Morgunblaðið - 12.09.1959, Page 2
2
MORCUHBLAÐIÐ
L'augardagur 12. sepi. 1959
Má vœnta stefnubreyfingar?
Afstaða Verkamanna-
flokksins til fiskveiöi-
deilunnar
MORGUNBLAÐIÐ spurðist
fyrir um það í gær hjá for-
mælendum brezka Verka-
mannaflokksins, hvort * gera
mætti ráð fyrir breyttri
stjórnarstefnu í Bretlandi að
því er landhelgismálið áhrær-
ir, ef flokkurinn fengi meiri-
Nætuiírost
ÞAÐ munu margir hugsa til hreyf
ings nú um helgina, fara í ber,
því ekki hefur verið veður til
þess að fara í berjamó nema fáa
daga síðan þau náðu nokkrum
þroska.
En þetta er ekki svona einfalt.
Því í nótt var næturfrost um
mikinn hluta landsins inn til
sveita. Var talið, að hér syðra
myndi það fara niður í 1—2 stig,
en nyrðra yrði það meira. — í
gærkvöldi klukkan 9, var aðeins
3 stiga hiti á Akureyri.
Veðurfræðingar sögðu Morg-
unblaðinu, að verði frostið 1—2
stig inn til sveita, muni frost við
jörðu geta orðið 2—5 stigum
meira. Er hætt við að berin verði
mjög kröm og erfitt verði að tína
þau af þeim sökum.
í dag mun draga til suðvestan-
áttar á Vestfjörðum og nokkrar
horfur eru á að á sunnudaginn
verði suðvestanáttin ríkjandi hér
Og þá mun aftur rigna.
Kulturhístorisk
Leksikon 4. bindi
komið út
KULTURHISTORISK Leksikon
for Nordisk Middelalder, 4 bindi,
«r komið út, myndskreytt og
vandað að öllum frágangi eins og
hin fyrri bindin.
Er rit þetta, sem kunnugt er,
gefið út af öllum Norðurlöndun-
um og fjallar um menningarsögu
leg atriði. Kom fyrsta bindið út
fyrir þremur árum, og var þá
áformað að verkið yrði í heild
10 bindi. En síðar hefir komið
í ljós, að efnið er svo veiga-
mikið, að verkið yerður a-m.k.
12 bindi í allt. Er fjöldi áskrif-
enda að verkinu hér á landi, en
umboð fyrir ritið hefir Bókaverzl
un ísafoldar.
Af íslands hálfu sitja í stjórn
ritverksins þeir Kristján Eldjárn,
Þorkell Jóhannesson, Magnús
Már Lárusson og Ólafur Lárus-
son. Ritstjórar verksins eru
menn frá öllum Norðurlöndun-
um, og þessa fjórða bindis þeir
Jakob Benediktsson og Magnús
Már Lárusson fyrir íslenzka efn-
ið.
hluta í þingkosningunum þar
í næsta mánuði.
í svari sínu sögðu ábyrgir tals-
menn Verkamannaflokksins, að
þeir teldu ólíklegt, að fiskveiði-
deilan kæmi mikið við sögu í
kosningabaráttunni.
Engin stefna
Þeir bentu á, að Verkamanna-
flokkurinn hefði ekki gefið neina
opinbera yfirlýsingu um stefnu
sína í deilunni, nema hvað af
hans hálfu hafi verið talið að
vísa bæri deilunni til Alþjóða-
dómstólsins í Haag og skyldi þá
jafnframt lýst yfir því fyrirfram,
að brezka stjórnin væri fús til
að lúta úrskurði hans. Einnig
væri flokkurinn hlynntur því, að
um málið væri fjallað á sér-
stakri sjóréttarráðstefnu á veg-
um Sameinuðu þjóðanna.
Engin gagnrýni
— Verkamannaflokkurinn hef-
ur nokkrum sinnum vakið máls
á deilunni í neðri deild brezka
þingsins, en aðeins til þess að
afla sér upplýsinga. Flokkurinn
hefur ekki sem slíkur lýst yfir
neinni gagnrýni á afstöðu
brezku ríkisstjórnarinnar, enda
þótt einstakir þingmenn hans
hafi flutt ræður, sem falið hafi
í sér gagnrýni á aðgerðir stjórn-
arinnar gegn íslendingum, sagði
einn af formælendum flokksins.
