Morgunblaðið - 14.08.1959, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 14.08.1959, Blaðsíða 18
MORCVNfílAÐIÐ Fösfudagur 14. ágúst 1959 18 Bjorgvin nægðu 4 greinar til sigurs - Gudlaug setti ísl. met Meistaramótinu i frjálsum iþróttum lokið MEISTARAMÓTI íslands í frjálsíþróttum lauk á Laugardalsleik- vanginum í fyrrakvöld með keppni í fimmtarþraut, boðhlaupum og nokkrum greinum kvenna og karla. Þetta umfangsmikla mót fór vel og skipulega fram, enda betur undirbúið en nokkurt annað mót frjálsíþrótta um langt bil. A framkvæmdanefndin heiður skilið fyrir sinn skerf. Margt smávegis má þó enn betur fara — en þetta var stórt spor í rétta átt. Óhagstætt veður Frjálsíþróttafólkið var mjög óheppið með veður. Fyrst var mótinu frestað um einn dag vegna úrhellisrigningar. En um frekari frest gat ekki verið að ræða og áframhaldandi ausandi regn þegar mótið hófst. Annan daginn hafði stytt upp en þá skall á norðanbál, allt að 6 vindstig með miklum kulda, og háði þetta keppendum verulega. Hélzt veðr ið svo hinn þriðja og síðasta dag mótsins. Hafa frjálsíþróttamenn varla fengið viðunandi veður nokkurn mótsdag í sumar. íslandsmet Síðasta daginn sá eitt ísl. met dagsins ljós. Það var Goið- laug Kristinsdóttir sem setti það í spjótkasti kvenna. Kast- aði hún 30,32 m en gamla met- ið átti Kristín Árnadóttir og var það 28.83 m. Átti Guð- laug tvö köst lengri en gamla metið og víst er að með lítilli tilsögn getur hún kastað miklu lengra. Guðlaug tók þátt í vel- flestum greinium kvennamóts- ins og stóð sig með prýði. Sýn- ir hún óvenjulega fjölhæfni í frjálsíþróttum en auk þess er hún ein af beztu handknatt- leiksstúlkum landsins. Guð- laug er frá Hafnarfirði. Hún vann í kúliuvarpinu fyrsta dag mótsins bezta af- rek kvenna í mótinu, varpaði 10.33 m. Fyrir það hlaut hún afreksbikar meistaramótsins í kvennagreinum en hann gáfu félagar í Samtökum íþrótta- fréttamanna fyrir þetta mót. Á Fimmtarþrautin í fimmtarþrautinni stóð keppn in milli félaganna Björgvins Hólms og Valbjarnar Þorláksson- ar. Var árangur þeirra í fjórum greinuunum góður og stóð til mets hjá Björgvin en er hann var í síðustu greininni, 1500 m hlaupi þá tóku sig upp meiðsli í fæti og hætti hann hlaupinu. Valbjörn sleppti 1500 m hlaupinu. En þó svona færi fyrir Björgvin sigraði hann samt — fjórar greinar nægðu honum til sigurs, þar sem Valbjörn sleppti þeirri grein. Af- rek Björgvins voru í langst. 6.78 m., 54.52 í spjótk., 23.4 í 200 m hl., 41.11 m í kringlukasti og í 1500 m hætti hann Fyrir þessar fjór- ar greinar hlýtur hann 2683 stig. Afrek Valbjarnar voru 6.64, 55.84, 22,8, 25,61 og sleppti 1500 m. Hann hlaut 2614 stig. Á Boðhlaupin í boðhlaupunum sigraði Ár- mann með nokkrum yfirburðum en keppnin í 4x100 m boðhlaup- inu var mjög skemmtileg og tví- sýn lengi vel. — Kristleifur hreppti titilinn í hindrunar- hlaupinu eftir jafna keppni við Hauk Engilbertsson. Úrslit í einstökum greinum síðasta daginn urðu þessi: 4x100 m boðhlaup: íslm. Ármahn 44,5 2. ÍR 45,1 3. KR 45,6. 4x400 m boðhlaup: íslm. Ármann 3:28,2 2. KR 3:32,7. 3000 m hindrunarhlaup: íslm. Krist- leifur Guðbjörnsson KR 9:32,8 2. Hauk ur Engilbertsson UMSB 9:35,6. Fimnitaþraut: íslm. Björgvin Hólm ÍR 2683 stig; 2. Valbjörn Þorláksson ÍR 2614; 3. Ólafur Unnsteinsson UMFÖ 2394 ; 4. Sig. Sigurðsson USAH 2392; 5. Þorvaldur Jónasson KR 1958; 6. Karl Hólm ÍR 1936. 