Morgunblaðið - 09.09.1959, Page 2

Morgunblaðið - 09.09.1959, Page 2
2 ' MORCVNBLAÐ1Ð Miðvilcudagur 9. sept. 1959 Aflaverö- mœtið 2,5 millj. í GÆRKVÖLDI lauk síldarvertíðinni hjá aflakóngi vertíðarinnar að þessu sinni, Eggert Gíslasyni á Víði II og mönnum hans. Hélt þá báturinn af stað heimleiðis, en hann mun hafa viðkomu á Ólafsfirði á leið sinni heim. — Víðir aflaði alls 19600 tn. og mál síldar og eru aflaverðmæti skipsins á vertíðinni um 2,5 millj. kr. < s s s s s j s I s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s Samið um vörulista AB UNDANFÖRNU hafa farið fram í Prag viðræður um við- skipti íslands og Tékkóslóvakíu á tímabilinu 1. september 1959 til 31. ágúst 1960. Lauk þeim hinn 2. september sl. með undirskrift samkomulags um vörulista þá, sem gilda eiga þetta tímabil. — Samkomulagið undirrituðu for- menn tékknesku og íslenzku samninganefndanna, þeir Franti- sek Schlegl og Jónas H. Haralz ráðuney tisst j óri. Viðskiptasamningur sá, sem nú gildir á milli íslands og Tékkó- slóvakíu var gerður árið 1957 til þriggja ára. Um vörulista þá, sem samningnum fylgja, er hins vegar samið árlega. Viðskiptin á sl. ári höfðu farið allmjög fram úr þeim vörulistum, er þá giltu að því er flestar vörur snerti, og í samræmi við þetta var nú samið um talsverða hækkun listanna. bannig er gert ráð fyrir veru- legri aukningu á sölu íslenzkrar niðursuðuvöru og landbúnaðaraf- urða til Tékkóslóvakíu, og einnig nokkurri aukningu á sölu freð- fisks, frystrar og saltaðar síldar og fiskimjöls. Gert er ráð fyrir auknum kaupum íslendinga af vefnaðarvöru, hjólbörðum, gólf- dúk, gúmmískófatnaði, sykri, raf magnsvöru og járn- og trjávöru. Islenzku samninganefndina skipuðu, auk Jónasar H. Haralz, þeir dr. Oddur Guðjónsson og ,Árni Finnbjörnsson, ræðismaður. Nefndinni til ráðimeytis voru fulltrúar frá Sambandi ísl. sam- vinnufélaga og Verzlunarráði ís- lands, þeir Agnar Tryggvason og Þorvarður Jón Júlíusson. (Frétt frá utanríkisráðuneytinu). Ákveðið að Bretar gangi til kosninga 8. október Rúmlega 35 milljónir manna á kjörskrá \Ný lendingarljós í Eyjum LONDON, 8. september. — (Reuter/NTB) — MACMILLAN, forsætisráðherra Bretlands, batt síðdegis í dag enda á allar getgátur um, hvenær þingkosningar yrðu haldnar þar í landi. — Hann sendi út tilkynn- ingu um það frá bústað sínum í Downingstræti 10, að kosninga- dagurinn hefði verið ákveðinn 8. október n. k. — Tilkynningin var gefin út að ioknum ráðu- neytisfundi, þar sem allir ráð- herrar stjórnarinnar voru mættir. ★ í tilkynningunni segir, að Elísa- bet drottning hafi fallizt á að rjúfa þing hinn 18. þ. m., þannig að kosningy.- geti farið fram 8. okt., en þrjár vikur þurfa að líða frá þingrofi til kosninga. — Hið nýja þing mun síðan koma sam- an 20. næsta mánaðar til þess að kjósa forseta neðri deildar. Einn- ig eiga þingmenn þá að vinna eiða sína. — Þingið verður síðan formlega sett 27. október. í yfirlýsingu, sem Macmillan lét fylgja tilkynningunni um kosningadaginn, segir m. a., að með tilliti til innanlandsmála hafi ekkert verið því til fyrir- stöðu að halda kosningar í haust. En kosningadagurinn hafi einn- ig verið ákveðinn með ástand heimsmálanna í huga. — ★ „Þýðingarmiklar samningaum- leitanir á alþjóðavettvangi 10 farþegar í rúss- nesku háloftsfari KEFL A V ÍKURFLU G VELLI, 8. sept. — Rússnesk farþegaþota af gerðinni TU 104 B kom við á Keflavíkurflugvelli