Morgunblaðið - 23.05.1959, Side 16

Morgunblaðið - 23.05.1959, Side 16
VEÐRIÐ SA stinningskaldi, skýjað, (laiítil rig.a.tig. Hiti um 10 st. 112. tbl. — Laugardagur 23. maí 1959 SJÖFLU CVÉLIN ! er að hverfa úr sögunni. Sjá grein á bls. 8. j Þjófar sviku út 5 00 krónur í mjólkurbúð Jónas Pétursson Sigurjón Jónsson Sveinn ó Egilsstöðum og Helgi ú Helgnlelli efstir ú listn Sjólistæð- isllokksins í Noiður-Múlnsýslu SJÁIjFSTÆÐISMENN í Norður-Múlasýslu hafa nýlega að undan- gengnu prófkjöri, ákveðið framboð flokksins í sýslunni í væntan- legum kosningum. Skipa eftirtaldir menn lista flokksins: Sveinn Jónsson, Egilsstöðum, Helgi Gíslason, Helgafelli, Jónas Pétursson, Skriðuklaustri og Sigurjón Jónsson, Vopnafirði. AÐFARNÓTT fimmtudags var framinn innbrotsþjófnaður í skrifstofu Sölufélags garðyrkju- manna og var þar stolið m. a. útfylltri peningaávísun að upp- hæð rúmar 3000 krónur. Var hún að öllu leyti hæf til þess að inn- leysast. Þjófurinn reyndi það líka, en þá komst rannsóknar- lögreglan í allt saman og var maðurinn handtekinn síðdegis á fimmtudaginn. Hér er um að ræða 18 ára pilt. í sambandi við rannsókn í máli hans, hefur komið í Ijós, að hon- um og félaga hans, tókst á þriðju daginn að svíkja út 500 krónur Fjölmenn útför Ólafs B. Björns- sonar AKRANESI, 22. apríl: Jarðarför Ólafs B. Björnssonar fór fram í dag að viðstöddu fjölmenni. Sóknarpresturinn flutti hiln- k. eðju og kirkjukórinn söng heima. Að því búnu var kistan borin af 40 mönnum í fimm á- föngum frú heimili hans og í kirkju. Þar flutti sóknarprestur- inn, séra Jón M. Guðjónsson, snilldarræð” og á eftir henni margar kveðjur frá félagasam- tökum og einstaklingum. Góð- templarar fjölmenntu við útför- ina og í nafni þeirra flutti Þór- leifur Bjarnason, námsstjóri, skorinort kveðjuávarp og kvað svo að orði að Ólafur hefði ver- ið baráttumaður og brjóstvörn bindindismanna hér í bæ. Karla kórinn Svanir söng í kirkjunni og var Baldur Ólafsson einsöngv ari með kórnum. Ekið var í 60 bílum upp að Görðum þar sem sóknarpresturinn jarðsöng. Með- al aðkomumanna var herra Ás- mundur Guðmundsson biskup og af sýslungum hans Pétur Ottesen, alþingismaður. — Oddur. HELLA SAMBAND ungra Sjálfstæðis- manna og Fjölnir, FUS í Rangár- vallasýslu, efna til vormóts í Hellubíói í kvöld. Hefst mótið kl. 21. Ingólfur Jónsson alþingismað- ur og séra Jónas Gíslason munu flytja ræður á móíinu. Þá syng- Varðarkatfi verður ekki í sumar KÓPAVOGUR! Kosningaskrifstofa Sjálfstæðis- flokksins í Kópavogi er að Mel- gerði 1, sími 19708. ÁRNESSÝSLA KOSNINGASKRIFSTOFA Sjálf •tæðisflokksins í Árnessýslm er við Tryggvatorg á Selfossi sími 119. Skrifstofan er opin daglega kl. 1—10 e.h. í peningum í búð einni hér í bænum. Þeir félagarnir höfðu farið inn í útsölu frá Mjólkursamsölunni. Þar spurðu þeir stúlkuna, hvort hún gæti ekki skipt 500 króna seðli fyrir sig. Annar náunganna hafði staðið úti í dyrum og hald- ið hurðinni opinni. Afgreiðslu- stúlkan taldi sig geta skipt seðl- inum, taldi fram á afgreiðslu- borðið 3 hundrað krónu seðla og fjóra 50 kr. seðla. Náunginn greip seðlana og hljóp sem fæt- ur toguðu út úr mjólkurbúðinni, og lét engan 500 króna seðil á móti, því hann átti enga peninga. Þeir fóru í fleiri búðir og reyndu þetta sama við afgreiðslufólkið, Maður stór- slasast í GÆRKVÖLDI slasaðist maður mjög mikið á fæti, er hlaðinn reykháfur hrundi. Maðurinn heit ir Valdimar Vigfússon, Laufás- vegi 20. Hann mun ásamt fleiri mönnum hafa verið við Iagningu miðstöðvar í húsið Vatnsstíg 3, á efri hæð. Maðurinn hi.fði ver- ið að vinna við loftpressu er slys ið varð. Hafði vinstri fótleggur mannsins skaddast mjög mikið frá hnéi og niður á tær. Var Valdimar fluttur beint til lækn- isaðgerðar í Landsspítalann. Frá aðalfundi S.H. AÐALFUNDUR Sölumiðstöðvar Hraðfrystihúsanna, hélt áfram í gær. Nefndir skiluðu þá áliti og voru mörg mál afgreidd. Enn- fremur voru reikningar S. H. fyrir síðasta ár afgreiddir. 