Morgunblaðið - 28.05.1959, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 28.05.1959, Blaðsíða 22
22 1UORCVNBL4Ð1Ð Fimmtudagur 28. mal 1959 KRR, for/sturáð í knattspyrnu- málum, 40 ára A MORGUN, föstudag, eru 40 ár liðin síðan stjórn ÍSÍ skipaði 5 manna nefnd er skírð var Knatt- apyrnunefnd Reykjavíkur. Var nefndin skipuð til að hafa á hendi stjórn allra knattspyrnumála í Reykjavík, undir umsjón ÍSÍ. J>essi nefnd var upphaf að því «r síðar hét Knattspyrnuráð fs- lands og sem í dag ber heitið Knattspyrnuráð Reykja- ■víkur. Skipunardagur áðurnefndr *r nefndar, 29. maí 1919, telst fitofndagur ráðsins og KRR held- «r því hátíðlegt 40 ára afmaeli fiitt með úrvalsliðaleik á Mela- vellinum í kvöld og með kaffi- *amsaeti á laugardaginn. KRR skipaði fyrir nokkru nefnd manna til að sjá um undir- húning þess að þessara tímamóta 1 sögu ráðsins yrði minnzt. For- xnaður hennar er Jón Þórðarson. Sú nefnd ásamt stjórn KRR en formaður þess er nú Jón Guðjóns son ræddu við fréttamenn á dög- nnum og skýrðu frá þessum tímamótum og starfi ráðsins. Eitt af því sem undirbúnings- nefnd afmæiisins ákvað var ið gefa út bækling þar sem í stuttu máli er rakin saga knattspyrnu hér og starfs Knattspyrnuráðs- ins frá upphafi. Um útgáfuna hafa séð Einar Björnsson og Jón Þórðarson. Þarna er j skýrum dráttum að finna gang málanna •og það sem hér á eftir fer um KRR er úr þeim ágæta bæklingi tekið. Eins og áður hefur fram komið ær knattspyrna á íslandi sextíu ára gömul og rúmlegá þó. Fyrsti kappleikurinn var haldinn rétt fyrir aldamótin. Var þá valið í lið eftir hlutkesti og sama að- ferð viðhöfð við næstu leiki. Fyrsti opinberi leikurinn sem fram fór hér milli starfandi knattspyrnufélaga var 17. júní 1911 við hátíðahöld í tilefni af aldarafmæli Jóns Sigurðssonar og vígslu íþróttavallarins. Þá léku KR og Fram. Upphaf knattspyrnumóta er að rekja til 1911 að Fram gefur vandaðan bikar sem keppa skal um á íslandsmóti væntanlegu og það félag sem hann hlýtur einnig hljóta sæmdarheitið „Bezta knattspyrnufélag íslands". Bikar þessi gegnir enn sínu uppruna- lega hlutverki og reglugerðin sem honum fylgdi og ÍSÍ stað- festi í ársbyrjun 1912 er enn í gildi. Nokkru síðar komust á önnur mót um aðra bikara og í öðrum aldursflokkum. Með stofnun ÍSÍ 1912 fékk íþróttahreyfingin sína yfirstjórn. Um það leyti var knattspyrnan snarasti þáttur íþrótta hérlendis. M. a. af því gaf Í'SÍ út 1916 knatt- spyrnulög í fyrsta sinn en stuttur og laggóður formáli þeirra hljóð- aði svo. „Ben. G. Waage þýddi knatt- spyrnulögin. Guðmundur Björns- son landlæknir skóp nýyrðin. Ríkarður Jónsson skar myndirn- ar.“ Um svipað leyti gaf ÍSÍ út „Al- mennar reglur um knattspyrnu- mót“ Þar með var varanlegur grundvöllur lagður að knatt- spyrnu hérlendis. 1918 hóf ÍSÍ undirbúning að fyrstu erlendu heimsókninni. 1919 kom danska liðið Akadem- isk Boldklub hingað og var heim- sókn þess vel heppnuð, og efldi knattspyrnu hér heima mjög, og það svo að ÍSÍ vildi hafa sér til aðstoðar í knattspyrnumálum nefnd er eingöngu hugsaði um knattspyrnumál. Sú nefnd er upphaf KRR eins og fyrr segir. í hana voru skipaðir Egill Jac- obsen formaður, Pétur Sigurðson, Erlendur Ó. Pétursson, Magnús Guðbrandsson og Axel Andres- son. Um skipun hennar segir m.a. í fundargerð ÍSÍ. Nefndin er skip uð vegna annríkis ÍSÍ. Hún á að skipa niður öllum knattspyrnu- mótum í Rvík og velja dómara á þau. Henni ber að öllu leyti að fara eftir þeim regium sem gilda Knattspyrnunefnd Reykjavikur skipuðu 1919, Egill Jacobsen formaður (er á innrammaðri mynd), Pétur Sigurðsson, Axel Andrésson, Magnús Guðbrandsson og Erlendur Ó. Pétursson. í ÍSÍ og telji nefndin breytinga þörf á þeim skal hún senda ÍSÍ tillögur sínar þar um. Nefndin lagði fljótlega til að starfssvið hennar yrði landið alit og var þá nafninu breytt úr Knattspyrnunefnd