Morgunblaðið - 23.08.1959, Qupperneq 13
Sunnudaerur 23 Serú«t
MOKcrr\nr 4Ð1Ð
13
fslendingar muna sjálfsagt eft-
ir Karin Birgitte Schack greif-
innu, hirðmey Ingiríðar Dana-
drottningar, serrr var í fylgdar-
liði dönsku konungshjónanna, er
J>au komu hingað vorið 1956. —
Schack greifinna er nú um það
bil að ganga í hjónaband, og er
brúðguminn finnsk stríðshetja,
Adolf Ehrnrooth hershöfðingi.
Hér sjást hjónaefnin á tröppun-
um_á höll Schack- ekkjufrúar á
Rþj, skömmu eftir að finnski
hershöfðinginn kom þangað, til
að halda brúðkaup sitt. öll kon-
ungsfjölskyldan verður í brúð-
kaupinu:
★
Píanóleikarinn Rudolf Serkin
var einu sinni um skeið hér á
landi og lék með Adolf Buch
fyrir íslendinga, eins og tónlist-
arunnendur munu lengi minnast.
Nú berast þaer fréttir að Serkin
sé nýbúinn að leika inn á hljóm-
plötu Pianokonserta nr. 11 og 20,
með Marloboro Festival hljóm-
sveitinni undir>stjórn Alexanders
Schneiders. Þeir sjást saman á
meðfylgjandi mynd.
★
Ernest Hemingw var spurður
um það á Spáni fyrir skömmu,
hvers vegna hann væri svona mik
ið fyrir að skrifa
skáldsögur, þ a r
sem söguhetjurn
ar væru allar
karlmenn. Væri'
h a n n kannski
kvenhatari?
— Nei, svar-
aði Hemingway,
en ef ég hleypi
konu inn í sög-
una, þá þarf hún að tala og tala,
svo að karlmennirnir fá varla
rúm til að segja neitt.
KRÚSJEFF OG NIXON LEIÐA SAMAN HESXA SÍNA í MOSKVU
K: „Þið sýnið hér' fyrlrmyndarhús, en það er vitað mál að hjá
ykkur sofa fátæklingarnir undir brúnum.“
H: „Það er ekki rétt. I»rir af hverjum fjórum Ameríkumönnum
búa í eigin húsum. Getið þið sagt það sama?“
★
Frank Sinatra ætlar að fara að
leika í nýrri kvikmynd, sem i
sjálfu sér er ekki í frásögur fær-
andi. En margir munu reka upp
stór augu, þegar þeir heyra hvaða
hlutverk hann á að leika. Hann
verður Páll postuli í kvikmynd
sem Frank Capra ætlar að fara
að framleiða. Annars er Capra
einkum frægur fyrir gamanmynd
ir, svo hann virðist líka vera að
fara inn á nýja braut. Sagt er að
næstum hafi liðið yfir Frank Sin-
atra, þegar honum var boðið
þetta hlutverk, en nú hefur hann
fengið mikinn áhuga fyrir hlut-
verkinu og hann hefur oft sannað
það að hann getur verið góður
leikari.
Peter Townsend er aftur orð-
inn blaðamatur. Nú er það ekki
samband hans við Margréti prins-
’ essu, sem skrifað er um, heldur
dvöl hans og unga belgíska einka-
ritarans hans, á baðstaðnum
Saint-Tropéz. Marie-Luce Jamag-
en fór með Townsend í nýaf-
staðna hnattferð, sem einkarit-
í fréttunum
ari hans, en það ferðalag var
kvikmyndað. Og nú eru þau sam-
an suður við Miðjarðarhaf og
þykir það merk frétt. Townsend
er 44 ára gamall, fráskilinn og
tveggja barna faðir, en Marie
Luce er aðeins tvítug að aidri.
★
Að utan berast fréttir um að
óperusöngkonan María Callas
ætli að fara að leika í kvikmynd
og á Anette Strþyberg, hin
danska eigin-,
kona f r a n s k a
kvikmyndastjór-
ans Vadims, að
leika með henni
í myndinni. Hin
dásamlega söng-
rödd Mariu Cail-
as og skapofsi
hennar eru þeg
ar þekkt um all-
an heim, og nú á hún að reyna
leikhæfileikana í hlutverki grísks
ættjarðarvinar, sem hjálpar Eng-
lendingum á Kýpur. Anette á að
leika vonda systur hennar. Col-
umbia kvikmyndafélagið ætlar
að láta framleiða myndina og
verður hún, -tekin á Kýpur og
Rodos.
★
Eftir að Bernard Shaw og n
síðast Voltaire hafa eftir dauð
sinn orðið vinsælir textahöfunc
ar söngleikja, vill franska leih
ritaskáldið Jeani
Anouilh 1 í k a |
reyna sig á samal
sviði. Hann hef-|
ur í sumar unn-s
ið mikið í sam-|
vinnu við Mar-S
guerite Monnot, '"sa&a s
sem í vor hlautjk.<>-
heimsfrægð fyr-BS^ "
ir söngleik sinn
„Irma la Douce“. Ætlar Anouil
að skrifa textann og öll ljóði
í nýjan söngleik og sagt er e
hann muni sækja efni hans
eitthvert af gömlu leikritunu:
sínum. Hér er Anouilh þekktast-
ur fyrir leikrit sín, Antigonu og
Stefnumótið í Senlis, sem bæði
hafa verið sýnd í Þjóðleikliúsinu.
Verzíunarfólk
Vanan afgreiðslumann og afgreiðslustúlku vantar
í tízkuverzlun. Aðeins reglusamt og traust fólk
kemur til greina. Umsóknir ásamt uppl. um aldur,
fyrri störf, meðmæli ef til eru ásamt heimilisfangi
og símanúmeri, sendist í pósthólf 1076, fyrir 28. þ.m.
Með umsóknir verður farið sem algjört trúnaðarmál.
Nauðungaruppboð
verður haldið í skrifstofu borgarfógeta í Tjarnar-
götu 4, fimmtudaginn 27, ágúst n.k. kl. 11 f.h., eftir
kröfu Guðmundar Péturssonar hrl. Selt verður skulda
bréf, að fjárhæð kr 35.000.00, tryggt með 2. veðrétti
í býlinu Lundi í Grenivík, Grýtubakkahreppi, Suður-
Þingeyjarsýslu.
Ennfremur verða seldar útistandandi skuldir þ.b.
Sæbergsbúðar s.f. og þ.b. Vogakjötbúðarinnar.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
BORGARFÓGETINN 1 REYKJAVlK
Magnettur 4 cyl
í Fordson og Allis-Chalmers, tractora
Verzlun
FriSriks Bertelsen
Tryggvagötu 10 — Sími 12872