Morgunblaðið - 23.05.1959, Síða 12

Morgunblaðið - 23.05.1959, Síða 12
12 MORGUNRLAÐIÐ Laugardagur 23. máí 1959 Því næst hlustaði Bleicher með óumræðilegri undrun á frásögn- ina um eitt af hinum ófyrirleitn- ustu og fífldjörfustu brögðum, sem ,,Læðan“ og menn hennar höfðu nokkru sinni beitt. Það er um mitt sumar árið 1941. Þokuslæða hvílir enn á þök um Parísarborgar, og borgin er ekki vöknuð af svefni. Það er orðið bjart á götunum, en þær eru ennþá auðar og tómar. Það er aðeins á Rue du Colonel Moll, að maður nokkur er á hlaupum. Hann reikar á hlaup- inu eins og maður, sem er að því kominn að gefást upp og neytir síðustu krafta sinna. Andlit hans er afskræmt og angistin skín úr augum hans — blököld dauðans angist. Maðurinn nemur staðar fram an við húsið nr. 14 og horfir tor- tryggnislega til allra hliða. En gatan er auð. Engan er neins- staðar að sjá og hann hefur ekki verið eltur. Maðurinn þýtur upp að hús- inu. Við dyrnar á efri hæð hljóm ar dyrabjallan: stutt-langt-stutt og síðan aftur á sama hátt. Það heyrist létt fótatak fyrir innan og það er komið til dyra. Lokunni fyrir litla athugunar- glugganum er ýtt ofurlítið til hliðar og maðurinn finnur, að tvö rannsakandi augu hvíla á honum. Því næst er hurðin opn- uð skyndilega. „Hvað er þetta — Henri Du- pont —? Hvert er erindi yðar hingað á þessum tíma?“ Grann- vaxin kona í allt of stórum morg unslopp, sem auðsjáanlega hlýt- ur að vera af karlmanni, strýkur syfjulega hárið frá andlitinu. „Fyrirgefið, frú“, stamar mað urinn og er vandræðalegur á svipinn. „ég má til — má ég tala við yður? Það er bráðnauðsyn- legt“. Hann er ennþá lafmóður. Konan í morgunsloppnum er allt í einu orðin glaðvakandi. — Hún finnur það ósjálfrátt, að hér er hætta á ferðum. Það hefur eitthvað hræðilegt komið fyrir. „Komið þér, Henri — komið þér fljótt!“. Hún dregur hann beinlínis inn £ hinn dimma gang. læsir hurð- inni, ýtir manninum, sem er úr- vinda, á undan sér inn í herbergi og setur hann á stól. „Segið þér frá — hvað er að? Hefur eitthvað farið illa?“ ,Og því næst heyrir konan í morg unsloppnum, sem er engin önnur en „Læðan“, frásögn, sem kemur því til leiðar, að hún verður al- tekin af hræðslu. Þessi Henri Dupont er starfs- maður við ríkisjárnbrautirnar. Það eru eklci nema fáar vikur síðan að „Læðan“ hefur reynt að fá hann til samstarfs við „Interalliée". Hann gat veitt mikilvæga vitneskju um flutn- ing þýzkra hersveita. En Henri Dupont skoraðist eindregið und- an, en þá lagði „Læðan“ að konu hans, sem var eldheitur ofstækis fullur ættjarðarvinur. Frú Du- pont var þegar í stað reiðubúin til að vinna fyrir „Interalliée". Og nú, fáum vikum síðar, gerð ist hinn hræðilegi atburður. — í morgun, þegar Henri Dupont kom heim frá næturvörzlunni, var sonur hans 14 ára að aldri, alveg truflaður. Drengurinn skýrði honum grátandi frá því. að tveir óeinkennisklæddir menn hefðu komið áður en bjart var orðið og sótt móður hans. Hann fór á eftir þeim á reiðhjólinu sínu og sá, að farið var með móð ur hans inn í hús í Avenue Henri Mirtin nr. 101. „Masuy, sá argi þrjótur —“, varð „Læðunni“ að ofði. Hún var orðin lítið eitt fölari. „Masuy — hann er ekki í þýzku leyni- þjónustunni. Masuy er Belgíu- maður, sem vinnur fyrir Þjóð- verja upp á eigin spýtur“. Það kemur í ljós vonarneisti í augum hans. „Aðeins Belgíumaður? Ef til vill er það þá ekki eins illa far- ið? Ef til vill er þá hægt að ná henni aftur?“ „Læðan“ svaraði ekki. Hún horfði þegjandi út um gluggann, var hugsi og slökkti í vindlingn- um sínum, óstyrk á taugum. „Ef til vill“, sagði hún stutt- lega. „Bíðið þér andartak". Hún fór inn í svefnherbergið vic hliðina, en þar liggur Ar- mand Czerniawski í rúminu og hrýtur. Hann hafði ekki heyrt í dyrabjöllunni. „Læðan“ hrist- ir hann til og vekur hann og seg ir honum í óða flýti frá því, sem gerzt hafði. En Armand lætur það ekki á sig fá, en hallar sér út af aftur þreytulega. „Hvað get ég gert við því!“ tautar hann skapillur. „Þú verð ur að sjá til þess að losna við karlinn og láttu mig í friði“. „Læðan“ verður ofsareið. „Ertu alveg vitlaus?" hvæsir hún framan í Armand. „Veiztu ekki, hvað það gildir, ef hún er komin £ hendurnar á Masuy?