Reykjavíkur í Knattspyrnuráð íslands. Hélzt sú nafnbreyting til 1923 að starfs- sviðið er aftur bundið Reykja- vík, enda fóru þá að skjóta upp kollinum svipuð samtök annars staðar á landinu. En hvaða nafn sem KRR hefur borið hefur þar alltaf verið starf- að af miklu fjöri og miklu kappi að viðgangi knattspyrnunnar eftir því sem nefndar- eða ráðs- menn á hverjum tíma hafa talið bezt. Á fyrstu árunum voru send hvatningarbréf um landið auk þess sem ráðið stjórnaði knatt- spyrnumálum höfuðstaðarins. Það gekkst fyrir stofnun nefndar til að afla fjár til eflingar knatt- spyrnunni og fékk hingað þjálf- ara skozkan er starfaði hér í tvo mánuði 1922. Þá stofnaði ráðið til námskeiða í knattspyrnu í bæn- um og nágrenni og það styrkti fyrstu sameiginlegu keppnisför ísl. knattspyrnumanna utan, en það var Færeyjaför 1930. Ráðið átti. sinn þátt í að fá hingað erl. knattspyrnuflokk, Civil Service 1922. Hvert svo sem nafnið hefur verið hefur mikið starf verið unn ið að því að koma dómaramál- unum í gott horf. Allt þetta er hér hefur verið talið sýnir á hve mörgum sviðum KRR hefur unnið brautryðjenda- starf því síðan hafa margar ferð- ir verið farnar utan og mörg lið sótt ísland heim, þjálfarar fengn- ir o. s. frv. KRR er samnefnari knatt- Reykjavík - Akranes - ,nú er síokkað upp' I KVÖLD klukkan 8,30 fer fram á Melavellinum afmælisleikur KRR. Úrvalslið Reykjavíkur mætir þá íslandsmeisturunum frá Akranesi. Leikir þessara aðila hafa um mörg undanfarin ár sett sinn svip á íþróttalífið og mun væntanlega svo enn verða. Liðin í kvöld verða þannig skipuð: Núverandi stjórn KRR, frá vinstri: Ólafur Jónsson, sá er lengst hefur setið í ráðinu, Haraldur Snorrason, Jón Guðjónsson form., Haraldur Gíslason, Friðjón Friðjónsson og Sigurgeir Guð- spyrnufélaganna í Reykjavík. Stjórn þess skipa menn tilnefnd- ir af félögunum. Ráðið starfar í nánu sambandi við ÍBR. heildar- samtök íþróttahreyfingarinnar í Reykjavík og hefur æðsta vald um knattspyrnu í Reykjavík. Eitt af þeim störfum er KRR hefur innt af hendi er undirbún- ingur og framkvæmd fyrsta landsleiks íslendinga við Dani 1946. Áður hafði KRR gert mis- heppnaða tilraun til stofnunar sérsambanda knattspyrnumanna um land allt. Og það féll i þess skaut að hafa forgöngu um undir Helgi Danielsson Guðmundur Sigurðsson Helgi Hannesson Jón Leósson Sveinn Teitsson Guðjón Finnbogason Ríkharður Jónsson Helgi Björgvinsson Skúli Hákonarson Halldór Sigurbjörnsson Þórður Jónsson © Ellert Schram (KR) Þórólfur Beck (KR) Örn Steinsen (KR) Guðjón Jónsson (Fram) Sveinn Jónsson (KR) Halldór Halldórsson (Þrótti) Garðar Árnason (KR) Hörður Felixson (KR) Rúnar Guðmannsson (Fram) Hreiðar Ársælsson (KR) Heimir Guðjónsson (KR) Dómari er Guðjón Einarsson, sem á um þessar mundir 30 ára dómaraafmæli Varamenn: Akranes: Kjartan Sigurðsson, Hafsteinn Elíasson, Ingvar Elísson og Gísli Sigurðsson. Reykjavík: Guðjón Oddsson (Þrótti), Árni Njálsson (Val), Helgi Jónsson (KR), Grétar Sigurðsson (Fram) og Gunnar Gunn- irsson (Val). Halldór Halldórsson leikur í þessum leik 25. leik sinn í úrvals- liði Reykjavíkur. mannsson fundarritari. Valur-Keflavík 2:1 Nú hefur Akranes „endur- heimt" alla sína gömlu, góðu garpa utan Þórðar, sem er tá- brotinn frá leiknum við KR. 1 hans stað leikur á miðjunni Hall- dór Sigurbjörnsson (Donni), en nýliðinn Skúli í útherjastöðu, en hann vakti mesta athygli nýliða Akraness I síðasta leik þess. KRR valdi Reykjavíkurliðið. Er þar miklu umbylt og ný stefna upp tekin. Miðframvörður er settur í bakvarðarstöðu (og við því er ekkert að segja). Lítt þjálf aður miðframvörður er settur í stöðu framvarðar, tveir innherjar eru settir í útherjastöður og tveir framverðir í stöðu innherja (og þar er annar fluttur úr stöðu vinstri framvarðar í stöðu hægri innherja. KRR hefur verið í ein- hverju afmælisskapi er það valdi