Morgunblaðið - 23.05.1959, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 23.05.1959, Qupperneq 9
r '»ardagur 23. maí 1959 IfOPcr/IVP' 4 f) I Ð 9 TÚnCftRP/Nt4? 3;/Á^-.'fþ/>s-v ')ís,n/ fs*'\/s-A’ RíTT af mestu vandamálum vél- væðingar landbúnaðarins er hinn mikli viðgerðarkostnaður. Alvar- legasta vandamálið í sambandi við þetta er hve erfitt er fyrir bændur landsins að koma vél- um sínum um langan veg á við- gerðarverkstæði. Oft þarf að leggja í mikinn flutningskostn- að á vélum til viðgerðar, þótt sjálf viðgerðin sé tiltölulega lítil. Engin viðhlítandi lausn er enn fengin á þessu vandamáli fyrir mikinn hluta bænda. Eitt innflutningsfyrirtæki hef- Ir tekið sig til og reynt að finna leið til nokkurrar lausnar á þessu máli. Er hér um að ræða Hluta- félagið Hamar, sem hefir flutt inn hinar svonefndu Deutz-drátt- arvélar frá Þýzkalandi. A'kin þjónusfa við vélaeigendur Sérfræðingur heimsækir bændur ar rigning er, láta menn vélar sínar í hús að loknu verki, og þurrka þær upp. Velferð bóndans er þar ekki hvað minnst háð því hve vel hann fer með vélar sínar. Fer um allt land Hr. Ritz sagðist hafa yfirfarið hér í fyrra hátt á annað hundr- að vélar, en um helmingur véla- eigenda var þátttakandi í viðgerð arferðum hans. Hann fór nánast um allt landið frá Skaftafells- sýslu og allt til Austfjarða og læt ur vel yfir förinni. Hann sagði um 20—30% vélaeigenda hafa skýli fyrir véiar síuar þar sem hægt var að láta þær inn og annast viðgerðir á þeim. Þessi tilraun H.f. Hamars til þe.ss að veita eigendum Deutz- dráttarvélanna bætta þjónustu er mjög virðingarverð. Fæstir eiga örðugra með að fá hjálp til við- ferða og athugana á vélum sín- um en einmitt bændur, en þjón- usta sölufyrirtækjanna, störf vélaráðunauta og meiri þekking og aukki vélamenning munu stuðla að úrbótum í þessu efni til hagsældar fyrir bændur og sparnaðar fyrir þjóðina. ✓ — vig. Sérfræðingar frá Peutz Fyrirtækið hefir fengið í sína þjónustu sérfræðing frá verk- smiðjunum erlendis og hefir hann til starfseminnar bifreið, sem er innréttuð sem lítið verk- stæði. Hefir hann ferðast nokkuð hér um landið og heimsótt ýmsa eigendur Deutz-dráttarvéla, yfir- farið þær og framkvæmt margs- konar viðgerðir. .Tilraun þessi hófst á s.l. ári og er ætlunin að halda henni áfram í sumar. Deutz-dráttavélin er nú þriðja útbreiddasta heimilisdráttarvélin hér á landi og brautryðjandi á sviði dieselmótora. Ástand vélarinnar athugað Þessi viðgerðarþjónusta er fyrst og fremst fólgin í því að at- huga ástand vélarinnar, yfirfara olíukerfi, smyrja vélina alla og stilla hana upp, skipta um legur, ef með þarf og veita leiðbein- ingar um meðferð og viðgerð, sem ekki verður framkvæmd á staðnum, ef nauðsyn ber til slíks. í viðgerðarbílnum eru allir nauðsynlegustu smærri varahlut- ir, en þeir eru að sjálfsögðu gif- urlega margir. Mikill fjöldi á- halda er þar einnig hafður til viðgerða, m. a. suðutæki. Forðar bilunum Fyrir þessa þjónustu verður vélaeigandinn að inna af hendi ákveðið gjald, sem er hið sama hvar sem er á landinu. Allar meiriháttar viðgerðir verður að greiða sérstaklega og að sjálf- sögðu takmarkaðir möguleikar til að framkvæma þær án aðstöðu á verkstæði. Þessi þjónusta mið- ar fyrst og fremst að því, að forða