Morgunblaðið - 23.08.1959, Blaðsíða 19
Sunnudagur 23. agúsí 1959
MORGUTSBL 4Ð1Ð
19
Virða ekki f jand-
mann frelsisins
NEW YORK, 22 ágúst — Verka-
lýðssamsteypan AFL-CIO hefur
ákeðið að láta sig engu skipta
opinbera heimsókn Krúsjeffs
í næsta mánuði. Var þessi ákvörð
un samþykkt með 22 atkvæðum
gegn 3 í framkvæmdastjórn sam-
steypunnar og studd þeim rökum,
að ekki væri hægt að viðurkenna
leiðtoga stjómar, „sem ekki leyf-
ir verkalýð sínum að hafa með
sér frjáls samtök af neinu tagi.1'
Meðal þeirra, sem greiddu at-
kvæði gegn ákvörðuninni, var
hinn kunni verkalýðsleiðtogi
Walter Reuter. Þrátt fyrir ákvörð
un þessa er einstökum verkalýðs-
leiðtogum að sjálfsögðu heimitt
að ræða við forsætisráðherrann,
eftir því, sem tækifæri gefast.
Stolin bifreið
fannst óskemmd
í FYRRINÓTT var bifreiðinni
R-7336 stolið' fyrir utan húsið
Suðurgötu 14. Bifreiðin fannst í
Hafnarfirði í gær, óskemmd.
Ekki var vitað hver eða hverjir
þarna höfðu verið að verki.
Manehester
Guardian
LONDON, 22. ágúst. — Brezka
stórblaðið Manchester Guardian,
sem fyrst kom út fyrir rúmum
hundrað árum, mun nú breyta
um nafn.Frá og með næsta mánu-
degi heitir það aðeins „The
Guardian“.
Manchester Guardian hefur
löngum verið eitt af virtustu
blöðum Bretlands og er mjög
útbreitt víða um heim.
Skógareldur
STOKKHÓLMI, 22. ágúst. —
(NTB) — Ákafur skógareldur
hefur geisað í alla nótt á tveggja
ferkílómetra svæði í Austur-
Gotlandi. Eldurinn kom upp í
gær, og um hádegi í dag hafði
ekki tekizt að hefta útbreiðslu
hans.
Yfir tvö hundruð manns, þar
á meðal 180 hermenn vinna að
slökkvistarfinu, en skógurinn er
mjög þurr og þar að auki vatns-
skortur í nágrenninu, og er því
mjög erfitt að fást við eldinn.
Búsáhöld
Þvottavélar, strauvélar
Ryksugur og bónvélar með
afborgunarskilmá'um.
PRESTO-rafmagnsbúsáhöld
BEST chrome hraðsuðukatlar
CORY-kaffikönnur, krómaðar
ISOVAC-hitakönnur & gler
Kaffikönnur, króm, ný gerð
Hitabrúsar, högg-heldir
þola að farið sé illa með þá
FELDHAUS hringbökunar-
oínar
Myndskreytt kökubox
Mjólkurbrúsar, flöskur og
nestiskassar úr mjúku plasti
Hnífar og skæri í úrvali
Varahlutir og viðgerðir
á innfl. og seldum vörum
Pantanir teknar á væntanleg-
um MORPHY-RICHARDS-
kæliskápum og tauþurrkum
(Spin dryer)
Kynnið yður vöruval og verð.
ÞORSTEINN BERGMANN
búsáhaldaverzlun,
Laufásvegi 14, sími 17-7-71.
Steiiii á Hvítanesi
sextugur
AKRANESI, 22. ágúst. — 60 ára
er í dag, 23. ágúst, Þórður Þor-
steinn Þórðarson, bílstöðvareig-
andi, Kirkjubraut 16, Akranesi.
Hann eignaðist fyrsta hjólhestinn
sem kom til Akraness, og hann
varð sigurvegari í fyrstu hjól-
reiðakeppninni á gamla barna-
skólablettinum hér á staðnum.
