Morgunblaðið - 14.08.1959, Blaðsíða 6
6
MORQVNBLAÐIÐ
Föstudagur 14. ágúst 1959
Fað/r Maríu Teresíu
tilkynnir: Engin gifting
En fáir fást til oð trúa honum
LA LAVANDOU í Frakklandi 12.
ágúst (Reuter) Xavier prins af
Bourbon-Parma faðir Mariu
Teresíu 25 ára prinsessu, gaf í
dag út tilkynningu, þar sem hann
segir, að ekkert sé til í þeim orð-
rómi, að dóttir hans ætli að gift
ast Baldvin Belgakonungi. Til-
kynning þessi hefur vakið undr-
un, því að orðrómurinn hefur
verið að ná hámarki að undan-
förnu og var búizt við trúlofun-
artilkynningu á hverri stundu.
Sumir þeirra sem bezt sambönd
Marí Teresía
hafa, hafa tilhneigingu til að á-
líta að ekkert sé að marka þessa
tilkynningu, María Teresía sé
Canada Council
styrkur
MENNINGARSTOFNUNIN Cana
da Council hefur nú úthlutað
námsstyrkjum fyrir árið 1959—60
og hefur íslandi þar verið veittur
einn styrkur að upphæð 2000 doll
ara — auk ferðakostnaðar. Styrk
þennan hefur hlotið Jón G. Þór-
arinsson organleikari, Hólmgarði
35, Reykjavík, er mun stunda
nám í tónlistarfræðum við há-
skólann í Toronto.
Canada Council hefur aðeins
starfað í tvö ár og hefur íslandi
verið veittur einn námsstyrkur
bæði árin. Hið fyrra sinn hlaut
styrkinn Gunnar Ragnarsson,
Reykjavík.
hin útvalda drottning Belgíu.
Baldvin hinn piprandi kon-
ungur Belga birtist í dag á bað-
stað einum á Bláströnd Frakk-
lands. Hefur nú komið í Ijós, að
hann býr í sumarhöll Karlottu
stórhertogaynju af Luxemburg
nálægt franska baðstaðnum La
Lavandou. í dag fór Baldvin á
ströndina og synti þar góða stund
í hlýju Miðjarðarhafinu.
María Teresía hefur hinsvegar
dvalizt hjá föður sinum í Ligni-
eres-höll í Mið-Frakklandi. Höll-
in er aðeins um 500 km frá bað-
staðnum, þar sem Baldvin dvelst
og grunaði marga að þau myndu
hittast á laun. í dag sást prins-
essan hinsvegar við höllina, svo
að engar sannanir eru enn til
fyrir því, að neitt sé milli þeirra.
Ólifnaðm*
í Góð
von
GÓÐVON á Grænlandi, 12. ágúst
Lögreglan í Góðvon, helzta bæ
Grænlands framkvæmdi í nótt
„rassíu" um borð í dönsku skipi,
sem lá þar í höfninni. Fundust 11
grænlenzkar stúlkur i rúmum
skipsmanna. Skipstjórinn hafði
óskað eftir að lögreglan rann-
sakaði málið. Stúlkurnar voru 13
til 20 ára.
Yfirvöldin í Grænlandi eru nú
að íhuga strangari reglur og að-
gerðir til að vinna bug á laus-
læti í Grænlandi. Veldur þvi
meðal annars sárasóttarfaraldur,
sem mjög hefur borið á að undan-
förnu.
Þegar Krúsjeff skoðaði Boeing-707 þotuna, sem Nixon kom
með til Moskvu, var sonur hans með í förinni. Sergei Krúsjeff,
eins og pilturinn heitir, er 24 ára gamall og stendur hér að
baki föður sínum.
Töðufengur meiri en
dœmi eru til áður
ÁRNESI, 4. ágúst. — Nú eru
bændur almennt búnir að hirða
tún sín. Voru hér allgóðir þurrk-
ar sl. viku, sérstaklega fyrra
sunnudag og mánudag, en þá
voru afbragðs þurrkar báða dag-
ana með yfir 20—25 st. hita.
