Morgunblaðið - 23.08.1959, Qupperneq 8
8
MOTtnXJTSBT. 4Ð1Ð
Sunnudagur 23. ágúst 1959
SéraPáll Björn Erlingur Þórarinn Helgi Steíán
Ciœsilegt skóla-
og félagsheimili
rís í Kelduhverfi
FYRIR skömmu var vígt glKsí-
legt félags- og skólaheimili norð-
ur í Kelduhverfi í Norður-Þing-
eyjarsýslu við hátíðlega athöfn.
Félagsheimili þessu hefur verið
valinn staður hjá Krossdal og
hefur bóndinn þar, Þórarinn Jó-
hannesson gefið land undir fé-
lagsheimilið. — Margar ræður
voru fluttar við þetta tækifæri
svo og bárust heimilinu fagrar
og góðar gjafir.
Hátíð þessi stóð sunnudaginn
9. ágúst og hófst kl. rúmlega 2
siðdegis með því að Björn Þór-
arinsson, bóndi í Kílakoti, setti
samkomuna. Því næst fór fram
guðsþjónusta en þar á eftir voru
ræður fluttar. Þá settust sam-
Frá
vlgsluhátíðinni |
komugestir að kaffidrykkju sem
stóð fram undir kvöld. Að síðustu
var stiginn dans fram eftir nóttu
og fór hátíð þessi mjög vel og
skemmtilega fram.
Að lokinni stuttri setningar-
ræðu hófst guðsþjónustan og
prédikaði séra Páll Þorleifsson,
prestur að Skinnastað, en safnað-
arkór söng. Séra Páll lagði út af
orðum Biblíunnar úr bréfi Páls
postula til Filipíumanna, þar ssm
hann segir: „Verið ávallt glaðir
vegna samfélagsins við drottinn,
ég segi aftur, verið ávallt glað-
ir“. — Benti hann á að hús þetta
væri gleðinnar að aðalþræði en
henni fylgdi einmitt uppbyggj-
andi kraftur. Þá gat hann einnig
þess að húsið væri ætlað til upp-
fræðslu unga fólkinu í þessari
sveit. Séra Páll lauk máli sínu
með því að lýsa yfir nafni stað-
arins. Gat hann þess að Skúla-
garður væri kenndur við Skúla
Magnússon fyrrum landfógeta er
fæðst hefði í Keldunesi, en alinn
hefði verið upp í Garði, en þessu
nýja félagsheimili vaeri búinn
staður um það bil miðja vegu
milli þessara tveggja bæja. Hann
kvað Skúla hafa verið mann'
nýrra og mikilla vakningr. hér á
landi og bað að lokum heill og
blessun að fylgja nafni þessa
staðar. Að lokinni guðsþjónustu
tók Björn Þórarinsson bóndi í
Kílakoti til máls og rakti í stór-
uro dráttum byggingarsögu fé-
lagsheimilisins og skólans. Sagði
hann í upphafi að segja mætti að
þegar á fyrsta aldursári ung-
mennafélags sveitarinnar, sem
stofnað var árið 1909 og er því
50 ára á þessu ári, hafi verið far-
ið að ræða um húsnæði fyrir starf
semi fyrir félagið. Framkvæmdir
hófust þó ekki á vegum þess fram
eftir árum, en árið 1932 var sam-
þykkt að Kelduneshreppur, Ung-
mennafélagið Leifur heppni og
Kvenfélag hreppsins sameinuðust
um byggingu þessa húss. Árið
1953 er svo Þóri Baldvinssyni fal
ið að teikna uppdrátt að bygg-
ingu hússins. Áður hafði verið
unnið ötullega að fjáröflun til
byggingarinnar. Byrjað var á
byggingu skólahússins og er fyrst
kennt í því skólaárið 1957—1958
og það sumar eða sumarið 1958
er samkomusalurinn steyptur við
skólatíygginguna. Siðan hefur
byggingunni verið haldið áfram
þar til -iú í ár er hún að öllu leyti
fullgerð utan og innan r.ema
hvað smávegis frágangur er eft,-
ir á leiksviði pg búningsherbergj
um, er að leiksýningum lúta. —
Allt er húsið gert úr steinsteypu
og einangrað með plasteinangr-
unarefni. Byggingarkostnaður er
af byggingarfróðum mönnum tal
inn mjög lítill miðað við hina
miklu stærð hússins, en því hefur
nánar verið lýst hér í blaðinu
áður. Húsið mun að öllu loknu
kosta um 2.2 millj. kr., þar af er
hinn raunverulegi húsbyggingar
kostnaður um 2 millj., annað telst
með húsbúnaði sem þegar hefur
verið fenginn. Nemur kostnaður-
inn um 700 kr. á hvern rúmmetra.
