Morgunblaðið - 31.07.1959, Page 1
20 siðun
46. árgangur
163. tbl. — Föstudagur 31. júlí 1959
Frentsmiðja Morgunblaðsins
Forseti Indlands tekur í
faumana í Kerala
NEW DELHI, 30. júb Reuter.
—Nehru forsætisráðherra Ind
lands hefur beðið forseta lands
ins, Rajendra Prasad, að taka
að sér stjórn opinberra mála í
f ylkinu Kerala, þar sem komm
únistar eru við völd. í þessu
fylki hafa a.m.k. 15 manns lát
ið lífið í óeirðum síðustu sex
vikurnar. Samkvæmt stjórn-
arskrá Indlands getur forset-
inn um stundarsakir tekið
stjórnina í einstökum fylkjum
í sínar hendur, ef brýna nauð-
syn ber til. Búizt er við, að
Prasad gefi út opinbera yfir-
lýsingu á morgun um form-
lega valdatöku hans í fylkinu.
★ Stjórnin klofin
Indverska stjórnin sat á fund-
um allan daginn í dag og ræddi
ástandið í Kerala. Er það haft
eftir góðum heimildum, að hún
sé klofin um málið og þá einkan-
lega um tilhögun nýrra kosninga
í Kerala, eftir að kommúnista-
stjórnin er farin frá.
Spilling kommúnista
Óeirðirnar { Kerala brutust út
þegar andstæðingar fylkisstjórn-
arinnar sökuðu hana um spill-
ingu, sóun á opinberu fé og mis-
notkun á opinberum embættum
til að hlaða undir kommúnista-
flokkinn. Kommúnistar hafa neit
að þessum ásökunum og hafið
árásir á stjórn Kongress-flokks-
ins í Vestur-Bengal fyrir spiii-
ingu. Hefur foringi kommúnista
í þessu fylki lagt fram kvörtun
hjá forseta Indlands, en ekki
krafizt þess að indverska stjórn-
in skerist í leikinn. Sagði hann
á fundi við fréttamenn í dag, að
kommúnstar í Vestur-Bengal
gætu vel komið af stað sams kon
ar óeirðum og í Kerala.
★Handtökur og bardagar
Óeirðirnar og kröfugöngurn
ar í Kerala halda áfram, og
eru hundruð manna fangelsuð
daglega, og bardagar milli
lögreglu og borgara daglegir
viðburðir. Stjórnarandstæðing
ar ráðgera geysimikla kröfu-
göngu 9. ágúst, sem þeir kalla
„umsátrið um Xrivandrum".
Hyggjast þeir safna 100.000
manns fyrir utan aðalstöðvar
fylkisstjórnarinnar, og halda
því þar kyrru þangað til stjórn
in segir af sér.
í Delhi ráðgera kommúnist-
ar miklar kröfugöngur 3.
ágúst, og þá hefst haustþing-
ið í höfuðborginni.
Danir fá 40
flaugar
eld-
Helle Virkner
Jens Otto Krag kvœn-
isf HeSSe Virkner
KAUPMANNAHÖFN, 30. júlí.
— í fyrradag skýrðu dönsku
blöðin frá því ,að í náinni fram
tíð mundi Jens Otto Krag
ganga að eiga dönsku leik-
konuna Helle Virkner, sem til
skamms tíma var gift leikar-
anum Ebbe Rode. Hjónaleysin
fóru í sumarleyfi til til Frakk
lands í síðustu viku og dvöld-
ust nokkra daga í bænum
Vence fyrir norðan Nice í Suð
ur-Frakklandi. Hjónavígslan
Góður einræð-
isherru? -
MOSKVU, 30. júlí. Reuter. —
Ýmsir rússneskir gestir á bóka
deiid bandarísku sýningarinn-
ar í Moskvu eru gramir yfir
lýsingu „Encyclopedia Brit-
annica“ (alfræðiorðabókarinn
ar) á þeim Hitler og Stalin,
en þar eru þeir báðir nefndir
einræðisherrar.
Segir leiðsögumaður sýning
arinnar, að gestirnir lesi kalf-
ana um Stalin og segi síðan
af miklum hita:
„Hitler er lýst hér sem
jinræðisherra. Stalin er líka
lýst sem einræðisherra. Hvers
vegha?“
Bandaríkjamennirnir svara:
„Þetta er viðurkennd upp-
sláttarbók, bók sem geymir
staðreyndir heimsins“. Þá
svara margir Rússanna:
„Hvers vegna er þá ekki sagt
að Hitler hafi verið illur ein-
ræðisherra, en Stalin góður
einræðisherra?“
Kaupmannahöfn, 30. júlí. — EirikasTceyti til Mbl.
E F T I R 'hálfan mánuð fá Danir 40 Nike-Ajax og Nike-
Herkules-eldflaugar, sem hægt verður að skjóta frá fjórum
stöðum kringum Kaupmannahöfn. Með þessu hefst eld-
flaugaöldin í landvörnum Dana.
Blaðið „Information" í Kaup
mannahöfn segir, að það sé
álit margra danskra herfor-
ingja, að meirihluti stjórnmála
manna muni samþykkja kröf-
una um, að eldflaugarnar
verði búnar kjarnahleðslu.
Þeir bendí- á að hver venju-
lega búin eldflaug geti aðeins
grandað einni óvinaflugvél,
sem gerir sig líklega til árás-
ar, en kjarnahlaðnar eldflaug-
ar geti hins vegar grandað
heilli flugsveit. Þess vegna
skapi fildflaugar án kjarna-
hleðslu falska öryggiskennd,
segja herforingjarnir.
