Morgunblaðið - 28.05.1959, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 28.05.1959, Blaðsíða 3
■Pimmtudagur 28. maí 1959 VORClJWnr'*r>1Ð 3 S.I.F. óttast að saltfiskkaup- endur fpurti að leita til annara lándá ískyggilegar horfur um saltfiskfram- leiðsluna segir i ályktun frá aðalfundi saltfiskframleiðenda f*AÐ kom fram á aðalfundi Sölusambands íslenzkra fiskfram leiðenda, en innan vébanda þess eru saltfiskframleiðendur, að miklum mun verr sé búið að salt- fiskframleiðslunni en öðrum greinum fiskframleiðslunnar, og er hér um svo alvarlegt mál að ræða, að á aðalfundinum, var kjörin nefnd manna til að ræða þessi mál við ríkisstjórnina og bankana. Er saltfiskframleiðsla landsmanna mestmegnis greidd með hörðum gjaldeyri. í gær barst Mbl. fréttatilk. frá Sölusambandi ísl. fiskfram- leiðenda, þar sem skýrt er frá þessum málum, og aðalfundi sölu sambandsins, sem haldinn var á mánudaginn var hér í Reykja- vík. í fréttatilk. segir m.a. á þessa leið: „Samkvæmt skýrslu félags- stjórnarinnar vár saltfiskfram- leiðslan árið 1958 tæp 29.000 tonn af verkuðum og óverkuðum fiski, og nam andvirði hennar um 132 milljónum króna. Stærstu kaupendurnir að óverkuðum fiski voru Portúgal, Ítalía og Grikk- land, en Jamaica, Brazilía, Spánn og Cuba að verkuðum fiski. Fisk- verð var svipað og verið hafði árið áður. Formaður félagsstjórnarinnar, Richard Thors, skýrði frá afla- brögðum, sölu og útflutningi salt- fisks frá sl. áramótum til 15. maí. Reyndist vertíðaraflinn af saltfiski á þessu tímabili um 19.000 tonn. Þá skýrði formaður frá, að sam ið hefði verið um sölu á um 12.000 tonnum af óverkuðum fiski og nokkuð af því magni þegar flutt út, og myndi afskip- un á fiski þessum að fullu lokið um mánaðamótin júni/júlí. Enn- fremur hafa verið seldar og fluttar úr landi allar birgðir sl. árs, sem námu um 2500 tonn- um, að undanskildu smávægilegu magni af ufsa og þorski, sem vænzt er, að seljist innan skamms. Þá upplýsti formaður, að vegna hagstæðra fargjalda og samninga við ríkisstjórnina mundi verð- lag til félagsmanna verða eitt- hvað hærra en sl. ár. Ennfremur í dag tilkynnti ísraelsstjórn, að héðan í frá mundi hún taka þau skip Arabiska sambandslýðveld- isins eignarnámi, sem tekin yrðu í landhelgi ísraels. Er þetta svar við því tiltæki Egypta að gera upptækan serrientsfarm frá ísra- el, sem danskt flutningsskip átti að flytja um Súez-skurð. skýrði formaður frá því, að unnt hefði verið að selja stórum meira af saltfiski að þessu sinni en framleiðslan leyfði. Óskir lægju fyrir frá Grikklandi, Ítalíu og Jamica um frekari kaup á íslenzk um saltfiski og unnt hefði verið að selja meira magn til Portúgal, en ógerningur að verða við þeim óskum. Fiskur til þessara landa væri seldur í frjálsum gjaldeyri og því mjög óhagstætt fyrir þjóð arbúið, að ekki væri unnt að sinna þessum mörkuðum, og þá væri einnig mikil hætta á, að gamlir og traustir markaðir rýrn- uðu að mun, er kaupendur þyrftu að leita til annarra aðila um kaup á þeim fiski, sem þeir áð- ur hefðu fengið frá íslandi. Auk venjulegra umræðna um fisksölumál var allmikið rætt um fiskframleiðsluna almennt, meðferð og mat á fiski, og var það almenn skoðun hjá fundar- mönnum, að illa væri búið að saltfiskframleiðslunni í saman- burði við aðrar framleiðslugrein- ar sjávaraflans, og var í því til- efni samþykkt eftirfarandi til- laga: „Með því að sýnt er, að eigi verður til saltfiskur fyrir ára- tuga viðskiptavini SÍF, er einnig nú vilja kaupa hann (Grikkland — ftalía), og þess, hve ískyggi- lega horfir um framleiðslu á salt- fiski framvegis, enda þótt hann sé að langmestu leyti greiddur með hörðum gjaldeyri, þá álykt- ar aðalfundur SÍF að kjósa þriggja manna nefnd til þess að ræða þessi mál við ríkisstjórnina og bankana og vinna að því, að hlutur saltfisks og saltfiskverk- unar verði það rlflegur, að áfram verði