Töðufengur mun nú vera orð-
inn meiri en dæmi eru til áður,
enda er grasspretta hvarvetna
framúrskarandi góð á túnum.
Sumir bændur eru byrjaðir að
slá seinni slátt, en hann mrn
einnig verða afbragðsgóður.
1100 órehsiror í Reykjnvík
í FYRRADAG færði Óskar Óla-
son, rannsóknarlögreglum. inn á
skrá lögreglunnar ellefu hundr-
asta bílaáreksturinn, sem orðið
hefur á yfirstandandi ári. Þessi
árekstur varð á Snorrabrautinr.i
um kl. 9 í gærmorgun.
Eigandi bílsins, R-2695, sem er
fólksbíll, kom að bíl sínum mikið
skemmdum eftir árekstur. BíU'nn
hafði kastast á annan bíl, som
einnig hafði laskast. Sá, sem
árekstrinum olli, var á bak og
burt. Sýnt þótti að stór bíll hsfði
verið þarna að verki, enda mundi
eigandi bílsins eftir þessum stora
bíl við hliðina á hans bíl, þó skki
myndi hann eftir hvaðan har.n
var.
í gærkvöldi var búið að ripp-
lýsa þetta mál að mestu. Stóri
bíllinn var kominn upp í Borg-
arfjörð og taldi bílstjórinn sig
ekki hafa orðið árekstursins'var.
Eur það tilmæli rannsóknariög-
reglunnar að þeir, sem kynnu
að hafa orðið sjónarvottar að
þessu, gefi sig fram.
Stundum er um það rætt
manna á meðal, að þessi óvenju
góða spretta á túnum geti átt að
einhverju leyti rætur sínar að
rekja til köfnunarefnisáburðar-
ins, sem fluttur var inn í vor til
notkunar hér norðanlands, en
margir eru þeirrar skoðunar að
þessi áburður sé fljótvirkari og
betri en hinn innlendi kjarna-
áburður, sem er yfirleitt fremur
óvinsæll meðal bænda.
Laxveiði hefur nú glæðzt í
Laxá og hefur verið góð veiði
undanfarna viku. Þrjá síðustu
daga hafa komið um 100 laxar
á land.
Tamning liesta
VALDASTÖÐUM, C. ágúst. —
Síðastliðinn mánuð voru hér
tveir menn á vegum hesta-
mannafélagsins „Harðar“ í Kjós-
arsýslu við tamningu á hestum.
Að þessu sinni munu hafa verið
um 20 hestar í þjálfun hjá þess-
um mönnum. Sams konar tamn-
ing fór hér fram sl. ár. Bæði
skiptin hafa þeir verið með hest-
ana á Meðalfelli. Hefir þessi ný-
breytni þótt gefast vel. —
St. G.
Útsvör í Eyum
11,4 mill j. króna
VESTMANNAÉYJUM, 12. ág. —
Nýlega er lokið niðurjöfnun út-
svara í Vestmannaeyjum. Alls
var jafnað niður kr. 11.439.800,00,
er það um 1 milljón kr. hærri upp
hæð en jafnað var niður á sl. ári.
Hins vegar lækkaði álagningar-
stiginn að mun, þar sem frá álagn
ingarstiganum í fyrra voru dreg-
in 20%, eftir að útsvör höfðu ver
ið lögð á, en í ár var dregið frá
umræddum stiga 35%, en sami á-
lagningarstigi var notaður bæði
árin.