“ Auðvitað veit Armand það. — Hver þekkir ekki þennan Belgíu mann sem heitir réttu nafni Georges Delfanne. Það þekkja hann allir í neðanjarðarhreyfing- unni, þekkja hann, óttast hann og hata. Þessi Georges Delfanne var óskilgetinn sonur verkakonu og fæddist í Briissel 12. janúar 1913. Hann lifði á vinnu, sem hann fékk á snöpum, þangað til hann fór að reka njósnir fyrir Þjóðverja í Belgíu skömmu áður en stríðið skall á, og hafði af því góða atvinnu. Þegar þýzku her- sveitirnar höfðu tekið Frakkland ‘herskildi, flutti Delfanne bæki- stöðvar sínar til Parísar og nefndi sig „Masuy“. Hann bjó í heilli röð herbergja £ Hotel du Palais Bourbon og hafði „skrif stofur“ sínar £ Avenue Henri Martin nr. 101. Hann kallaði það skrifstofur, en sannleikurinn var sá. að með hjálp aðstoðarmanna sinna náði hann í Frakka þangað, sem voru grunaðir um njósnir, og píndi þá þar með hinum grimmúðlegustu aðíerðum, þangað til þeir gáfust upp og játuðu allt, sem hann vildi vita. Frú Dupont var nú í höndum þessara kvalara. „Læðunni“ renn ur kalt vatn milli skinns og hör- unds við þessa tilhugsun. En Ar- mand ypptir öxlum. „Hverju ætlar þú að koma fram gagnvart „Masuy“?“ muldr ar hann önugur. „Sjáðu heldur fyrir því, að við fáum nýjar stöðv ar þegar í dag — ef þessi kona skyldi leysa frá skjóðunni". En „Læðan“ hlustaði ekki leng ur á hann. Hún fór ofsareið út úr herberginu. Hún bar heift í huga til þessa Pólverja, sem hún beinlínis hataði þessa stundina og hefði getað gert út af við hann vegna reiði. Hann, þennan flækings útlending, sem var áreið anlega sama, þótt fr'nsk kona. ættjarðarvinur, væri pínd og kvalin af belgiskum kvölurum. Henri Dupont sat ennþá úr- vinda, £ hliðarherberginu og sneri húfu sinni taugaóstyrkur, milli sigggróinna handanna. — Hann starir stórum, angistarfull um augum á „Læðuna", þessa litlu, grönnu konu, sem hann von ar að framkvæmi það kraftaverk að frelsa konuna hans. „Læðan“ reykir vindlinginn sinn i ákafa og gengur hratt um gólf, en nemur síðan snögglega staðar framan við uppdrátt af París, sem er festur á vegginn og nokkrum tyfltum mislitra fána er stungið i. „Læðan“ getur ekki að sér gert að brosa háðs- lega. Þarna kom loksins að því, að það gat orðið gagn að þessum bjánalegu fánastungum pólska herforingjaráðsmannsins Czerni- awski. A þessari stundu varð af burða djarfleg fyrirætlun til í höfði „Læðunnar". Hún tekur- símatólið ákveðin og biður um númer. „Verið þér ekki áhyggjufullur, Henri“, segir hún um leið. „Við skulum ná í konuna yðar aftur“. Það er komið hádegi. Glugga tjöldin eru dregin niður í hótel „Lutelia“, þa: sem þýzka leyni- þjónustan hefur komið upp að- alstöðvum sínum. Samt sem áð ur er brennheitt í herbergjun- um. SHUtvarpiö Laugardagur 23. maí: Fastir liðir eins og venjulega. 12,50 Óskalög sjúklinga (Bryndís Sigurjónsdóttir). 14,00 „Laugar- dagslögin*1. 18,15 Skákþáttur — (Baldur Möller). 19,00 Tóm- stundaþáttur barna og unglinga (Jón Pálsson). 19,30 Tónleikar: Lög eftir Charlie Chaplin úr kvikmyndum hans (plötur). — 20,20 Leikrit: „Haust‘ eftir Kristján Albertsson. •— Leik- stjóri: Valur Gíslason. Leikend- ur: Valur Gíslason, Guðbjörg Þorbjarnardóttir, Rúrik Haralds son, Regína Þórðardóttir, Arndís Björnsdóttir, Haraldur Björns- son, Helgi Skúlason, Inga Þórð- ardóttir, Ævar Kvaran, Róbert Arnfinnsson, Klemens Jónsson, Erlingur Gíslason og Þorgrímur Einarsson. 22,10 Danslög (plöt- ur). 24,00 Dagskrárlok. Skemmtun — Hlégarði í kvöld kl. 9. Fjórir jafn fljótir leika. Skafti Ólafsson syngur m. a. nýja íslenzka texta við „Rasmus“, „One night“, „Little serenade.“ <★> Kl. 11,30 fá gestir að reyna hæfni sýna í dægur- lagasöng með hljómsveitinni. (jir) S.A.S. tríóið kynnir nýja texta við „What you done to me“. {*} Ferð frá B.S.Í. kl. 9. ÖÍvun bönnuð. KVENFÉLAGIÐ. a hér eru aðeins örfál 2) Það veitir líklega ekki af, að I 3) Linda veit ekki, að hún hefir .þau, sem fyrir voru í kassanum, I ég taki þessi með líka. sett þrjú skot nr. 20 saman við I en þau voru nr. 12. *r HF

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.