Morgunblaðið - 09.09.1959, Side 1
20 siður
196. tbl. — Miðvikudagur 9. september 1959
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Matthías Bjarnason
Gísli Jónsson
Einar Guðíinnsson
Kjartan J. Jóhannsson
Jörundur Gestsson
Sigurður Bjarnason
Arngrímur Jónsson
Þorvaldur Garðar Kristjánsson
Kristján Jónssoi
Framhoðslisti Sjálfstœð-
ismanna á Vestfjörðum
ákveðinn
Nýja varðskipinu
hleypt af stokk-
unum í gær
HINU nýja varðskipi, sem er
í smíðum í Álaborg, var
hleypt af stokkunum á hádegi
í gær, og hlaut það anfnið
Óðinn. Smíði skipsins verður
væntanlega lokið í febrúar á
næsta ári, Kona Péturs Sig-
urðssonar, forstjóra, frú
Ebba Pm. Sigurðsson gaf
skipinu nafn.
□---------------□
FRAMBOÐSLISTI Sjálfstæðismanna í Vestfjarðarkjördæmi hefur
nú verið ákveðinn. Var hann samþykktur með samhljóða atkvæð-
utn á fundi kjörnefndar kjördæmisins á ísafirði sl. sunnudag. —
Listinn er skipaður þessum mönnum:
1) Gísli Jónsson, alþingismaður, Reykjavík.
2) Kjartan J. Jóhannsson, alþingismaður, ísafirði.
3) Sigurður Bjarnason, alþingismaður frá Vigur, Reykjavík.
4) Þorvaldur Garðar Kristjánsson, alþingismaður,. Reykjavík.
5) Matthías Bjarnason, framkvæmdastjóri, ísafirði.
6) Einar Guðfinnsson, útgerðarmaður, Bolungarvík.
7) Jörundur Gestsson, bóndi, Hellu í Steingrímsfirði.
8) Arngrímur Jónsson, kennari, Núpi.
9) Kristján Jónsson, síldarmatsmaður, Hólmavík.
10) Ari Kristinsson, sýslumaður, Patreksfirði.
Mikill áhugi ríkir meðal vest-
firzkra Sjálfstæðismanna fyrir
því, að gera sigur lista síns sem
glæsiiegastan í kosningunum í
haust. Eins og kunnugt er fengu
Sjálfstæðismenn kosna 4 af 5
þingmönnum Vestfjarða í kosn-
ingunum í sumar.
Sérstök rannsóknar-1
nefnd send til Laos
JEW YORK, 8. sept.
—• (Reuter/NTB) —•
EFTIR allmiklar umræður
um Laosmálið í Öryggisráð-
inu í gærkvöldi og mótmæli
rússneska fulltrúans, var
samþykkt að skipa nefnd
með fulltrúum fjögurra ríkja
til þess að rannsaka ástandið
í Laos og gefa ráðinu skýrslu
um það. — Tillaga Vestur-
veldanna þessa efnis var sam-
þykkt með 10 atkvæðum gegn
atkvæði sovétfulltrúans, en
forseti ráðsins, ítalinn Ort-
ona, úrskurðaði, að ekki væri
Aðalfundur Stéttarsambands bænda hélt áfram að Bjarkarlundi í gær. Nefndir störfuðu allan fyrrihluta dagsins, en síð-
ari hlutann voru málin tekin til umræðu og stóð sá fundur langt fram á kvöld. — Gert var ráð fyrir að fundinum lyki í gær-
kveldi og stjórn sambandsins þá kosin. Myndin hér að ofan var tekin á fundi Stéttarsambandsins í fyrradag.
hægt að beita neitunarvaldi
á þessu stigi málsins.
Síðdegis í dag kom svo Laos-
nefndin samán tii fyrsta fundar,
en i henni eiga sæti fulltrúar
Argentínu, Italíu, Túnis og Jap-
ans, sem ekki eru fastameðiimir
Öryggisráðsins. Eftir fundinn,
sem stóð 114 klukkustund, var
tilkynnt, að ákveðið hefði verið
að senda sérstaka fulltrúa til
Laos til þess að kynna sér ástand-
ið þar af eigin raun.
Fulltrúi ítala, Ortona, sagði að
nefndin vonaðist til, að fulltrú-
arnir gætu verið komnir til Laos
fyrir vikulokin. Enginn af með-
limum fjögra ríkja nefndarinn-
ar nýju mun fara þangað, held-
ur munu stjórnir viðkomandi
landa beðnar að útnefna sérstaka
fulltrúa til fararinnar. — Ortona
tók það fram, að ríkisstjórnunum
yrði tilkynnt þessi ákvörðun
þegar í stað, og gert væri ráð
fyrir, að hinir sérstöku fulltrú-
ar yrðu komnir til New York
á fimmtudaginn. Hann kvað það
ekki ákveðið enn, hvort fulltrúa-
nefndin færi til landamæra Laos
og Norður-Vietnams eða starfaði
fyrst og fremst í Vietiane, höfuð-
borg Laos.
Miðvikudagur 9. september.
Efni blaðsins m.a.:
Bls. 3: í heimsókn hjá „mjólkurdrot
ingu“ landsins.
— 6: Vini íslands árnað heilla.
— 8: Skákmótið í Júgóslavíu.
— 10: Ritstjórnargreinin: Menntun j
lífskjör.
— 11: Ríkisóperan í Vín.
— 13: Kvennadálkur. —
útvarp.
— 18: íþróttir.