Grænlandsfarið Britannia frá Svendborg í Slippnum í gær.
íshafsfarið laskaðist
í FYRRADAG kom hingað til
Reykjavíkur, vegna bilunar
danska Grænlandsfarið Britannia.
Lenti skipið, sem var á leið frá
Grænlandi til Kaupmannahafn-
ar, í ís og skemmdist. Þó skrúfa
skipsins sé með sérstökum útbún
Rótarý - klúbbur
25
Reykjavíkur
Tilbúnir þegar
kallið kemur
MANILA, Filippseyjum, 10 sept.
— Varnarmáiaráðuneytið á Fil-
Ippseyjum tiikynnti í dag, að
Filippseyingar mundu standa við
skuldbindingar sinar við Sam-
einuðu þjóðimar og vænu reiðu-
búnir til þess að senda herlið á
vegum samtakanna tii Laos jafn-
skjótt og kallið kæmi. Filippsey-
ingar hafa orðið fyrstir til þess
að bjóða S.þ. herlið tU barátt-
unnar gegn innrásarher komm-
únista í Laos.
í GÆR skýrðu þeir Helgi Elias-
son, fræðslumálastjóri, Þorstemn
M. Jónsson og Guðmundur Hlíð-
dal blaðamönnum frá því, að Rót
arý-klúbbur Reykjavíkur ætti 25
ára afmæli 13. september þessa
mánaðar. Klúbburinn var stofn-
aður 13. september árið 1934, með
23 stofnendum, og var fyrsti Rót-
arýklúbbur á íslandi, en 3824.
klúbburinn í alþjóða Rótarý-
hreyfingunni. Guðmundur Hlið-
dal rakti sögu og markmið félags
skaparins og fórust honum orð
á þessa leið:
Markmið Rótarý-félagsskapar-
ins er að örva og efla þjónustu-
þel félaga sinna, sem grundvall-
arviðhorf þeirra til eigin starfa,
og sérílagi að fræða og efla:
1. Þróun viðurkenningar, svo
að hún verði tækifæri til þjón-
ustu.
2 Göfugt siðgæði í viðskiptum
og starfi, viðurkenning á gildi
allra nytsamra starfa og virðirg
hvers rótarý-félaga fyrir starfi
sinu.
3. Viðleitni hvers Rótarý-félaga
til að bréyta samkvæmt þjónustu
hugsjóninni í einkalífi sínu, at-
vinnu- og þjóðfélagsstörfum.
4. Efling samkomulags, góðvild
ar og friðar þjóða í millum með
heimilisfélagsskap manna í öll-
um starfsgreinum, er þjónustu-
hugsjónin tengir saman.
Rótarý er mannbætandi félags
skapur með sérstöku, fastmótuðu
félagskérfi. Rótarý er ekki leyni-
félagsskapur. í Rótarý getur eng-
inn sótt um upptöku, heldur eru
félagarnir kjörnir, einn fulltrúi
úr hverri starfsgrein, allt mætir
menn og á þann hátt áhrifaríkir.
Þessir menn eiga að koma saman
til fundar einu sinni í viku
hverri. Flestir félagsmenn eru
önnum kafnir hver í sinni starfs-
grein og er því venja að sameina
matmálstíma og fundartíma. Þess
ir vikulegu fundir verða til þess,
að félagarnir kynnast hver öðr-
um og fræðast hver af öðrum m.
a. um starfsgrein hvers annars.
Þetta eflir gagnkvæman skilning,
aukið víðsýni og vinarþel. Fund-
irnir verða aðþægilegri tilbreytni
til uppörfunar, fræðslu og and-
legrar vakningar. Þá eru á fund
um flutt erindi, bæði starfsgreir. i
erindi og erindi um hvers konar
önnur fræðandi mál, en stjórn-
mála- og trúmáladeilur eru ekki
leyfðar. Séu R-félagar á ferða-
lagi geta þeir bætt sér upp fundar
missi í heimaklúbbnum með því
að heimilt er hverjum einum fé-
laga að sækja fundi í öðrum Rót-
arý-klúbbum hvar í heimi sern
vera skal, en Rótarý-klúbbar eru
nú starfandi í flestum borgum
heims, óháð kynflokkum og trú
arbrögðum.
ara
Stofnun
Það var hugsjónamaðurinn
Paul Harris, sem var upphafs-
maðurinn að Rótarý-félagsskapn
um og stofnaði fyrsta Rótarý-
klúbbinn í Chicago árið 1905.
