Brekkum, Holtum, Rang., við pilt eða stúlku 9—11 ára.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.