Morgunblaðið - 31.07.1959, Blaðsíða 10
10
MORCVTVJJL4Ð1Ð
Fösfudagur 31. júlí 1959
roiittitiritafrifr
0tg.: H.I. Arvakur Reykjavllt.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Aðalritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Bjarni Benediktsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Einar Asmundsson.
Lesbók: Arni Óla, sími 33045.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og aígreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargald kr 35,00 á mánuði innamands.
1 lausasölu kr. 2.00 eintakið.
HEIMURINN ÞARF AÐ VITA UM
ÓSÓMANN
UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ
hefur nýlega gefið út
„Hvíta bók“ um ofbeld-
isaðgerðir brezkra herskipa og
togara á íslandsmiðum allt frá
því að fiskveiðitakmörkin voru
færð út hinn 1. september sl. I
bók þessari er brugðið upp mynd
um af einstökum ofbeldisaðgerð-
um og hinum níðingslegu aðferð-
um Breta gegn íslenzku þjóðinni
og viðleitni hennar til þess að
veita fiskimiðum sínum aukna
vernd. Frá því er m. a. sagt, að
skipstjórinn á einu hinna brezku
herskipa hafi sent út svohljóð-
andi orðsendingu til brezkra tog-
ara hér við land:
„Ef eitthvert varðskipanna
reynir að skjóta að brezkum
togurum, munum við skjóta líka
og hrinda árásinni og vera örugg-
ir um að hitta í fyrsta skoti —
og það mun duga“.
Svona kaldrifjaðir eru
stjórendur brezka flotans við
íslandsstrendur. Þeir hóta því
hreinlega að skjóta hina svo
til óvopnuðu íslenzku varð-
báta niður „í fyrsta skoti“ ef
þeir leyfi sér að aðvara veiði-
þjófana!!
En vitanlega hafa þessir her-
skipaforingjar ekki tekið þetta
upp hjá sjálfum sér. Þeir hafa
sínar fyrirskipanir frá flotamála-
ráðuneytinu í London. Það er
þess vegna brezka stjórnin, sem
ber ábyrgð á ofbeldi og yfirgangi
flota síns við- íslandsstrendur.
Níðingslegar aðgerðir
í „Hvítu bókinni“ er m. a.
komizt þannig að orði um þetta
atferli Breta:
„Það samrýmist ekki grund
vallarreglum SÞ og NATO að
halda uppi svo níðingslegum
aðgerðum."
Vitanlega hafa þessi ummæli
við fyllstu rök að styðjast. Hin
vopnaða innrás Breta í íslenzka
fiskveiðilandhelgi er í æpandi
ósamræmi við stofnskrá Samein-
uðu þjóðanna og grundvallar-
reglur alþjóðasamtaka, eins og
NATO og Efnahagssamvinnu-
stofnunar Evrópu, sem bæði Is-
land og Bretland eru þátttakend-
ur L
Aukin kynningarstarf-
»emi
Það 'er mjög vel farið að þessi
„Hvíta bók“ hefur verið gefin út
og henni verið dreift eins víða
og mögulegt er talið. En vitan-
lega nægir ekki útgáfa slíkrar
bókar ein til þess að kynna heim-
inum það, sem hér er að gerast.
Þess vegna hefur jafnframt ver-
ið ákveðið að hingað skuli boðið
erlendum blaðamönnum frá
mörgum löndum til þess að gefa
þeim tækifæri til þess að kynn-
ast af eigin reynd aðförum Breta
og öllum aðstæðum hér heima.
Fyrst munu koma blaðamenn frá
Norðurlöndum og Bretlandi, en
síðar frá Vestur-Þýzkalandi,
Bandaríkjunum og fleiri löndum.
Þess verður að vænta að af þess-
um blaðamannaheimsóknum
leiði aukna þekkingu almennr
ings víða um lönd, ekki aðeins
á hinum íslenzka málstað í land-
helgismálinu, heldur og á ofbeld-
isaðgerðum Breta. Óhætt er að
fullyrða, að fátt sé líklegra til
stuðnings hinum . íslenzka mál-
stað en fordæming almennings-
álitsins í heiminum á atferli
Breta hér við land. Þess vegna
er það vel farið að nú hefur ver-
ið hafin sókn í þá átt að kynna
veröldinni þann ósóma, sem
brezki flotinn hefur gerzt sekur
um við íslandsstrendur.
ÞJÓÐNÝTINGIN ER Á UND-
ANHALDI
ALLT frá því að höfundar (
sósíalisma og kommún-
isma hófu baráttuna fyr-
ir framkvæmd kenninga sinna,
hefur þjóðnýting atvinnutækj-
anna verið kjarni boðskapar
þeirra. En á síðari árum hefur
mjög dregið úr áhuga þeirra fyr-
ir þessu stefnuatriði sínu.
