Morgunblaðið - 23.08.1959, Page 18
18
M ORCTJ 'N BLAÐÍÐ
Sunnudagur 23. águsí 1959
Tími til kominn að íslendingar taki þátt í norrœnu keppninni
NÁNARI fregnir af landsleikn-
um við Noreg, sem fram fór sl.
föstudag hafa nú borizt. Eins og
sagt var frá hér í blaðinu varð
Þórólfur Beck að yfirgefa völl-
Elga hnén
að sjást?
STÓRU tízkuhúsin í París hafa
nú komið fram með vetrartízk-
una, en því miður getum við ekki
birt myndir að nýja tízkufatnað-
inum, þar eð þess er vandlega
gætt að ekki sé tekin ein einasta
mynd á sýningunum fyrr en 25
ágúst.
★
í þetta sinn stendur styrinn
ekki um það hvar beltin eða
mittissaumurinn sé á flíkunum
næsta árið, heidur hve hátt frá
jörðu pilsfaldurinn eigi að vera.
Og þar er Yves Saint Laurent á
öndverðum meið við alla hina
tízkuherrana. Þeir haía heldur
síkkað pilsin frá í fyrra en Yves
Saine Laurent, hinn 23 ára
gamli stjórnandi Dior-tízkuhúss-
ins, hefur pilsin á sínum tízku-
kjólum styttri en áður, svo að
þegar klæðst er sumum þeirra
sjást hnén vel þegar gengið er.
Að vísuv hafa víst um 90% af
sýningarkjólunum pils, sem ná
rétt • niður fyrir hnéskelina, en
þeir sem styttri eru hafa vakið
mikinn styr á kvennasíðum
heimsblaðanna.
★
Sumir kalla Saint Laurent
„mesta snilling Parísar", aðrir
segja að hann sé „öryggislaus og
viðvaningslegur í tízkufatasköp-
un sinni, og að hann vilji gera
hvað sem er til að vekja athygli".
öllum kemur þó saman um að í
þetta sinn hafi hann skapað fatn
aðinn á sýningu sinni einn, án
hjálpar eða ráðlegginga aðstoðar
kvennanna þriggja, sem alltaf
voru í ráðum með Dior heitnum
og héldu áfram að ráðleggja
Saint Laurent, eftir dauða hans
árið 1957. Hafa sum blöðin orð
á því, að Dior mundi snúa sér
við í gröf sinni, ef hann sæi þetta,
því þó hann hafi komið fram
inn í fyrri hálfleik en hann meidd
ist á þriðju mínútu fyrri hálf-
leiks. Auk Þórólfs meiddust þeir
Sveinn Jónsson og Hörður Felixs
son. Sveinn Jónsson haltraði á
með ýmsar furðulegar nýjungar,
þá lét hann aldrei sjást í hnén,
sem hann sagði að væri ljótasti
hlutinn á kvenlíkamanum.
★
Flestir viðskiptavinir tízkuhús-
anna í París segja, að það geti
liðið hálft ár, áður en hægt verð-
ur að sjá hvort þessi nýjung Saint
Laurents hefur slegið í gegn eða
hvort hún dæmist dauð og ómerk.
Það taki það langan tíma fyrir
amerískar konur að venja sig
við slíka breytingu og fallast á
hana. Og ameríski markaðurinn
hefur mikið að segja í þessu sam-
bandi.
★
Sú eirikennilega stefna virðist
ríkjandi 1 tízkusköpun Saint
Laurents í ár, að samkvæmis-
kantinum það, sem eftir var leiks
ins, því samið hafði verið um
fyrir leikinn að skipta mætti að-
eips um einn leikmann í fyrri
hálfleik. Hörður tognaði í byrj-
Yves Saint Laurent
kjólarnir eru styttri en dag-
kjólarnir, og eru greinilega of-
an við hnén. Er það í fyrsta
skipti sem kjólarnir styttast
eftir því sem líður á daginn.
