Morgunblaðið - 31.07.1959, Page 3
!Föstudagur 3Í. júlí 1959
IIORCVNBLAÐ1Ð
3
420 manns fara um
helgina í Þórsmörk
Þórsmörk og Landmannalaugar vin-
sælustu ferðamannastaðirnir
I SUMAK hefur verið meiri
ferðamannastraumur um Iand-
ið en í fyrra, enda hefur ferð-
um ferðaskrifstofunnar yfir-
leitt fjölgað. Kemur þeim
saman um að þátttaka í hóp-
ferðum hafi aukizt.
★ Um óbyggðir
Geysilegur fjöldi fólks leggur
leið sína út á land og upp í
óbyggðir um verzlunarmanna-
helgina. Hjá ferðafélögunum er
orðið fullt í flestar ferðir og bíV
skortur veldur að ekki er hægt
að sinna öllum beiðnum um far.
Ferðafélag íslands eitt fer með
15 stóra bíla á 4 staði með yfir
400 manns.
><• I Þórsmörk
Ferðir í Þórsmörk virðast
eftirsóttastar. Þangað fer um
helmingurinn af ferðalöngun-
um frá Ferðafélaginu og blað-
inu er kunnugt um í allt 18
bila sem fara þangað með um
420 manns 8 frá Ferðafélagi
islands, 7 frá Ferðaskrifstof-
unni og 3 frá Fáli Arasyni, auk
bíls, sem þangað kemur úr
lengri ferð.
Næst vinsælasti staðurinn um
verzlunarmannahelgina virðist
vera Landmannalaugar. Veit
blaðið um 4 langferðabíla frá
ferðafélögum, sem þangað fara.
Þetta er í fullu samræmi við það
sem verið hefur í sumar. Þórs-
mörk hefur verið lang mest sótt
af öræfaförum og því næst Land-
mannalaugar.
★ Fjallabaksvegur
Að sjálfsögðu leggja margir
leið sína á aðra staði uppi í
óbyggðum. Guðmundur Jónasson
fer t.d. Fjallabaksleið með 3 bíla
og komast færri en vilja í þá ferð.
Ferðaskrifstofa ríkisins fer á Snæ
fellsnes og Ferðafélagið í Breiða-
fjarðareyjar og í þremur bílum
á Kjöl. Ferðafólk á vegum Páls
Arasonar kemur á Hveravelli í
tveim bílum, að norðan og sunn-
ar og Guðmundur Jónasson send
ir bíl í Þjófadali. Auk þess ferð-
ast að sjálfsögðu sæmrri hópar
á eigin vegum, og utan helgar-
ferðanna eru í gangi fjölmargar
lengri sumarleyfisferðir.
Lengsta brautin
orðin 1,870 m
NORÐUR SUÐUB flugbraut-
in á Reykjavíkurflugvelli hef-
ur nýlega verið lengd til suð-
urs, út í Nauthólsvíkina. Þessi
lenging, sem er um 440 fet
hefur nýlega verið malbikuð
— og er þessi lengsta braut á
Reykjavíkurflugvelli því orð
in 5,600 fet, eða um 1,870 m
Næst lengsta brautin, sú, sem
liggur upp að Öskjuhlíðinni,
er 4,555 fet, en stytzta brautin,
sem liggur upp í krikann við
Pólana, er 4,140 fet. Sú braut
er sjaldan notuð og er óupp-
lýst.
Bindindisþing
STAFANGRI, 27. júlí, NTB. — í
dag söfnuðust bindindisfrömuðir
frá Danmörku, Finnlandi, Fær-
eyjum, íslandi, Noregi og Svíþjóð
saman í Stafangri til 21. norræna
bindindisþingsins, sem stendur
yfir alla þessa viku. Slik þing
þgfa verið haldin þriðja hvert ár
sðanl8Ö5 og hafa ofannefnd lönd
skipzt á um að halda þau. Liðin
eru 21 ár síðan slíkt þing var
síðast haldið í Noregi.
