Morgunblaðið - 23.06.1959, Síða 24

Morgunblaðið - 23.06.1959, Síða 24
JW0¥)0ttttlb(DMfr 129. tbl. — Þriðjudagur 23. júní 1959 „Fór hann háðulegum orðum um Eystein, kallaði hann „Eystein litla“ og kvað Eystein hafa verið „horaðan og rakan í fætur“, þegar Hermann stökk með hann úr „sökkvandi skútu vinstri stjóm- arinnar“.“ Þannig segir Þjóðviljinn 17. júní frá ummælum Björns Pálssonar, kaupfélagsstjóra, frambjóðanda Framsóknarflokksins í Austur-Húnavatnssýslu, á fundi í Húnaveri. — Blaðið hefur einnig eftir Birni: „Ef ég kemst á þing skal farið að stjórna af viti“. ska! farti d% stjom í « af vit Finnbogi Rútur hafnar tilmœlum Framsóknar um svik í kjördœma málinu Þjóðviljinn herðir á með tveim við- bótaryfirlýsingum FRAMSÓKNARMENN renna enn hýru auga til kommúnista um svik í kjördæmamálinu. Kosn- ingablað Framsóknarmanna í Kópavogi segir t.d. hinn 20. júní að Alþýðubandalagið hafi lánað málinu „ — — stuðning sinn, gegn vilja margra beztu manna þess flokks“. Og enn segir: „Enda er vitað að hinir gætn- ari menn Alþýðubandalagsins voru andvígir því að taka þátt í þeim hráskinnaleik, sem nú er verið að leika með kjördæma- breytingunni". Engum dylst hvert þessum vonaraugum er nú litið. Finn- boga R. Valdimarssyni ekki held ur, enda er hann ekki seinn til svars. í Þjóðviljanum sl. sunnu- dag er þetta eftir honum haft: „Finnbogi ræddi síðan nokkuð kjördæmamálið. Benti á að kosn- ingarnar 1956 hefðu sannað svo að ekki varð um villzt, að kosn- ingalöggjöfinni varð að breyta. Framsókn hefði mátt vita, að leik urinn með Hræðslubandalagið myndi ekki verða látinn endur- taka sig. Alþýðubandalagið hefði krafizt þess að það yrði tekið upp í stjórnarsáttmálann 1956 að leysa þetta mál á kjörtímabil- inu. Framsókn hefði ekki reynt að ná samningum um málið, hún hefði metið meira að koma fram kauplækkuninni. í þessu máli hugsaði hún ekki um hag þjóð- arinnar heldur einungis um eig- in hagsmuni. Sitt álit væri, sagði Finnbogi, að sú lausn málsins sem nú hefði náðst samkomulag um bætti verulega úr misréttinu, a.m.k. milli flokka en ekki á milli héraða. Allt landið eitt kjör dæmi gæti eitt tryggt það‘. Eftir þessa yfirýsingu væri það blygðunarlaus svik, ef Finnbogi og félagar hans hvikuðu í málinu. Hann hefur hryggbrotið Fram- sóknarmaddömuna í allra aug- sýn. Auðvitað má með rökum ef- ast um orðheldni hans, en í því efni eru einbeittar kröfur kjós- enda hans bezta tryggingin. Ótt- inn við fordæmingu þeirra hef- ur vafalaust ráðið mestu um synjun hans á fleðulátum Fram— sóknar nú. Hinar ótvíræðustu yfirlýsingar Hinn sami ótti við eigin kjós- endur lýsir sér í því, að Þjóð- viljinn birtir tvær aðrar hollustu- yfirlýsingar við kjördæmamálið á sunnudag. í forystugrein Þjóð- viljans segir: „Nýja kjördæmaskipunin, er lögfest verður á sumarþinginu, gefur alþýðu landsins stóraukið tækifæri til að efla stjórnmála- samtök sín, gera þau á skömmum tíma að úrslitaafli á Alþingi ís- lendinga. Þess vegna hefur kjör- dæmaskipun álíka og sú er lög- fest verður eftir nokkrar vikur verið yfirlýst stefna Sósíalista- flokksins allt frá árinu 1942, og þess vegn'a, vegna framtíðarinn- ar, er það mikill sigur alþýðu- stéttanna á fslandi að tókst að beina þróun kjördæmamálsins í þessa stefnu“. Annars staðar á sömu síðu seg- ir: „Þingflokkur Alþýðubanda- lagsins stóð einhuga með kjör- dæmabreytingunni og mun tryggja henni fullnaðarsigur á sumarþinginu. Um það liggja fyr- ir hinar ótvíræðustu yfirlýsingar forustumanna Alþýðubandalags- ins‘. f þessum yfirlýsingum komm- únista kemur fram rétt mat þeirra á því, að hvað sem löngun forystumannanna kann að líða, þá er það alger stjórnmálalegur ómögueiki fyrir þá að svíkja í kjördæmamálinu. Það mundi jafn gilda pólitísku sjálfsmorði, eins og frambjóðandi þeirra í Austur- Húnavatnssýslu sagði. ) \ Kosningaskritstota Sjálfstœðisflokksins \ í Morgunblaðshúsinu \ ) f \ er opin frá kl. 10—22 alla daga | | Athugið hvort þé*r eruð á kjörskrá \ í síma 1-27-57 \ i s ( Gefið upplýsingair um fólk, sem er erlendis ( og verður þar á kjördag \ \ Þeir, sem fara úo* bænum fyrir kjördag eru | minntir á að kjósa strax j ; Símar skrifstofunnar eru: \ \ 1-35-60 og 10-4-50 j Agætur Heimdallar fundur í gærkvöldi í GÆRKVÖLDI hélt Heimdallur, félag ungra Sjálfstæðismanna, almennan stjórnmálafund í Sjálf- stæðishúsinu. í upphafi fundar- ins lék Lúðrasveit Reykjavíkur. Níu ungir Sjálfstæðismenn og konur fluttu ræður. Þau voru: Ragnhildur Helgadóttir, alþingis maður, Ellert Schram, nemandi, Jóhann Ragnarsson, stud. júr, Stefán Snæbjörnsson, iðnaðar- maður, Anna Borg, skrifstofu- stúlka, Jón Ragnarsson, stud. júr., Ólafur Davíðsson, nemandi, Sig- urður Helgason, lögfræðingur og Geir Hallgrímsson, formaður Sambands ungra Sjálfstæðis- manna. Fundarstjóri var Bald- vin Tryggvason, formaður Heim- dallar og fundarritari Hörður Einarsson. Var fundurinn vel sóttur og bar glöggan vott um að ungir Sjálfstæðismenn fylkja liði og vinna af alefli að glæsilegum sigri á sunnudaginn. Máli ræðu- manna var mjög vel tekið. Verð- ur þeirra getið nánar hér í blað inu síðar, lítvorpsumræðui í KVÖLD kl. 8,10 hefjast útvarps- umræöur stjórnmálaflokkanna. Umferð verður ein og hefur hver flokkur 45 mín. til umráða. Röð- in verður þessi: Alþýðuflokkur, Sjálfstæðisflokkur, Framsóknar- flokktur, Alþýðubandalag, Þjóð- varnarflokkur. Fyrir hönd Sjálfstæðisflokks- ins tala í kvöld Ólafur Thors, Gunnar Thoroddsen og frú Ragn hildur Helgadóttir. Umræðurnar halda áfram ann- að kvöld. Lítið um að vera en flot- inn í bezta veðri á mið- unum FRÉTTARITARI Mbl. á Siglu- firði, símaði í gær, að á miðum síldarbátanna væri hið bezta veður hlýindi og logn. Ekki hefðu þó borizt fregnir um aflabrögð, og virtist lítið um að vera. Síld- in fer öll til bræðslu, og af því leiðir, að skipin hafa hægar um sig, því ekki þarf að sigla inn með bræðslusíld fyrr en komið er í skipið eða þar um bil. Um helgina bárust til Siglu- fjarðar um 8000 mál síldar og voru skipin þessi: Sæljón 350, Blíðfari 470, Faxaborg 600, Jón Finnsson 320, Tálknfirðingur 466, Kambaröst 556, Jökull 498, Ásgeir 266, Víðir SU 810, Sigurbjörg 360, Áskell 320, Stefán Þór 266, Mummi 315, Sæborg 498, Björg 350, Guðmundur á Sveinseyri 492, Askur 574, Flóaklettur 304, Vilborg 274, Sigrún 313, Heiðrún 568, Stefnir 284 og Magnús Marteins 150 mál. í gærkvöldi kom Hringur til Siglufjarðar með um 400 tunnur. — Guðjón. Heilbrlgt og lýðræð- islegt stgórnorlar.... EF kjördæmaskipunin er ranglát og lög- gjafarvaldið því ekki rétt mynd af þjóð- arviljanum, leiðir það af sér erfiðleika í þjóðmálunum og spillingu á vegum fram- kvæmdavaldsins. Þess vegna er réttlát kjördæmaskipun fyrst og fremst nauðsyn- legur grundvöllur fyrir heilbrigðu og lýðræðislegu stjórnar- fari. — Björn Ólafsson Togaranum Þorkeli mána hlekktist á í ís við Crœn- land EINU:.- — am Tæjarút- gerðar Reykjavíkur, Þorkeli Mána, hlekkist á í ís fyrir vestan Grænland -ú um helgina. Hefur togarinn — o .ð hætta veiðum og halda heim á leið. Togarinn hefur undanfarið ver ið á ísfiskveiðum á miðunum fyr- ir vestan Grænland, en það ó- happ vildi til um borð í togaran- um, að einn skipsmanna, Jón Sig- urðsson bræðslumaður, fékk ryð- flís í annað augað. Varð að leita til hafnar með Jón og sigldi tog- arinn inn á Færeyingahöfn. Þar var Jón fluttur í land og lagður á sjúkrahús, en togarinn hélt þeg- ar aftur út. Á leiðinni suður lenti togarinn í miklum ís á svonefndum Frið- rikshafsbanka með þeim afleið- ingum að stýrisútbúnaður togar- ans laskaðist svo ekki var hægt að stýra skipinu með stýrisvél þess. En skipsmönnum tókst að bæta úr þessu, og í skeyti til framkvæmdastjóra Bæjarútgerð- ar Reykjavíkur í gærkvöldi, skýr ir skipstjórinn, Hans Sigurjóns- son, frá því að togarinn sé kom- inn út úr ísnv. og skipinu sé stýrt með talíum. Telur skip- stjórinn að togarinn muni kom- ast leiðar sinnar án aðstoðar. Er togarinn því hættur veiðum og lagður af stað til Reykjavíkur. Á sömu slóðum er annar ísl. togari, Ólafur Jóhannesson, frá Patreksfirði, og fylgist hann með ferðum Þorkels mána. Ennfrem- ur hefur bandarískt gæzluskip, sem er á sömu slóðum, gát á hon- um. í skeyti skipstjórans var sagt að skipsmönnum liði öllum vel.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.