Morgunblaðið - 09.09.1959, Síða 3

Morgunblaðið - 09.09.1959, Síða 3
MiðviKudagur 9. sepf. 1959 MORCVNBL4Ð1Ð 3 I heimsókn hjjá „mjólkurdrottn- ingu" landsins Skrauta r Hjálmholti er eina íslenzka kýrin, sem farið hefir yfir 30 þús. fitueiningar í ársnyt BLÓMLEGU STU LANDSINS. BYGGÐIR I Þegar Þegar þessi beztu orð eru viðhöfð, mun oftar en hitt mega ganga að því vísu, að átt er við Suðurlandsund- irlendið svonefnda, þ. e. Ár- nes- og Rangárvallasýslu. Og þótt víða séu blómlegar byggðir í ýmsum landshlut- um, má finna þessum orðum stað á margan hátt. Þarna er mest samfellt undirlendi á Fróni og búsældarlegt vel, enda eru svæði þessi einhver hin ágætustu búnaðarhéruð á landi hér. Þar hafa verið gerð mikil mannvirki í þágu ís- lenzks landbúnaðar, og nægir þar að minna á svo ólíkar framkvæmdir sem Flóaáveit- una og Mjólkurbú Flóa- manna. Mikil þróun Ef við lítum á Arnessýslu sér- staklega, verður ljóst, að þar hef- ur t. d. orðið mikil og ör þróun á sviði nautgriparæktar, sér í lagi þó síðasta áratuginn. — Því má skjóta hér inn til fróðleiks, að s.l. ár var í sýslunni 6391 mjólkandi kýr (og um 2000 naut- gripir aðrir), eða miklu fleiri en í nokkurri annarri sýslu. — Næst kemur Rangárvallasýsla með 4781 mjólkandi kú 1958. Megfylgjandi tafla gefur allgóða talað er um Skrautu sem mjólkurkúna 1958, er átt við fitueiningafjöldann, enda verðmæti mjólkurinnar reiknað éftir því; en hún mun einnig hafa verið meðal hinna allra hæstu hvað mjólkurrnagn snerti. Og hér var ekki aðeins um að ræða bezta nyt eftir eina kú í fyrra, heldur jafnframt landsmet —- og svo við segjum frá þessu eins og hverju öðru íþróttaafreki, átti Skrauta einnig gamla metið — frá árinu áður (6.580 kg. mjólk, 4,7% meðalfita — 30.926 fitueiningar). Er hún fyrsta íslenzka kýrin, sem fer yfir 30 þúsund fitueiningar í ársnyt. Það, sem af er þessu ári, hefur Skrauta mjólkað um 4000 kg. — og fitan er enn í góðu lagi. Venjuleg kýr — í augum blaðamanna Það er einmitt hún Skrauta, sem er tilefni þessa greinarkorns. — Þegar við félagar, blaðamaður og Ijósmyndari Mbl., brugðum okkur austur fyrir Fjall á dög- unum, lögðum við m. a. leið okk- ar að Hjálmholti og leyfðum okk ur að tefja ofturlítið fyrir Ólafi bónda Ögmundssyni. Fórum við fram fu að fá að hitta Skrautu „að máli“ og taka mynd af henni til þess aS geta sýnt les- endum, hvernig landsins mesta mjólkurlind lítur út. Ólafur bóndi fylgdi okkur í kúahagann og benti okkur á Skrautu, þar sem hún lá í mak- indum og jórtraði — því að ekki þekktúm við hana úr hópnum. I augum okkar, hversdagslegra blaðasnápa, var þessi kostagripur Ar Stærð meðalbús: Verðgildi mjólkurinnar 1917 5,7 kýr kr. 25.468,00 1927 6,7 — — 38.170,00 1937 6.4 — — 38.874,00 1947 9,1 — — 58,258,00 1957 13,1 — — 105.638,00 hugmynd um fyrrgreinda þróun nautgriparæktar í Árnessýslu, en þar er reiknað út verðgildi mjólk ur á meðalbúi í sýslunni, að frá- dregnum kjarnfóðurkostnaði. Tölur þessar eru byggðar á skýrslum nautgriparæktarfélag- anna í sýslunni, en 5% eru dreg- in frá mjólkurmagninu fyrir eðlilegri rýrnun, og sömuleiðis er fituprósenta lækkuð frá því, sem er á skýrslunum, um 0,05% árið 1957 og 0.15% hin árin. Verðgildið hefur að öðru leyti verið reiknað eftir því