Morgunblaðið - 11.07.1959, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ
15
«
Laugardagur 11. júli 1959
Hundarnir reðusf á tóf-
una inni í greninu
Ný bók eítir Gunnor M. Mngnuss
TVEIR grenjahundar lögðu full-
orðna tófu að velli ofan við Hafn-
arfjörð nú í vikunni. Sveinn Ein-
arsson, veiðistjóri, var þar á ferð
með grenjahund, sem Carlsen
minkabani hefur alið upp. Fann
hundurinn tófugreni og fór inn
í grenið. Tófan var inni fyrir og
hrakti hundinn út — og þegar
það hafði gengið nokkrum sinn-
um, var sent eftir öðrum til
Carlsens. Hundarnir tveir réðust
Gjöf
sem vekur athygli
NÝLEGA barst Blindravinafé-
lagi Islands frá ónefndum
manni, kr. 790,00, sem skrifar á
þessa leið: „Þetta er gjöf til fé-
lagsins og er það gjört í minn-
ingu þess, að ég hef haft góða
sjón í 79 ár, og hef því fengið að
njóta þeirrar fegurðar, sem fyrir
augun hefur borið, á fögrum
vetrarkvöldum og sólbjörtum
sumardögum. Þetta er lítið korn
í mælinn, en það er sagt,
að margt smátt gjöri eitt stórt.
Guð blessi félagsstarfsemi ykkar,
sem vinnið að því að létta þeim
sporin, sem í skugganum búa“.
Þetta er lofsverður hugsunar-
háttur, að gleðja aðra í minningu
þess, að njóta góðrar sjónar í 79
ár.
Víða á Norðurlöndum gefa
menn gjafir til blindrastarfsemi,
sem þeir kalla sól-gjafir. Þessi
aldraði maður gæti verið upp-
hafsmaður að sól-gjöfum til
blindrastarfsemi hér á landi. —
Beztu þakkir til hins ókunna
manns, sem lýsir hug sínum svo
vel í verki.
Blindravinafélag íslands,
Þ. Bj.
Sló af fuiidar-
lauimm
SL. miðvikudag var frá því skýrt
hér í blaðinu, að finnandi kven-
úrs hefði ekki viljað skila því
vegna of lágra fundarlauna og
ekki gefið sig fram aftur, þrátt
fyrir auglýsingar.
Eftir að sú frásögn birtist í
blaðinu gaf konan sig fram og
samdi um fundarlaunin, helm-
ingi lægri en hún hafðí upphaf-
lega krafizt.
Hcildarveltan
45,2 millj. kr.
KAUPFÉLAG Austur-Skaftfell-
inga hélt aðalfund sinn föstu-
daginn 26. júní. Vörusala nam
19,7 millj. er það 3,7 millj. hærra
en í fyrra. Sala innlendra vara
nam 25,5 millj.. Er það um 11
millj. hærra en árið áður. Þar
af voru sjávarafurðir 18,5 millj.
Heildarveltan er því 45,2 millj.
Þar að auki er mjólkursamlagið
en sala mjólkurafurða var 2,1
millj.
Helztu framkvæmdir félagsins
á árinu 1958 voru stækkun á fisk-
móttöku frystihússins um 300
íerm. og byggt var nýtt fisk-
verkunarhús 900 ferm. Þá var
keypt flökunarvélasamstæða og
flatningsvélasamstæða.
Afskriftir félagsins á fasteign-
um og áhöldum var 875 þús. og
tekjuafgangur til ráðstöfunar
359 þús. Var 875 þús. og tekju-
afgangur til ráðstöfunar 359 þús.
Var samþykkt að leggja 5% í
stofnsjóð og 4% í viðskipta-
reikninga.