unnt að stujnda þá verkun- araðferð með ekki lakari árangri en aðrar verkunaraðferðir og með hliðsjón af því, sem mark- aður gefur tilefni til á hverjum tíma“. Stjórn Sölusanibandsins var endurkjörin, og skipa hana eftir- taldir menn: — Richard Thors, forstjóri, Jón G. Maríasson, bankastjóri, Jó- hann Þ. Jósefsson, alþingism., Valgarð J. Ólafsson, framkvstj., Hafsteinn Bergþórsson, forstjóri, Jón Gíslason, útgerðarmaður, Tryggvi Ófeigsson, útgerðarmað- Fyrir nokkru fóru nemendur Heimavistarskólans að Jaðri ásamt kennurum og skólastjóranum, Björgvin Magnússyni, í heimsókn til Flugfélags Islands á Reykjavíkurflugvelli. — Skoðuð voru verkstæði félagsins og flugskýli ásamt þeim flugvélum sem þá voru í skoðun. Flugumsjónarmaður skýrði frá daglegum rekstri og hópurinn fór um borð í Viscountflugvélina „Gullfaxa“ og skoðaði hana undir leiðsögn sérfræðinga. Að Iokum þá hópurinn veitingar og nemendum voru afhentar smágjafir til minningar um heimsóknina. Ljósmynd: Sv. Sæm. Ekkju dæmdar á hundrað Jbús. kr. Slasaðist i bil á Keflavikurflugvelli annað í bætur í JANÚARMÁN. 1956 varð slys suður á Keflavíkurflugvelli. Bíll frá varnarliðinu ók aftan á áætl- unarbílinn R-8338, með þeim af- leiðingum að nokkrir farþeganna í bílnum slösuðust og bíllinn stór- skemmdist. Einn þarþeganna Jóhanna Waage, Þórustíg 22 í Ytri-Njarðvík, var meðal þeirra er slösuðust. Vegna meiðsla þeirra er hún hlaut í slysi þessu, varð hún að dveljast í sjúkrahús- inu í Keflavík í 13 mánuði. Hafði Ekkert skeði í Berlín BERLIN, 27. maí. — Hinn 27.' nóvember í haust lýsti Krúsjeff því yfir, að Rússar mundu láta Austur-Þj óð ver j a fá í hendur stjórn Austur-Berlínar eftir hálft ár, eða 27. maí, og rjúfa þannig sáttmála fjórveldanna um her- setu í borginni. — Ekki hefur hann látið verða af þessari hót- un sjnni og talsmaður stjórnar hans hefur sagt, að það verði ekki, á meðan fundur utanríkis- ráðherranna stendur yfir í Genf. í dag var allt með kyrrum kjör um í Berlín og umferð gekk þar sinn vanagang. Fréttir i stuttu máli Franskur hermaður var í dag að reyna nýja gerð fallhlífa. Fall hlífin opnaðist ekki, en flæktist í stéli flugvélarinnar og þar hékk flugmaðurinn í hálfa klst., en allan þann tíma flaug vélin með 120 km. hraða á klst. Loks gat einn af áhöfn vélarinnar kom ið spotta til fallhlífarmannsins. Hann losnaði úr sjálfheldunni og gat opnað varafallhlífina og bjargað lífi sínu á þann veg. hún hlotið heilahristing og brot á báðum fótum auk smærri á- verka. , Fór Jóhanna Waage í skaða- bótamál við fjármálaráðherra vegna ríkissjóðs og gerði hún kröfu til greiðslu bóta að upp- hæð rúmlega 257 þús kr. Er hún ekkja með þrjú börn á framfæri, og hafði hún starfað á flugvellin- um hjá varnarliðinu. Talsmaður fjármálaráðherra -vefengdi ekki að bera fébóta ábyrgð á slysinu, en taldi fjárhæðina, sem Jóhanna Waage krafðist, vera of háa. í undirrétti voru henni dæmd- ar rúmlega 77,000 kr. í bætur auk vaxta. En í Hæstarétti voru skaðabæturnar nokkuð hækkað- ar er fjármálaráðherra var gert að greiða ekkjunni og segir m. a. svo í forsendum dómsins: Eftir uppsögu héraðsdóms hef- ur K. G. Guðmundsson trygginga fræðingur áætlað áhrif kaup- breytinga, sem orðið hafa að undanförnu, á niðurstöðu áætlun- ar hans frá 19. nóvember f. á. Lækkar niðurstaðan úr kr. 69.390,00 í kr. 68.855,00. Einnig hefur tryggingafræðingurinn á- ætlað hækkun niðurstöðunnar, ef áfrýjanda eru, auk tekna af vinnu utan heimilis, ætlaðar tekj- ur, sem húsmóður vegna vinnu á eigin heimili. Ef vinnutekjutap er miðað við vinnutekjur utan heimilis, að viðbættu fæði og húsnæði samkvæmt skattmati, reiknast tryggingafræðingnum til, að verðmætið hækki í kr. 96.971.00. Sé áfrýjanda auk þess reiknað lágt ráðskonukaup, á- ætlar hann, að verðmætið hækki í kr. 122.231.00. Fyrir Hæstarétti hefur og ver- ið leitt í ljós, að áfrýjandi hafði