í morgun á leið sinni frá Moskvu um Lond- on til New York. 10 rússneskir farþegar voru með flugvélinni. Hún hafði klukkustundarvið- dvöl á Keflavíkurflugvelli, og tók hér um borð tvo kanadíska leiðsögumenn, en flugvélin átti að lenda á Gander á leið sinni til New York. — B. Þ. standa fyrir dyrum," segir for- sætisráðherrann í yfirlýsingu sinni. „Það er augljóst, að rétt er að gefa þjóðinni tækifæri til þess að ákveða sem fyrst, hverj- ir skuli koma fram fyrir henn- Það var tilkynnt, að vegna kosninganna yrði Verkamanna- flokkurihn að fresta ársþingi sínu sem hefjast skyldi 4. október. — Formaður. flokksins, Barbara Castle, viðhafði þau orð í þessu sambandi, að forsætisráðherrann hefði eflaust haft það í huga, er hann ákvað kosningadaginn, að koma í veg fyrir, að unnt yrði að halda flokksþing Verkamanna flokksins fyrir kjördag. — En okkur mun nægja hinn stutti frestur, sem gefinn er, til þess að tryggja sigur okkar, bætti frúin við. Þetta nefna fréttarit- arar „fyrsta skotið“ í kosninga- baráttunni. — Ekki hefur enn verið ákveðið, hvort íhaldsflokk- urinn frestar einnig ársþingi sínu, sem ákveðið var hinn 16. september. Það er almen* skoðun, að íhaldsflokkurinn sé allsigUi.-- stranglegur í kosningunum — og er þar bent á batnandi ástand í efnahagsmálum Bretlands og minnkandi atvinnuleysi síðustu mánuðina, og síðast en ekki sízt auknar persónulegar vinsældir Macmillans. ★ Neðri deild brezka þingsins er nú þannig skipuð, að íhaldsflokk urinn hefir 339 þingmenn, Verka- mannaflokkurinn 277, frjálslynd- ir 6 og óháðir tvo. Sex sæti eru auð. —■ Á kjörskrá eru nú rúmlega 35 milljónir manna. BONN, 8. sept: — Próf. Theodor Heuss, forseti sambandslýsðveld- isins Þýzkalands, lætur. af em- bætti £ næstu viku, en við tekur dr. Heinrich Lúbke. — Kom Heuss í síðasta skipti opinber- S S STARFSMENN flugmála- ) stjórnarinnar eru nú að ^ vinna að uppsetningu ljósa S við flugbrautina í Vest- ) mannaeyjum og er þess að ^ vænta, að flugsamgöngur S við Eyjar batni eitthvað við ! það. Rafmagnsstrengurinn \ hefur þegar verið lagður S meðfram brautinni og unnið s er að tengingu 50 brautar- • ljósa. Auk þess verður kom- S ið fyrir tveimur sterkum S ljóskösturum sem hvor um • sig hefur 1,000 kerta peru — S til þess að lýsa upp Sæfellið, S en það stendur við austan- ! verða brautina. Nokkr S um rauðum hindrunarljósum S verður líka komið fyrir uppi ! á fellinu. — Þá verður sett \ upp ein önnur gerð öryggis- S ljósa við flugbrautina í Eyj- i um, en þau eru einungis ■ flugmönnum til aðstoðar við S lendingu á syðri enda braut- ÁRNI KRISTJÁNSSON, skóla- stjóri Tónlistarskólans og Ragn- ar Jónsson, formaður Tónlista- félagsins, skýrðu blaðamönnum svo frá í gær, að sjö manna hóp- ur tékkneskra tónlistarmanna frá Tónlistarskólanum í Prag væri væntanlegur hingað tillands í boði Tónlistarskólans hér. Áður í vor hafði tónlistarskólinn í Prag boðið jafnstórum hópi íslenzkra tónlistarnemenda til Tékkó- slóvakíu. Er þetta í fyrsta sinn, sem nemendum Tónlistarskólans hér er boðið til annars lands og lega fram í dag, þegar hann opn- aði hinn nýja Beethoven-sal í Bonn, sem riotaður verður til hljómleika og alls kyns fundar- halda. Er stórhýsið skammt frá fæðingarbæ Beethovens. arinnar, sem liggur fram á ■ allháar klappir. Hér er um s að ræða tvör sterk ljós sem, ! eru sitt hvoru megin á enda • brautarinnar. Hvort ljósker- s ið