Innstæður í innlánsdeild og
viðskiptareikningum höfðu auk-
izt um 1% millj. á árinu og skuld-
ir viðskiptamanna höfðu hækkað
um 300 þús.
til atlögu við tófuna inni í gren-
inu, drápu hana og drógu hræið
síðan út. Þessir hundar eru
tveggja og þriggja ára.
f fyrri viku var Sveinn með
hundinn austur í Fljótshlíð. Var
ætlunin að láta hann eyða þar
greni. Þegar að var komið hafði
tófan komið öllum yrðlingunum
nema tveimur undan. Drap hund
urinn þá tvo, sem eftir voru í
greninu..
KAIRO, 8. júlí. — Mikil kjörsókn
var í At. bíska sambandslýðveld-
inu, Egyptalandi og Sýrlandi, í
dag, en þá fór fram „fyrsta stig“
þingkoshinga. Allir þeir, sem
ekki mæta á kjörstað og geta
ekki borið fram gildar ástæður,
verða sektaðir um eitt egypzkt
pund.
Aðeins einn flokkur fékk að
bjóða fram í kosningunum, flokk
ur Nassers. Frambjóðendur voru
120 þúsund — og úr þeirra hópi
voru í dag kjörnir 39.000 kjör-
menn, sem síður munu kjósa
sveita- og bæjarstjórnir, sem
síðar munu kjósa eins konar
„aðalráð". Úr þessu ráði velur
svo Nasser þingmenn sína.
Um 6.500.000 Egyptar og
1.500.000 Sýrlendingar voru á
ÚT er komin hjá forlaginu Vina-
minni nýstárleg ljóðabók eftir
Gunnar M. Magnúss rithöfund,
sem nefnist „Spegilskrift". í bók-
inni, sem er 48 blaðsíður að
stærð, eru 27 ljóð. Bókin er þann-
ig úr garði gerð, að hún byrjar
aftast og endar fremst og er hún
þannig í fullkomnu samræmi vð
suma þá nútímastrauma, sem
hingað hafa borizt í prentverki
og bókmenntum.
Ljóðin fjalla um hitt og þetta,
eitt heitir t. d. „Rauðmagaljóð“
og annað „Að leika á lífið“ og
kjörskrá. Kjördagur leið án þess
að til neinna tíðinda drægi, enda
var viðbúnaður mikill af hálfu
stjórnarvaldanna til þess að
koma í veg fyrir átök.
Vilja
griðarsamning
A-BERLIN, 10. júlí — Bolz, ut-
anríkisráðherra A-Þýzkalands,
segist ætla að reyna að ná tali af
sendimönnum V-Þjóðverja á
Genfarfundinum, þegar hann
hefst að nýju. A-þjóðverjar telja
enn æskilegt að gera griðarsamn-
ing milli hinna tveggja hluta
Þýzkalands.
er það síðasta ljóðið í bókinni og
kannski ekki tilviljun ein, að það
skuli einmitt bera þetta nafn.
Gunnar M. Magnúss er löngo
vel þekktur rithöfundur. Hann
hefur skrifað ógrynni bóka og
eru þær taldar upp í „Spegil-
skrift“. Fyrsta bók hans kom út
1928 og heitir „Fiðrildi“
Síldarstúlkur
óskast til Raufarhafnar strax. Fríar ferðir og kaup-
trygging. Upplýsingar í síma 1-67-62.
N auðungaruppboð
annað og síðasta, á húseigninni nr. 26 við Heiðar.
gerði, hér í bænum, þingl. eign Unnsteins R.
Jóhannessonar, fer fram samkvæmt kröfu hans á
eigninni sjálfri mánudaginn 13. júlí 1959, kl. 3 s.d.
BORGARFÓGETINN I REYIÍJAVlK
L o k.a ð
vegna sumarleyfa til 27. júlí n.k.
StáSumbúðir h.f
Kleppsvegi
Glæsilegur suuiarbúsfadur
á Vatnsendalandi er til sölu ásamt stórri lóð. Bú-
staðurinn er nýr með nýtízku innréttingu og þæg-
indum, gott verð ef samið er strax.