1 gærkvöldi var fundi haldið áfram cg þá átti að fara fram kosning stjórnar og aðalfundar- störfum að ljúka. ur Jón Sigurbjörnsson söngvari einsöng við undirleik Ásgeirs Beinteinssonar, Baldur Hólm- geirsson og Sigríður Magnúsdótt- ir flytja gamanþátt ,og að lok- um verður stiginn dans. Hljóm- sveit Óskars Guðmundssonar leikur fyrir dansinum. ÍSAFJÖRÐUR Annað kvöld efna Samband ungra Sjálfstæðismanna og Fylk- ir, FUS á ísafirði, til vormóts að Uppsölum á ísafirði. Mótið hefst kl. 20.30. Bjarni Benediktsson ritstjóri, Kjartan Jóhannsson alþingis- maður og Árni G. Finnsson stud. jur. verða ræðumenn á mótinu. Þá verður fjölbreytt skemmti- skrá, sem Hanna Bjarnadóttir, Flosi Ólafsson og Skúli Halldórs- son munu annast. Að lokum leik- ur hljómsveit Vilbergs Vilbergs- sonar fyrir dansi. ★ Samband ungra Sjólfstæðis- manna hefur boðað til fundar með trúnaðarmönnum sínum í Isafjarðarsýslum og á ísafirði á morgun kl. 4 e. h. Verður fund- urinn haldinn að Uppsölum á ísaf irði. Til umræðu á fundinum verða þau mál, sem nú eru mest á dag- en tókst hvergi að fá skipt. Þeir tóku sér meira að segja leigubíl og óku í báðir til þess að flýta ferðinni, en allt kom fyrir ekki En víst er, að af þessu hátta- lagi þjófanna getur afgreiðslu- fólk í búðum lært nokkuð, sagði rannsóknarlögreglan. Pétur Ottesen átti frumkvæðið VEGNA fréttagreinar í Morgbl. í gær um aðstoð þýzkra eftirlits- skipa við íslenzka togara, og læknishjálp til handa íslenzkum sjómönnum, þá skal það tekið fram, að Pétur Ottsen, alþingis- maður, átti frumkvæðið að þessu máli. Flutti hann á Alþingi álykt un um það, að athugað yrði á hvern hátt væri hægt að sjá ís- lenzkum sjómönnum á fjarlæg- um miðum fyrir læknishjálp. — Hófst þá þegar athugun á mál- inu, sem svo leiddi til þess, að þýzk stjórnarvöld hafa tilkynnt að eftirlitsskip þeirra hér við land og á fjarlægum nrúðum t. d. við Nýfundnaland og Græn- land, muni veita íslenzkum tog- urum og togarasjómönnum að- stoð og læknishjálp ef með þarf. Þess skal og getið, að í jan- úarmánuði sl. bað skipherrann á eftirlitsskipinu Meerkatze Jó- hann Þ. Jósefsson alþm., um- boðsmann þýzkra skipa hér, að koma á framfæri orðsendinu um að íslenzk skip gætu hvenær sem er leitað hjálpar skips hans ef með þyrfti. Hafði Jóhann komið orðsendingunni á framfæri og þess getið í blöðum. ÓÐINN Málfundafélagið Óðinn heldur félagsfund í Valhöll við Suður- götu sunnudaginn 24. maí kl. 2 e. h. — Frummælandi á fund- inum verður Angantýr Guðjóns- skrá, þ. e. viðskilnaður vinstri stjórnarinnar og kjördæmamálið. Þar munu mæta 3 menn úr stjórn SUS, þeir Magnús Óskarsson lög- fræðingur, Árni G. Finnsson stud. jur. og Jóhannes Árnason stud. jur. BOLUNGARVÍK I kvöld halda Sjálfstæðismenn héraðsmót í félagsheimilinu í Bolungarvík. Hefst mótið kl. 20,30. — Ræður á mótinu flytja þeir Bjarni Benediktsson ritstjóri og Sigurður Bjarnason alþingismað- ur. Skemmtiatriði annast Hanna Bjarnadóttir, Flosi Ólafsson og Skúli Halldórsson. Loks verður stiginn dans fram eftir nóttu. AÐ kvöldi mánudags sl. var sett alþjóðlegt skákmót í Zúrich í Sviss en þar er Friðrik Ólafsson meðal 16 þátttakenda. Eru