Morgunblaðið - 17.09.1959, Blaðsíða 1
24 siftur,
46. árgangur.
203. tbl. — Fimmtudagur 17. september 1959
Prentsmiðja Morgunblaðsins
m íubi
Hermann Þórarinsson
Guðjón Jósefsson
Jón Pálmason
Einar Ingimundarson
Séra Gunnar Gíslason
Kári Jónsson
Óskar Levý
Andrés Hafliðason
Framboðslisti Sjálfstœð-
ismanna á Norðvestur-
, , , landi ákveðinn
| Sjiiklingurinn ók öku-;
| manni sjúkrabifreiðar-!
mnar....
FILIPSTAD,, Svíþjóð 16.
sept. (Reuter) — Sjúkra-
bifreiðin var á fleygiferð
með Lars Elma til sjúkra-
hússins í gærkvöldi, þegar
hún stanzaði skyndilega og
ljós slokknuðu.
Sjúklingurinn, berfættur
og klæddur náttfötum,
leysti ólarnar á sjúkrakörf-
unni, sem hann hafði verið
lagður í og fór á stúfana,
til þess að athuga málið.
Hann fann þá ökumann-
inn. Harald Persson, 57 ára
gamlan, liggjandi rænulaus
an fram á stýrið. Elma, sem
er skólastjóri héðan úr ná-
grenninu, lét hitasótt á háu
stigi ekki aftra sér, heldur
mjakaði ökumanninum til
hliðar, settist í sæti hans og
ók sjúkrabifreiðinni á á-
kvörðunarstað.
Þegar í sjúkrahúsið kom
lýstu Iæknar yfir því að
Persson væri látinn.
Brezkir hermenn
í varðhaldi
BONN, 16. sept. Reuter. — Fimm
brezkir hermenn frá bænum
Celle hér í nánd, voru settir í
varðhald í gærkvöldi, vegna árás
ar á þýzkan leigubílstjóra. Þeir
munu væntanlega verða bak við
lás og slá, þar til rannsókn máls-
ins kemst lengra á veg.
FRAMBOÐSLISTI SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS í Norðurlands-
kjördæmi vestra var ákveðinn á fundi á Siglufirði sl. sunnudag.
Listinn er þannig skipaður:
1. Séra Gunnar Gísíason, bóndi, Glaumbæ, Skagafirði.
2. Einar Ingimundarson, bæjarfógeti, Siglufirði.
3. Jón Pálnjason, bóndi, Akri, A-Húnavatnssýslu.
4. Guðjón Jósefsson, bóndi, Ásbjarnarstöðum, V-Húnavatnssýslu.
5 Hermann Þórarinsson, hreppstjóri, Blönduósi.
6 Kári Jónsson, verzlunarstjóri, Sauðárkróki.
7. Óskar Levý, bóndi, Ósum, V-Húnavatnssýslu.
8. Andrés Hafliðason, form. fulltrúaráðs Sjálfstæðisfél. á Sigluf.
9. Jón ísberg, sýsluíulltrúi, Blönduósi.
10. Jón Sigurðsson, bóndi, Reynistað, Skagafirði.
Framboðslistinn var samþykkt
ur í einu hljóði. Mikill áhugi rík-
ir meðal Sjálfstæðismanna í kjör
dæminu fyrir að vinna sem ötul-
legast að sigri lista síns.
Ástandið í Alsír rætti
á allsherjarþingi S.Þ.|
— en aðild kínverskra kommunista ekki |
NEW YORK og LONDON,
16. sept. — (Reuter-NTB).
DAGSKRÁRNEFND allsherj
arþings Sameinuðu þjóðanna
ákvað í dag, að ástandið í
Alsír skyldi verða rætt á þing
inu nú í haust, en vísaði jafn-
framt á bug tillögu Indlands
um að taka aðild kínverskra
kommúnista'til umræðu.
