Morgunblaðið - 01.08.1959, Side 1
4G. árgangur
164. tbl. — Laugardagur 1. ágúst 1959
Prentsmiðja Morgunblaðslns
Danskt flugfélag stofnað sem
á að taka Grænlandsflugið
frá Flugfélagi íslands
Brezkt fjármagn stendur á bak v/ð jboð
Kaupmannáhöfn, 31. júlí.
— (Frá Páli Jónssyni). —
í GÆB var stofnað í Dan-
mörku nýtt flugfélag, sem
hefur það að aðalmarkmiði að
hrifsa Grænlandsflugið frá
Flugfélagi íslands. Allt bend-
ir til þess, að brezkt f jármagn
standi á bak við stofnun fé-
lagsins.
★
Hið nýja íélag nefnist „Flying
Listkynning Mbl.
Enterprise". Verkefni þess á að
vera að annast leiguflug fyrir
ferðaskrifstofur og Grænlands-
flugið fyrir Grænlenzka verzl-
unarfélagið og Norræna námu-
félagið, sem Flugfélag íslands
annast nú.
★
Félagið hefur þegar fest kaup
á tveimur Argonaut-flugvélum
frá brezka flugfélaginu BOAC og
getur hver þeirra tekið 65 far-
þega og flogið með 450 km hraða
á klst. —
Þetta nýja félag fær einn-
ig lánaða flugmenn frá BOAC.
★
Framkvæmdastjóri „Flying
Enterprise" verður Linde, sem
áður stjórnaði vöruflutningadeild
SAS. Hann segir að starfsemi fé-
lagsins hefjist með haustinu. Fé-
lagið ætli innan skamms að fá
sér þriðju flugvélina, sem sér-
staklega verði ætluð til Græn-
landsflugs.
Einn af stofnendum félagsins,
Hans O. Christiansen, hæstarétt-
arlögmaður, segir að það sé eðli-
legt, að fela hreinu dönsku fé-
lagi flutningana til Grænlands
frekar en að láta íslendinga sjá
um þá, en Ekstrabladet svarar
því til, að það sé efamál, að það
félag geti kallast „hrein-danskt“,
sem hefur 100 þús. króna hluta-
fé, en getur strax keypt tvær
stórar flugvélar af brezka flug-
félaginu, sem kosta um 5 millj.
danskra króna.
★
í>ess skal að lokum getið, að
Flugfélagið hefur annazt ferðir
til Grænlands í hverri viku í
sumar og stundum jafnvel þrisv-
ar í viku. Flogið hefur verið til
margra staða, m. a. til Thule en
þar er nyrzti flugvéllur Græn-
lands. Hefur Skymasterflugvél-
in Sólfaxi verið önnum kafin í
þessu flugi 1 allt sumar.
Tízkustyrjöld
hu!in í Purís
PABÍS, 31. júli. (Retuter)-
í dag gekk Guy Laroche tizka
húsið i lið með Dior tízkuhús-
inu og lagði til að pilsfaldur
kvenna yrði um hnéskel og
jafnvel nokkru ofar á lærinu.
Þar með er í fyrsta skipti
um margra ára bil hafin borg-
arastyrjöld í franska tízku-
heiminum. Laroche og Dior
vilja stutta kjóla um eða yfir
hnéskelinni. Hin tízkuhúsin
vilja síðari kjóla, sum jafnvel
um miðjan kálfa.
Klæðaframleiðendur og fatn
aðarverzlanir eru nú í mestu
vandræðum. Enginn þykist
enn geta séð, hvernig tízku-
styrjöld þessari ljúki.
Einar Ásmundsson lœtur
af ritstjórn
EINAR Ásmundsson lætur nú
af eigin ósk af ritstjórn Morgun-
blaðsins. Fyrir hönd samstarfs-
manna hans við blaðið og stjórn-
enda þess, þakka ég honum allt
gott, sem hann hefur unnið fyrir
Krúsjeff talinn væntanlegur til
Bandaríkjanna
En Genfar-ráðstefnan að fara út um
jbú
Ásgerður Ester
Buadóttir
ÞESSA DAGANA er til sýnls í
glugga Morgunblaðsins við Aðal-
stræti myndvefnaður eftir lista-
konuna 4'sgerði Ester Búadóttur.
Ásgerður hlaut listmenntun
sína fyrst hér heima, en síðan
við konunglega listaháskólann í
Kaupmannahöfn. Skömmu ' eftir
námið tók hún að leggja megin-
stund á myndvefnað og sýndi
nokkur ofin klæði á sýningum
hér heima.
Vorið 1956 tók hún þátt í al-
þjóðlegri sýningu í Múnchen og
hlaut þar gullverðlaun fyrir
myndvefnað sinn. Árið eftir var
henni boðin þáttaka í sýningu
norræna listabandalagsins í
Gautaborg, þar sem þær Júlíana
Sveinsdóttir sýndu myndvefnað
af íslands hálfu. Vorið 1958 hélt
hún síðan fyrstu sjálfstæðu sýn-
ingu sína hér í Reykjavík, og
litlu síðar fól listaverkanefnd
bæjarins henni að vefa vegg-
klæði, sem hefur nú verið hengt
upp í mæðradeild Heilsuverndar-
stöðvarinnar.