þar á meðal margir stórmeistarar og alþjóðiegir meistarar. Sama kvöld var dregið um röð kepp- enda á mótinu, og er hún þannig: 1) Edgar Walther (Sviss), 2) Friðrik Ólafsson, 3) Max Blau, alþjóðlegur meistari (Sviss), 4) Andreas Duckstein, alþj. meist. (Austurríki), 5) Gedeon Barcza, Sveinn Jónsson hefur búið á Egilsstöðum síðan 1920. Rekur hann þar stórbú og hefur gert miklar framkvæmdir á jörðinni bæði hvað snertir byggingar og ræktun. Sveinn hefur gengt fjöl- mörgum trúnaðarstörfum fyrir sveit sína og hérað, verið odd- viti Vallahrepps og síðar Egils- staðahrepps samtals á fjórða ára- tug. Hann hefur setið búnaðar þing í yfir tuttugu ár og verið í stjórn Búnaðarsambands Austur- lands í tæp 15 ár. Auk þessa hefir Sveinn imnið að mörgum fram- faramálum héraðs síns. Hann er skeleggur málsvari bændastétt- arinnar og hefur ætíð barizt fyr- ir hennar hag af þeim stórhug og þeirri dirfsku, sem honum er í blóð borin. Ef Norðmýlingar bera gæfu til að tryggja kosningu Sveins á Egilsstöðum 28. júní n.k. eignast þeir traustan málsvara á Alþingi. Helgi Gíslason, hreppstjóri og hreppsnefndaroddviti á Helga- felli, er í öðru sæti listans. Helgi er gagnfræðingur frá Mennta- skólanum á Akureyri árið 1929 og hefur verið kennari í Fella- hreppi 1933—41 og 1943—55. Hann reisti nýbýlið Helgafell í Ekkjufellslandi árið 1936 og hef- stórmeistari (Ungverjal.), 6) Svetozar Gligoric, stórm. (Júgó- slavíu). 7) Donner, alþjl. meist- ari (Hollandi), 8) Tal, stórm. (Rússl.), 9) Bhend (Sviss), 10) Kupper, alþjl. meist. (Sviss), 11) Larsen, stórm. Danmörku), 12) Unzicker, stórm. V.-Þýzkal.), 13) Nievergelt (Sviss), 14) Ker- es, stórm. (Rússl.), Keller, Sviss- landsmeistari, 16) Fischer stórm. (Bandaríkjunum.) Nánari fréttir hafa ekki borizt. ur búið þar síðan. Á sumrum hef- ur hann haft með höndum verk- stjórn í vegavinnu. Auk þessara starfa hefur Helgi verið valinn til forustu í sveitarmálum og verið oddviti hreppsnefndar frá 1950 og hreppsstjóri frá 1956. Hann hef- ur einnig átt sæti í skólanefnd og verið formaður ungmenna- félags. Þá er hann formaður Sjálf stæðisfélagsins í Norður-Múla- sýslu og í stjórn Sparisjóðs Fljóts dalshéraðs. Sýna þessi trúnaðar- störf glöggt hvers trausts Helgi nýtur í sveit sinni og héraði. Jónas Pétursson, tilraunastjóri á Skriðuklaustri er í þriðja sæti listans. Hann var áður ráðunaut- ur hjá Búnaðarsambandi Eyja- fjarðar og í hreppsnefnd Hrafna- gilshrepps í Eyjafirði. Jónas flutt- ist til Austurlands árið 1947 og hefur verið tilraunastjóri við nú- verandi ríkisbú á Skriðuklaustri frá því að það var stofnsett. Hann nýtur álits og vinsælda þar eystra, er í hreppsnefnd Fljóts- dalshrepps, form. Búnaðarfél. Fljótsdæla og í stjórn Sparisjóðs Flj ótsdalshéraðs. Sigurjón Jónsson trésmiður á Vopnafirði skipar fjórða sæti listans. Sigurjón er iðnlærður trésmiður og hefur staðið fyrir mörgum framkvæmdum í hreppn um, svo sem félagsheimili, vatns- veitu, byggingu síldarverksmiðju og nú síðast byggingu mjöl- skemmu við síldarverksmiðjuna á Vopnafirði. Hann er fulltrúi í hreppsnefnd. Sigurjón er harð- duglegur maður og nýtur trausts allra, sem kynnast honum. Svo sem kunnugt er hefur að undanförnu lítið vantað á að Sjálfstæðismenn í Norður-Múla- sýslu kæmu manni á þing. Er nú mikill hugur í Sjálfstæðismönn- um í sýslunni að freista þess að jafna þann mun sem verið hefur og tryggja lista Sjálfstæðisflokks ins þingmann. Vormót SUS á ísafirði og Hellu um helgina Töfluröðin í Zurich

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.