— Framlög og gjafafé til bygg-
ingarinnar nema 1 millj. og 235
þús. kr.
Björn Þórarinsson þakkaði í
lok ræðu sinnar öllum þeim er
unnið höfðu ötullega að byggingu
þessa glæsilega húss og nefndi
þar sérstaklega yfirsmiðinn, Þór
hall Snædal frá Húsavík, en hann
hefur haft mestan veg og vanda
af frágangi byggingarinnar. —
Að síðustu þakkaði Björn hin-
um fjölmörgu burtfluttu Kelá-
Árni Óla ritstjóri afhendir minnismerkið frá Þingeyinga-
félaginu í Reykjavík. «
hverfingum sem sýnt höfðu þess
ari byggingu mikinn vinarhug
með gjöfum og fjárframlögum,
svo og þv: að hafa verið virkir
þátttakendur að undirbúningi og
fjársöfnun til byggingarinnar.
Lauk hann máli sínu með því að
afhenda fyrir hönd byggingar-
nefndar hinum raunverulegu eig
er.dum hússins það til afnota og
reksturs og bað Guðs blessun
fylgja húsinu og þeim störfum
er þar yrðu unnin og ráðum er
þar yrðu ráðin.
Erlingur Jóhannsson oddviti
Kelduneshrepps veitti húsinu
móttöku fyrir hönd hreppsins og
þeim hluta sem hann er eigandi
að. Þakkaði hann öllum er að
byggingunni höfðu unnið og þá
sérstaklega formanni byggingar-
nefndar Birni Þórarinssyni, fyrir
hans mikla og giftudrjúga starf.
Ræddi Erlingur síðan sérstaklega
þann þátt er fælist í starfi skól-
ans er rekinn yrði undir þaki
þessa húss svo og benti hann á
hina miklu félagslegu þýðingu er
húsið hefði sem félagsheimili. —
Hann bar að lokum fram þá ósk
að þetta nýja félagsheimili mætti
standa á grundvelli þjóðlegrar
menningar og kristinnar lífsskoð
unar. —
Ávörp og kveðjur
Næst tók til máls Þórarinn
Haraldsson og talaði hann af.
hálfu ungmennafélagsins Leifur
heppni. Þakkaði hann fyrir hönd
ungmennafélagsins þann hluta
er því væri eignaður í þessu fé-
lagsheimili og ræddi harm síðan
í stuttu máli starfssögu ung-
mennafélagsins og ýms atvik úr
æviferli þess. Hann bar þá ósk
fram, að lokum, að í félagsheim-
ili þessu mætti ríkja sá andi er
ríkti hjá fyrstu ungmennafélög-
"um þessa lands.
Þá tók til máls Friðrika A. Jóns
dóttir óg talaði af hálfu kvenfé-
lags hreppsins. Gerði hú:. sérstak
lega að umræðuefni störf bygg-
ingarinnar sem skólahúss og
benti á að það hefði fyrst og
fremst verið konur í sveitinni
sem haft fiefðu áhuga fyrir að
sameina byggingu félagsheimilis
og skóla. Þakkaði hún öllum
þeim, er unnið höfðu óeigingjarnt
starf að þessari byggingu og bað
gæfu fylgja Skúlagarði um alla
framtíð.
Þá talaði Helgi Eliasson
fræðslumálastjóri og færði Keld-
Frá vígslu hins nýja félagsheimilis í Keiduhverfi.
(Myndirnar tók vig.)