Hæstu útsvör bera eftirtaldir
gjaldendur:
Félög:
Hraðfrystistöð Vestm.e. kr. 547.700,00
Vinnslustöðin s.f. — 491.200,00
Fiskiðjan h.f. — 440.400,00
ísfél. Vestmannae. h.f. — 266.200,00
Fiskimjölsverksmiðjan h.f. — 163.700,00
Olíufélagið h.f. Reykjavík — 118.800,00
Skeljungur h.f. Reykjavík — 106.600,00
Lifrasaml. Vestm.eyja s.f. — 104.300,00
Einstaklingar:
Ársæll Sveinsson, útgm. kr. 117.000,00
Helgi Benediktss., kaupm. — 98.400,00
Aase Sigfússon, lyfsali — 73.700,00
Björn Guðmundss., kaupm. — 50.000,00
Steindir
gluggar settir
í Skálholts-
kirkju
MEÐ „Gullfossi“ hinn S#. Júlí
sl. kom mikil gjöf til Skál-
holtskirkju frá stórkaupmönn
unum Edvard Storr og Louis
Foght í Kaupmannahöfn. Er
?jöfin steindir gluggar í alla
kirkjuna um 34 talsins. Sam-
kvæmt ósk gefenda fór á sín-
um tíma fram samkeppni með
al íslenzkra listamann* og
vann Gerður Helgadóttir þar
fyrstu verðlaun að matl dóm-
nefndar þeirrar, er ráðuneyt-
ið skipaði. Samkvæmt ósk
gefenda Iagði Gerður svo fram
tillögur að mótun glugganna,
en þeir voru búnir til undir
hennar umsjá í verkstæðum
dr. Oidtmanns í Linnich í
Vestur-Þýzkalandi.
I samráði við gefendur hafa
gluggarnir nú verið settir i
kirkjuna.
Gjöf þessi er ein stórfelld-
asta listgjöf, er þjóðinni hefir
borizt.
(Frétt frá húsameistara
ríkisins).
skrifar ur
daglegq iífinu
Afstaðan til sjúkdóma
hefur breyzt.
ískyggiiegar heyskapar
horfur á Snœfellsnesi
NÝLEGA heyrði ég fullorðinn
rnann vara unglingspilt við
að fara óvarlega með opið sár,
þar eð hann gæti fengið bióð-
eitrun í það. Blóðeitrun? Það
fannst piltinum ekkert til að
hafa áhyggjur út af. Það væri
svo sem ekki hættulegt.
Þetta varð til þess að ég fór
að hugsa um, hve afstaða fólks
til sjúkdóma hefur breytzt gíf-
urlega á síðustu árum. Ekki ein
göngu unglinganna, sem ekki
muna þá tíma fyrir ca. 20 árum,
þegar ekki var til eitt einasta
meðal, sem gat unnið á bakter-
íum, utan salvarsan (sem lækn-
að hafði syfilis frá því árið 1911),
heldur líka þeirra sem eldri eru.
Flestir virðast búnir að gleyma
því, að þangað til að sulfalyfin
komu til sögunnar, skömmu fyrir
síðasta stríð, voru engin lyf til,
sem unnu á sjúkdómum, aðeins
lyf sem hjálpuðu líkamanum í
baráttunni við þá.
Engin bakteriudrepandi lyf
fyrr en eftir stríð.
EG man fyrst eftir að hafa heyrt
getið um antibioticlyfin, eða
„mysinin", eins og flestir kalla
þau, þegar Churchill gamli fékk
lungnabólguna suður í Teheran
á stríðsárunum. Gamla kempan
hefði sjálfsagt ekki risið upp
eftir skamman tíma, og leitt þjóð
sína til sigurs, ef uppfinning Sir
Alexanders Flemings hefði ekki
vérið komin svo langt. Þó Sir
Alexander hafi löngu áður veric
kominn á sporið, þá var það ekki
fyrr en árið 1941, að hægt var að
beita penisillíni gegn sjúkdómum.
Antibioticalyfin komu þó ekki á
markaðinn fyrir almenning fyrr
en að stríðinu loknu. Meðan á
styrjöldinni stóð voru þau aðe-.ns
framleitt handa herjunum.
Þegar litið er til buka á mað-
ur erfitt að gera sér almenni-
lega grein fyrir því, hve van-
máttugur maðurinn hefur í raun-
inni hefur verið gegn sjúkdóm-
um fyrir aðeins 20 árum. Og nú
er farið að tala um ofnotkun anti-
bioticalyfanna. Ekki ætla ég þó
að hætta méi út í neinar vatiga-
veltur um það efni. Sennilega
hafa þessar hugleiðingar leitt
mig út á nægilega hálan ís, að
dómi þeirra, sem vit hafa á.
