Morgunblaðið - 28.05.1959, Blaðsíða 4
MORGUNfílAfílÐ
Ffmmtuaagrur 28. maí 1959
/
Slysavarðstofan er opin allan
sólarhringinn. — Laeknavörður
L.R. (fyrir vitjanir), er á sama
stað frá kl. 18—8. — Simi 15030.
NæturvarzJa vikuna 23. til .'"9.
maí er í Ingólfs-apóteki, — sími
11330. —
Holts-apótek og GarSs-apótek
eru opin á sunnudögum kl. 1—4
eftir hádegi.
HafnarfjarSarapótek er opið
alla virka daga kl. 9—21. Laugar-
daga kl. 9—16 og 19—21. Helgi-
dag kl. 13—16 og kl '9—21.
Næturlæknlr í Hafnarfirði er
Kristján Jóhannesson, sími 50056.
Keflavíkur-apótek er opið alla
virka daga kl. 9—19, laugardaga
kl. 9—16. Helgidaga kl. 13—16.
Kópavogs-apótek, Álfhólsvegi 9
er opið daglega kl. 9—20, nema
laugardaga kl. 9—16 og helgidaga
kl. 13—16. — Sími 23100.
I.O.O.F. 7 s= 1415278% =
I.O.O.F. 5 = 1415288% = Fl.
Sam.-borðh.
EiBrúðkaup
Á laugardag fyrir hvítasunnu
voru gefin saman í hjónaband af
séra Guðmundi Guðmundssyni,
Útskálum, Jónína Rún Péturs-
dóttir frá Seyðisfirði og Ingólfur
Júlíusson, Daníelssonar, fyrrv.
útvegsmanns), Brautarholti, —
Grindavík.
S.l. laugardag voru gefin sam
an i hjónaband af séra Kristni
Stefánssyni, Sjöfn Magnúsdóttir,
Mýrargötu 2. Hafnarfirði og Ingi
mundur Jónsson, skipstjóri, Norð
urbraut 33, Hafnarfirði. Heimili
ungu hjónanna verður að Mýrar-
götu 2, Hafnarfirði.
•
Hjónaefni
Nýlega hafa opinberað trúlof-
un sína ungfrú Svanhvít Aðal-
heiður Jósefsdóttir, Sandvík.
Glerárþorpi og Svavar Hjaltalín,
verkstjóri, Grundargötu 6, Akur
eyri. —
Þann 8. þ.m. opinberuðu trú-
lofun sína Ingibjörg Blomster
berg, Suðurlandsbraut 95. Rvík
og Bragi Ólafsson, Vestmanna-
braut 3, Vestmannaeyjum.
Skipin
H.f. Eimskipafélag Islands —
Dettifoss fór frá Gautaborg í
fyrradag. Fjallfoss er í Hamborg.
Goðafoss er á leið til Reykjavík-
ur. Gullfoss fór frá Leith í fyrra-
dag. Lagarfoss er í New York.
Reykjafoss fór frá Dublin í fyrra
dag. Selfoss fór frá Gautaborg í
fyrradag. Tröllafoss er á leið til
Reykjavíkur. Tungufoss fór frá
Sauðárkróki í gærkvöldi.
Skipaútgerð ríkisins. — Hekla
er í Reykjavík. Esja er væntan-
leg til Reykjavíkur í dag. Herðu-
breið er á Austfjörðum. Skjald-
breið er á Húnaflóa. Þyrill er
væntanlegur til Raufarhafnar í
kvöld. Helgi Helgason fer frá
Reykjavík á morgun til Vest-
mannaeyja.
Skipadeild S.Í.S.: — Hvassafell
er á leið til Reyðarfjarðar. Arnar
fell er á leið til Reykjavíkur.
