Morgunblaðið - 17.09.1959, Page 23
Fimmtudagur 17. sept. 1959
MORCTJNBÍ 4Ð1Ð
23
Callas og Onassis
Samvistir þeirra vekja enn mikla athygli
Jón Gíslason -
minningarorð
HANN lézt hér í bænum 10. sept.
Hafði hann orðið bráðkvaddur
niður við verkamannaskýl i. Jón
var fæddur í Gröf í Hrunamanna
hreppi 25. nóv. 1890, en fluttist til
Reykjavíkur með foreldrum sín-
um og systkinum árið 1902. 17
ára gamall fór hann að læra skó-
smíði hjá Jóni Stefánssyni skó-
smíðam., sem þá hafði vmnu-
stofu á Laugav. 12 hér í bæ, en
námi lauk hann hjá Oddi Bjarna
syni sem þá hafði vinnustofu og
verzlun á Vesturg. 3. Jón þótti
snemma afgbragðs skósmiður,
enda var sótzt eftir í þá daga að
ganga í skóm «ða vaðstígvélum
smíðuðum eftir Jón Gíslason.
Seinna hætti Jón svo skósmíð-
inni og fór að vinna alla algenga
vinnu og vann í mörg ár hjá
Reykjavíkurbæ. Á yngri árum
Var Jón glæsilegur maður, fríður
sýnum og gjörvilegur. Hann var
söngmaður góður og gleðimaður
á stundum og söng þá oft í karla-
kórum, meðal annars var hann
stofnandi Karlakórs Iðnaðar-
manna og söng i þeim kór í mörg
ár. Einnig mun hann hafa sung-
ið í Fríkirkjunni á tímabili. Þann
ig liðu árin og lífið brosti við
honum enda eftirsóttur á gleðinn
ar stundum, og var þá ósjaldan
skálað í dýrum veigum, enda var
hann hraustur og sást !ítt fyrir.
Jón var tvíkvæntur og átti með
konum sínum 4 börn og eru tvö
þeirra á lifi, Gísli og Þórður, en
Karl og Herdís dóu ung. Hann
sleit samvistum við konur sínar
eftir stutta sambúð.
Þannig er saga þessa frænda
míns í stuttu máli sem við kveðj-
um nú í dag, er óblíð veðrátta og
ill örlög voru búin að hafa sín
áhrif á áður en hann dó.
Nú þegar þú ert farinn frá
okkur, minnumst við margra
gleðistunda, sem þú hefur veitt
okkur með nærveru þinni og ósk-
um þér góðrar ferðar til ókunna
landsins.
Þ. K.
Fjallferðin úr
Hreppunum liafin
HÆLI, Hreppum, 16. sept. —
Fjallferðin er byrjuð. I gær fóru
sex menn í lengstu leit, inn í
Arnarfell. Fjallkóngur Hreppa-
manna, bændaöldungurinn Jó-
hann á Hamarsheiði, fór í fjall-
ferðina með sexmenningunum.
Er réttað í Skaftholtsréttum 24.
þessa mánaðar og munu Hreppa-
bændur fá af fjalli svipaða tölu
fjár og í fyrra, um 12.000. — St.G.
MBL átti í gærkvöldi tal við
Stefán líjörnsson forstjóra
Mjólkursamsohinnar hér í bæ
og spnrðist fyrir um hvernig
fólk hefði tekiS þeirri nýjung,
að mjólkin væri seld i pappa-
umbúðum.
Stefán Iét vel yfir móttök-
um þeim er þessi nýjung fékk
í gær, en það var fyrsti dagur-
VATIKANINU og GLYFADA, 16.
sept. Reuter. — Söngkonan María
Callas ætlaði í dag að fara til Bil-
bao flugleiðis með tveggja
hreyfla einkaflugvél olíukóngsins
Aristoselesar Onassis, og stend-
nr för þessi í sambandi við fyrir-
hugaða söngskemmtun á Spáni.
Onassis hótar ljósmyndara
Ekki hefur tekist að afla nán-
ari upplýsinga um brottför söng-
konunnar, enda hvílir yfir henni
slík leynd, að ætla mætti að
um hernaðarleyndamál væri að
ræða. í gærkvöldi hótaði Onassis
ljósmyndara einum, að „brjóta
ekki myndavél yðar — heldur
höfuð“, ef hann tæki mynd af
þeim Callas í dansi.
Þetta skeði fyrsta kvöldið sem
þau fóru út, eftir að þau komu
til Glyfada, um 16 km fyrir ut-
an Aþenu, með lystisnekkju olíu-
kóngsins s.l. mánudag. Þau Call-
as og Onassis vísá enn á bug
öllum orðrómi um að þau elsk-
ist. „Ég er hér í viðskiptaerind-
um“, segir Onassis, „og Maria
kom hingað til þess að hvíla sig,
því að þess þurfti hún með.“
Siðferðilegt íhugunarefni
Fólk viða um heim fylgist af
áhuga með því sem gerist hjá
þeim Callas og Onassis. Eitt af
dagblöðum Vatikansins sagði í
dag, að frásagnir blaða og tíma-
rita í Róm af samvistum þeirra
-- Rannsóknarnefnd
einungis keppir að friðsamlegn
sambúð við nágranna sína, hefur
orðið fórnardýr utan að komandi
árásar.“
Formaður nefndarinnar, Shib-
usawa, lét svo ummælt, að nefnd-
in mundi þegar byrja að afla sér
upplýsinga um málið, hvar
sem þeirra væri að leit, og sagði
að nefndin hyggðist ekki dvelj-
ast lengi í Laos. „Við erum reiðu-
búnir til að gera allt sem í okkar
valdi stendur, til þess að leysa af
höndum það verkefni, sem Ör-
yggisráðið hefur falið okkur með
ályktun sinni“, sagði hann.