Þó eru slíkir samkvæmiskjól-
ar fremur undantekning en
regla.
Önnur frumleg kjólasídd
kemur fram hjá Balmain. Það
eru „síðir kjólar“, sem ná ekki
lengra en 8—10 sm. ofan við
öklann. Kallar hann slíka
kjóla „leikhúskjóla“, og eru
það yfirleitt þröng pils og
jakkar úr sama efni.
Síddin á flí'kunum vekur
sem sagt mesta athygli og
mestar deilur í þetta sinn.
SÍLDARRÉTTUR
EF TIL VILL geta húsmæð-
urnar Norðan- og Austanlands
notað þessa uppskrift, þó við
hér fyrir sunnan getum ekki
haft á borðum nýja síld. —
Handa fjórum þarf að fá 8
nýjar sildir, og í réttinn auk
þeirra fara 2 tómatar, 3 soðn-
ar gulrætur, 4 soðnar kartöfl-
ur og 1 agúrka.
Soðinn er lögur úr vatni,
ediki, nokkrum lauksneiðum,
og kryddað með nokkrum pip-
ar og saltkornum. Soðið í
nokkrar mínútur og hreinsuð
síldin lögð ofan í. Eftir það
verður að gæta þess að lögur-
inn sjóði aldrei mjög mikið.
Að 5 mín. liðnum er potturinn
tekinn af eldinum og síldin
látin kólna í leginum.
Kaldri síldinni er -raðað í
stjörnu á fat og niðurskorið
grænmetið sett á milli bit-
anna. Yfir þetta er svo hellt
legi, sem búinn er til úr 1 dl.
af matarolíu, safa úr 1—2^
sítrónum, svolitlu af rifnum
hvítlauk og salti og pipar eftir
smekk. Með þessu má svo bera
grænt salat eða eitthvert ann-
að grænmeti.
un leiksins en lék áfram í sinni
stöðu, en meiðslin háðu honum
þó. —
Leikurinn var skemmtilegur og
áhorfendurnir, sem voru 33143
skemmtu sér vel. Norðmenn unnu
hlutkestið og urðu fslendingar
að leika gegn sterkri sól í fyrri
hálfleik.
Norðmenn voru betri í fyrri
hálfleik, en í þeim síðari tókst
íslenzka liðinu að rétta sinn hlut
og áttu þeir fleiri og hættulegri
tækifæri en Norðmennirnir.
Af íslenzku leikmönnunum var
Helgi mjög góður svo og Árni
og Hörður, þrátt fyrir meiðslin.
íslendingarnir töpuðu hlutkest-
inu og urðu að sætta sig við að
leika gegn sterkri sól, sem var til
viðar hnigin^ er síðari hálfleik-
urinn hófst. í fyrri hálfleik áttu
íslendingar 6 upphlaup á móti
15 upphlaupum Norðmanna, sem
enduðu með markskoti. Á 12.
mínútu þjargaði Helgi af tám
Rolfs Björns Bakke, miðherja, og
tveim mínútum síðar varði hann
vel aukaspyrnu af vitateig. Á 22.
minútu fékk Garðar stöðvað
hættulegt upphlaup, sem borið
hafði knöttinn inn á markteig.
Fimm mínútum síðar var skotið
í stöng íslenzka marksins að und
angenginni óbeinni áukaspyrnu.
Á fertugustu mínútu leiksins
skoraði síðan Rolf Björn Bakke
eina mark hálfleiksins af 12 m.
færi, eftir grófa hrindingu frá
einum íslendinganna.
Rétt fyrir lok hálfleiksins
bjargaði Hörður á hættulegu
augnabliki, ógnandi áhlaupi mið-
herjans. fslendingarnir áttu í
þessum hálfleik mjög hættulegar
10 mínútur og voru Ríkharður
og Sveinn hættulegastir. í eitt
skipti komst Ríkharður einn inn
fyrir, en Hansen markvörður
bjargaði með góðu úthlaupi. Bak-
vörður bjargaði í horn, eftir
hættulega árás Sveins.