Þess í stað var samþykkt til-
laga frá Bandaríkjunum, sem fól
í sér, að vandamálið um fulltrúa
Ný Borgward-
bifreið
BREMEN, 16. sept. (Reuter) .—
Vestur-þýzku Borgward-bifreiða
verksmiðjurnar skýrðu frá því í
dag, að ný sex-strokka bifreið,
verði sýnd á Alþjóðabifreiðasýn-
ingunni í Frankfurt, sem hefst
á morgun.
í tilkynningu bifreiðaverk-
smiðjunnar var m.a. gefin sú lýs-
ing á hinni nýju bifreið, að hún
væri mikil aftan fyrir, framrúð-
an og rúðan að aftan væru sveigð
ar, til þess að útsýni væri sem
bezt. Fimm eða sex manns eiga
að geta setið í bifreiðinni, sem á
að geta náð 160 km hraða. Eld-
sneytiseyðsla hennar er um 13
lítrar á hverja hundrað km, skv.
því er framleiðendur herma. Bú-
izt er við að bifreiðin muni kosta
um 3.100 bandaríska dali.
Rannsóknarnefnd
fekin til starfa i Laos
— Mun leitast við að Ijúka störfum
á sem skemmstum tima
VIENTIANE, 16. sept. (Reuter)
— Rannsóknarnefnd Sameinuðu
þjóðanna hélt í dag fyrsta fund-
inn hér í sambandi við rannsókn-
ir sínar á átökunum milli stjórn-
arherja og kommúniskra upp-
reisnarmanna í norð-austurhluta
Laos.
Nefndinni fagnað
Mikill mannfjöldi fagnaði
nefndinni, þegar hún kom hing-
að í gær frá Bangkok á Thailandi.
Nefndin er, sem kunnugt er
kjörin af Öryggisráði S. Þ., tii
þess að kynna sér ástandið í land
inu. Fjórir helztu mennirnir í
henni eru formaðurinn, Shinichi
Shibusawa frá Japan, Habib
Bourguiba, sonur Túnis-forseta,
Ludovico Barattieri frá ftalíu og
herforinginn Heriberto Ahrens
frá Argentínu.
Átta til 10 þyrilvængjur, sem
rannsóknarnefndin mun hafa til
afnota við störf sín, eru væntan-
legar hvað úr hverju til flugvall-
arins hér í Vientiane.
Gerum allt, sem í okkar valdi
stendur
Sisouk Na Champassak, sem
gegnir störfum utanríkisráðherra
Laos, tók á móti nefndinni og
komst við það tækifæri m. a. svo
að orði: „Þjóð mín, sem frá fornu
fari hefur elskað friðinn — og
Kína í samtökunum yrði ekki
tekið til umræðu að sinni.
54 mál á dagskrá
í nefndinni var ákveðið að
mæla með upptöku 54 mála á
dagskrá allsherjarþingsins, þar á
meðal friðsamlega hagnýtingu
geimsins, áframhaldandi aðstoð
við flóttamenn í Palestínu og ör-
yggisgæzlu í löndunum fyrir
Sovézk rannsókn-
arstöð á tunglinu
LONDON, 16. sept. (Reuter) —
Sovéskir vísindamenn hafa nú I
hyggju að senda sjálfvirka rann-
sóknarstöð til tunglsins og á hún
að geta sent þaðan ýmsar upp-
lýsingar, sem að gagni geta kom-
ið við undirbúning að manna-
ferðum þangað.
Fimmtudagur 17. september
Efni blaðsins er m.a.:
Bls. 6: Söngskemmtun Engel Lund.
Vígsla Reynivallakirkju.
— 8: Hong Kong vegnar vel.
— 10: Mannfórnir og tímalirak (Frá
skákmótinu í Bled).
Kvenþjóðin og heimilið.
— 11: Með lögúm skal íand byggja.
— 12: Forystugreinin: „Gerum hreint
fyrir okkar dyrum“.
Utan úr heimi.
— 13: Árásarsamstarf Kússa og Þjóð-
verja Finnlandspistill.
— 15: Á stjórnarpalli (Bókardómur).
— 17: Af sjónarhóli sveitamanns.
Ljósmæðrafélag ísiands 40 ára.
— 22: íþróttir.