Kommúnistar halda að vísu í
stórum dráttum fast við það,
enda þótt þeir hafi neyðzt til
þess að gefa einstaklingsframtak-
inu á sumum sviðum lausari
tauminn en þeir höfðu áður talið
æskilegt. En reynslan hefur
kennt þeim, að t. d. í landbún-
aði er ekki hægt að komast fram
hjá einkaeign og einstaklingsat-
vinnurekstri.
Jafnaðarmenn hafa hins vegar
í flestum löndum gefizt í aðal-
atriðum upp við allsherjarþjóð-
nýtingu. Þar sem þeir hafa kom-
izt til valda um skeið eins og
t. d. í Bretlandi hafa þeir látið
við það sitja að þjóðnýta einstak-
ar atvinnugreinar eða stórfyrir-
tæki. Á Norðurlöndum, þar sem
jafnaðarmenn hafa farið lengst
með völd, hafa þeir haft sára-
lítinn áhuga fyrir þjóðnýtingu
atvinnulífsins og þjóðnýtingar-
( stefnan er orðin þeim algert
aukaatriði.
Dómur reynslunnar
Orsök þessarar miklu stefnu-
breytingar og fráhvarf frá grund
vallarkennisetningum * sósíalism-
ans er að sjálfsögðu sú, að reynsl
an hefur sannað 'að þjóðnýting
atvinnutækjanna skapar ekki
möguleika á bættum þjóðarhag,
er engin trygging fyrir því nema
síður sé að framleiðslan aukist,
og að aðstaða verkalýðsins verði
betri.
Margt bendir til þess að fram-
tíðarskipulag á atvinnurekstri í
lýðræðislöndum muni verða hlut
deildarfyrirkomulag í einhverri
mynd, þ. e. að almenningur eign-
ist í vaxandi mæli fjármagn í
atvinnutækjunum og þá ekki
hvað sízt f þeim sem hlutaðeig-
andi starfsmenn vinna sjálfir við.
I stað þess að atvinnutæk-
in verði ríkiseign samkvæmt
þjóðnýtingarstefnunni verða
þau þannig eign mikils
fjölda einstaklinga, sem eiga
hag sinn kominn undir því,
I að þau séu vel rekin.
Of feiminn til oð standa vörð
v/ð Buckinghamhöll
TERRY nokkur Smith var einn i
flokki hinna nafntoguðu varð-
manna, sem gegna varðstöðu við
Buckingham höllina í Lundún-
um. — En nú er hann aðeins fyrr-
verandi varðmaður — af því að
hann var svo feiminn.
V
Dag nokkurn í apríl s.l. hvarf
hinn 19 ára gamli Smith af verði,
án þess að láta nokkurn vita eða
gefa skýringu á framferði sínu.
Nær mánuði síðar gaf hann sig
þó fram af fúsum vilja. Var hon-
um þá stefnt fyrir herrétt, sakað-
ur um liðhlaup. En þgar yfirboð-
arar hans höfðu heyrt skýringar
hans á ’brotthlaupinu, ákváðu
þeir að sleppa honum við refs-
ingu, en veita honum lausn frá
störfum — og senda hann heim
til Edlington, litla bæjarins, þar
sem hann hafði áður lifað kyrr-
látu og lítt áberandi lífi.
Ástæðan til þess, að Smith hinn
ungi hvarf af verðinum, var nefni
lega sú, að hann er ákaflega feim-
inn — of feiminn til þess að
standa klukkustundum saman
eins og myndastytta fyrir utan
Buckingham-höllina, þar sem
ferðamenn og aðrir vegfarendur
gláptu á hann eins og naut á ný-
virki — og myndavélar voru sí-
fellt á lofti. — Þetta olli honum
næstum líkamlegum kvölum, að
því er hann sagði — og læknar
staðfestu það — og var alger of-
raun viðkvæmum taugum hans.
Yfirboðarar hans tóku umsögn
læknanna góða og gilda — og
sendu Smith varðmann heim tii
sín. — Ofurstinn hans skrifaði
bréf til móður hans, þar sem hann
Það getur tekið á taugarnar að
standa svona eins og mynda-
stytta tímunum saman
„Lyktarkvikmyndir"
Auðvelt oð koma fyrir naubsynlegum
tækjum á venjulegum kvikmyndahúsum
— og fá áhorfendur óspart að
njóta þess á meðan sýning.n
stendur. Paul Lukas er „von.di
maðurinn“ í myndinni. Leikstjóri
er Jack Cardiff.
Haft er eftir hinum vísindalega
höfundi „lyktarkvikmyndarinn-
ar“, að auðvelt sé að koma 'yrir
þeim einföldu tækjum, sem með
þarf, í öllum venjulegum kvik-
myndahúsum með breiðtjaldi.
sagði m. a.: „Okkur þykir leitt,
að þér skylduð þurfa að hafa
áhyggjur út af syni yðar. Við
vonum, að eftir heimkomuna fái
hann eitthvert rólegt starf, þar
sem hann vekur ekki neina eftir-
tekt . . .“
Og nú er Terry Smith kominn
heim, en hvort hann er búinn að
fá „rólega starfið“ — það vitum
við ekki . ..
