Morgunblaðið - 11.08.1959, Blaðsíða 13
T>r?ðiudagur 11. ágúst 1959
MORCUISBLAÐIÐ
13
100 ára minning
Ólafur Jónsson
Stakkhamri
ÉG vil minnast 100 ára afmæl-
isdags góðs vinar míns, Óla á
Stakkhamri. Hann hét fullu nafni
Óli Jón Jónsson og var ættaður
af Snæfellsnesi og úr Hnappa-
dalssýslu, í allar ættir. Forfeð-
ur hans voru mikilsmetnir bú-
höldar þar í aldir frarn. Óli va’-
fæddur í Borgarholti i Mikla-
holtshreppi 11. ágúst 1859, og er
Borgarholt næsti bær við Stakk-
hamar, þar sem hann bjó aHa
sína búskapartíð. — Foreldfar
hans voru Jón Jónsson í Borgar-
holti og kona hans Kristín pét-
ursdóttir. Þau voru merk hjón
og vel metin, gestrisin og góð-
söm. — Föðurfaðir Óla hét einnig
Jón Jónsson og bjó í Borgarholti
og hét kona hans Kristín Jóns-
dóttir. — Ég hef komizt að raun
um, að að baki þessara Borgar-
holts-feðga standi mjög traustir
bændur, búsettir í Borgarholts-
hreppi, hver eftir annan, undan-
farnar tvær aldir.
Seinni hluta 18. aldar og fram
um aldamótin 1800 bjuggu tveir
bræður í Svarfhóli í Miklaholts-
hreppi, Jón og f>órður, mikiir
dugnaðarforkar og efnaðir bænd
ur. Mér er sagt, að þeir hafi
verið aðfluttir, — úr Norðurlandi.
Þessir bræður mægðust gömlum
bændaættum þar vestra, og hafa
orðið svo kynsælir, að flest sí-
sprengi þeirra, þykir skara fram
úr öðru fólki að dugnaði, vilja-
styrk og mannkostum. Af þess-
um Svarfhólsbræðrum eru komn
ir Boorgarholtsmenn, — Skógar-
nesætt og fleiri kjarnaættir,
bæði vestra og hér syð,ra, þ. é.
m. börn Thors Jensen, því að
móðir þeirra, frú Þorbjörg, var
afkomandi þerrra.
I Kjjf
'erlausnin
vikurfélagið;
ÖRN CLAUSEN
héraðsdómslögmaður
Málf'umíngsskrifstofa.
Bankastræti 12 — Sími 13499.
34-3-33
Þungavinnuvélar
Það er ótrírætt tákn manndóms
og þrautseigju þegar bænda-
ættirnar fara að sitja jarðir sínar
og óðöl, mann fram af manni, í
aldaraðir, en þetta hafa forfeður
Óla á Stakkhamri gjört, — en er
það nú einmitt á þessari festu og
þoli kynslóðanna, sem íslenzka
þjóðin hefur flotið fram á þenn-
an dag. Þessir menn þraukuðu,
þó að harðindin, sultur og kröm,
ætlaði allt að drepa, — menn
og skepnur.
★
Þó að Óli í Stakkhamri væri
30 árum eldri en ég, — hann
var fimmtugur, þegar ég var tví-
tugur — þá áttum við skipti sam-
an, sem urðu til þess að með okk-
tókst vinátta, og þegar ég minnist
hans nú nærri hálfri öld eftir að
hann hvarf mér sjónum, verður
andi. Hann var duglegur bóndi
og komst í góð efni. Samsvait-
ungar hans fólu honum, þegar á
unga aldri, trúnaðarstörf í hrepps
nefnd og sýslunefnd. Hann ví r
mikil skytta og yfirhöfuð hæfi-
leikamaður.
★
Óli átti þrjá bræður og eina
systur. — Pétur Kr. Jónsson síð-
ast bóndi á Ingjaldshóli var
bróðir hans, einstakur dugnaðar-
og heiðursmaður. Einn bróðir Óla
er lifandi enn, Eleníus Jónssor.:
fyrrv. kaupfélagsstj. í Ólafsvík,!
nú orðinn aldraður. Eru þeir um
margt líkir, Óli og Eleníus, —
báðir stórlyndir, en trygglyndir
manndómsmenn og engir veifi-
skatar, en gæddir miklum dreng
skap.
Óli á Stakkhamri átti ágæta
konu, Elinborgu Tómasdóttur J
frá Ingjaldshóli, sem var ann- ^
áluð fyrir gæði og göfgi,_ endá
af góðu bergi brotin. — Ég var
oft gestur á Stakkhamri á ferð-.