í stjórn ráðstefnunnar eiga
sæti Einar Gerhardsen forsætis-
ráðherra Noregs, Gudmund
Harle félagsmálaráðherra, Mart
inussen biskup, Paul Ingebretsen
þingmaður og Tjalve Gjöstein
formaður bindindishreyfingarinn
ar í Stafangri. Öll bindindisfélög
Noregs, alfs 18 talsins, standa að
ráðstefnunni, sem kostar 22.000
norskar krónur.
Þessi mynd var tekin í gærkvöldi á tröppum Þjóðleikhús-
kjallarans af forstjóra sölu- og innkaupastofnunar Sovétríkj-
anna, Stevanov, sem staddur er hér í bænum og viðræður
hafa farið fram við um viðbótarsölu á síld til Rússlands. Hann
er til háegri handar og með honum á myndinni er sendiherra
Sovétríkjanna hér, Alexandrov. Þeir snæddu kvöldverð í
Þjóðleikhúskjallaranum með forráðamönnum Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna. — í gærdag skoðaði forstjórinn hraðfrysti-
hús Júpíters og Marz við Kirkjusand.
(Ljósm. Mbl. Ól. K. M.)
Góð tíð v/ð Mývatn
SÍÐARI hluta júnímánaðar og
það sem af er júlímánuði, hefur
tíðarfar verið framúrskarandi
hagstætt. Öðru hvoru hefur
rignt, stundum allmikið, en þess
á milli hafa komið ágætir þurrk-
dagar, venjulega fleiri dagar í
einu svo hægt hefur verið að
þurrka til fulls það hey, sem fyr-
ir hefur legið. Stöðug hlýindi
hafa verið og það jafnt þó rigndi.
Mynd þessa tók ljósmyndarl Mbl. á miðvikudagskvöldið, þegar hann flaug yfir Siglufjörð.
Sólarliringinn á undan höfðu 91 skip landað og voru allar verksmiðjur í fullum gangi, eins og
myndin ber með sér.
Grasspretta hefur því verið með
ágætum. Sumir eru þegar farnir
að slá öðru sinni þær túnskákir,
sem fyrst voru slegnar. 1 gær
komst hitinn upp í 25,5 gráður
í forsælu.
Sllungsveiði hefur verið ágæt
í Mývatni og mikið stunduð.
Varplöndin urðu fyrir miklum
áföllum í sumar, fyrst vegna
hretanna í júní, því þá varð
fjöldi af fuglum að yfirgefa
hreiður sín vegna snjóa, og þar
við bættist að minkar og hrafn-
ar lágu mjög í varpinu. Mink-
arnir gerðu víða mikið tjón, til
dæmis eyðilögðu þeir að mestu
varpið í Slútnesi og fleiri góð-
um varplöndum. Margir minkar
voru drepnir, en sóknina gegn
þeim þarf að herða að miklum
mun og skipuleggja hana betur
en gert er, til að ná góðum
árangri. Hrafnarnir voru mjög
umsvifamiklir í varplöndunum
og þó mikið væri skotið af þeim,
gerðu þeir þó mikið tjón. Þegar
júníhretin komu, var mikið af
spörfuglum búið að unga út, en
flestir dóu ungarnir í hretunum,
vegna kulda og fæðuskorts.
Undanfarna daga hefur flug-
vél verið að dreifa áburði og
fræi yfir sandlendið norður af
Sandvatni, milli Laxárdals og
Mývatnssveitar, og víðar. Flug-
vélin mun dreifa þarna rösklega
40 tonnum af áburði og allmiklu
af fræi. Flugvélin er frá flug-
skólanum Þyt og vinnur á vegum
Sandgræðslunnar. Starfsemi vél-
arinnar er ómetanleg, því nú má
segja að menn eygi möguleika
til að græða upp landið í marg-
falt stærri stíl, en menn áður
hafði dreymt um að hægt væri
að gera. Má segja að fólkið í
landinu eigi þeim mönnum mik-
ið að þakka sem fyrir þessu
standa og að þessu vinna.
Mjög mikið af útlendingum
hefur verið hér á ferð undan-
farið. Má segja að oft hafi heyrzt
meira töluð erlend mál en ís-
lenzka á hótelunum.