um tveggja ára skeið áður en slysið varð unnið störf á Kefla- víkurflugvelli og fengið fyrir kr. 3.000.00 á mánuði. Var sú vinnu- ráðning ekki tímabundin. Að öllu athuguðu þykir atvinnutjón á- Ifrýjanda því hæfilega metið kr. 100.000.00. , Staðfesta ber úrlausn héraðs- dóms um 6. kröfulið. Sá liður fjallar um kröfur vegna lýta er hlutust vegna slys- ins. á fótum konunar. Þær voru taldar hæfilega ákveðnar 30.000.00 kr. Úrslit málsins verða þau, að stefnda verður dæmt að greiða áfrýjanda kr. 2080.00 kr. 100.000.00 -f- kr. 30.000.00 eða alls kr. 132.080.00, að frádregnum þegar greiddum 15.000.00, þ. e. kr. 117.080.00, ásamt vöxtum, eins og krafist er. , Þá verður stefnda dæmt að greiða áfrýjanda málskostnað í héraði og fyrir Hæstarétti, sam- tals kr. 18.000.00. STAKSniHIAR ,,Ekkert svo eitrað“ V-stjórnarvinirnir gömlu kepf ast þessa dagana við að lýsa hver öðrum og þar með raunar sjálf- um sér. Alþýðublaðið hefur birt hinar athyglisverðustu uppljóstr anir um hvað valdið hafi hegð- un Hermanns og félaga hans á jólaföstunni í vetur. Telur blaðið, að þar hafi áhuginn um að stöðva rannsókn oliumálsins ölhi ráðið. Tíminn lýsir sjálfum sér og Framsókn með því að skýra frá hvaða eiginleikar það hafi verið hjá Sjálfstæðisflokknum, sent gerði Framsókn skyndilega ólma í að komast í þjóðstjórn með honum: „Sjálfstæðisflokkurinn hafðl sýnt að i stjórnarandstöðu sveifst hann einskis. I hans augum var ekkert meðal svo eitrað, að ekki væri sjálfsagt að nota það, ef hugsanlegt var að það gæti eitt- hvað stytt útlegðartímabil hans. Pólitískir mannasiðir virtust með öllu óþekkt fyrirbrigði í íhalds- fjölskyldunni“. „Furðulegustu úrræði“ í gær kemur Þjóðviljinn í kór- inn og spyr með stórum stöfum á forsíðu: „Hvar er auðsuppspretta Al- þýðuflokks og Alþýðublaðs? Utanríkisráðherra greiðir inn peningana en skýrir ekki frá því hvaðan þeir séu komnir“. I grein sinni segir Þjóðviljinn: „Það er alkunna að Alþýðu- flokkurinn hefur átt mjög í vök að verjast fjárhagslega um langt skeið. — — — JukiÆt skuldir flokksins í bönkum og lánastofn unum stig af stigi, og það kom oftar en einu sinni fyrir að út- gáfa blaðsins féll niður dag og dag vegna fjárhagserfiðleika. Starfsmenn blaðsins og flokks- ins áttu inni kaup fyrir langan tíma, en fjármálayfirvöld flokks- ins gripu stundum til ósæmileg- ustu og furðulegustu úrræða til að fleyta starfseminni áfram“. Síðan fjölyrðir Þjóðviljinn um þá gerbreytingu, sem orðið hafi á hag Alþýðublaðsins, og segir: „Einn af ritstjórum blaðsins hefur Iýst opinberlega yfir því í útvarpi að nú komi það ekki lengur fyrir að erfitt sé að greiða mönnum kaup“. „Með sty rktarf ramlögum* * Næsta klausa Þjóðviljans er: „Alþýðublaðið er eina blaðSð á íslandi, sem hefur dularfullar fjárreiður. Blöð íhaldsins skila hagnaði með því móti að heild- salar og fésýslumenn Sjálfstæðis flokksins eru skuldbundnir til þess að auglýsa í blöðunum fyrir lágmarksupphæð á árl hverju. Hallinn á Tímanum er greiddur með framlögum, beinum og óbein um frá kaupfélögunum og SÍS. Halli Þjóðviljans er greiddur af lesendum og stuðningsmönnum blaðsins með styrktarframlögum og árlegu happdrætti sem vegur upp hallann. En Alþýðublaðið leitar aldrei til flokksmanna sinna og lesenda, fjármál þess eru leyst með öðru móti — og nýjasta „laiusnin“ hefur reynzt mjög gjöful“. Auðvitað er það misskilningur Þjóðviljans, að nokkur sé „skuld- bundinn" til að auglýsa í Morg- unblaðinu. Allir vita, að aug- lýsendur gera það vegna eigia hags. En það eftirtektarverða er, hvernig Þjóðviljinn segir frá greiðslunni á eigin halla. Hann er m.a. greiddur af „stuðnings- mönnum blaðsins með styrktar- framlögum“. En Þjóðviljinn seg- ir ekki frá þjóðerni né búsetu þessara „stuðningsmanna“ sinna. Skyldu ekki sumir þeirra vera búsettir austan járntjalds?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.