Síðastliðinn vetur var hún
meðal þeirra, sem tóku þátt i
hinni miklu norrænu sýningu í
Louvre í París. Voru þar sýnd
nokkur af veggklæðum hennar,
meðal þeirra stærst.. klæðið, sem
nú er í sýningarglugga Morgun-
blaðsins. Um Iíkt leyti gaf bóka-
forlagið Helgafell út litprentun
eftir einum af eldri myndvefnuð-
um hennar, Stúlku með fugl.
Síðustu tvö árin hefur Ásgerð
ur einkum ofið úr ólituðu bandi,
þ.e. hreinum sauðalitum, en not-
ar gjarnan einn lit að auk, svo
sem í tveim þeirra myndvefnaða
sem hér eru til sýnis.
FREGNIR bæði frá Genf og
Moskvu í gær hermdu, að
þrálátur orðrómur væri á
kreiki um það, að Eisenhower
forseti Bandaríkjanna hefði
sent Krúsjeff einræðisherra
Rússlands boð um að heim-
sækja Bandaríkin.
iur
Yfir kaffibollum
I fregnum frá Genf segir, að
utanríkisráðherrar stórveldanna
hafi haldið lokaðan fund yfir
kaffibollum í bústað Gromykos.
Rætt var um möguleika á bráða-
birgðasamkomulagi um málefni
Berlínar, en árangur varð eng-
inn.
Stjórnmálafréttaritarar telja
mjög ólíklegt að nokkur árangur
náist| á Genfar-ráðstefnunni úr
þessu. Dregur nú til loka henn-
ar, þar sem Herter utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna hefur til-
kynnt að hann verði að fara af
ráðstefnunni á fimmtudaginn.
Virðist nú aðeins deilt um það,
hvort ljúka eigi ráðstefnunni
endanlega og lýsa hana árangurs-
lausa eða fresta henni. Fulltrúar
Bandaríkjanna og Frakka telja
enn fjarri lagi að halda fund
æðstu manna stórveldanna, þar
sem enginn arangur hafi orðið
á fundi utanríkisráðherranna.
Árangursríkasti fundur
Fulltrúar rússnesku sendi-
nefndarinnar lögðu áherzlu á
það á blaðamannafundi í dag, að
fundur æðstu manna myndi
koma meiru til leiðar en fundur
utanríkisráðherra, en árangurs-
Framh. á bls. 14.
stríðsárunum létu þýzku nazistarnir falsa enska fimm punda seðla í stórum stíl og var það
ætlun þeirra að eyðileggja peningakerfi Breta. Þeir höfðu prentað falska seðla fyrir milljónir
sterlingspunda, en gafst ekki timi til að koma þeim í umferð. t stríðslok sökktu þeir seðlunum
1 djúpt stöðuvatn í Austurriki. Froskmenn vinna þessa dagana að því að leita að peningaseðlun-
um og hafa þeir orðið nokkurs visari eins og myndin sýnir.
blaðið og við höfum af honum
reynt, og færi honum beztu árn-
aðaróskir.
Bjarni Beiieuw.
„Þegar ég nú læt af þeirri
vinnu, sem ég hef um hríð haft
með höndum, fyrir Morgunblað-
ið, og sný mér aftur að fullu Og
öllu að lögfræðistörfum, sendi ég
öllum samstarfsmönnum mínum
beztu þakkir og óskir um gæfu-
ríka framtíð.
Sný ég þar máli mínu ekki sízt
til blaðamannanna, sem ég hef
átt daglega fundi með og þá vafa
laust oft reynt á þolinmæði peirra
í erli dagsins.
Ennfremur sendi ég stjórn Ár-
vakurs h.f. beztu þakkir og árna
Morgunblaðinu allra heilla í
framtíðinni.
Einar Ásmundsson,
hæstaréttarlögmaður“.
Vmlnnds-sigi-
ing d bótkænu
Gamlir þulir að-
vara pilfana
s
s
s
s
s
s
s
1
s
's
s
i
THURSO í Skotlandi, 31. júlí.
— (Reuter). — Þrír alskeggj-
aðir ævintýramenn sigldu í
dag út frá Straumnesi i
Orkneyjum á 9 metra löngum
bát. Þeir ætla að feta í fót-
spor víkinganna fornu og
sigla til Ameríku. Ferðinni er
heitið um Færeyjar, ísland,
Grænland og til Labrador. Er
þetta um 3000 sjómílna leið.
Það er sagt, að þetta sé
minsti bátur, sem rokkru
sinni hefur verið notaður til
siglinga yfir Norður-Atlants-
haf. Þegar piltarnir voru að
Framh. á bls. 3
Laugardagur 1. ágúst.
Efni blaðsins m.a.:
Bls. 3: Stóri jarðborinn enn stórvirk-
ari en áður.
— 8: Forystugreinin: „Örlagadagur-
inn 28. juní“.
Hin ,,látna“ lifir (Utan úi
heirai).
— 9: Umferðarsíða Morgunblaðsins.
— 14: Iþróttir.