Morgunblaðið - 23.05.1959, Side 15
augardagur 23. mai 1959
MORGUNBLAÐIÐ
15
Ágústa CuBjónsdóttir
Keflavík — Minning
HINN 16. maí sl. lézt að heimili
sínu í Keflavík ekkjan Ágústa
Guðjónsdóttir.
Hún var fædd að Ólafsvöllum
í Innri-Njarðvík 10. janúar 1884.
Voru foreldrar hennar Guðrún
Guðjónsdóttir, ættuð frá Tungu-
felli í Árnessýslu og Guðjón
Jónsson, skipasmiður frá Stóru-
Vatnsleysu. Nýfæddri var henni
komið í fóstur að Hvassahrauni
til Halls bónda Pálssonar og
Sólveigar konu hans. Þar dvald-
ist hún við ástríki fósturforeldra
til 7 ára aldurs, er Guðjón faðir
hennar gekk að eiga konu sína,
Guðrúnu Torfadóttur, að þau
hjón tóku hana til sín og ólu
upp ásamt dætrum sínum tveim-
ur, Guðlaugu og Jónu, síðar
kennslukonum í Keflavík. Naut
Ágústa þar umhyggju og ást-
úðar jafnt föður og stjúpu, við
hlið hálfsystra sinna. Minnast
kunnugir þess hve náið og inni-
legt samband var milli stjúpu og
stjúpdóttur æ síðan meðan báðar
lifðu, eins og það verður bezt
milli móður og dóttur. Þær
Framnessystur, Guðiaug og Jóna
ræktu og systurhlutverkið við
hálfsysturina af fágætri tryggð og
veglyndi alla tíð, og báru um-
hyggju fyrir börnum hennar eins
og þau væru þeirra börn.
Á heimili þeirra var og í fóstri
elzti sonur Ágústu og Sigurðar
Magnús, uppalinn til fullorðins
ára hjá foreldrum þeirra.
Innan tvítugs dvaldi Ágústa
rúmt ár á Útskálum, á heimili
séra Friðriks Hallgrímssonar,
eða þar til hann fór til Vestur-
heims.
Árið 1903 giftist Ágústa Sig-
urði Erlendssyni frá Garðbæ,
ungum formanni, sem síðar þótti
bera af um hæfni til sjómennsku
og stjórnar á opnum skipum. Þau
settu niður bú í Keflavík, byggðu
hús í samvinnu við Guðjón skipa
smið, og bjuggu þar öll um hríð.
Árið 1928 byggði Sigurður húsið
Suðurg. 23, er síðar varð heimili
þeirra hjóna til æviloka. Hjóna-
band þeirra var farsælt mjög,
ríkti þar gagnkvæmt traust og
samhugur, sem stafaði hlýju og
mildi yfir börn þeirra.
Þeim hjónum, Ágústu og Sig-
urði, varð 9 barna auðið, og kom-
ust 8 þeirra til fullorðins ára.
Þau eru: Magnús, sem áður er
— Rogaíandsbréf
Framh. af bls. 9
ingunni verður sérstök skemmti-
deild svo sem venja er til á slík-
um sýningum. Þar verður opið
leiksvið þar sem sýnair verða
þjóðdansar, háð samkeppni í
fiðluleik og margt fleira með
þjóðlegum hætti. Á hringsviði
sýningarinnar verða margháttað-
ar sýningar auk þess sem bú-
peningur verður sýndur þar, t. d.
reiðsýning, sviðsýning véla og
sitt af hverju.
Er ég hugsa til sýningarinnar
1914 og þess sem nú stendur til
þarna á sléttunum á Eikarbergi
koma mér í hug orðin hans
Indriða Þorkelssonar: „Gott er
að vera ennþá ungur, eiga í vænd
um langan dag“. — Þeir eiga gott
sem nú eru ungir að heimsækja
þessa sýningu frændþjóðarinnar
norsku, en það væri líka gaman
fyrir einhverja þeirra fáu íslend-
inga, sem voru á sýningunni 1914
að ganga um garða á Ekeberg í
sumar og bera saman, lifa upp
aftur á björtum sumardögum það
sem þá var og sjá muninn, sjá
fortíð og nútíð í samhengi. Margt
hefir skeð á hinum langa tíma
sem liðinn er, tvær heimsstyrj-
aldir hafa gengið yfir, forráða-
menn eru fallnir og nýir teknir
við. Flest ber nú hæra en þá var
eins og slétturnar á Ekeberg ber
hærra en vellina við Frognerkíl-
en.
Jaðri 9. apríl 1955.