verði, sem bændur fengu, heima á brúsa- palli, en kjarnfóðrið kemur til frádráttar eins og það kostaði heimkomið. — Þykir með þessu móti fást nokkurn vegin nákvæm útkoma. Að minnsta kosti mun hún ekki hagstæðari en efni standa til, að sögn Hjalta Gests- sonar, búfjárræktarráðunauts á Selfossi, en hann hefur unnið að þessum útreikningum. Fyrst yfir 30 þúsund fitueiningar Það mun engin tilviljun, að einmitt í Árnessýslu er að finna ýmsar af afurðabeztu mjólkur- kúm á landi hér — og þar er einnig „mjólkurdrottningin" 1958, sem ég vil leyfa mér að nefna svo, þ. e. a. s. nytbezta mjólkurkýrin það ár, Skrauta nr. 80 í Hjálmholti í Hraungerðis- hreppi. Mjólkurmagn hennar yf- ir árið nam 6.426 kg. (3000 kg. þykir flestum bændum þolanleg nyt) og meðalfitan 5,07%, en það jafngildir 32.580 fitueiningum. — ósköp venjuleg kýr — að vísu hin stæðilegasta og myndarleg- asta og fagurhyrnd, það sáum við. En að þar færi mesta mjólk- urgyðja landsins duldist borgar- vönum augum okkar. — Við reyndum þó að sýnast hinir spekingslegustu — og tuldruðum eitthvað um, að það væri svo Efri myndin: — Þannig lítur hún út, mesta mjólkurlind landsins — Skrauta í Hjálmholti. — Neðri myndin: — Kinna, dóttir „drottningarinnar“, er bráðefnileg kýr. — Þær mæðgur hlutu báðar þann frama að vera „stilit út“ á landbúnaðarsýningunni á Selfossi í fyrrasumar. (Ljósm. Mbl. M. Ö. Ant.) líkaði Markúsi ljósmyndara það — vildi fá meira á filmuna. En Skrauta virtist ekkert á því að láta taka mynd af sér, því að hún sneri sér alltaf undan, þegar ljósmyndarinn nálgaðist frá nýrri hlið. En þá beitti hann með- fæddri bragðvísi sinni, sem Skrauta sá ekki við. — Hún hélt auðsjáanlega, að hann hefði gef- izt upp við allt saman, þegar hann gekk í burtu og tók að- dráttarlinsuna upp úr pússi sínu. „Drottningin“ er ættstór Á meðan Markús var að glíma við að ná myndinni af Skrautu, rabbaði blaðamaðurinn við Ólaf bónda, en hann sagði m. a. ýmis- legt af ættum „mjólkurdrottn- ingarinnar", sem eru hinar merk- ustu á flesta grein. Og þó að undirritaður sé mesti rati í ætt- fræði, svo vel manna sem dýra, og lítill áhugamaður um þau ágætu vísindi, veit hann, að mörgum er öðru vísi farið, og skal því reynt að fara hér með það, sem Ólafur sagði um þetta Og hérna sjáið þið hana Maríu — hún er frönsk og var talin bezta mjólkurkýr heimsins árið 1954, mjólkaði rúm 12 þúsund kg. á 330 dögum. Svo Skrauta okkar er varla meira en hálf- drættingur á við hana. En fyrr má nú rota . — sem auðséð hvílíkur stólpagrlpur þetta væri. Ljósmyndarinn tók nú að munda myndavélina, mæla fjar- lægð, ljósmagn o. s. frv. eins og slíkra er siður, en Skrauta stóð seinlega á fætur — og sneri bak- hlutanum að myndavélinni. Ekki efni. Skrauta, sem nú er tíu ára gömul, fædd 1949, er dóttir Skjöldu nr. 64 í Hjálmholti, sem einnig var afburðakýr, og Mána nokkurs úr Sandvíkurhreppi, en sá var undan hinum fræga tarfi, Mána frá Kluftum í Hruna- mannahreppi, og Klauf á Túns- bergi í sama hreppi, sem var hin mesta gæðakýr. — Skjalda, móð- ir Skrautu, var aftur undan Sneglu 39 í Hjálmholti og Repp frá Kluftum. Þær Skjalda og Snegla voru einhverjar mestu kostakýr í sýslunni á sinni tíð, og hið sama má einnig segja um Gyðju, móður Sneglu. — En