bilunum, fræða eigendurna um ástand og meðferð vélanna og auka þannig rekstraröryggi þeirra um leið og sparaður er viðgerðarkostnaður, en hann er eins og allir vita, margfaldur ef bilunin er ekki uppgötvuð í tíma, eða vélin á einhvern hátt van- hirt. Að tilefni þessa átti tíðinda- maður blaðsins fyrir skömmu tal við hinn þýzka sérfræðing, sem annast þessar viðgerðir, en hann heitir Rudolf Ritz. Áhugi fyrir aukinni þekkingu Hr. Ritz lét vel af dvöl sinni hér í fyrra. Nokkrir höfðu mis- skilið að einhverju leyti í hverju þjónusta hans væri fólgin en allt slíkt jafnaði sig. Hann kvaðst undrast hve margir bændur við erfiðar aðstæður geta hjálpað sér sjálfir þótt eitthvað bili hjá þeim en vélþekkingin takmörkuð. Sagði hann áhuga bænda fyyrir að auka þessa þekkingu vera mjög mikinn. Hins vegar kvað hann vélum yfirleitt vera heldur lítill sómi sýndur hér á landi. Sjálfur er hann bóndasonur frá Bayern, en þar lítur bóndinn á vélina sína eins og hestamaður- inn á bezta gæðinginn sinn. Þeg- Viðgerðirnar fara fram heima hjá bændum. Rogalandsbréf trá Árna C. Eylands Vor um velli HER voraði snemma og færðu menn snemma niður sæði sin. Á sandjarðarbýlunum við strönd- ina sáðu margir til gulróta snemma í marz og settu kartöflur i þeim mánuði. Töluvert af korni var einnig komið í jörð fyrir lok marzmánaðar. En það er ekki til- gangurinn að þessu sinni að ræða um búskap á Jaðri, nú er meira í efni, og skal þá fyrst líta nokk- uð aftur í tímann. Vorið mikla 1914. — Þá voru dýrlegir dagar. Bar margt til, æska, umhverfi, góðir félagar og miklir viðburðir. Þá vorum við 4 Skagfirðingar í Ási við góðan hlut og þá var minningai'sýning- in mikla í Ósló. Þá voru bjartir dagar og glatt á hjalla. Við tók- um okkur vikufrí og ókum dag- lega til höfuðborgarinnar, sem þá hét ennþá Kristiania — jafn- vel stundum skrifað með C-i, svo miklu munar á norsku máli þá og nú. Á sýningunni við Frogner- kílen í útjaðri borgarinnar, sem þá var, bar saman fundum okkar nokkuð margra íslendinga. Margt var að sjá fanst okkur sem eigi höfðum lagt útlandið undir fót nema við eins vetrar dvöl í Ási. En engan félaga man ég betur frá þesum vordögum en gest einn að heiman, Þingeying- inn Hallgrím Þorbergson. Her- bergi fyrir gesti lágu ekki á lausu í borginni því margt var þar að- komumanna. Tókst því það ráð með okkur að Hallgrímur gisti hjá okkur strákunum í Ási og svo héludum við hópinn að og frá og daglega á sýningunni. Var þá margt spjallað og glatt á Hjalla. Ég ætla mér ekki þá dul að lýsa sýningunni í Kristjaniu 1914, né því hversu mikill við- burður hún var í þjóðlífi Norð- manna. Þeim löndum mínurn til upplýsingar, sem ungir eru og þekkja Ósló eins og borgina er nú, vil ég aðeins nefna að sýn- jafna til útsýninu frá Frogner- seteren. Uppi á Ekebergásnum fyrir ofan sjómannaskólann eru víðir vellir eins konar háslétta, sem enginn ókunnugur í Ósló hef ir hugmynd um, og ekki munu það vera ýkja mörg prósent af Óslóbúum sem hafa lagt leið sína á þesar slóðir, þó að ekki sé það langt frá miðbænum. Á þessari Eikarbergs-sléttu verður sýning- in mikla í vor. Þarna af sléttunni sér yfir Óslódalinn, borgina, höfn ina og töluvert út til fjarðarins. Andspænis manni hinu megin dalsins sér yfir til Holmenkollen