Morgunblaðið - 23.05.1959, Page 8
8
MORGVTSBL AfilÐ
Laugardagur 23. maí 1939
Utg.: H.í. Arvakur ReykjavQt.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Aðalritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Bjarni Benediktsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur
Einar Asmundsson.
Lesbók: Arni Óla, sími 33045.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargald kr 35,00 á mánuði innam&nds
1 lausasölu kr. 2.00 eintakið.
EIGA KJÓSENDUR AÐ GLEYMA
ÞESSU ÖLLU?
IITAN IIR HEIMI
Sjóflugvélin er að hverfa
úr sögunni
Tíminn er á hverjum degi
að reka upp neyðaróp um
það, að kjósendur eigi að
gleyma öllu við kosningarnar 28.
júní nema einu máli, kjördæma-
málinu, og halda fram þeirri
firru að samkvæmt stjórnar-
skránni sé kjósendum beinlínis
bannað að hafa nokkuð annnað í
huga við þær kosningar en kjör-
dæmamálið. Hér í blaðinu hefur
þessi staðhæfing verið tekin til
meðferðar og verður það ekki
endurtekið hér.
★
Framsóknarmenn óska einskis
annars heitar en að allur þeirra
ferill í vinstri stjórninni gleymist
og ber það vitaskuld vott um það,
hve lítinn frægðarferil þeir telja
sig eiga þar að baki. En vitaskuld
gleymist kjósendum þetta ekki,
hvað sem Framsóknarbroddarnir
óska þess. Við skulum líta á „Tím
ann“ frá fimmtudeginum hinn 19.
apríl 1956, þegar lýst var yfir
stofnun Hræðslubandalagsins. Þá
var talað um, að nú væri stofnað
til „alhliða viðreisnar efnahags-
lífsins“ og nú ætti að hefja „þrótt
mikla framfarabaráttu" í land-
inu. Það var líka í aðalfyrirsögn
í sama blaði sagt, að utanríkis-
málastefnan yrði mörkuð „í sam-
ræmi við samþykkt Alþingis í
varnarmálunum“, en þar er átt
við hina frægu samþykkt frá 28.
marz 1956 um brottrekstur er-
lends varnarliðs af íslandi, sem
góðu heilli var aldrei fram-
kvæmd. Inni í blaðinu er svo birt
með gleiðu letri stjórnmálayfir-
lýsing og stefnuskrá Hræðslu-
bandalagsins. Þar er því lýst að
mikill vandi steðji að þjóðinni.
Atvinnuvegunum sé haldið uppi
með beinum styrkjum, gjaldeyris-
lántökur hafi farið fram úr hófi,
og annað því um líkt. En því er
svo bætt við, eftir gð lýst er hinu
ömurlega ástandi, að „nú verð-
ur að brjóta blað í islenzkum
stjórnmálum. Ef ekki verður grip-
ið fast í taumanna mun skapast
algert öngþveiti í efnahags- og
fjármálalífi þjóðarinnar. Af því
leiddi stöðvun framkvæmda, at-
vinnuleysi og upplausn“. Hér á
eftir verður á það bent, að það
var ekki þetta, sem blasti við,
þegar stjórn Ólafs Thors fór frá
völdum árið 1956, en það blasti
hinsvegar greinilega við öllum
landsmönnum, þegar stjórn Her-
manns Jónassonar gafst upp fyr-
ir jólin nú síðast, eins og vikið
verður að hér á eftir. Svo er bætt
við slagorðum, eins og um að
„brjóta á bak aftur vald milli-
liða og gróðastétta“, og að tryggja
verði „öllu vinnandi fólki fullan
afrakstur þess, sem það skapar
með vinnu sinni“. Þá var talað
um að koma á „hagstæðari verzl-
un“ og vita allir landsmenn,
hvernig það hefur tekizt. Einnig
skyldi sett löggjöf um ,fram-
leiðslusamvinnufélög“, en þeirra
hefur ekki orðið mjög vart. Þá
var því lofað að stefnt skyldi að
því, að ekki þurfi að beita inn-
flutningshöftum, en aldrei hafa
viðskipti landsmanna verið í jafn
miklum viðjum, eins og á árum
vinstri stjórnarinnar. Öll var
stefnuskrá Hræðslubandalagsins
á þessa bók lærð og geta allir
landsmenn sjálfir dæmt um það,
hvernig hefur tiltekizt um efnd-
irnar.