FASTEIGNAMIÐSTÖÐIN
Austurstræti 14 Sími 14120.
AÐVÖRUN!
Allir þeir, sem eiga garðskýli í leigugarðlöndum
Reykj avíkurbæj ar, skulu hafa málað þau fyrir L
ágúst n.k., eftir þann tíma hefst hreinsun á hvers-
konar rusli úr garðlöndum og verða þá fjarlægð öll
þau garðskýli, sem eru í slæmu ásigkomulagi.
Reykjavík, 9. júlí 1959
Garðyrkjustjóri Reykjavíkurbæjar
Innilega þakka ég börnum mínum, tengdabömum og
öðrum vandamönnum og vinum sem glöddu mig á
60 ára afmæli mínu 21. júní.
Með innilegri vinarkveðju
Benedikta Guðmundsdóttir, Bolungarvík..
Hjartans þakkir færi ég öllum þeim sem heiðruðu mig
á sjötugsafmæli mínu þann 1. júní s.l. með heimsóknum,
gjöfum og skeytum. Sérstaklega þakka ég starfsmönn-
um Síldarverksmiðju ríkisins fyrir þeirra gjafir.
Guð blessi ykkur öll.
Konráð Klemensson, Skagaströnd.
ÞÓRUNN JÓNSDÓTTIR
frá Núpstúni,
andaðist að Elliheimiiinu Grund 9. júlí.
Fyrir hönd aðstandenda.
Helgi Tryggvason.
Eiginmaður minn,
JÓN ÞÓRÐARSON,
frá Núpi
andaðist 9. þ.m.
Guðrún Símonardóttir
Útför
MARIE JOHANNESEN
sem andaðist 5. júní s.l. fer fram frá Fossvogskirkju,
n.k. þriðjudag 14. júlí kl. 10,30 árdegis.
Vinir hinnar látnu.
Móðir okkar,
ÞURlÐUR SIGURÐARDÖTTIR
Laugavegi 147,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni, mánudaginn 13.
júlí kl. 1,30 s.d.
Fyrir hönd vandamanna.
Þórunn Pálsdóttir, Gunnar Pálsson
Minningarathöfn um konuna mína
GUÐMUNDU MARlU TÓMASDÓTTUR
Tröð, Þingeyri,
fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 13. þ.m. kL
1,30 eftir hádegi.
Guðmundur Tómasson.
Hjartanlega þökkum við öllum fjær og nær fyrir auð-
sýnda samúð við andlát og jarðarför móður okkar
ÖNNU SIGRÍÐAR SIGURÐARDÓTTUR
frá Hveragerði.
Sérstaklega læknum og stafsfólki sem önnuðust hana
í veikindum hennar.
Guð blessi ykkur öll.
Agnar og Ingimar ÍJrban.
Þökkum öllum hjartanlega auðsýnda samúð og alla
hjálp, sem okkur hefir verið veitt við andlát og jarðarför
GlSLA GUÐMUNDSSONAR
Úthlíð
Einnig öllum þeim, sem heimsóttu hann og glöddu.
Sigríður Ingvarsdóttir, börn og tengdabörn
Viljum hjartanlega þakka öllum nær og fjær, sem auð-
sýndu okkur samúð og vinsemd, við andlát og útför
eiginmanns, föður, tengdafóður og afa okkar,
KRISTJANS hjaltasonar
frá Fjarðarhorni
Guð blessi ykkur öll.
Guðrún Jónsdóttir
Valgerður Þ. Kristjáusdóttir, Sveinn Kristjánsson,
Gunnar J. Kristjánsson, Birna Ölafsdóttir,
Erla Kristjánsdóttir, Gunnar D. Júlíusson,
Jóhanna Kistjánsdóttir, Sigrún Kristjánsdóttir,
og barnabörn
Þeir, sem ekki kjósa,
eru sektaðir
— Gunnar.