Árni G. Eylands.
nefndur, giftur Eyrúnu Eiríkr-
dóttur, drukknaði á leið frá
Reykjavík til Keflavíkur 1932,
Guðjón, ógiftur, drukknaði í
fiskiróðri 1930, Erlendur skip-
stjóri, giftur Vilborgu Eiríksdótt-
ur, Sigríðar, bjó með móður
sinni, Sólveig, gift Jens Ingva
Jóhannssyni, hann lézt 1951,
Ólöf, bjó með móður sinni, Guð-
rún Valgerður, gift Þórólfi Sæm-
undssyni, Ásgeir Þórður af-
greiðslumaður, giftur Guðrúnu
Ármannsdóttur. Yngsta barnið
(sonur) fæddist andvana.
í hópi samferðamanna var
Ágústa hlédræg kona. Hún var
greind, orðfær vel og unni mennt
um, trúkona mikil, enda mun
henni hafa þótt trúartraustið
styrkasta stoð lífs síns. Ævistarf-
ið vann hún án yfirlætis, og
móðurhlutverkið rækti hún þann
ig, að barnahópurinn minnist
þess af aðdáun. Börn hennarö,
barna og barnabörnin- en þau
eru 24 á lífi — litu jafnan í henni
ímynd ástar og umhyggju móð-
urinnar, hinn hlýja lífsgeisla,
sem gefur ungu, þyrstu lífi guðs-
neistann í aldir fram. Ágústa var
því gæfukona, þótt hún yrði að
þola mikla harma og óvænta, er
hún missti tvo uppkomna syni í
blóma lífsins, og síðan eigin-
mann sinn og tengdason. Þá
harma bar hún í hljóði. Frænd-
garður hennar stóð um hana
vörð í ellinni, og ylurinn frá
ungu vinunum hennar, endur-
kast hennar eigin kærleika, sam-
fara trú á Guð og annað líf,
létti henni síðustu sporin.
Valtýr Guðjónsson.
Hafa aflað fyrir
20 þús. kr. á 3
dögum
AKRANESI, 21. maí. — Af 25
trillubátum, sem á sjó voru í gær,
fékk Blíðfari mestan afla, eða
4 lestir. Á bátunum eru 3 menn.
Síðustu 3 dagana hafa sumir
trillubátanna hér aflað fyrir rúm
lega 20 þúsund krónur (á bát).
Bátarnir reru í morgun, en
sneru allir til hafnar, vegna suð-
austan-brælu.
Enginn síldarbátur kom inn í
dag — munu þeir því ekki hafa
fengið neinn afla. Oddur.
Sendiherra
Hollands afhendir
trúnaðarbréf
HINN nýi sendiherra Hollands á
íslandi, barón A. Bentinck van
Schoonheten afhenti í fyrradag
forseta íslands trúnaðarbréf sitt
við hátíðlega athöfn á Bessastöð-
um, að viðstöddum utanríkisráðh.
Að athöfninni lokinni snæddu
ambassadorinn og utanríkisráð-
herra hádegisverð í boði for-
setahjónanna, ásamt nokkrum
öðrum gestum.
Cuimar G. Schram
hlýtor Entisii
Couiicil-siyrk
ÚT HEFIR verið gefin tilkynn-
ing um það, að Gunnar G.
Schram, cand. jur., hafi hlotið
námsstyrk British Council, sem
veittur er fyrir námsárið 1959—
’60. —
í tilkynningu brezka sendi-
ráðsins um styrkveitingu þessa
segir: „Gunnar Schram stundar
um þessar mundir nám við Sid-
ney Sussex College í Cambridge,
og mun þessi styrkur gera hon-
um kleift að ljúka námi sínu.
Hið sérstaka rannsóknarefni, j
sem Gunnar Schram fæst við,
fjallar um „rannsókn á réttar-
reglum alþjóðalaga varðandi
vernd nytjalífvera úthafanna."
Gunnar G. Schram er 28 ára að
aldri, sonur Gunnars Schram,
símstjóra á Akureyri, og konu
hans, Jonnu Jónsdóttur. — Hann
tók stúdentspróf frá Menntaskól-
anum á Akureyri vorið 1950, hóf
síðan lögfræðinám við Háskóla
íslands og lauk þar prófi vorið
1956. — Gunnar var um árabil
blaðamaður við Morgunblaðið,
allt til haustsins 1957, að hann
fór utan til framhaldsnáms. —
Dvaldist hann næsta ár við nám
í Heidelberg í Þýzkalandi, en
hefir síðan í fyrrahaust stundað
nám í Cambridge, eins og fyrr
segir.
500 tonn ol sem
enti í npríl
AKRANESI, 22. maí. — Sements-
verksmiðjan framleiðir nú á sól-
arhring 350 tonn af sementi, en
framleiðslan í aprílmánuði hafði
orðið 5000 tonn. Nú eru fram-
leiddar í verksmiðjunni þrjár
tegundir sements.