um mínum, og naut þar góðrar
gistingar. Þar var eitt af þess-
um góðu og gömlu sveitaheimil-
um, sem öllum var tekið af þeirri
mér hlýtt í barmi. — Þá þjóta | alúð, að það var eins og maður
fram úr hugskoti mínu myndir
af glæsilegum íslending, — mann
dómsmanni og drengskapar-
manni. — Að vísu gat Óli verið
hrjúfur viðkomu, en bak við
þann ytri hjúp, var hlýtt hjarta,
svo að um hann mátti segja, að
þar sem Óli fór, var á ferð vík-
ingur með barnshjarta. Málrom-
ur Óla var karlmannlegur og
ákveðinn, en ef hann tók lít'ð
barn é hné sér og fór að gæla
við það, gat hann orðið svo und-
ur þýður. — Þessu varð ég oft
sjónarvottur að. — Óli var karl-
mannlegur maður og hressilegur;
meðalmaður á vöxt, skarpholda,
fallega eygður og svipmikill. —
Persóna hans hafði það yfir-
bragð, að hún var traustvekj-
væri þar í foreldrahúsum. Börn
Óla eru þessi á lífi: Kristín,
ekkja Helga kaupm. Guðmunds-
sonar í Hafnarfirði, Oli J. Óla-
son kaupm., Tómas Ólason, aup
maður, Sigurður Ólason, hæsla-
réttarlögm., og Ágúst Ólason,
bóndi í Mávahlíð á Snæfellsnesi.
Óli dó um aldur fram, aðeins
52 ára gamall, 12. okt. 1911. —
Banamein hans var krabbamein
í lifrinni. — Ég sá hann síðast
á banasænginni kominn að dauða.
Þeir, sem lesa þessi fáu minn-
ingarorð mín, mega trúa mér,
að ég segi hér satt frá, því að ég
var nákunnugur Óla á Stakk-
hamri. — Hann var slíkur mað-
ur, sem að framan er lýst.
Oscar Clausen.
lUNPAftCÖTU 25 -3IMI 1174?
Iðna&arfyrirtœki
er til sölu. Sala á húseign gæti einnig komið til greina
Upplýsingar gefnar á skrifstofu minni, en ekki í
KRISTJÁN GUÐLAUGSSON hrl.
Sírhi 13400 — Austurstræti 1.
Volkswagen 458
lítið keyrður til sölu. — Tilboð sendist afgr. Mbl.
fyrir föstudag, merkt: Volkswagen—4202‘.
Háseti
vanur handfæraveiðum óskast á 30 tonna
bát. — Uppl. í síma 34542.
íbúð óskast
7—8 herb. ibúð eða einbýlishús óskast til leigu. Tilboð
merkt: „Góð íbúði—4572“, sendist afgr. Mbl.
Bakarasveinn
óskast strax.
Jón Símonarson h.f.
Bræðraborgarstíg 16
Rennibekkur
Vil kaupa rennibekk
Blikksmiðjan Grettir
íbúð óskast
Starfsmaður í heildsölufyrirtæki vantar 2-—4 herb.
íbúð á leigu á 1. hæð eða í kjallara, 1. okt. n.k.
Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir n.k. miðvikudags-
kvöld, merkt: „Ibúð—199—4620“.
Skrifstofuhúsnœði
í Garðastræti 6 til leigu.
Einar Sigurðsson
Garðastræti 6
Einbýlishús í Keflavík _ v
Til sölu
Húsið er 104 ferm. 5 herb., eldhús, bað o. fl., stór bíl-
skúr, girt lóð, sjálfvirk olíukynding. Tilboð er
greini hugsanlega útborgun sendist blaðinu merkt:
„4617“, fyrir 15. þ.m.
íbúðarhœð við Sigtún
til sölu, alls 7 herbergi. Hitaveita, bílskúrsréttindi.
• Ræktuð lóð. Tvennar svalir. Húsið er sérstaklega
vandað að byggingu. Laust strax.
RANNVEIG ÞORSTEINSDÓTTIR hrl.
Málflutningur — Fasteignasala
Laufásvegi 2. — Sími 19960.
Húseign
í miðbænum á eignarlóð til sölu. Möguleikar á stórri
viðbyggingu með inngangi frá tveim umferðagötum.
Hentugt fyrir iðnfyrirtæki, heildsölu eða félags-
heimili.
RANNVEIG ÞORSTEINSDÓTTIR ml.
Málflutningur — Fasteignasala
Laufásvegi 2. — Sími 19960
4 — 5 herb. íbúð
•
með öllum þægindum, helzt í Austurbænum eða
Hlíðunum, óskast nú þegar eða 1. október.
Upplýsingar á skrifstofu minni.
KRISTJAN GUÐLAUGSSON hrl.
Sími 13400 — Austurstræti 1.
Til sölu
Af sérstökum ástæðum, ef samið er strax, er til sölu
húseign á eignarlóð á bezta og eftirsóttasta stað á
Seltjarnarnesi. Flatarmál hússins er 100 ferm. 1
kjallara eru: 2 herb., eldhús W.C., þvottahús og
geymslur. Á I. hæð: 3 herb., eldhús W.C. I rishæð: 4
herb., bað, auk geymsluriss
Tilvalið fyrir 2 fjölskyldur. Húsið er 13 ára gamalt
í prýðilegu ástandi. Útborgun kr. 350.000.00.
Semja ber við:
JÖHANNES LÁRUSSON, hdl.,
lögfræðiskrifstofa — fastcignasala
Kirkjuhvoli. — Sími 13842.