Morgunblaðið - 03.05.1959, Page 24

Morgunblaðið - 03.05.1959, Page 24
Kommúnistar seftu blett á hátíðahöldin 7. maí Sviku gert og komu frekju og samkomuíag fram með dólgshœtti ekki einustu svik kommúnista þennan dag. Þeir bættu gráu of- an á svart með því að smygla nokkrum kröfuspjöldum inn í gönguna en um öll spjöldin var gert samkomulag fyrirfram og voru kommúnistar aðilar að því samkomulagi. Lýðræððissinnar hafa aetíð lagt á það megináherzlu, að verkalýðssamtökin gangi óklofin til hátíðahaldanna 1. maí og höfðu lýðræðissinnar nú lagt sig alla fram til að ná því sam- komulagi, sem nú varð, þrátt fyrir margháttaða óbilgirni kommúnista. En samt sem áður rufu kommúnistar með frekju og dólgshætti það, sem samið hafði verið um. 3635 íbúar á Akranesi AKRANESI, 2. apríl. — Sam- kvæmt síðustu skýrslum er íibúa- fjöldinn hér á Akranesi 3685 manns. Fyrir 5 árum voru ílbúam- ir 3139, fyrir 10 árum 2500 og geta má þess að fyrir réttum 25 árum voru bæjarbúar 1400. Á þeísum aldarfjórðungi hefur tala íbúanna langt til þrefaldast. Kröfugangan í Hafnarstræti Harrison skipstjóra sleppt gegn 779,400 kr. tryggingu dæmdur í þriggja mánaða varð-*~ hald. HÁTÍÐAHÖLD verkalýðsins 1. maí fóru fram í stórum dráttum skv. þeirri dagskrá, sem birt var hér í blaðinu á fimmtudag. Þó gerðu kommúnistar tilraun í þá átt að spilla fundinum á Lækjartorgi, svo sem nú verður frá skýrt: Fundarstjóri var Jón Sigurðs- son, formaður Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna og tóku ræðumenn til máls, eins og áður hafði verið ákveðið. Þriðji ræðu- maðurinn var Guðni Árnason, formaður Trésmiðafélags Reykja víkur. Er hann var kominn fram í ræðuna, sem birt er í heild á 2. síðu blaðsins í dag, hóf öskur- kór kommúnista upp óp og ó- hljóð. Þessi ólátamenn voru ekki margir en höfðu raðað sér beint fyrir framan ræðustólinn og var það sýnilega fyrirfram undirbúið af kommúnistum. Óhljóðin hóf- ust þegar Guðni sagði eftirfar- andi: „Ef skerða á kjör okkar, eða brjóta þarf okkar rétt, þá fer bezt á því, að það sé nefnt réttu heiti og að slíkar ráðstafanir séu ekki gerðar í nafni heildarsam- taka okkar. íslenzk verkalýðs- hreyfing frábiður sér í framtíð- inni slíkan Hannibalisma. Hún mótmælir því að pólitískir ævin- týramenn séu að flækja Alþýðu- samtökunum inn í refskák síns pólitíska metnaðar“. Vegna óhljóða kommúnista- hópsins varð Guðni að gera hér hlé á máli sínu en í sömu and- ránni kom Snorri Jónsson, form. Fél. járniðnaðarmanna, til fund- arstjóra og krafðist þess af hon- um, að Guðni fengi ekki að ljúka máli sínu. Þessu neitaði fundar- stjóri enda hefði hver ræðumað- ur fullt málfrelsi. Nú stóð svo á, að eftir var annar af ræðumönn- um kommúnista, og fundarstjór- inn tók skýrt fram við Snorra, að ef Guðni lyki ekki máli sínu, mundi fundi verða slitið þegar í stað, vegna skrílsláta kommún- ista. Ruddist þá Snorri Jónsson upp í ræðustólinn, án leyfis fund arstjóra og hrópaði til öskur- kórsins: „Við skulum lofa mann- inum að ljúka máli sínu“. Þögn- uðu þá öskrin samstundis. Þessi ummæli Snorra og viðbrögð