200 m hlaup kvenna: íslm. Guðlaug Kristinsdóttir FH 29,9 2. Ingibjörg Sveinsdóttir Selfossi 30,7 3. Karin Krist jánsdóttir HSH 30,8. Spjótkast kvenna: íslm. Guðlaug Kristinsdóttir, FH 30,32 m ísl. met. 2. Sigríður Lúthersd. Á 26,10 3. Krist- ín Harðardóttir UMSK 25,19. Langstökk kvenna: íslm. Kristín Harðardóttir HSH 4.60 m 2. Rannveig Laxdal ÍR 4.32 3. Karin Kristjánsd. HSH 4.29 4. Ingibjörg Sveinsd. Selfossi 4.28 5. Svava Lárusdóttir HSH 4.20 6. Þórdís Jónsdóttir ÍR 4.01 m. Tveir oi dönsku londs- liðsmönnnnnm meiddir TVEIR af þeim dönsku landsliðsmönnum sem vald- ir hafa verið til leiksins gegn íslandi sem fram fer í Kaupmannahöfn á þriðju- daginn hafa orðið fyrir meiðslum og er talið mjög ólíklegt að þeir geti leikið með í landsleiknum. Annar þeirra er Ole Mad- sen innherji sem hér lék með Dönunum 26. júní og var þá einn af beztu mönn- um dönsku framlínunnar. Hann slasaðist I leik dansks úrvalsliðs gegn spánska lið- inu Valencia sem fram fór í Kaupmannahöfn á dögun- um. Unnu Spánverjarnir með 3 mörkum gegn engu. Hinn er Bent Hansen B 1903 sem valinn var í lands- liðið sem hægri framvörður. Hann meiddist í nýafstöðn- um leik félags síns við Skovshoved. — Taldi hann meiðslin ekki alvarleg, en á æfingu í fyrrakvöld haltraði hann út af gersamlega óleik- fær og er talið nokkurn veginn víst að hann verði ekki með i landsleiknum. Bent Hansen var settur inn í danska liðið eftir leik þeirra hér og kom í staðinn fyrir Flemming Nielsen. — Þótti hann eiga góðan leik gegn Noregi í júlíbyrjun í Höfn. Varamaður hans er Flemming Nielsen sem hér lék. Um varamann Madsens er ekki vitað. Lokaæfing hjá landsliðinu er í kvöld Libið heldur utan i fyrramálið ÍSLENZKA landsliðið kemur í kvöld saman til lokaæfingar sinnar hér á landi fyrir þýðingarmestu landsleiki íslendinga í knatt- spyrnu.. Verður æfingin á Laugardalsvellinum kl. 7,30. Liðið held- ur síðan utan í fyrramálið. — Sveinn Jónsson innherji í landsliðinu sagði á förnum vegi í gær að mikill hugur væri í landsliðsmönnunum. Það hefði verið æfing hjá liðinu á miðviku- dagskvöld. Væru allir leikmenn við beztu heilsu og hyggðu gott til fararinnar. Á sunnudag mun liðið fara á æfingu á einhverjum velli í Kaupmannahöfn. Liðsmennirnir dvelja í Kaupmannahöfn fram að leiknum og munu búa á Hótel Cosmopolite við Kongens Nytoi /. 3 félög keppu um sæt- ið í 1. deild NÚ LÍÐUR að lokum keppn innar í 2. deild í knatt- spyrnu. Fyrir nokkiui er lok- ið keppninni á Norður- og Vesturlandi. Þar léku til úr- slita Akureyri og ísafjörð- ur og sigruðu Akmreyringar. Á Suð-Vesturlandi fór keppnin fram í tveimur riðl- um. Leikir annars riðilsins fór fram í Hafnarfirði, en leikir hins í Vestmannaeyj- um. í Vestmannaeyjariðlin- um báru Vestmannaeyingar sigur úr býtum. Keppnin í Hafnarfjarðar- riðlinum var mjög jöfn og að loknum leikjunum voru Hafnfirðingar og Sandgerð- ingar jafnir. í úrslitaleik sem fram fór í fyrrakvöld, sigruðm Sandgerðingar með 2 gegn 1 — í leik þar sem Hafnfirðingar sóttu lengst af en Sandgerðingar skor- uðu mö'rkin. Úrslitaleikurinn á Suð- Vesturlandssvæðinu er því milli Sandgerðinga og Vest- manneyinga og fer fram á Meíavellinum í Reykjavík á mánudagskvöldið. Á föstu dagskvöldið kemur leikur svo sigurvegarinn í þeim leik gegn Akureyringum um sætið sem losnar í 1. deild. — Þetta verða höfuðorrust- ur knattspyrnunnar hér heima í næstu viku — en erlendis leikur ísl. landslið- ið — um „sæti“ í úrslita- keppni Olympíuleikanna í Róm í knattspyrnu. Spjöll unnin á lisfaverkum bœjarins Hermes hinn gríski, sendiboði guðanna, hefir fengið að kenna á íslenzkri ómenningu. — „Hermes" vængbrotinn — „Mabur og kona" ötuð tjöru VIÐ hús Reykjavíkurbæjar að Skúlatúni 2, þar sem Skjalu- og minjasafn bæjarins er m. a. til húsa, var eigi alls fyrir löngu reist eirsteypa af fögru, grísku