Illa fór um þurrkinn þann.
IG langar til að skrifa nokkr-
ar línur fyrir hönd þeirra,
sem eiga allt sitt „undir sól og
regni“. f síðustu viku dvaldist ég
í sveit fyrir austan. Var bar
nokkuð af heyi á túni, sumt flatt.
Dumbungsveður var fram eftír
vikunni.
Þá gerist það á föstdagskvöld,
að veðurstofan spáir þurrki og
bætir við, að hann muni standa
fram yfir helgi. Var nú farið
snemma á fætur á laugardags-
morguninn, og þess beðið, að vel
tæki af svo hægt væri að breiða
í þennan glæsilega þurrk. Hafði
bóndi við orð, er við vorum að
breiða heyið, að hann mundi
taka mikinn hluta þess í sæti
um kvöldið og yrði þeim síðan
ekið í hlöðu.
Þegar langt var komið að
breiða, dró hvíí ský upp á vestur
himininn og brátt lagði dekkri
skýjaflóka yfir fjallið að vestan.
Var ekki alveg lokið að breiða
heyið, er fólk flúði allt inn í
bæ undan hellidembu. Rigndi
nokkuð af og til allan laugar-
daginn og á sunnudaginn var úr-
hellisrigning. — Þótti bændum
Veðurstofan hafa lofað upp í erm
ina sína er hún spáði þessum helg
arþurrk.
—Ferðalangur.
BORG, Miklaholtshreppi, 12 ag.
— Hér um slóðir eru menn yf'r-
leitt heldur illa staddir með hey-
skapinn, eins og víðar um sunn-
an- og vestanvert landið. Er víða
allmikið óslegið enn og þó nokk-
ur hey úti. — Grasspretta er hins
vegar með bezta móti og verða
því mikil hey hjá bændum, ef
þurrkurinn kemur einhvern tima.
Að visu var allgóður þurrkur
hér tvo daga fyrir síðustu helgi,
og náðu menn þá yfirleitt inn
nokkru af heyjum og gátu eitt-
hvað þurrkað — en þurrkurinn
stóð ekki nógu lengi til þess að
bæta verulega úr skák. — Og svo
kom stórrigningin um helgira,
sem var einhver hin mesta, sem
hér hefur komið í langan tíma,
og eru tún nú víða blaut eftir
þetta úrfelli. — Síðan á helgi hafa
verið norðan- ,og norðaustan-
skúrir, svo ekkert hefir verið
hægt að gera að heyi. Hefir verið
heldur kalsalegt um að iitast,
enda snjóaði í fjöll hér bæði í
nótt og fyrrinótt.
Eftir því, sem mér er bezt
kunnugt, er heyskaparástandið
litlu betra á norðanverðu Snæ-
fellsnesi, þótt þar hafi e. t. v.
rignt öllu minna en héi um slóð-
ir. — Má því segja, að útlitið
gerist nokkuð ískyggilegt fyrir
bændur, ef ekki breytir bráðlega
til hins betra um tíðarfarið.
Íslenzki-ameríski
klúbburinn heiðr-
Jf' O*
aoi iSioriði
SUNNUDAGINN 2. ágúst var Sig
ríður Þorvaldsdóttir, fegurðar-
drottning, heiðursgestur íslenzk-
ameríska klúbbsins í Suður-
Kaliforníu á heimili Pauls
Grandle og konu hans á Löngu-
fjöru. Yfir 250 manns, þar á með-
al íslenzki ræðismaðurinn Stan-
ley T. Ólafsson og frú, komu
þangað til að hitta fulltrúa ís-
lands við fegurðarsamkeppnina á
Langasandi.
Færði klúbburinn Sigri^i áletr-
aða minningargjöf í tilefni þess
að hún náði þeim árangri að
komast í úrslit með 15 öðrum, og
kom í alla staði afbragðsvel fram
sem fulltrúi íslands á mest aug-
lýstu fegurðarsamkeppni heims-
ins, eins og segir í frétt frá Kali-
forníu.