Rótarý-klúbbur Reykjavíkur
var stofnaður 13. sept. 1934, með
23 stofnendum, og var fyrsti Rót-
arý-klúbburinn á íslandi, en 3824.
klúbburinn í alþjóða Rótarý-
hreyfingunni. Nú (1959) eru 14
Rótarý-klúbbar á íslandi með
samtals 430 félögum, en 10.212
klúbbar alls á hnettinum með
samtals nálægt 500.000 félögum.
Klúbburinn var stofnaður frá
Danmörku og var Rótarý-klúbb-
ur Kaupmannahafnar móður-
klúbbur hans. 28 Rótarý-klúbbar
voru þá í Danmörku og Danmörk
—Island eitt Rótarý-umdæmi inn
an alþjóða Rótarý-félagsskapar-
ins.
Þótt ekki yrði úr stofnun
Rótarý-klúbbs í Reykjavík fyrr
en þetta, höfðu þó ýmsar tilraun-
ir og undirbúningur að stofnun
slíks klúbbs farið fram nokkurt
árabil þar á ilndan — allt frá
1924 eða jafnvel frá 1913. Þeir
af búsettum mönnum hér, sem
gengust fyrir klúbbstofnuninni,
voru Knud Zimsen fyrrv. borgar-
stjóri í Reykjavík og Ludvig
Storr aðalræðismaður, en frá
Donmörku komu hingað þessara
erinda þeir Helweg-Mikkelsen,
lyfsali, Georg Mathiesen aðal-
ræðismaður og Edward Christ-
gau, ræðismaður. Fyrstu stjóm
klúbbsins skipuðu þessir:
Forseti, Knud Ziemsen. Vara
forseti, Hallgrímur Benediktsson.
Ritari, Benedikt Gröndal. Gjald
keri, Ludvig Storr. Stallari, Ragn
ar Blöndal.
Eftir að Reykjavíkur Rótarý-
klúbburinn hafði verið stofnað-
ur 1934 með 23 stofnendum, fjölg-
aði félagsmönnum í klúbbnum
nokkuð, en þó fremur hægt, enda
stökkbreyting ekki æskileg. Eftir
3 ár, þ.e.a.s. á árinu 1937 voru
Rótarýklúbbar stofnaði á ísafirði
og Siglufirði. Árið 1939 var stofn-
aður klúbbur á Akureyri, á Húsa-
vík 1940 og í Keflavik 1945.
Þegar hér var komið, voru ís-
lenzku klúbbamir orðnir 6 með
137 félögum. Hinum mikla hild-
arleik milli þjóðanna var þá lok
ið og margt breytt, m. a. ísland
orðið sjálfstætt lýðveldi. Þótti
þá tilhlýðilegt og fyrir margra
sakir eðlilegt, að ísland yrði sér-
stakt, sjálfstætt Rótarý-umdæmi.
Sú sjálfstæðisbarátta reyndist til-
tölulega auðsótt, en tók þó tals-
vert langan tíma, því margra
formsatriða varð að gæta og al-
veg óvenjulegt að stofna svo fá-
mennt umdæmi. Danska umdæm
ið og dönsku klúbbarnir sýndu
aðdáunarverðan skilning og vel-
vild í þessu máli og allt fór fram
í sönnum Rótarý-anda. íslenzka
Rótarý-umdæmið var stofdað 1.
júlí 1946.
Nú eru Rótarý-klúbbarnir á fs-
landi orðnir 14 og félagatala 430.
Félagatala.
í Rótarý-klúbb Reykjavíkur
hafa á þessum umliðnu 25 árum
gengið samtals 90 félagar að með-
töldum stofnendum 23. Af þess-
um 90 eru 20 dánir, 4 fluttir burtu
og 3 hafa farið úr klúbbnum af
öðrum ástæðum. Félagatala er
því nú 63 að meðtöldum heiðurs-
félaga Ásgeiri Ásgeirssyni, for-
seta íslands, er var einn af stofn-
endunum, en af þeim eru 9 enn
á lífi.