Steini á Hvítanesi, eins og hann
er nefndur í daglegu tali, hefur
starsrækt bílastöð hér á Akra-
nesi í iðan 1927, þ. e. í 32 ár, og
allir Akurnesingar að undantekn-
um kornbörnum, hafa stigið upp
í bílana hans.
Þórður hefur alla tíð sett svip
á þennan bæ, frá því hann kom
hingað ungur frá ættaróðali sínu,
Leirá í Leirársveit. Móðir hans
var Guðný Stefánsdóttir frá
Hvítanesi í Skilmannahreppi. —
Giftur er hann Sigríði Guð-
mundsdóttur. —Oddur.
Námsstyrkir
SENDIRÁÐ Sambandslýðveldis-
ins Þýzkalands hér á landi hefur
tjáð íslenzkum stjórnvöldum, að
Alexander von Humboldt-stofn-
unin muni veita styrki til rann-
sóknarstarfa við vísindastofnan-
ir eða til háskólanáms í Þýzka-
landi skólaárið 1960—’61. Styrk-
irnir eru ætlaðir háskólastúdent-
um innan 35 ára aldurs og nema
þeir 600 þýzkum mörkum á mán-
uði um 10 mánaða skeið (frá 1.
október 1960 til 31. júlí 1961).
Nægileg þýzkukunnátta er áskil-
in.
Eyðublöð undir umsóknir um
styrki þessa fást í menntamála-
ráðuneytinu, Stjórnarráðshúsinu
við Lækjartorg. Umsóknir þurfa
að vera í þríriti og hafa borizt
ráðuneytinu fyrir 1. nóvember
1959.
Flu«vélin ófundin
LONDON, 22. ágúst. — Flug-
vélar og skip halda í dag áfram
leitinni að fjögurra hreyfla
Victor srengjuþotunni, sem
hvarf í reynsluflugi á fimmtu-
daginn. Einkum er leitað fyrir
ströndum Wales á víáttumiklu
svæði við St. Georges-sundið.
— Steve
Framh. af bls. 1
í lofti og hálfri annarri klukku-
stund fyrir hjónavígsluna byrj-
aði að rigna dálítið. Það varð
þó sízt til þess að drepa niður
áhuga fólksins, sem varð stöð-
ugt fleira. Á tveim fánastöngum
við kirkjuna blökktu fánar Nor-
egs og Bandaríkjanna. í hagan-
um rétt hjá fylgdust kýrnar ná- .
kvæmlega með því sem .fram fór. [
Hjónavígslan
Athöfnin í kirkjunni stóð í
þrjá stundarfjórðunga.
Þegar presturinn, Olav Gaute-
stad, hafði spurt Steven, hvort
hann vildi ganga að eiga Anne,
svaraði hann lágum rómi: „Yes“
— Og Anne sagði sömuleiðis á
sínu móðurmáli: „Ja“, þegar hún
var spurð.
Síðan dró Steven fingur á hönd
hinnar nýorðnu eiginkonu sinn-
ar og presturinn lagði hönd sína
yfir krossaðar hendur hjónanna,
að norskum sið, og lýsti yfir því
á bæði ensku og norsku, að þau
væru hjón. — Þau krupu síðan
á kné við altarið og báðust fyrir,
en presturinn blessaði þau. Hann
færði þeim einnig norska útgáfu
af Biblíunni að gjöf.
1 15 mínútna ræðu, sem prest-
urinn hélt við athöfnina, fór hann
Daii Waern
setti heiinsmet
KARLSTAD, 21. ágúst. — Svíinn
Dan Waern setti nýtt heimsmet
í 1000 m hlaupi hér í kvöld. —
Hljóp hann vegalengdina á 2
mín. 17,8 sek. Svavar Markús-
son keppti einnig í þessu hlaupi
og verð fjórði á ágætum tíma,
2 mín. 22,8 sek.
Kristleifur Guðbjörnsson, sem
keppa átti í 5000 m gat ekki ver-
ið með, þar sem hann hafði togn-
að fyrir hlaupið.
