Morgunblaðið - 17.09.1959, Page 15
Fimmtudagur 17. sept. 1959
MORGVISBLAÐIÐ
15
Á stjórnpalli
Ingólfur Kristjánsson:
Á stjórnpallinum.
Saga Eiríks Kristóferssonar
skipstjóra.
Kvöldútgáfan, Akureyri 1959.
Vestfirðingar hafa frá öndveiðu
verið dugmiklir sjómenn og kunn
að landsmanna bezt til sjó-
mennsku, hvort heldur er við fisk
veiðar eða til ferða. Enda hefur
sjórinn verið Vestfirðingum þýð
ingarmeiri en öðrum landsmönn-
um bæði til fanga og ferða. Sam-
göngur voru víða á Vestfjörðum
næm eingöngu á sjó. Vestfirðing-
ar vöndust því'frá blautu barns-
beini við sjóinn og hann var þeim
í mörgu jafnþýðingarmikitl og
landið.
Það er engin tilviljun, að Vest-
firðingar hafa á þessari öld orðið
fremstir á hvaða sviði sjómennsk
unnar sem er. Við veiðar á vél-
skipum, togurum og í siglingum
með ströndum fram og milli
landa, og sama er að segja, hvað
viðvíkur landhelgisgsezlu og
björgunarstarfsemi ýmis konar.
Á öllum þessum sviðum hafa Vest
firðingar átt afburðamenn og
ekki sízt, þar sem björgunar-
starfsemin er og landhelgisgæzl-
an.
Af sögu landhelgisgæzlunnar
sést vel, að Vestfirðingar hafa
þar frá öndverðu verið í brjóst-
vörn. Það er frægt, þegar Hannes
Hafstein réðst til atlögu við
brezkan togara, Royalist, á Dýra-
firði 1895. Varð sú för fræg og
komu Bretar þar illa fram sem
oftar. Brezkur togari flutti Guð-
mund Barðstrendingasýslumann
og Snæbjörn í Hergilsey sem
fanga til Englands, litlu eftir alda
mótin. Brezkur togari tók Eirík
skipherra til fanga og flutti til
Englands árið 1924. Frá því segir
Eiríkur í ævisögu sinni.
Eiríkur Kristófersson er Vest-
firðingur að ætt og uppruna.
Skapgerð hans er fyrst og fremst
mótuð af lífsbaráttu forfeðra
hans við sjó og önnur störf tengd
sjónum. Karlmennsku og vík-
ingslund Vestfirðingsins, gætri
og þrautseigju sjómannsins, við-
brögð, er aldrei fatast, eru ein
kenni hans í. starfi. Þetta sézt
greinilega af hinn ágætu ævisögu
hans. Á stundum skynjaði hann
hættur, sem steðjuðu að á yfir-
náttúrlegan hátt, eins og hann
segir skýrlega frá í kaflanum:
Aðvarandi rödd. En þessi skynj-
un er einmitt arfur sæfarenda,
sem er forn að uppruna og heilla-
drjúgur
Eiríkur skipherra hefur frá
mörgu að segja. Ævi hans hefur
verið viðburðarík, enda hefur
hann sinnt þeim málum, sern
verða sviprík í sögunni þar sem
eru landhelgismálin. Hann kaus
ungur sjómennsku og ævistarfi
og hvikaði hvergi frá þeirri ætl-
un, þó Ægir reyndist stundum
hvikull og erfiður til lags. Hann
stundaði sjó á togurum og var
í siglingum til Spánar. Frásagnir
af þessu eru mjög skemmtilegar
og vel sagðar. En ég held, að flest
um muni leika mest í muna að
kynnast frásögnum hans af starf-
inu við landhelgisgæzluna. En
starf Eiríks á því sviði er fjöl-
þætt og hefur margt drifið á daga
hans þar. Hann hefur oft lent
í ævintýrum í sambandi við tog-
arahandtökur. En alltaf borið sig
ur af hólmi i leik við grálynda
og óhlýðna veiðiþjófa. Mér er sér
staklega í huga eftir lestur bók-
arinnar frásagnirnar: Tilraun til
að sigla Enok niður^ Fluttur til
Englands og Skammbyssuskip-
stjórinn.
Starf varðskipanna er fólgið i
fleiru en að taka veiðiþjófa í
landhelgi. Þeir þurfa oft að veita
bátum og fiskiskipum margskon-
ar aðstoð og vernda veiðarfæri
fyrir ágangi erlendra togara. —
Einnig hjálpa skipum, sem lent
hafa í hrakningum og bjarga sjó
mönnum úr sjávarháska. Björg-
unarstarfsemin er fjölþætt og
lýsir Eirikur skipherra henni að
nokkru. Má geta þess, að Eiríkur
hefur hjálpað skipum og er því
Ingólfur Kristjansson
af nógu að taka til frásagna. Mér
eru minnisstæðastir kaflarnir:
Björgun á jólakvöld, Northern
Crown á klettinum og Goðaness-
björgunin. Allir þessir kaflar eru
mjög heillandi til lestrar og eru
mjög fróðlegir, og er gaman að
kynnast þessum þætti í frásögn-
um Eiríks.