og Frognerseteren, til allra hæða og ása, sem óþarfi er upp að telja. ingarsvæðið var þá þar sem nú er Vigelandsparken, sem allir kannast við, sem gist hafa Ósló. Brúin yfir Frognerkilen, sem nú er einn af höfuð-stöðum hins mikla garðs Vigelands, var mið- depill sýningarinnar 1914. Var sýningarsvæðið hið veglegasta, og sýningin öll var mikill atburð ur og vegsauki ungri þjóð, ef svo iftá segja, því skammt var umliðið frá 1905. Undir nýjum himni á nýrri jörð. — Nú stendur aftur mikið til, nú skal í vor og sumar haldin ný sýning í Ósló, sú mesta síðan 1914, og er því að vonum þótt maður minnist sýningarinnar 1914, eða svo verður mér, sem þá var að halda út í heiminn, heimskur heimaalningur. Nýlega gekk ég um garða þar sem sýningin á að verða í vor, með nokkrum forráðamönnum sýningarinnar, s. s. formanni Bændafélagsins norska og for- manni Bændakvennafélags Nor- egs, framkvæmdastjóra sýningar innar og fleirum góðum mönn- um. — Þvílikur sýningarstaður Ég hafði raunar komið þangað einu sinni áður og horft um víða velli, en nú var annað og meira að sjá, þó lítið sé á móti því er verða skal. Það var farið að húsa bæi og reisa sýningarhallir. Margir íslendingar sem komið hafa til Óslóar vita hvar Eke- bergs ásinn er, þar sem sjómanna slcólinn gnæfir hátt og þar sem Ekebergs-veitingastaðurinn er, sem margir heimsækja sem vin- sælan veitingastað við mikið út- sýni yfir Óslóhöfn og borg. Víst er rnikið og fagurt útsýni frá veitingaskálanum og frá sjó- mannaskólanum, en fáa ókunn- uga mun gruna að aðeins snert- ingaspöl frá þesum stöðum er miklu veglegra og meira útsýni, sem vart á sinn líka í næsta ná- grenni Óslóar, er þó helzt að Um víða velli Býningarsvæðið á Ekeberg verður alls um 35 hektarar. Verzlunarsýningunni, þar sem búvélar alls konar skipa ekki hvað minstan sess, eru ætlaðir 60.000 fermetrar, og sýningar- skálarnir verða um 10.000 fer- metrar að gólffleti. Búskap, garðyrkju og skóg- rækt er ætlaður mestur hlutur á sýningu þesari, enda er kjör- orð sýningarinnar Grotid og Gröde, sem ég tel bezt endur- sagt með orðunum Spretta og gróður þó að hin orðrétta þýðing sé auðvitað Gróðrartími og gróð- ur. Sýningin er búnaðarsýning enda er hið norska heiti hennar: Landbrukets jubileumsutstilling 1959. Tilganur sýningarianar er tvíþættur, segir Hallvard Eika formaður í Noregs bondelag og formaður sýningarnefndar, upp- alinn að mestu í Kanada, skammt frá stöðvum Stefáns G. skálds. Hún er úttekt bændanna á bú- skapnum, hvar hann er á vegi staddur og hvað bændurnir eru að gera og geta gert, og um leið á hún að gefa borgarbúanum Ijósa mynd af búskap bændanna, hverja þýðingu hann hefir fyrir þjóðina alla. Þess vegna hefir sýningin upp á margt að bjóða sem mestmegnis er miðað við þetta síðarnefnda hlutverk. Bygg verða fleiri bændabýli full- búin að húsum, og á býlunnm verður búfé með eðlilegum hætti hvað þá annað. Þrír bæir verða þar í röð Efsti-bær, Mið-bær og Neðsti-bær. Á Efsta-bæ eru öll hús gömul, flutt alla leið frá Hol í Hallingdal. Þar voru húsin tek- in ofan og byggð upp aftur á Ekeberg. Þetta verður heiðabýli sýningarinnar. Þar verður einnig gömul vatnsmylla flutt þangað frá Valle í Sætisdal. Allt e'r þarna miðað sem mest við það sem var fyrir 100—150 