ösk- urkórsins sýna það og sanna, að þessi hópur, sem þarna var sett- ur beint framan við ræðumenn- ina, var undir stjórn Snorra og til þessa alls stofnað til að hleypa fundinum upp, ef kommúnistum sýndist. Guðni lauk svo ræðu sinni, sem fékk góðar undirtektir fólks- ins, en sýnilegt var að almenn- um áheyrendum ofbuðu þessar aðfarir kommúnista. Innan þeirra samtaka, sem skipulögðu hátíðahöldin, var gert ráð fyrir því að hver fengi að halda sína ræðu á þann hátt, sem hann vildi og var framferði Snorra Jónssonar og manna hans freklegt brot á því, sem talað hafði verið um og til þess fallið að setja blett á hátíðahöld dags- ins. Þess má geta, að ræðumenn kommúnista fengu að halda ræð- ur sínar ótruflaðir þrátt fyrir það þótt þeir héldu hákommún- ískar ræður, sem öllum fjöldan- um mun ekki hafa geðjast að. Önnur svik komma Brot á ræðufriðnum 1. maí, eins og lýst er hér að ofan, voru Á FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ voru settar fram tryggingar þær er bæjarfógetinn í Vestmannaeyj- um, Torfi Jóhannsson, hafði krafizt vegna dómsins í máli Harrisons skipstjóra á brezka togaranum Lord Montgomery. Er alls um að ræða kr. 779, 400,00. Þegar dómur gekk í málinu, var að lokinni áfrýjun þess til Hæstaréttar, krafizt 379,400,00 króna vegna greiðslu sektar, upp töku afla og veiðarfæra, svo og málskostnaðar. Bæjarfógetinn hafði leyft að settar yrðu 400,000 krónur til tryggingar fyrir nærveru Harri- sons skipstjóra, þegar endanleg- ur dómur fellur í máU hans. — Skipstjórinn var sem kunnugt er Milli kl. 7 og 8 að kvöldi 1. maí höfðu allar tryggingar verið settar fram vegna togarans og Harrisons skipstjóra, samtals að upphæð 779,400 krónur. Voru skipstjóranum þá skömmu síðar afhent skipsskjöl og lét togarinn úr höfn þá um kvöldið. Búist er við að reynt verði að fá málsmeðferð fyrir Hæstarétti flýtt svo sem tök eru á. Er enn við Stakksnes Fulltrúaráðs- fundur í Sjálf- stæðisfél. í Kópavogi FULLTRÚARÁÐ Sjálfstæðisfé. laganna í Kópavogi heldur full- trúaráðsfund á morgun, mánudag inn 4. maí, kl. 20,30. Fundurinn verður haldinn að Melgerði 1, Kópavogi. Á þessum fundi ræðir Magnús Jónsson, alþm., stjórnmálavið- horfið. ______________^ Lárus Þorsteinsson •---- . Hættulegar atrennur herskips- ins gátu leitt til manntjóns VARÐSKIPIÐ María Júlía, skip herra Lárus Þorsteinsson, er hér í höfninni, eftir að hafa verið á gæzlusiglingu í 10 daga Lárus skipherra sagði í viðtali við Mbl. í gærmorgun, að hann hefði í þess um leiðangri orðið fyrir barðinu á brezka herskipinu Contest, sem brotið hefði allar siglingareglur og teflt öryggi hins litla varð- skips í beinan háska, vegna á- byrgðarleysis hins brezka skip- Iherna þess. Þetta hafði gerzt á miðvikudag og fimmtudag á Selvogi og við Vestmannaeyjar. Þá hefði her- skipið brezka í 20—30 skipti brun að að varðskipinu Maríu Júilíu, farið þvert í veg fyrir það, rétt framan við stefni þess, en her- skipið dró á eftir sér í stálvír flofcholt. Hafði varðskipið því orð- ið að sveigja af leið og jafnvel stöðva alveg vélina til þess að lenda