Síðasti kafli ævisögunnar heit-
ir: Tó'lf mílna stríðið. Er hann
eins og nafnið bendir til um starf
Eiríks skipherra, eftir að land-
helgin var færð út um tólf mílur.
Frásagnir Eiríks af atburðum
þeim, er gerzt hafa síðastliðið
ár í sambandi við landhelgisdeil-
una við Breta eru rnjög skemmti
lega sagðar. Það er mikilsvirði
að fá frásögn af þessum atburð-
um frá þátttakanda. Veit ég því,
að menn mun fýsa að lesa og
kynnast þessum kafla.
Bókin Á stjórnpallinum er
prýdd mörgum myndum og er
frágangur hennar hinn sæmileg-
asti.
Ég held, að Ingólfi Kristjáns-
syni hafi tekizt vel að færa í xet-
ur frásagnir Eiríks skipherra. — |
Bókin Á Stjórnpallinum er
Bókin er fjörlega rituð og er þó
látlaus í frásögnum öllum og ber
þess glöggan keim, að sögumað-
urinn er hvergi smeykur að segja
það, sem honum býr í brjósi,
enda hefur hann engu að leyna.
Varðstaða hans á stjórnpallinum
er Islandi til sóma.
Ég skai fúslega játa, að ég er
enginn spámaður; en hitt kæmi
mér ekki að óvörum, að þessi bók
verði uppseld löngu áður en hinn
venjulegi jólamarkaður bóka
jhefst.
Jón Gíslason.
Sendisveinn
röskur og ábyggilegur, óskast.
H. BENEDIKTSSON, H.F.
llafnarlivoli.
VINNA
Ungur maður óskast til afgreiðslustarfa í bifreiða-
deild vora.
Garðar Gíslason hf.
Hverfisgötu 4—6.
Auglýsendur!
Dlorigtittlilabiti
er
helmingi útbreiddara
en nokkurt annað
íslenzkt dagblað.
☆
Blaðið er nú sent
öllum þeim, er áður
fengu „ísafold og Vörð“.
og er bví lesið á
flest öllum bæjum
dreifbýlistns.
☆
fi*i>r0íWíral>l&Sii&
er blað ailra landsmanna.
Höfum fengið glæsilegt úrval af
gardínuefnum
Komið meðan úrvalið er mest.
Strigo prjónavélar
Hin vandaða svissneska prjónavél STRIGO óskar að
stækka sölukerfi sitt í Svíþjóð. Vill þess vegna kom-
ast í samband við sölumenn, sem hver á sínu svæði
hefðu áhuga fyrir þessari vörutegund. — Skriflegar
umsóknir með öllum nánari uppl. sendist til:
Akts SYNA
Ved Godsbanegaarden 2 — Köbenhavn V
By 9501.
Sk.riístofustúlka
Heildverzlun óskar að ráða til sín skrifstofustúlku tfl
almennra skrifstofustarfa. Þarf að hafa góða vélrit-
unarkunnáttu. Umsóknir með sem ítarlegustum upp-
lýsingum, merktar: „Skrifstofustörf — 9082“ send-
ist afgr. Mbl. fyrir 19. þ.m.
Ráðskona og
aðstoðarstúlkur
óskast í mötuneyti. Upplýsingar í Ráðn-
ingarskrifstofu Reykjavíkurbæjar.
Sogsvirkjunin.
Orðsending
frá Húsmæðraskólanum á
Löngumýri í Skagafirði
Kennsla hefst í húsmæðraskólanum á Löngumýri 15.
október n.k. Hægt er að bæta við nokkrum nemendum
vegna forfalla. Meðal náms og dvalarkostnaður á nem-
anda varð s.l. vetur kr. 5.400,00. Æskilegt er að fyrrver-
andi nemendur og aðrir sem ætla að stunda verkqám í
skólanum mæti.þar 15 október. Bóklegt og verklegt nám
fyrir unglingsstúlkur 14 ára og eldri hefst á Löngumýri
15. október. Umsóknum fylgi afrit af fullnaðarprófs-
vottorði.
< SKÓLASTJÓRI.
Húsnœði til leigu
önnur hæð í steinhúsi á góðum stað
í miðbænum er til leigu frá 1. okt. Væri
hentugt fyrir skrifstofur, læknastofur,
matstofu o. fl. Húsnæðið er: allstór salur,
stofa, eldhús, snyrtiherbergi, innri og
ytri forstofa. Húsnæðið er í mjög góðu
ásigkomulagi.
Tilboð merkt: „333 — 9180“ sendist
Morgunblaðinu fyrir 23. þ.m.