Svo er vert að fletta dálítið
lengra í Tímanum og athuga blað
ið frá miðvikudeginum 25. júní
1956. Þá er Hræðslubandalagið
búið að mynda stjórn með komm-
únistum, þvert ofan í gefin loforð
og yfirlýsingar. Sjálf ríkisstjórn-
in eða myndun hennar var byggð
á svikum og allt sem hún gerði
var svik. I stórri fyrirsögn í þessu
blaði Tímans segir: „kjarni
málefnasamnings ríkisstjórnar-
innar er: öflug og alhliða fram-
farastefna". Þessi framfarastefna
á svo að vera fólgin í því, sam-
kvæmt aðalfyrirsögn blaðsins, að
,15 nýir togarar til atvinnujöfn-
unar“ skuli verða keyptir t.il
landsins en þeir eru ókomnir
enn. Þá er þar talað um fullvirkj-
un Sogsins og að heildaráætlun
skuli gerð um „nýmæli í atvinnu-
lífi og síðan kemur þar á eftir
mjög feit fyrirsögn um „lausn
efnahagsvandamála í samvinnu
við stéttarsamtökin".
Þannig voru þá loforðin, sem
Hræðslubandalagið og vinstri
stjórnin, sem mynduð var með
kommúnistum, gaf kjósendum í
júní 1956.
Það er skemmst að segja, að
vinstri stjórnin rauf öll sín heit
og loforð. Og hvað var það svo
sem blasti við eftir það að ferli
hennar var lokið. Ríkisstjórnin
lagði 1090 milljónir í árlegum
sköttum á þjóðina og um það bil
tvöfaldaði ríkisskuldirnar á valda
tíma sínum. En fjármálaráðherr-
ann gafst upp við að leysa efna-
hagsvandann og að síðustu hafði
ríkisstjórnin ekki einu sinni fyr-
ir því að leggja fyrir Alþingi
nokkrar tillögur í sambandi við
það mál. Uppgjöfin var fullkomin
og alger. Það sem svo blasti við
var það, gð vonlaust var að út-
gerð gæti hafizt á vetrarvertíð
1959 nema með enn auknum
styrkjum, en því hafði verið lof
að að höfuðatvinnuvegunum
skyldi „kippt upp úr styrkjafen-
inu“. Það var síður en svo að
verðbólgan hjaðnaði, heldur varð
hún nú geigvænlegri heldur en
nokkru sinni áður.
★ '"***
Menn fóru í sl. desember, ufti
það bil sem ríkisstjórnin gafst
upp að gera sér grein fyrir því,
til hvers stefna hennar leiddi.
Þá var það augljóst, að vísitala
framfærslukostnaðar næði a.m.k.
270 stigum, þann 1. nóv. 1959,
eða hækkaði um 5 stig að meðal-
tali á mánuði næstu mánuðina. En
talið var að verðbólguskriðan
hefði leitt það af sér, að vísital-
an hefði verið komin langt upp
úr 270 stigum 1. nóv. 1959, en
endirinn á þeirri sögu vildi eng-
inn horfa á. Það var ekkert annað
en kviksyndi, sem blasti við,
stöðvun atvinnurekstrar lands-
manna og allsherjarhrun í búskap
þjóðarinnar. Annar eins voði og
þessi hefur aldrei blasað við ís-
lendingum. Þetta var það sem
Framsóknarmenn vilja nú að
gleymist. Það er von að Tíminn
æpi um að kjósendur megi ekki
muna eftir þessu 28. júní 1959 og
sé það beinlínis stjórnarskrárbrot,
ef þeir muni eftir þessu öllu og
hafi það í h. _ .
TÍMAR sjóflugvélanna virðast
.era að líða undir lok. Ekki að-
eins á fslandi, heldur og erlend-
is. Samtímis því sem tilkynnt er,
að síðustu sjóflugvélinni okkar
Katalínu, verður lagt fyrir fullt
og allt, skýra Bretar svo frá, að
síðustu tveir Sunderland flugbát-
arnir verði nú seldir til niður-
rifs.
Fyrir um það bil 20 árum var
staðhæft, að sjóflugvélarnar
væru loftför framtíðarinnar. En
nú hefur brezki herinn lagt all-
ar sjóflugvélar sínar á hilluna
— og engar slíkar flugvélar eru
í notkun hjá brezkum ílugfélög-
um, en Bretar héldu þó hvað
lengst tryggð við þessa tegund
flugvéla. ,
„Grand Old Lady“, eins og
Sunderland-báturinn var oft
kallaður, hefur verið í notkun í
121 ár. Árið 1938 byrjaði brezki
herinn að byggja upp sveitir sjó-
| flugvéla, sem komu sér reyndar
vel í styrjöldinni. Sunderland
var frægust sjóflugvéla Breta á
N-Atlantshafi, því að á styrjald-
arárunum önnuðust þessir flug-
bátar gæzlu á höfunum — allt frá
íslandsströndum suður á Ind-
landshaf.