Sem kunnugt er hefur Sements
verksmiðjan undanfarið fram-
leitt hið venjulega Portlandsem-
ent og Hraðsement en nú er
verksmiðjan búin að framleiða
um 1000 af svonefndu Pussoland
sementi og er það gert sérstak-
lega fyrir vitamálastjórnina, því
það sement þolir betur en annað
sjávarseltu,- Framleiðslan er þó
enn á tilraunastigi.
Sanddæluskipið Sansu hefur nú
alls farið 102 ferðir á sandmiðin
hér úti í Faxaflóa og eftir að veð-
ur tók a ðbatna hef ur skipið stund
um landað fullfermi fjórum sinn-
um á sólarhring þegar bezt hefur
gengið og er skipið nú búið að
flytja hingað um 60,000 rúmmetra
af skeljasandi en það eru 150.000
rúmmetrar sem nú á að dæla upp
af botni Faxaflóa en það er árs-
forði verksmiðjunnar.
Svo kalkríkt er hráefnið að nú
þarf ekki einu sinni að sía sand-
til þess að ná móbergskornunum
úr sandinum. með fleytingum.
Nú er verið að fullgera kalkstöð
Sementsverksmiðjunnar en hún á
að geta framleitt 20,000 tonn af
kalki á ári, en það á að nægja
allri kalkþörf landsmanna til land
búnaðar og byggingarfram-
kvæmda. — Oddur.
Veðuiiilíða
í Vopnafirði
FRÁ Vopnafirði var símað til
Mbl. í gær, að þar hefði að und-
anförnu verið mikil veðurblíða
og einmunatíð. Hafði hitinn kom
izt upp í 16 stig. Fer gróðri vel
fram þar um slóðir og sauðburð-
ur er að hefjast.
Inflúenza hefur stungið sér
niður í Vopnafirði að undan-
förnu, en hún er ekki mjög út-
breidd enn sem komið er.
Sig(urður Ölason
HæslarcUarlögmaðnr
Þorvaldur Lúðvíksson
Hcraðsdómslögmaður
Málflulningsskrifslofa
Austurstræti 14. Sínú 1-55-35
Gluggagirði
fyrirliggjandi.
Pantanir sækist sem fyrst.
K.Þ. & Co.
Tryggvagötu 10. — Sími 19340.
Ploittusaian Laugaveg 63 og
Gróðrasföðin Sæbóli Kópavogi
Hef fengið garðarósir, gott úrval selt næstu daga á
Laugaveg 63 og eftir kl. 6 í Gróðrastöðinni Sæbóli
Sími 16990.
fVEercedes Benz 455
Lítið ekinn og vel með farinn einkavagn, til sölu.
Skipti hugsanleg.
BlLASALAN STRANDGÖTU 4
Sími 50884.
Maðurinn minn og faðir okkar
ARI GUÐMUNDSSON
verkstjóri, Borgarnesi,
lézt af slysförum 21. maí.
Ölöf Sigvalda,dóttir og börn.
Móðir okkar
SÓLVEIG JÓNSDÓTTIR
Framnesveg 33
andaðist fimmtudaginn 21 maí.
Fyrir hönd barna og tengdabarna.
Stefán Gíslason.
Minningarathöfn um
GRÉTAR GÍSLASON
sem fórst 8. apríl fer fram að Útskálakirkju, sunnudag.
24. maí kl. 2. Bifreið verður frá Keflavík kl. 1,30.
Sveinbjörg Kristinsdóttir og börn
Minningarathöfn um elskulegan eiginmann minn og
föður,
VILMUND JÓNSSON,
bónda á Mófellsstöðum í Skorradal,
sem lézt að Landakotsspítala 20. maí s.L, verður haldin
í Dómkirkjunni í Reykjavík hinn 25. þ.m. kl. 3,30 s.d.
Jarðarförin að Hvanneyri auglýst síðar
Guðfinna Sigurðardóttir og bðrn
Hugheilar þakkir til allra nær og fjær, sem hafa veitt
okkur aðstoð og kærleika, við andlát og útför eigín-
manns og föður okkar,
KARLS K. SIGURÐSSONAR,
frv. skipstjóra og eftirlitsmanns
Sérstakar þakkir flytjum við Lögreglustjóra, Lögreglu-
kór, söngstjóra og samstarfsfólki hans öliu, fyrir auð-
sýnda virðingu og vinarhug.
Guð blessi ykkur öll.
Sigurbjörg Ingimundardóttir og' börn
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
móður okkar,
MARGRÉTAR ODDSDÓTTUR
Gústaf E. Pálsson,
B. Óli Pálsson.
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
BRYNDlSAR SIGFINNSDÓTTUR
Foreldrar og systkini.