ekki á herskipinu eða flot- holtinu. Mikill stærðarmunur er á Maríu Júlíu og herskipinu og hefði árekstur orðið, þá hefði varðskipið brotnað. Á fimmtudaginn kvaðst Lárus skipherra hafa verið orðinn svo þreyttur á þessum hættulega leik hins brezka skiplherra á Cintest, að hann sendi honum orðsendingu og benti honum á að með siglingu sinni hefði hann brotið gróflega allar siglingareglur og kvaðst Lárus hafa kvatt Bretann til að kynna sér siglingareglurnar ítar- lega, því svo hættulegur væri leikur sá er hann stundaði að manntjón gæti auðveldlega hlot- ist. Nokkru síðar svaraði skipherr- ann þessari orðsendingu. Þá tók hann upp flotholtið. Hann kvað framferði íslenzkra varðskipa brjóta í bága við brezk lög og her skipið væri hér aðeins til þess að vernda brezka togara gegn af- skiptum ísl. varðskipa. Nokkru fleiri orðaskipti áttu sér stað milli skipanna, en skömmu eftir þetta var þessu lögbrotasvæði brezka flotans lokað. Lárus Þorsteinsson kvaðst telja að í þessum „leiðangri“ hefðu hann og skipsmenn hans kært um 40 brezka togara. Hittum við tvo sem íslenzkir menn eru á. Annar þeirra er Northem Prince sem Þorsteinn H. Eyvindsson er á. Hann var ekki kærður, var á sigl ingu út er við komum. Þá mætt- um við nýlegum togara, Jarley, sem Sigurður Þorsteinsson er skip stjóri á. Hann er einn hinna fáu brezku toganar sem stunda veið- ar hér við land og aldrei mun hafa verið skrifaður upp, hvað þá meira. Hann var á heimleið, með allt upp bundið og þurrt á dekk- inu sjá sér, sagði Lárus. ALLT er tíðinalaust af töku tog- arans Ashanti, sem varðskipið Al- bert stóð að veiðum 9 mílur fyr- ir innan línu við Vestmannaeyjar á miðvikudagskvöldið. 1 gærdag var Albert enn yfir togaranum, sem stöðugt nýtur verndar herskips, á hinu nýopnaða lögbrotasvæði brezka flotans við Stokksnes. Þar var sæmilegt veð- ur og ltíill afii hjá lögbrotatogur unum þar. Þvottavél stolið Fyrir nokkru var brotist inn í ó- læstan kjallara í húsi einu við Óðinsgötu og var þar stolið mjög nýlegri þvottavél, Rando-gerð. Hefur þjófnaður þessi verið kærð ur til rannsóknarlögreglunnar. —■ Eru það eindregin tilmæli hennar til þeirra er gefið gætu uppl. um vél þessa, að þeir geri sér aðvart. Komumenn fundu fjölda fjár í svelti og dauða NOKKRIR Reykvíkingar sem voru á ferð austur í Grímsnesi á fimmtudaginn, komu þar heim á mannlausan bæ, og fund ið þar margar kindur sem ýmist voru að því komnar að deyja úr hungri, eða þegar orðnar hung- urdauða. Komumenn höfðu ekki fundið neinn mann þar á bænum, en hér var um að ræða Þóroddsstaði í Laugardal. Við nánari athugun kom í Ijós, að 10 kindur voru dauðar, en um tölu þeirra sem aðframkomnar voru, var ekki vit- að, en 250 höfðu verið á fóðri í vetur. Mál þetta var kært til sýslu- mannsins og var rannsókn þess á byrjunarstigi í gær. Mennirnir sem komið höfðu heim ó Þórodds staði, höfðu gefið hina hroðaleg- ustu lýsingar á þeirri óhugnan- legu sjón sem við þeim blasti þar. Maður ofan úr Borgarfirði hef- ur haft jörðina á leigu í vetur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.