Morgunblaðið - 31.07.1959, Side 19
fðstudagur 31. júlí 1959
MORGUNBLAÐIÐ
19
Rússar vilja ekki
hætta í næstu viku
GENF, 30. júlí. Reuter. —
Utanríkisráðherrar fjórveld-
anna snæddu í dag saman há-
degisverð hjá de Murville ut-
anríkisráðherra Frakka og
ræddust við í þrjá tíma. Ekki
er vitað um hvað þeir ræddu
sérstaklega, en talið að tillaga
Vesturveldanna um að slita
ráðstefnunni á miðvikudaginn
hafi borið á góma. Herter ut-
anríkisráðhera Bandarikjanna
þarf að fljúga vestur um haf
daginn eftir til að taka þátt
i ráðstefnu Ameríkuríkjanna
í Santiago i Chile.
Formælandi rússnesku sendi-
nefndarinnar sagði í dag, að
Grómýkó væri andvígur því að
hætta ráðstefnunni á miðviku-
daginn, hvernig sem málum yrði
þá komið. Þega- formælandinn
var spurður, hvað mundi gerast
ef Herter færi burt. Þá hðfum við
engan að tala við, sagði hann.
Þykir einsætt að Rússar muni
ekki fallast á að erindrekar eða
aðstoðarmenn utanrkisráðherr-
anna sitji ráðstefnuna fyrir þá.
Hins vegar vildi formælandinn
ekkert um það segja, hvort ráð-
stefnunni yrði slitið eða frestað,
ef Herter færi vestur um haf.
Sérfræðinganefnd
Síðustu fregnir herma, að í dag
hafi utanríkisráðherrar fjórveld-
anna orðið ásáttir um að nefnd
sérfræðinga yrði sett á laggirnar
til -að finna lausn á Berlinar
vandamálinu.
Biskup vísiterar N.-Þing-
eyjarprófas tdœmi
Spurt um togarakaup og
stóreignaskatt á þingi
FUNDUR var settur í sameinuðu Alþingi kl. 13.30 í gær og tekið til
afgreiðslu, hvort leyfðar skyldu tvær fyrirspurnir, sem bornar
höfðu verið fram.
Fyrirspurnirnar voru tvær:
BISKUPINN, herra Sigurbjörn
Einarsson, vísiterar Norður-Þing
eyjarprófastsdæmi að þessu sinni
óg hluta eí Norður-Múlaprófasts
dæmi.
Vísitazían hefst á Skinnastað
sunnudaginn 2. ágúst kl. 2 e.h,
með guðsþjónustu.
Mun biskup síðan heimsækja
kirkjur og söfnuði, prédika í
Dam lögmaSur þungur
í garð íslendinga
Kaupmannahöfn. 30. júlí.
Einkaskeyti til Mbl.
„BERLINGSKE Tidende“ birtir í
dag skeyti frá Þórshöfn þar sem
sagt er frá ræðu Dams lögmarns
við setningu lögþingsins í gær.
Hann sagði m. a. að nú færi
fjöldi færeyskra fiskimanna til
miðanna við Austur-Grænland til
að reyna bæta sér upp missinn á
hinum mikilvægu þorskamiðum
— Norska vinkonan
Framhald af bls. 1.
áður en þau sáust saman utan
heimilisins.
Blöðin í Bandaríkjunum ræddu
um þennan samdrátt í slúður-
dálkum sínum, en aldrei kom
trúlofunarfregnin, sem allir áttu
von á.
í vor sem leið fér Anne Marie
aftur heim til Noregs, og þegar
þangað kom neitaði hún öllum
orðrómi um vætanlega trúlofun
eða giftingu. Það létu nágrann-
ar hennar og vinir gott heita —
þangað til Stephen birtist. Eftir
að hann hafði lokið herþjónustu
10. júlí fór hann til Osló þar sem
Anne tók á móti honum, en þau
hafa skrifazt á síðan hún korn
heim. Síðan fóru þau saman á
mótorhjóli um Þelamörk og til
Suður-Noregs.