Núverandi stjórn klúbbsins
skipa þessir:
Forseti, Geir Hallgrímsson,' Vara
forseti, Örn O. Johnson. Ritari,
Kristján Eldjárn. Gjaldkeri,
Viggo R. Jessen. Stallari, Þór
Sandholt. Fyrrum forseti, Sigur-
jón Sigurðsson.
aði til að varha því að ís lenti
£ skrúfublöðunum hafði ís kom-
izt að henni. Laskaðist skrúfan
svo, að skipta þurfti um skrúfu,
og var það gert hér í Slippnum.
Hafði skipið varskrúfu um borð.
Þá laskaðist skipið á stefni,
kom gat á það, þótt það væri
styrkt. Eins höfðu slingubretti
laskazt af völdum íssins. Viðgerð
skipsins lauk í gærdag og var
skipið tekið niður úr slippnum
síðdegis í gær og lagðist það við
Ægisgarðinn. Hélt skipið áfram
til Kaupmannahafnar í gær-
kvöldi. Britannia er um 800
tonna skip, hárautt á litinn eins
og íshafsförin dönsku eru jafnan.
□-
-□
Sýniiigu Harðar
lýkur á morgun
Sýning Harðar Ágústssonar list
málara hefur nú staðið yfir í
Listamannaskálanum í tvær vik-
ur og hafa 9 myndir selst. Sýn-
ingunni lýkur á morgun (sunnu-
dag), og því aðeins tækifæri ti!
að sjá hana í dag og á morgun
kl. 2—10.
Friðrik tnpnði
í 4. umierð
BLED, 11. sept. — Leikar fóru
þannig í 4. umferð á kanditata-
mótinu hér, að Tal vann Friðrik
Ólafsson og Fischer vann Glig-
oric. Smyslov og Benkö gerðu
jafntefli, en biðskák var hjá
Keres og Petrosjan.
p-----------------n
,Stúlkan á loftinu4
til ágóða fyrir
Leikarafélagið
LEIKFLOKKUR Róberts Arn-
finnssonar hefur £ sumar sýnt
hinn vinsæla gamanleik „Stúlk-
an á loftinu“ víðs vegar um land
ið og £ Reykjavík. Hafa sýningar
orðið átta. Leikritið hlaut lof-
samlega dóma og mikið hrós
leikhúsgesta.
Ekki vinnst tími til að hafa
nema eina sýningu ennþá vegna
anna leikaranna og verður leik-
urinn sýndur £ allra síðasta sinn
í Framsóknarhúsiau i kvöld kL
8,30. Allur ágóði af þeirri sýn-
ingu rennur til styrktarsjóðs
Félags islenzkra leikara, sem
nota hann til að styrkja leikara
til utanfarar o.fl.
Framburður her-
lögreglumannanna
HERLÖGREGLUMENN þeir,
sem voru á verði við flugskýlið
stóra á Keflavíkurflugvelli, um
kvöldið, er þeir i skjóli vopna
sinna létu starfsmenn flugmála-
stjórnarinnar, leggjast á jörðina,
voru í gær leiddir fyrir rétt og
yfirheyrðir. Hér var um tvo her-
lögreglumenn að ræða. Þeir
kváðust hafa fengið fyrirskipun
um að vera á verði á bannsvæði
við flugskýlið. Sá þeirra sem á
einkum hlut að máli hafði m. a.
skýrt svo frá.
Þegar hann hafi séð bifhjól og
bifreið koma að bannsvæðis-
mörkunum hafi hann skipað öku-
manninum að stöðva bílinn og
hafi hann gert það. Lögreglumað-
urinn segist hafa tilkynnt öku-
manninum að um bannsvæði
væri að ræða og spurt hvort
hann hafi haft skilríki til að fara
þar inná svæðið. Það hafi menn-
irnir ekki haft. Þá hafi her-
lögreglumaðurinn sagt þeim
að stíga úr bílnum með hendur
fyrir ofan höfuð og sagt þeim
að leggjast á grúfu á jörðina.
Annar herlögreglumaður er var
á verði þarna, hafi kallað á yfir-
mann þeirra, en á meðan hafi
sá er rak þá út úr bílnum stað-
ið yfir hinum liggjandi mönnum
og beðið fyrirskipanna. Þeir
töldu sig ekki hafa þekkt búning
f lugmálastj órnarstarf smanna.