Hingað til hafa danskir
stjórnmálamenn haldið því
fram, að ekki væri aðkallandi
að fá eldflaugar með kjarna-
hleðslu.
fer fram á danskri ræðis-
mannsskrifstofu á ítalíu.
★
Helle Virkner er ein af þekkt-
ustu og dáðustu leikkonum Dana.
Hefur hun jöfnum höndum leik-
Myndin er tekin af Anne Marie og Stephen fyrir utan heimili
hennar í Suður-Noregi.
Sonur ríkisstjórans heim-
sœkir norska vinkonu
OSLÓ, 30. júlí. — Stephen
Rockefeller, 33 ára gamall son
ur milljónarans NelsonsRocke
i Krúsjefi til i
j Eisenhowers? j
< .. i
i HOFN, 30. júlí. Danska út- 5
5 varpið kvaðst í kvöld hafa það •
(eftir góðum heimildum, að (
s Eisenhower Bandaríkjaforseli i
) væri að hugsa um að bjóða •
| Krúsjeff forsætisráðherra So- (
S vétríkjanna heim innan tíðar. S
Jens Otto Krag
ið í kvikmyndum og á leiksvið-
um. Hún lauk námi við leikskóla
Konunglega leikhússins í Höfn
1946 og lék síðan í því leikhúsi
fram til 1951, en síðan hefur hún
leikið f einkaleikhúsum. Hún
lék m.a. hlutverk Önnu Frank fyr
ir tveimur árum.
★
Jens Otto Kragh hefur átt mjög
skjótan frama í dönskum stjórn-
málum. Hann varð cand. polit.
1940, og tíu árum síðar varð hann
viðskiptamálaráðherra í stjórn
Hédtofts. Hann varð utanríkisráð
herra fyrir skömmu. Krag var
um skeið kvæntur sænsku leik-
konunni og rithöfundinum Birgit
Xengroth.
Allt logar í óeírð-
um á Vínarmótinu
VINARBORG, 30 júlí. — Reuter. — Austurríska lögreglan neitaði
í dag að staðfesta eða bera til baka fregnir þess efnis að allmargir
fulltrúar frá kommúnistaríkjum á æskulýðsmótinu í Vínarborg
hefðu beðið um pólitískt hæli. 1 gær gengu sögur um að a. m. k.
ein ungversk stúlka og tékkneskur piltur hefðu beðið um pólitískt
hæli. Lögreglan vildi ekki segja neitt um málið, en lofaði að gefa
fullkomna skýrslu um það, þegar mótinu lýkur 4. ágúst n. k.
Slagsmál
Þetta er fyrsta æskulýðsmót
þessarar tegundar, sem haldið
er utan kommúnistaríkjanna, og
ber það greinileg merki þess að
það er haldið í frjálslegra and-
rúmslofti. Nokkur hundruð þátt-
takendur í mótinu lentu í slags-
málum við andkommúnista á
fundi, sem haldinn var undir
beru lofti, þegar bíll kom á stað-
inn og hóf að útvarpa andkomm-
únískum áróðri með hátalara. —
Austurrískir lögregluþjónar, sem
vörðu bílinn, urðu fyrir harðri
úrás, en lögreglan vildi ekki láta
uppi, hvort nokkur hefði .særzt
eða hvort einhverjir hefðu verið
handteknir.
it Gaddavírinn og
varðturnarnir
Fiest blöð í Vínarborg, að
lindanskildum kommúnista-
blöðum, hafa látið æskulýðs-
mótið afskiptalaust og ekki
minnzt á það, og sama er að
segja um meirihluta borgar-
búa. Hins vegar hafa and-
kommúnísk æskulýðssamtök
staðið fyrir ókeypis ferðum
Framh. á bls. 2.
fellers ríkisstjóra í New York-
ríki, kom um síðustu helgi til
Lohne í Sögne nálægt Krist
ianssand í Suður-Noregi ásamt
vinkonu sinni norskri, Anne
Marie Rasmussen, sem er tví-
tug.
Forsagan var sú að árið 1953
fór Anne Marie til Bandaríkjanna
til að vinna sér fé og frama og
fékk vinnu hjá Rockefeller-fjöl-
skyldunni. Um það leyti var
Stephen að nema mannkynssögu.
Þau urðu góðir vinir, Anne Marie
og Stephen, og ekki leið á löngu
Framhald á bls. 19.
Crívas
óánœgBur
NÍKÓSÍU, 30. júlí. — Reuter. —
Makarios erkibiskup átti í dag
viðræður við nokkra af ráðherr-
unum í bráðabirgðastjórninni á
Kýpur, eftir að blöðin höfðu birt
gleiðletraðar frásagnir af um-
mælum Grívasar hershöfðingja,
fyrrverandi leiðtoga EOKA, sem
hann Iét falla í Grikklandi í gær.
Grívas kvaðst ekki eiga neina
aðild að þeim sáttmálum sem
gerðir voru í Zúrich og London
fyrr á þessu ári um stöðu og fram
tíð Kýpur, en samkvæmt þeim
Framhald á bls. 19.
Föstudagur 31. júlí.
Efni blaðsins m.a.:
BIs. 6: Barrtrén á Þingvöllum.
— 8: Flóabátur til Eyjafjarðar.
— 10: Forystugreinarnar: „Heimurinn
þarf að vita um ósómann" og
„Þjóðnýtingin er á undan
haldi“.
— 11: Stórvirkjun við Tungnaá?
— 18: íþróttir.