Jökulfell átti að fara frá Rostock
í gær. Dísarfell fer væntanlega
frá Lysekil í kvöld. Litlafell losar
á Austfjörðum. Helgafell er í
Leningrad. Hamrafell fór frá
Reykjavík 1. þ.m.
gjJFlugvélar
Flugfélag íslands h.f.: — Milli-
landflug: Gullfaxi fer til Glas-
gow og Kaupmannahafnar kl. 8 I
dag. Flugvélin er væntanleg aft-
ur til Reykjavíkur kl. 22:40 í
kvöld. Hrímfaxi fer til Glasgow
og Kaupmannahafnar kl. 8 í fyrra
málið. — Innanlandsflug: í dag
er áætlað að fljúga til Akureyrar
(3 ferðir), Bíldudals, Egilsstaða,
ísafjarðar, Kópaskers, Patreks-
fjarðar, Vestmannaeyja (2 ferð-
ir) og Þórshafnar. Á morgun er
áætlað að fljúga til Akureyrar
2 ferðir), Egilsstaða, Fagurhóls-
mýrar, Hólmavíkur, Hornafjarð-
ar, ísafjarðar, Kirkjubæjarklaust
urs, Vestmannaeyja (2 ferðir) og
Þingeyrar.
Læknar fjarverandi
Alfreð Gíslason frá 20./5. til
14./6. — Staðgengill: Árni Guð-
mundsson.
Jónas Sveinsson frá 31./5. til
31./7. — Staðgengill: Gunnar
NÆTURGALINN
Ævintýri eftir
„Hér á að vera ákaflega merki-
legur fugl, sem nefnist nætur-
gali“, sagði keisarinn. „Það er
sagt, að hann sé það langbezta
f öllu mínu stóra ríki. Hvers
vegna hefir mér aldrei verið sagt
frá honum?“
„Ég hefi aldrei fyrr heyrt
hann nefndan,“ anzaði hirðgæð-
ingurinn. „Hann hefir áreiðan-
lega aldrei verið kynntur við
hiriðna.“
„Ég vil, að hann komi hingað
þegar í kvöld og syngi fyrir
mig,“ sagði keisarinn. „Allur
heimurinn veit, hvað ég á, en
ég veit það ekki sjálfur."
FERDIIM AIMD
I., R. sýnir leikrit Arthurs Miller „Allir synir mínir" á Akur-
eyri og verður fyrsta sýningin á föstudagskvöld. Leiksýning
þessi fékk framúrskarandi góðar viðtöknr hjá leikgagnrýn-
endum og þá ekki síðri hjá leikhúsgestum og hefur verið sýnt
í allan vetur í Iðnó, eða alls 43 sýningar. Ekki mun mögulegt
að hafa nema fáar sýningar á Aknreyri þar sem margir Jeik-
aranna eru einnig í „Delerium Buhonis“, en síðustu sýningar
á því leikriti verða í næstu viku. Á myndinni sést Brynjólfur
Jóhannesson í hlutverki Joe Keller, en ásamt honum eru í
aðalhlutverkunum þau Helga Valtýsdóttir, Jón Sigurbjörnsson,
Helga Bachmann og Guðmundur Pálsson. Leikstjórl er
Gísli Halldórsson.
Benjamínsson.
Árni Björnsson um óákveðinn
tíma. — Staðgengill: Halldór Arin
bjamar. Lælcningastofa í Lauga-
vegs-Apóteki. Viðtalstími virka
daga kl. 1:30—2:30. £ími á lækn-
ingastofu 19690. Heimasími 35738.
Bjarni Jónsson fjarverandi frá
14. maí—S. júlí. Staðgengill
Stefán P. Björnsson. ,
Guðmundur Benediktsson um óá
kveðinn tíma. — Staðgengill:
Tómag Á. Jónasson, Hverfisgötu
50. Viðtalstími kl. 1—2, nema
laugardaga, kl. 10—11. Sími 15521
Valtýr Bjarnason 1/5 um óákv.
tíma. Tómas A. Jónasson, Hverf-
isgötu 50.
Víkingur H. Arnórsson fjarver
andi frá 27. apríl til 1. júní. Stað-
gengill Jón Hjaltalín Gunnlaugs-
son, Hverfisgötu 50.
gggFélagsstörf
Hringskonur eru minntar á að-
alfundinn í kvöld kl. 8,30, í
Garðastræti 8.