um sig lýsir í þremur lit- ! um, gulum, rauðum og græn- ■ um, en ljósgeislum þessum ( er stefnt mismunandi hátt s upp í loftið. Flugvél sem er í • réttri aðflugshæð og lækkar s flugið jafnt og stöðugt alveg s að brautarendanum sér ) aldrei nmea græna ljósið. En ^ sjái flugstjórinn aðeins rauða s ljósið, þegar hann er í að- ! flugi, þá er hann of hátt — ^ en of lágt. ef hann sér gula s ljósið. — Vonazt er til, að ! hægt verði að táka þennan • ljósaútbúnað í notkun nú í ( haust og er þá ekkert lengur ! því til fyrirstöðu að flogið • verði að næturlagi til Eyja s — og bætir það vonandi eitt- s hvað úr samgöngunum. ! að skólinn fær slíka heimsókn. Þá hefur Tónlistarskólinn í Prag veitt einum íslenzkum tónlistar- nemanda styrk til framhalds- náms við skólann, og hlaut þann styrk Steinunn Bjarnadóttir, nemandi í fiðluleik. Tékknesku tónlistarmennimir, eru væntan- legir hingað á miðvikudag í næstu viku og munu dvelja hér í 10 daga, frá 16.—26. þ. m. — Fyrstu tónleikarnir verða haldn- ir hér í Reykjavik 17. og 18. þ.m. fyrir meðlimi Tónlistafélagsins, og verður eingöngu tékknesk tón- list á efnisskránni. Á Akureyri verða svo haldnir tónleikar þ. 19., í Mývatnssveit þann 20. og á Selfossi 22. — í förinnj, eru, auk fararstjórans, dr. Hubacek, þrír söngvarar, ein pínóleikari, einn fiðluleikari og einn klari- nettieikari. Þess má geta, að Tón- listarskólinn í Prag er elzti tón- listarskóli í Evrópu, stofnaður 1911, og 500 úrvalsnemendur úr Bæheimi stunda þar nám. Þá skýrði skólastjóri Tónlistar- skólans, Árni Kristjánsson, píanó leikari frá því, að stofnuð hafi verið, að tilhlutan menntamála- ráðherra, kennaradeild við skól- ann, sem sérmenntar og útskrif- ar tónlistarkennara við barna- unglinga- og framhaldsskóla, en samkvæmt upplýsingum fræðslu- málastjóra mun vanta um 40 söngkennara við almenna skóla hér á landi. Deildin tekur til starfa 1 október þessa mánaðar, og er námið að mestu leyti ókeypis og tekur tvö ár. Verða 12 til 15 nemendur í þeirri deild skólans í vetur. — Við skólann eru nú starfandi 20 kennarar, auk skólastjóra, og voru 179 nemend ur í skólanum síðastliðinn vetur. Á næsta ári verða 30 ár liðin síðan Tónlistarfélagið stofnaði skólann, en það hefur frá upp- hafi staðið undir rekstri hans. Félagsheimili fyr- ir nemendur MA f STUTTU símtali Mbl. við Þór- arin Björnsson, skólameistara MA, sagði 'nann að nú yrði haf- ist handa um að innrétta félags- heimili fyrir nemendur skóians i norðurenda heimavistarbygging- arinriar. Kvað skólameistari þetta lengi hafa staðið til. Víst er að þetta mun efla mjög félagslífið í skólanum og verða heimavist- arnemendum ómetanlegt. Hefur menntamálaráðherra veitt máli þessu mikinn stuðning, sagði skólameistari og er það von okk- ar að félagsheimilið verði til mikils gagns og ánægju fyrir nem endur skólans. Þessi stóri kassi stendur nú á götunni framan við bústað sendiherra Dana hér á landi. — Sendiherrann, Knuth greifi, er nú á förum. Mun hann halda af landi brott um næstu helgi. í gærkvöldi efndi Dansk-íslenzka félagið til kveðjuhófs fyrir sendiherrann, en kona hans er farin heim til Danmerkur fyrir nokkru. í þessum stóra kassa verður búið um innbú sendi- herrans. . (Ljósm. Mbl. M. Ö. Ant.) Heuss lœtur af embœtti Sjö tékkneskir tónlistar- menn vœntanlegir Kennaradeild stofnuð við Tónlistarskólann

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.