RADAR-varnarkerfið
stöðugt fullkomnara
KOMIÐ er fram í Hollywood sér-
stakt fyrirbæri í kvikmyndagerð,
sem nefna mætti „lyktarkvik-
myndir“. — Það er Michael Todd
jr., sem fyrir þessu stendur, og
fyrsta kvikmynd hans af þessu
tagi nefnist „Scent of Mystei y“.
— Meðan á sýningu myndarinnar
stendur munu 40 mismunandi
lyktarefni dreifast um kvik-
myndasalinn, en öll eru þau á
einhvern hátt til þess fallin að
leggja áherzlu á atburðarásina á
Diana Dors í „bikini“ —
Peter Lorre í leigubíi. —
hvíta tjaidinu. Áður hafa verið
gerðar tilraunir á þessu sviði en
þetta er fyrsta stóra „lyktar-
myndin", sem sýnd verður al-
menningi. Talið er, að hún hafi
kostað a. m. k. sem svarar 40—50
milljT kr. Myndin verður frum-
sýnd innan skamins.
Kvikmyndin, sem er hrollvekj-
andi morðsaga, er öll tekin á
Suður-Spáni. Þangað hélt fram-
leiðandinn, Michael Todd jr. með
allan þann mannskap og útbúnað,
sem til kvikmyndagerðarinnar
þurfti, eða — svo nokkuð sé nefnt
— um 270 manns, 25 flutnings-
bíla, 10 fólksflutningabíla og 20
minni bifreiðir til alls konar snún
inga.
Kvikmyndin snýst annars eink-
um um ungan, enskan ferða-
mann, sem bregður sér í gervi
leynilögreglumanns, þegar hann
uppgötvar, að morð hefir ver;ð
framið, þar sem hann er á sumar-
ferðalagi á Spáni. Denholm Elliot
leikur hinn unga ferðamann og
spæjara, en méð önnur aðalhlut-
verk fara þau Diana Dors, sem
leikur „stúlkuna í bikini-baðíct-
unum“, hinn gamalkunni Peter
Lorre, ;em leikur leigubílstjóra
og er unga manninum til aðstodar
við að upplýsa morðið, og Bever-
ly Bentley, en hún leikur dular-
fulla konu, sem angar allan lím-
ann af hinum dýrustu ilmvötnum
BANDARÍKIN víkka stöðugt
út radar-kerfi sitt norður á
bóginn — en því er ætlað að
flytja fyrstu aðvaranirnar. ef
til kommúniskrar árásar á
landið kemur.
Fyrir nokkrum dögum ienti
ein af flutningaflugvélum hers
ins inni á miðjum Grænlands-
jökli og affermdi þar marg-
víslegan útbúnað handa hopi
tæknimenntaðra manna, sem
um þessar mundir eru að
byggja radar-stöð á staðnum.
Frá Bandaríkjunum til Bosporus
Radar-kerfi Bandaríkjanna nær
nú allt frá vesturströnd Ameríku
þvert yfir meginlandið til Græn-
lands og þaðan áfram til Islands.
Stöðvarnar eru nú orðnar búnar
svo öflugum tækjum, að þær
taka yfir meginhluta Norður-
Atlantshafsins og ná þannig yfir
til þess svæðis, sem radar-stöðv-
ar Atlantshafsbandalagsins í Ncr
egi gæta, en í framhaldi af þeim
koma svo radar-stöðvar allt suð-
ur til Tyrklands, þar sem évr-
ópska varnarkeðjan endar við
Bosporus.
Öflugar varnir
Þetta radar-kerfi, sem einnig
er í tengslum við rafeindaheila,
getur ekki einungis komið upp
um leyndar flugvélar, heldur iíka
mjög hraðfleygar eldflaugar sem
aðallega fara um háloftin. Upp-
lýsingarnar ganga sjálfkrafa á-
fram til rafeindaheilanna. sem
reikna út stefnu þeirra, hraða og
hvar þær muni bera niður — og
nú orðið eru til ýmis vopn, sem
ráðið geta niðurlögum eldflaaga
þessara, áður en þær hafa fengið
tækifæri til að gegna ætlunar-
verki sínu.
Hercules-flutningaflugvélin er ein af allra stærstu flugvélum
sinnar tegundar og er m. a. útbúin skíðum, sem gera henni
kleift að lenda á snævi þakinni jörð. Hér er hún lent á jökl-
inum og er affermd sjálfkrafa. Sökum kuldans á þessum slóð-
um, varð flugstjórinn að halda hreyflunum í gangi meðan
afferming stóð yfir.