Ekknasjóður Reykjavíkur held
ur aðalfund sinn föstudaginn 29.
maí kl. 8,30 síðdegis. Fundarstað-
ur: KFUM húsið við Amtmanns-
stíg. —
glAheit&samskot
Höfðingleg gjöf til Skálatúns:
1 dag hefur mér verið afhent
gjöf til Skálatúnsheimilisins, að
fjárhæð 2000 — tvö þúsund krón
ur, sem hjónin Erlendsína Helga-
dóttir og Magnús Jónsson, Sjón-
arhóli. Vogum, gefa heimilinu á
gullbrúðkaupsdegi sínum 9. maí
1959. — Kvittast hér með fyrir
viðtökunni með innilegasta þakk-
læti til gefendanna og heillaósk-
um. — Rvík. 27. maí 1959. —
Jón Gunnlaugsson.
gHYmislegt
,Orð lífsins: — Ó, að orðin af
munni mínum yrðu þér þóknan-
leg og hugsanir hjarta míns
kæmu fram fyrir augliti þitt, þú
Drottinn hellubjarg mitt og
frelsari! (Sálmur 19).
Kvenskátafélag Reykjavíkur:
Ferðir á Helgadals-mótið verða
á föstudag kl. 2 e.h. og kl. 6 e.h.
Farið verður frá Skátaheimilinu.
Afgreiðslustúlkur í sölutum-
um og ísbúðum! Áríðandi fund-
ur í V.R., Vonarstræti 4, kl. 12
í kvöld. — Verzlunarmannafélag
Reykjavíkur.
• Geagið
Sölugengi:
1 Sterlingspund ..
1 Bandaríkjadollar
1 Kanadadollar
100 Danskar kr. ...,
100 Norskar kr.....
100 Sænskar kr.....
100 Finnsk mörk ....
1000 Franskir frankar
kr.
45,70
16,32
16,82
236,30
228.50
315.50
5,10
33,06
H. C. Andersen
„Ég hefi aldrei heyrt hann
nefndan," endurtók hirðgæðing-
urinn. „Ég skal leita að honum
— og ég skal finna hann.“
Hondin hög I
100 Belgísklr frankar — 82,90
100 Svissneskir frank. — 376,00
100 Gyllini ...........— 432,40
100 Tékkneskar kr. .. — 226,67
100 V.-þýzk mörk ,. — 391,30
1000 Lírur ..............— 26,02
100 Austurr. schill. .. — 62,78
BLÖÐ OG TÍMARIT
Samtíðin, júníblaðið, . er kom-
ið út, fjölbreytt að efni. Ritstjór-
inn skrifar um byggingu Hrafn-
istu, dvalarheimilis aldraðra sjó-
manna. Freyja skrifar fróðlega
kvennaþætti, Guðmundur Arn-
laugsson skákþátt og Árni M.
Jónsson bridgeþátt. Þá er fram-
haldssagan: Hryllilegt hús, ást-
arsagan: Reikningsskil eftir Stein
unni Eyjólfsdóttur. Afmælisspá-
dómar eru fyrir alla, sem fæddir
eru í júní, draumaráðningar,
vinsælustu danslagatextarnir,
skemmtigetraunir, krossgáta, ásta
mál, bréfaskóli I íslenzku, skop-
sögur, próf, sem allir geta geng-
ið undir og sannprófað, hvernig
fólki geðjast að þeim. Margt
fleira er í blaðinu.
I5H Söín
Listasafn Einars Jönssonar, Hnit
björgum, er opið miðvikudaga og
sunnudaga kl. 1.30—3,30.
Bæjarbókasafn Reykjavíkur: —
Aðalsafnið, Þingholtsstræti 29
A. — Útlánadeild: Alla virka
daga kl. 14—22, nema laugardaga
kl. 13—16. — Lestrarsalur fyrir
fullorðna: Alla virka daga kl.
10—12 og 13—22, nema laugar-
daga kl. 10—12 og 13—16.
Útibúið, Hólmgarði 34. — Út-
lánadeild fyrir fullorðna: Mánu-
daga kl. 17—21, miðvikudaga og
föstudaga kl. 17—19. — Lesstofa
og útlánadeild fyrir börn: Mánu-
daga, miðvikudaga og föstudaga
kl. 17—19.
Útibúið, Hofsvallagötu 16. —
Útlánadeild fyrir börn og Jull-
orðna: Alla virka daga, nema
laugardaga, kl. 17,30—19,30.
Útibúið, Efstasundi 26. — Út-
lánadeild fyrir börn og fullorðna:
Mánudaga, miðvikudaga og föstu
‘ daga kl. 17—19.