— Það hefur aldrei verið
minnzt á brúðkaupsklukkur hjá
okkur, segja hjónaleysin sem nú
búa hjá föður Anne Marie, fólk
virðist vita meira um okkur en
við sjálf, því við erum bara góðir
vinir.
Þegar Stephen var spurður,
hvort það þætti viðeigandi fyrir
unga og ríka Bandaríkjamenn að
gleyma þjóðfélagsstiganum þegar
þeir veldu sér stúlku til að
skemmta sér með, svaraði hann:
— Öll fjölskyldan mín hefur
kynnzt Anne Marie — og okkur
geðjast öllum mjög vel að henni
eftir tímann sem hún var heima
hjá okkur. Á okkar heimili er
yfirleitt alls ekki talað um þjóð-
félagsstigann eða annað slíkt. Ég
kom til Noregs til að eyða sumar-
leyfi mínu og til að hitta Anne
Marie. Meira get ég ekki sagt.
Stephen, sem mun vera af einni
auðugustu ætt heimsins, verður
í Noregi um mánaðartíma.
I dag komst orðrómurinn um
væntanlega giftingu á hástig,
þegar ein af vinkonum Anne
Marie kvaðst hafa verið beðin
að vera fvaramaður við brúð-
kaup um miðjan ágúst, en hún
hefði færzt undan því. Sam-
kvæmt norskum lögum verður
að tilkynna brúðkaup tveim
vikum áður en það fer fram og
verða þá bæði brúðurin og brúð-
guminn að hafa útvegað sér
svaramann.
við sunnanvert Island, en þangað
fóru færeysk fiskiskip á vorin
og veiddu þorsk sem saltaður
var fyrir markaði á Spáni og
víðar.
Dam sagði ennfremur að 12
mílna fiskveiðitakmörk íslend
inga og gjaldeyristollurinn,
sem settur var á, væru mikil
ógæfa fyrir færeyska fiski
menn, því nú gætu þvi hvorki
unnið á íslandi né fiskað á
eigin skipum á íslandimiðum
Dam sagðk að fyrrverandi
landsstjórn Færeyja hefði
reynt að semja við íslendinga
um sérréttindi til handa línu-
fiskibátum innan 12 milna
markanna, en samningar
hefðu ekki náðst, Hann kvað
núverandi landsstjórn mundu
halda áfram að reyna að ná
samkomulagi við íslendinga
um málið.
hverri kirkju og ræða við söfn-
uðina um kirkjuleg málefni.
Vísitazían hefst í hverri kirkju
kl. 2 e.h. með guðsþjónustu.
(Frá biskupsskrifstofunni).
— Grivas
Framhald af bls. I.
verður eyjan lýðveldi í febrúar
n. k. —
Meðal þeirra sem undirrituðu
samningana voru Makaríos og
gríska stjórnin, og hefur Grívas
þannig sagt þessum aðilum
„stríð“ á hendur.
Averoff utanríkisráðherra
Grikklands réðst á Grívas fyrir
ummæli hans og kvað hann vera
að reyna að egna til úlfúðar
með því að hagræða sannleikan
um að eigin geðþótta. Karamanlis
forsætisráðherra tók í sama
streng og sagðist taka á sig alla
ábyrgð í sambandi við Kýpur-
sáttmálann.
Makaríos sagði í kvöld að
hann væri óhræddur við að bera
ábyrgð á Kýpur-sáttmálanum.
Hann kvaðst hafa undirritað
hann í fullri meðvitund þess að
ástandið á Kýpur væri ískyggi-
legt og sáttmálinn væri Kýpur-
búum í hag. Hann kvaðst ekki
hafa gefið nein loforð, skriflega
eða munnlega, önnur en þau sem
fælust í sáttmálanum, og gæti
hver sem vildi kynnt sér hann.
Leiðtogi tyrkneska þjóðbrots-
ins á Kýpur, Kutchuk, kvað Grív
as vera að gera tilraun til að
skaða Kýpurbúa. Hann hét á
grísku stjórnina og alla sem
bæru hag Kýpur fyrir brjósti að
hindra þá viðleitni hans.