listavereki, sem ýmist hefir verið nefnt „Hinn hvílandi Hermes“ eða „Hermes frá Herculanum“, en Hermes sá var, sem kunnugt er, sendiboði, guðanna grísku. Auk þess var hann guð æsku og íþrótta — og fleiri hlutverkum gegndi hann, en hann var sonur Seifs og Maju, jarðneskrar konu, sem ekki fara frekari sögur aí hér. ★ Að því er Lárus Sigurbi rns- son, forstöðumaður Minjasafns- ins, hefur tjáð blaðinu, mun þetta vera eina gríska eirstevp- an, sem til er á íslandi — og hún er ekki af verri endanum, því að Hermes-líkneskið er eitt af fegurstu verkum frá blóma- tíma grískrar högg.nyndalistar. Frumfnyndin er 2^00 ára gömul, gerð af hinum fræga höggmynd- ara, Lysippos, sem m. a. starfaði fyrir Alexander mikla Er Herm- es talinn bera svip Alexa.nders, eins og fleiri verk þessa mynd- höggvara. — Frummyndin, sern á sínum tíma var grafin upp úr rústum Herculanum, er geymd í Napolisafninu á Ítalíu Afsteypur hennar eru til víða um heim, en segja má, að það sé hrein til- viljun, að hún sé hingað komir..' Er sú saga þannig í stuttu máli, að sögn Lárusar Sigurbjörnsson- ar, að Haraldur Ólafsson, sk;p- stjóri á Lagarfossi, keypti mynd- ina á uppboði í Englandi skömmu eftir stríðið, fyrir lítið verð, að öðrum þræði a. m. k. af því að hann vantaði „ballest“ í skip sitt, að því er Lárus taldi. — Fyrir um tveim árum rakst svo Eggert Guðmundsson, listmálari, á myndina, en Haraldur skipstióri hafði þá lagt hana til hliðar. — Benti Eggert Lárusi Sigurbjórns syni á myndina, og keypti hann hans fyrir Minjasafnið. (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.) ★ — Það er bágt til þess að vi*a, sagði Lárus, er blaðið hafði tal af honum, að ágæt listaverk, =em komið er upp í þeim tilgangi að fegra bæinn og vera fólki til augnayndis og ánægju, skuli ekki fá frið fyrir skemmdarvörgum — en það er því miður ekki eins dæmi, að sllíkt gerist. — Og sjalf ur sendiboði guðanna fékk ein- mitt heimsókn slíkra í sl. viku. Hann ber — eða bar — fjóra vængi á fótum, en einn morguinu var hann vængjalaus á öðrum fæti. Hefur ekki tekizt að hafa uppi á „vængjaþjófnum". En þetta er ekki eina listaverk" ið, sem orðið hefur fyrir barð- inu á lítt siðuðum mönnum und- anfarið. — Um daginn átíi að' fara að setja upp listaverkið „Maður og kona“ eftir Tove ólafs son í gamla trjálundinum vestan- megin í Hljómskálagarðinum. En einhvern tíma, meðan þeir rnerm, sem þarna voru að vinna, brugðu sér frá, hefur einhver „listavin- ur“ komið þar að og atað lista- verkið tjöru. — Mun revnast erfitt að hreinsa styttuna, sem er úr íslenzku grágrýti, af þess- um óþverra, án þess að á henni sjái, en að því er nú unnið. — Það er sannarlega raunalegt til þess að vita, að til skuli vera menningarsnauðir menn, að viija stórskemma fögur listaverk, sem ætlað er að prýða bæinn okkar, sagði Lárus Sigurbjörnsson að lokum. Sn jóar í f jöll SIGLUFIRÐI, 13. ágúst. — Hér er nú íátt um fréttir — heldur dauft yfir bænum, síðan síldin hætti að berast. — Leiðindaveður er hér nyrðra, dimmt yfir og norð áustan-kuldastreyta — bræluveð- ur úti fyrir. í fyrrinótt gránaði lítilsháttar í fjöll hér, og í morgun hafði enn snjóað, svo fjallahringurinn er nú allur gráhvítur og kuldalegur. Ekki er þó snjórinn mikill, því að Siglufjarðarskarð er vel fært bif reiðum, en lítið þarf til, að það teppist, sem kunnugt er. Það væri líka heldur snemmt, að veg* arsamband við Sigiufjörð rofnaði nú, því að það eru ekki nema tveir mánuðir frá því að Skarðið varð síðast ófært — í norðan- áhlaupinu um þjóðhátíðina. — Stefán.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.