Jóhannes.
STAKSTEINAR
Eysteinn kaus Einar
Þjóðviljinn ræðir í gær skrif
Timans um forsetakosningarnar
á Alþingi og segir:
„Lítinn hljómgrunn mun sá
áróður Tímans finna að með sam
komulagi þriggja flokka um for-
setakosningar á Alþingi hafi Al-
þýðubandalagið eða Sósialista-
flokkurinn hlaupið frá fyrri af-
stöðu og stefnumálum. Þegar
stjórnarskrárfrumvarpið var til
1. umræðu í neðri deild reyndi
Eysteinn Jónsson að blása þetta
samkomulag út sem skuggalegan
stjórnmálaviðburð er hlyti að
hafa djúptækar afleiðingar í is-
Lenzku stjórnmálalífi. Og Tíminn
hamrar dag eftir dag á því sama.
í þeim umræðum henti Einar
Olgeirsson góðlátlegt gaman af
þessu samblásturstali Eysteins.
Þegar Eysteinn vitnaði til að
margt ljótt hefðu þeir Einar og
Bjarni Benediktsson sagt hvor
um annan á undanförnum árum,
minnti Einar hann á að Eysteinn
og hann hefðu ekki alltaf verið
beint hlýlegir í umtali hvor við
annan, en engu að síður hefði þó
allur Framsóknarflokkurinn stutt
sig til þess að hljóta kosningu
sem forseti neðri deildar og hann
stutt Eystein sem fjármálaráð-
herra í tvö og hálft ár“.
Vanþakklætið til
Hermanns
Enn segir Þjóðviljinn:
„Alþýðubandalagið hefði haft
stjórnarsamstarf við Framsóknar
flokkinn, enda þótt hann væri
harðsvíraður hernámsflokkur
eins og Sjálfstæðisflokkurinn,
og væri reiðubúið að hafa sam-
starf við þá flokka og Alþýðu-
flokkinn um hvert það mál scm
alþýðu landsins er til hagsbóta.
-------„Og það situr sízt á £y-
steini Jónssyni, sem nýkominn er
úr hálfs þriðja árs stjórnarsam-
vinnu við Alþýðubandalagið að
býsnast út af því að aðrir hafi
samið við okkur um svo lítið mál
sem forseta- og nefndakosningar
á Alþingi“, sagði Einar.“
Hvað sem menn telja, að sitji
á Eysteini Jónssyni, lýsir það liti-
um þakklætishug kommúnista tii
Framsóknar að kalla hana „harð-
svíraðan hernámsflokk".
Var það ekki Hermann Jónas-
son sem sagði, að betra væri að
vanta brauð en hafa her í landi?
Var það ekki sami Hermann, sem
siðan samdi um áframhaldandi
dvöl hersins og fékk fyrir það
ýms fríðindi, m. a. samskotalán-
in frægu?
Eftir alla þá frækilegu sjálf-
stæöisbaráttu er von, að sann-
trúuðum Framsóknarmönnum
þyki það óskiljanlegt vanþakk-
Iæti, að allir — og þó sérstak-
lega kommúnistar — telji Her-
mann ekki sjálfkjörinn í „sæti
Jóns Sigurðssonar“.
Römm er sú taug
Hrellingar Framsóknar eru
margvíslegar um þessar mundir.
Nokkrar sárabætur fengu þeir þó
við val trúnaðarmanna á Alþingi.
Finnbogi Rútur Valdimarsson
kaus Pál Zophoniasson fyrir for-
mann landbúnaðarnefndar efri
deildar. Af því má sjá, að römm
er sú taug, scm enn er þarna á
milli. Tíminn ætti því ekki að
vera allt of beizkur í garð komm
únista. Hver veit nema þetta
lagist allt saman áður en varir?
Þjóðviljinn og Tíminn hafa t. d.
síðustu dagana fengið það sam-
einingarmál að vonzkast út af
skipun séra Jóhanns Hannessonar
í prófessorembætti við guðfræði-
deild. Enn liggja óteljandi taugar
á milli til Eysteins ekki síöur en
Páls Zoph. og Hermanns.