Smíði togara og ráðstöfun \
Sú fyrri fjallaði um smíði tog-
ara og ráðstöfun þeirra, borin
fram af þeim Halldóri Ásgríms-
syni, Vilhjálmi Hjálmarssyni og
Björgvin Jónssyni; hljóðaði hún
svo:
1. Hvað hefur ríkisstjórnin gert
samninga um smíði á mörgum
togurum?
2. Hvaða lánasamningar hafa
verið gerðir vegna togarakaup-
anna, og hver eru lánskjörin?
3. Hefur verið leitað tillagna
frá atvinnutækjanefnd um dreif-
ingu togaranna, skv. 1. gr. laga
nr. 94 frá 1956?
4. Hverjar eru tillögur nefndar
innar?
Innheimta stóreignaskatts
Síðari spurningunni, sem sner-
ist um skatt á stóreignir, var
beint til fjármálaráðherra frá Ól-
afi Jóhannessyni, og er hún á
þessa leið:
1. Hvað líður innheimtu skatts
á stóreignir skv. lögum nr. 44 frá
3. júní 1957?
2. Er ríkisstjórninni kunnugt
um, hvort stóreignaskattsgjald-
endur skv. nefndum lögum, nr.
44/1957, hafa kært skattlagning
una til mannréttindanefndar
Evrópu, og ef svo er, hverjar ráð-
stafanir hefur þá ríkisstjórnin
gert af því tilefni?
Samþykkt var samhljóða at-
kvæðum að leyfa báðar fyrir-
spurnirnar, og fundi slitið að því
búnu.
Bjarni Ólafsson
landar karfa
AKRANESI, 3*. júlí. — Togarinn
Bjarni Ólafsson landaði í dag
265 lestum af karfa. Nokkur hluti
aflans fór í bræðslu.
Reykjafoss kom hingað í morg
un með vörur til Sementsverk-
smiðjunnar og Haraldar Böðvars
sonar & Co. — Oddur.
Kaupum blý
og aSra málma
á hagstæðu verði*
Auglýsendur!
JHorgtutblaíitö
er
helmingi útbreiddara
en nokkurt annað
íslenzkt dagblað.
Blaðið er nú sent
öllum þeim, er áður
fengu „ísafold og Vörð“.
og er bví lesið á
flest öllum bæjum
dreifbýlisins.
☆
er blað allra landsmanna.
Móðir okkar
MARGRÉT ÓLAFSDÓTTIR
andaðist aðfaranótt 30. þ.m. í Elli- og hjúkrunarheimilinu
Grund.
F.h. systkina.
Ólafur Þ. Guðmundsson.
Hjartkær sonur okkar og fóstursonur
ALBERT GUNNARSSON
andaðist 19. júní s.l. í Curacao í Hollenzku Vestur-Indíum.
Útförin hefur farið fram.
Foreldrar og íósturforeldrar.
Konan mín,
GUÐRÚN J. GUÐMUNDSDÖTTF'
frá Mosvöllum í önundarfirði
lézt þann 29. þessa mánaðar.
Guðmundur Bjarnason
Konan mín elskuleg,
SIGURJÓNA JÓNSDÓTTIR
. Bárugötu 35
lézt þann 29. þessa mánaðar.
Fyrir hönd dóttur minnar, barnabama og tengdasonar
Árni Jónasson
Okkar ástkæra móðir, systir, amma og tengdamóðir,
KETILRfÐUR GUÐRÚN VETURLIÐADÓTTIR
frá Hesteyri,
lézt að heimili sínu Vesturbraut 19, Hafnarfirði, 29. júlí
Jarðarförin ákveðin síðar.
Bjarni Guðmundsson og vandamenn
Móðir okkar og tengdamóðir,
RANNVEIG GUÐNADÓTTIR
Vallargötu 10, Keflavík
sem lézt 25. þ.m. á Sjúkrahúsinu Sólvangi, Hafnarfirði
verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju kl. 2 Laugar-
daginn 1. ágúst.
Börn og tengdaböm
Þökkum hjartanlega öllum nær og fjær, auðsýnda
samúð, við andlát og útför, eiginmanns, föður og tengda-
föður,
ARNA EINARSSONAR,
frá Hólalandi, Borgarfirði (eystri)'.
Þórdís Hannesdóttir, börn og tengdabörn