Mikill fjöldi Sunderland-báta
var jafnan á sveimi meðfram
strandlengju íslands. Sveitir
Sunderlandbáta önnuðust einnig
gæzlu á skipaleiðum milli íslands
og meginlandsins, umhverfis Bret
land — allt suður til V-Afríku,
á Miðjarðarhafi og Indlandshafi.
Síðar voru þeir einnig fluttir til
fjarlægari Austurlanda og þar
lögðu síðustu tveir bátarnir upp
laupana.
„Grand Old Lady“ grandaði
mörgum þýzkum kafbátnum.
enda þótt hún kæmist ekki í hálf-
kvisti við Katalínu. Þegar brezki
herinn átti hvað mest af Sunder-
land-bátum voru þeir 721 talsins.
Þeir voru stundum kallaðir „fljúg
andi skip“ sakir stærðar sinnar
og fyrirferðar — og Bretar voru
alls ekki á þeim nótunum að
leggja Sunderland á hilluna, þeg-
ar styrjöldinni lauk. En um það
leyti urðu tímamót í flugsögunni.
Sjóflugvélarnar misstu gildi sitt
— og- framleiðslunni var hætt.
Eftir styrjöldina hafa þessar flug-
vélar verið notaðar til margra
gagnlegra flutninga. En þeim
hefur fkækað óðum og með
hvarfi Sunderland má segja, að
tímar sjóflugvélanna, sem eitt
sinn voru taldar flugvélar fram-
tíðarinnar, séu liðnir undir lok.
,Þær sjóflugvédar, sem flestar
eru enn í notkun, eru Katalín-
urnar góðkunnu. Þeirra fram-
leiðsla hófst 1935 og á styrjald-
arárunum áttu Bandaríkjamenn
geysimikinn Katalínuflota. Þær
voru mestmegnis notaðar til
fylgdar skipalestum yfir Atlants-
haf og til kafbátaveiða, eins og
það var kallað. Framleiðslunni
er hætt fyrir löngu og sífellt
verður nú erfiðara að endurnýja
Katalínu. Flugfélag íslands er
ekki eina félagið, sem er að gef-
ast upp á þessari flugvél þó að
ein og ein á stangli sé starfrækt
út í heimi. Á Formósu eru nokkr-
ar í notkun, ein á Ceilon, önn-
ur í Peru og eitthvað er af þeim
í Kanada. Sjóher nokkurra landa
hefur örfáar í notkun, en þeim
fer ört fækkandi — og einn góð-
an veðurdag verður það aðeins
fortíðin, sem kann að segja frá
jafngamaldags hlutum og sjó-
flugvélar hafa verið.
ískndsmótið í
bridge í næstu
viku
ÍSLANDSMÓTIÐ í bridge verður
haldið hér í Reykjavík í næstu
viku, og hefst á sunnudag kl. 2.
Mótið verður haldið í Tjarnarcafé
og verður spilað bæði uppi og
niðri. Þátttökusveitir eru írá Ak-
ureyri, Húsavík og Reykjavík.
Meðal keppenda eru fslandsrneist
ararnir frá 1958, sveit Halls Sím-
onarsonar.
Ársþing Bridgesambands fs-
lands verður haldið í Edduhúsinu
í dag, laugardag, og hefst það kl.
4.
Rússar b jóða
meira lán
NÝJU DELHI, 21. maí: — Raö-
stjórnin hefur boðið Indverjum
að auka mjög aðstoð og lán til
olíuvinnslu í Indlandi. Indverjar
verja um þessar mundir sem svar
ar 63 milljónum dollara til olíu
leitar og vinnslu, sem mestmegn-
is er framkvæmd með rússnesk-
um tækjum undir stjórn rúss-
neskra sérfræðinga. Hafa Rússar
boðizt til að lána meiri útbúnað
og senda fleiri sérfræðinga — og
mun indversk sendinefnd ræða
málið í Moskvu innan fárra daga.
Jóhannes páfi er áhugamaður um flest það, er gerist í umhverfi
hans. Fyrir nokkru birtist hann skyndiiega í hinni stóru prent-
smiðju Vatikansins og ræddi þar góða stund við starfsmenn-
ina um verk þeirra og skoðaði vélakostinn. — í þessari prent-
smiðju er hið opinbera málgagn páfastólsins, dagblaðið Os-
servatore Romano, prentað, en það kom í fyrsta skipti út árið
1860. Þarna eru auk þess prentuð ýmis kirkjuleg rit — á
a. m. k. 70 tungumálum. -- - • i - • »