nú er komið „nýtt blóð“ í ættina. Kinna, dóttir Skrautu, sem nú er að öðrum kálfi og þykir hin efni- legasta kýr, á að föður Austra nokkurn frá Garðakoti í Mýrdal, sem er sonur Lukku á sama stað, gæðagrips, og Bílds frá Eyjarhól- um. Mýrdalskúastofninn, sem þykir gott kyn, ber sérstök ein- kenni í vaxtarlagi, og kippir Kinnu allmjög í það kyn um út- lit. Danskt kúakyn Kúaflotinn í Hjálmholti er ekki sérlega stór — 14 mjólkandi kýr — en kynið þykir mjög gott. — Hjalti Gestsson, ráðunautur, sem var með í förinni, hafði orð á þvi, er við vorum á leiðinni i Hjálmholt, að það væri ekkert nýtt að þar væru kostakýr. — Inntum við Ólaf bónda frekar eftir þessu, og sagði hann, að kýr sínar væru að öllum líkindum af dönskum komnar, langt í ættir fram. Hefði þetta danska kyn fyrst komið í Hjálmholt með ekkju Ólafs Stephensens stift- amtmanns) sem fluttist þangað í byrjun 19. aldar — Þessar ágætu kýr mundu síðan hafa dreifzt um sveitina, en nokkrar þeirra hefðu gengið í kvígildi til næstu búenda í Hjálmholti, a§ þvi talið væri, en þeirra meðal voru t. d. Þórður Sveinbjörnsson, sýslumaður, faðir Sveinbjörns Sveinbjörnssonar, tónskálds, og Páll Melsteð, sýslumaður. Ættmenn Ólafs Ögmundssonar hafa nú búið í Hjálmholti í rúma öld. Langafi hans, Þormóður Bergsson, fluttist þangað um 1850 — og hefur þá væntanlega fengið hið ágæta kúakyn, sem ekkja amtmannsins hafði flutt með sér í byrjun aldarinnar, í kvígildi frá Pál Melsteð. Og kyn- ið virðist enn halda sínum ágætu eiginleikum, þótt það sé allmjög blandað orðið. Kúakyn Ólafs bónda er nær allt af hinum upp- runalega stofni í móðurætt, en á hinn bóginn talsvert biandað hinu fræga Kluftakyni, svo sem áður er rakið um sjálfa „drottn- inguna“, Skrautu. Víðar eru kostakýr Þótt hér hafi aðeins verið rætt um kúakynið í Hjálmholti og stolt og prýði bóndans þar, hana Skrautu, þá eru víðar úrvalskýr í Árnessýslu, eins og áður er drepið á. Við getum t. d. nefnt af handahófi nöfn eins og: Snotra 31, Bollastöðum í Hraun- gerðishreppi, Ósk 11, Langholts- koti, Hrunamannahreppi, Erla 4, Tungu, Gaulverjabæjarhreppi og Dimma 19, Minni-Mástungum, Gnúpverjahreppi. — Allar eru þessar kýr frábærar mjólkur- lindir, sem hafa síðustu árin mjólkað þetta 5000—-6000 kg. og haft um 4 og allt að 5% meðal- fitu. — Hér eru aðeins nefndir örfáir af mörgum kostagripum þeirra Árnesinga —. og vonandi þykkjast ekki hinir, sem ónefnd- ir eru, þótt við lengjum ekki þessa upptalningu frekar. Þegar við ókum úr hlaði á Hjálmholti, eftir að hafa þegið hressingu hjá Ólafi bónda, var dimmt yfir og nokkur súld, og lo'ftið var úrsvalt. Komu þá ósjálfrátt í hugann orð Stephans G.: — Ég er bóndi og allt mitt á undir sól og regni. — En þótt tíðarfarið geti stundum orðið ís- lenzka bóndanum þungt í skauti, svo sem víða hefur gerzt í sumar, hljóta margar hamingjustundir að veitast þeim manni, sem býr með góða áhöfn á góðri jörð — og leggur alúð við ræktun lífs og lands. E. AKRANESI, 8. sept. — Dranga- jökull er hér í dag og tekur tæp- ar 200 lestir af frosinni síld til Englands og Vestur-Þýzkalands. Togarinn Akurey kemur í fyrramálið af veiðum við Vest- ur-Grænland með um 200 lestir fiskjar. — Oddur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.