í síðari hálfleik áttu Norðmenn
12 hættuleg upphlaup. Bar aðeins
eitt þeirra tilætlaðan árangur og
var það á 8. mínútu hálfleiksins.
Skoraði Kjell Kristiansen af
stuttu færi, eftir að hafa unnið
návígi við Hörð Felixsson. (Það
var þvi ekki rétt hér í blaðinu í
gær, að Bakke hefði skorað þetta
mark).
Á 12. mínútu varði Helgi hörku
skot af 25 metra færi. Kom það
frá miðherjanum Bakke. Tveim
mínútum síðar bjargaði Hreiðar
á línu, en það hefur hann nokk-
uð oft gert í þessari ferð. Á 17.
mínútu komst Kristiansen enn
einu sinni einn innfyrir, en Helgi
bjargaði meistararlega. Og enn
varði Helgi hættulegt skot. Var
það á 34. mínútu, kom frá Borgen
útherja eftir mikla pressu við ís-
lenzka markið.
í þessum hálfleik áttu íslend-
ingarnir 14 upphlaup, og kom
hið hættulegasta þeirra á 3. mín-
útu. Ríkharður skaut þá í hliðar
netið í góðu færi. Á 11. minútu
« *
r átti Sveinn Jónsson skot fram-
hjá, og aftur á 19. mínútu kem-
ur hann við sögu, er Ásbjörn
Hansen hirðir knöttinn af tám
hans. Mínútu síðar var dæmd
aukaspyrna á vítateig Norð-
manna. Ríkharður skaut í gegn
um varnarvegginn, en naumlega
tókst að_ verja, í horn.
Mark fslands kom, eins og fyrr
hefur verið greint frá á 29. mín-
útu. örn Steinsen hugðist gefa
fyrir. Sendi hann knöttinn hátt
inn að marki. Flaug hann yfir
Hansen markvörð og skrúfaði sig
inn í markið. Á 32. mínútu komst
Ríkharður enn innfyrir, en missti
knöttinn frá sér.
Eftirfarandi ummæli voru höfð
eftir leikinn, við Atla Steinars-
son:
Norski markmaðurinn, Asbjörn
Hansen, sagði að mjög mikl-
ar framfarir hefðu orðið hjá fs-
lendingunum og nú væri tími til
kominn að þeir tækju þátt í nor-
rænu keppninni.
Thorbjörn Svendsen, fyrirliði
norska liðsins sagði að Rikharður
hefði verið bezti maður vallar-
ins.
Hreiðar Ársælsson lét illa yfir
hitanum og kvaðst hafa verið
kominn að yfirliði.
Ríkharður Jónsson kvaðst þess
fullviss að við hefðum sigrað ef
engin meiðsli hefðu orðið á ís-
lenzku leikmönnunum.
Hótel Borg
Ragnar Bjarnason
og
Hljómsveit
Björns R. Einarssonar
leika og syngja frá kl. 8-11,30
Beztur matur
Bezt fran.ieiðsla
HÓTEL BORG
Fiskbúð
Til sölu húsnæði fyrir fiskbúð í fjölmennasta hverfi
bæjarins.. Upplýsingar í síma 32647.
íbúðir óskast
Höfum kaupendur að:
3ja herb. íbúð í Austurbænum. Bílskúrsréttindi þurfa
að fylgja. Útborgun kr. 300 þúsund.
4ra herb. hæð í Laugarnesi. Útborgun kr. 300 þús.
5 til 6 herb. nýtízku hæð. Útborgun kr. 500 þúsund.
Einbýlishús á góðum stað. Full útborgun.
MÁLFLUTNINGSSKRIFSTOFA
Vagns E. Jónssonar.
Austurstræti 9. Sími 14400