árum, en sem í raun og veru hélt velli allt fram að tíma tækr.innar, það er miðað við það sem var er þeir atburðir skeðu sem eru hið eigin- lega tilefni sýningarinnar og nafnið bendir til, er hún er neínd jubileumsutstilling. Það eru í ár liðin 150 ár síðan Det Kongelige selskap for Norges Vel var stofn- að, vanalega nefnt Selskapet for Norges Vel. Þetta gamla félag hefir haft og hefir að mörgu leyti enn miðstöðvarþýðingu í búnað- armálum Noregs. Það varð Jóni Sigurðssyni fyrirmynd, er hann ifékk Hið íslenzka þjóðvinafélag stofnað, þó að mjög skildi leiðir með þessum félögum tveimur. Þá eru í ár liðin hundrað ár síðan Búnaðarháskólinn í Ási var stofn aður. í Mið-bæ verður allt miðað við nútímabúskap af meðalstærð, mjólkurframleiðslu og nokkurn fjárbúskap. Þar verður fjós með rimlagólfi og einnig fjárhús. Lág ar byggingar, þar á meðal vot- heysgeymsla af þeirri gerð. í Neðsta-bæ er allt miðað við búskap á stærra býli austan fjalla í Noregi. Fleiri búnaðarbyggingar verða reistar. Eternit- verksmið j urnar norsku efndu til samkeppni um húsagerð á bændabýlum miðað við það meðal annars að nota eternit svo sem mest mætti henta, Töluvert hefir verið deilt um árangur þeirrar samkeppni og lausnir þeirra er verðlaunin hltu, en reistar verði Eternit byggingar til að sýna þá útkomu. Einnig verður húsað sel a sýning unni. Fjárhagsáætlun sýningarinnar er 7 milljónir króna, norskar, og þær fjárreiður eru fryggðar, sýn- ir það ljóslega hve stórt er í efni. Ríkissjóður leggur fram fé svo um munar og mikið leggja hin fjárhagslegu félög bændanna fram, svo sem mjólkursamsölur, sláturfélög, skógarfélög o. s. frv. Mót og mannfagnaður Það stendur margt og mikið tii í Ósló í vor og sumar, í sam- bandi við sýningu þessa svo sem vænta má. Auk afmæla félagsins Selskapet for Norges Vel og af- mælis Búnaðarháskólans, sem gert er ráð fyrir að ekki verði haldin hátiðleg fyrr en síðar á sumrinu, ber að höndum fleiri slík tímamót. Húsmæðrakennara skólinn á Stabekk, sem hefir menntað margar konur íslenzkar, á 50 ára afmæli í ár. Norges bir- ökterlag á 75 ára afmæli, sömu- leiðis Det norske hageselskap. Ennfremur Norsk fjörfeavlslag. * Landsfundur norska bændafé- lagsins, Norges bondeiag verður haldinn í Ósló 17.—21. júní, Bún- aðarþing Norðurlanda — Nord- iske jordbruksforskeres Kongr- ess verður 24.—27. júní. En sýn- ingin verður opnuð 11. júní og varir til 5. júlí, eftir því sem ráð er fyrir gert, þó að því viðbættu að garðyrkjusýningin, eins konar uppskerusýning, verður undir haustið á öðrum stað í Ósló, en þó sem þáttur og eftirhreyta hinnar miklu búnaðarsýningar. Norges bygdeungdomslag efnir til landsmóts 4. og 5. júní, þar verður háð starfskeppni ’í mörg- um greinum. Verður reist sér- stök tjaldborg, 800—900 tjöld til afnota fyrir það mót. Auk þess að bufé verður a8 staðaldri á bóndabæjunum á sýn ingunni verða að sjálfsögðu haldnar þar meiri háttar sýning- ar á búfé, sem landssýningar. Þann 11.—16 júní verður hrossa- sýning og sýning á sauðfé og geitfé á sama tíma. Þann 19.—24. júní verður nautgripasýning og loks 27. júní — 5. júlí verða sýnd svín, alifuglar og kanínur. Vart þarf að nefna að á sýn- Framh. á bls. 15. Á

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.