Lady Churchill
í sjúkrahús
LONDON, 22. ágúst. — Lady
Churchill, eiginkona Sir Winston
Churchill, mun leggjast í sjúkra-
hús á mánudaginn. Þar mun hún
gangast undir aðgerð í auga,
vegna lömunar annars augnloks
hennar. Frúin, sem er 74 ára
gömul, hefur dvalið í Nice að
undanförnu ásamt eiginmanni
sínum.
mjög lofsamlegum orðum um
ungu hjónin. Hann sagði að af
öllum listum væri sú máske
vandasömust, að byggja upp gott
heimili. Þá bað hann þau að
minnast þess, að heimili þeirra
mundi verða fyrirmynd þúsunda
af heimilum vestan hafs, þar sem
þau mundu setjast að, og áminnti
þau um mikilvægi. þess, að sú
fyrirmynd yrði kristilegt heimili,
þar sem ást og þjónustulund
settu mark sitt á hvern dag.
Hveitibrauðsdagar í einrúmi
Ekki hafa ungu hjónin viljað
láta uppi, hvar þau hyggjast eyða
hveitibrauðsdögunum, en Rocke-
feller eldri sagði: „Þau verða að
fara til einhvers staðar, þar sem
þau geta verið í einrúmi.
Innilegar þakkir færi ég öllum vinum mínum fyrir
góðar óskir, hlý handtök og annan vinarvott í ýmsum
myndum, á áttræðisafmæli mínu hinn 8. ágúst,
Guð blessi ykkur öll.
Magnús Þórarinsson
Sonur minn og bróðir,
ÞORBERGUR GÍSLASON SKAGFJÖRÐ
frá ísafirði
andaðist á Landakotsspítala 21. þ.m.
Gísli Þorbergsson, Gunnar Gíslason
Konan mín og móðir okkar,
SVEINSÍNA SVEINSDÖTTIR
Nesvegi 58,
lézt á Landakotsspítala, föstudaginn 21. ágúst s.l. Jarð-
arförin verður auglýst síðar.
Tryggvi Benónýsson,
Ásgerður Tryggvadóttir,
Sveinn Tryggvason.
Jarðarför föður okkar,
GUÐMUNDAR STEFÁNSSONAR
frá Norðfirði,
fer fram í Fossvogskirkju þriðjudaginn 25. þ.m. kl. 1,30
eftir hádegi.
Börnin
Hjartanlegar þakkir öllum þeim er sýnt hafa mér
vinarhug og vottað samúð og hluttekningu við andlát
og jarðarför eiginmanns míns,
GUÐMUNDAR Á. BJARNASONAR
Álfheimum 30
Ragnheiður Þórólfsdóttir
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
SOFFlA JÓSEFSDÓTTIR
Miðtúni 20
verður jarðsunginn þirðjudaginn 25. þ.m. frá Fríkirkj-
unni kl. 2 e.h.
Jarðað verður í gamla kirkjugarðinum.
Börnin
Jarðarför systir okkar,
SIGURLAUGAR VIGFtíSDÓTTUR
frá Holti á Síðu
fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 25. ágúst
kl. 10,30. Blóm afþökkuð. Þeir, sem vildu minnast hinnar
látnu er bent á einhverja líknarstofnun.
Fyrir hönd vandamanna.
Sigríður Vigfúsdóttir, Vigfúsína Vigfúsdóttir
Hugheilar þakkir til allra fjær og nær, fyrir sýnda
hluttekningu við útför mannsins míns.
GUÐMUNDAR BJARNASONAR
frá Seyðisfirði
Ingibjörg Ólafsdóttir og börn
Þökkum sýnda samúð og vináttu við andlát og útför
eiginmanns míns og föður okkar,
GlSLA ÁRNASONAR
frá Hafnarfirði
Sigríður Jónsdóttir og dætur
öllum þeim, er sýndu okkur samúð og vinarhug við
andlát og útför móður okkar,
MARlU GlSLADÓTTUR
Skáleyjum
færum við hjartans þakkir.
Börn, tengdabörn, barnabörn og
fósturbörn hinnar látnu.