úrvalslið sitt, eða vill sýna, að allt er fertugum fært — eða í fyrsta lagi vill ráðið sýna að það hefur forystu um byltingu í upp- stillingu liðs, eins og á svo mörg- um sviðum knattspyrnumálanna á liðnum fjórum áratugum. Og kannski er þarna lausn vandans — að stokka bara al- mennilega upp. Þetta eykur á spenninginn og væntanlega verð- ur fullskipaður Melavöllurinn í kvöld. ÍSLANDSMÓTH) í knattspyrnu Var sett í 48 sinn í fyrrakvöld Sveinn Zoega varaform. KSÍ setti mótið með stuttri en snjallri ræðu, þar sem hann m. a. drap á það nýmæli að nú væri leikin tvöföld umferð þ.e. liðin léku heima og að heiman. Kvaðst hann vona að þetta yrði knattspyrn- unni til framdráttar. Að setningu lokinni hófst leikur Vals og Kefla vikur, en Valur fór með sigur af hólmi 2 mörk gegn 1. ★ Jákvæður leikur Valsmenn náðu fyrst í þessum leik og af og til allan leikinn sínum jákvæðasta og bezta leik í sumar. Þeim óx ásmegin við það að eftir skamma stund, tókst þeim að ná forystu er Bergsteinn Magnússon skoraði fallegt mark með því að skjóta laglega fram- hjá úthlaupandi markverði Kefla víkur. Sóttu Valsmenn síðan all- fast og náðu sem fyrr segir já- kvæðari, betri og skipulagðari leik, en þeir hafa áður sýnt í vor. Keflvíkingar voru heldur sein- ir að átta sig í þessum fyrsta leik sínum hér í ár. Spyrnur þeirra voru ónákvæmar og þannig fór forgörðum flest það er þeir reyndu. Slæmar aðstæður í síðari hálíleik tók að helli- rigna og það svo að á skammri stund breyttust allar aðstæður frá því að vera hinar beztu til þess að vera hin verstu aur- blautur og laus völlur og þlý- þungur knöttur. Þessar aðstæður virtust ekki hafa veruleg áhrif á liðin í fyrstu en svo fór að draga af Valsmönn- um. Létu þeir engan bilbug á sér finna þó Valur þefði bætt öðru marki við. Var þar Berg- steinn að verki öðru sinni eftir sólóupphlaup frá miðjum velli. Keflvíkingar sóttu án afláts og komst Valsmarkið er á leið hvað eftir annað í yfirvofandi hættu. Var stundum óskiljanlegt hvern- ig Keflvíkingum tókst að kom- ast hjá því að skora hjá Val. Loks í leikslok tókst þeim að skora laglegt mark. Keflavíkurliðið Keflavíkurliðið er yfirleitt skipað nokkuð jöfnum mönnum að getu. Liðið hefur styrkzt mjög við að fá Akureyringana Guð- mund Guðmundsson og Hauk Jakobsson ásamt Skúla útherja sem var í IKF. Segja má að þess- ir þrír ásamt Högna Gunnlaugs- syni séu stoðir liðsins og á þá, einkum þó Högna er treyst um of; sent til hans í tíma og ótíma. Skapaði þetta leik framlínunn- ar. Högni er mjög hreyfanlegur Framh. á bls. 23. en bindur framlínuna ekki nóg saman. Skúli er skotviss en var eigi nýttur sem skyldi. Páll Jóns- son var lakari nú en í fyrra og tvívegis eyðilagði hann tækifæri með því að rífa frá öðrum er betur stóðu að. Innherjarnir voru um of „sér á parti“ og mynduðu sjaldan heild með framlínunni. Aftasta vörnin er veik einkum hægra megin. Svipur leiks Kefl- víkinga var heldur góður þrátt fyrir allt og sannarlega má ætla að þeir verði „stóru“ félögunum skeinuhættir. Valur mátti vel þakka fyrir úrslit þessa leiks eft- ir marktækifærum. Valsliðið Léikur Vals var betri en áður — einkum það að nú vissu flest- ir að hverju þeir stefndu. Það sáust varla þau vandræði og það tilgangslausa sem svo mjög hef- ur á köflum einkennt suma leik- mennina. Þetta var samstilltasti leikur liðsins og sá jafnbezti, sem ég hef séð hjá þeim í vor. Bergsteinn tryggði sigurinn með tveim laglegum mörkum — það fyrra mjög laglega, og reyndar það seinna líka þó það væri auð- velt vegna mistaka varnar Kefla- víkur. Gunnar Gunnarsson átti sinn bezta leik nú og sama má segja um Árna Njálsson. Magnús miðvörður hopaði oft um of svo að gegnumbrotið varð andstæð- ingunum auðvelt. Gunnlaugur varði af prýði og bjargaði oft á neyðarstund. — A.St.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.