Meðan þessu fór fram, hafa
kínverskir kommúnistar og
kommúnistastjórnin í Norður-
Viet-Nam lýst yfir stuðningi við
tillögu Sovétríkjanna um að efr.t
verði til ráðstefnu um málið með
þeim aðilum, er árið 1954 tóku
þátt í ráðstefnunni í Genf, sem
leiddi styrjöldina í Indo-Kína til
lykta. Þessari tillögu hefur hins
vegar verið vísað á bug af ýms-
um þjóðum, þ. á m. Bandaríkja-
mönnum og Frökkum. Hafa þeir
síðarnefndu m. a. bent á að Sam-
einuðu þjóðirnar hafi nú þegar
tekið málið í sínar hendur. .
Nýjar árásir kommúnista
Seint í gærkvöldi bárust fregn-
ir af enn nýjum átökum í norð-
austurhluta landsins, en ekki var
unnt á því stigi málsins að greina
nánar frá, hversu alvarleg þau
væru.
inn sem slík mjólk var til sölui.
Sneinma dags voru birgðir
þær, sem sendar höfðu verið
mjólkurbúðum, uppseldar og
er ekki gott um það að segja
hvort svo skjót sala hefir or-
sakast að nýjabruminu sem á
þessu var, eða þeim hægðar-
auka sem þetta veldur almenn
ingi.
myndu ásamt fregnum af skiln-
aðarmáli Ingrid Bergman og
Robero Rosselini fylla samanlagt
um 426 feta langan blaðadálk.
Annað blað er með svipaða út-
reikninga og segir þá ekki hugs-
aða sem stærðfræðiæfingu, held-
ur siðferðilegt íhugunarefni.
Gagnkvæmar
kveðjur
LAUST fyrir klukkan níu á
þriðjudagsmorgun barst forsætis
ráðherra, Emil Jónssyni, svo-
hljóðandi skeyti frá N. Krúsjeff,
forsætisráðherra Ráðstjórnarríkj
anna, en flugvél hans var þá yfir
íslandi, á leið sinni til Bandaríkj
anna:
„Á flugi yfir tslandi sendi ég
yður og hinni íslenzku þjóð vin-
arkveðjur og árnaðaróskir.
Nikita Krúsjeff".
Forsætisráðherra svaraði kveðj-
unni um hæl með svofelldu
skeyti:
„Ég þakka yður, herra forsætis
ráðherra, árnaðaróskir yðar, sem
ég og þjóð mín metum mjög mik-
ils._
Ég vona, að fundur yðar og
Bandaríkjaforseta verði árang-
, ursríkur til góðs fyrir allar þjóðir
heims.
Emil Jónsson“.
(Frá forsætisráðuneytinu).
— Skákmóíið
Framh. af bls. 10
kóngi svarts, en er ekki kominn
langt, þegar hinn sterki riddari
Petrosjans tekur að rusla til í
herbúðum andstæðingsins, sem á
veikan biskup í staðinn. Þegar
biskupinn loks kemst í spilið,
hefur Petrosjan unnið peð og
komið einu frípeða sinna allt upp
á sjöundu línu. Með slíkan vá-
gest fyrir dyrum, getur Fischer
naumast búizt við að bjarga bið-
skákinni, einkum þar sem hann
hefur hvorki frípeð sjálfur, né
raunhæfa sókn.
Eldri kynslóðin, þeim Smysloff
og Keres, leiða saman hesta sína
í Spænskum leik. Keres virðist
vera með eitthvað nýtt í poka-
horninu og leikur hratt og djarf-
lega. Brátt nær hann að skipta
upp í endatafl, þar sem hann hef-
ur yfirráð yfir öllum helztu sam-
gönguleiðum. Smysloff er nú
kominn í tímaþröng, og tekst þá
Keres að véla af honum peð.
Síðan fer skákin í bið.
Biðskákir 9. september.
Smysloff — Tal 1—0 '
Keres — Fischer 0—1
Friðrik — Benkö 0—1
Fischer — Petrosjan 0—1
Smysloff — Keres 0—1
Þegar við Tal borðum saman
morgunverð, er hann ennþá von-
góður um að bjarga skákinni,
sem hann segir að Smysloff hafi
teflt mjög vel. Sagt er að Fischer
hafi einnig von um björgun á
móti Petrosjan, en allt fer þó
samkvæmt áætlun. Hvílíkur dag-
ur! Ekki einungis Keres, Tal og
Friðrik liggja í valnum, heldur
Samkomur
Hjálpræðisherinn: — Fimmtudag
kl. 20,30: Almenn samkoma. —
Fagnaðarsamkoma fyrir Birgit
Jostad frá Noregi. Allir velkomn
ir. —
Fíladelfía
Almenn samkoma kl. 8,30. —
Kristín Sæmunds og Ester Nils-
son tala. Allir velkomnir.
Mjólkinni í pappaumbúð
unum var vel tekið
einnig Smysloff, sem í siðustu
tveim áskorendamótum tapaði
aði aðeins einni skák í hvoru
móti, og loks verður undrabarnið
ameríska, í fyrsta sinn á ævinni,
að gefast.upp fyrir Rússa.
1 skákinni Smysloff—Tal nær
hinn fyrrnefndi að koma hrók
sínum inn í raðir óvinanna, er þá
framhaldið aðeins tæknilegt. Tal
gefst svo upp, þegar hann getur
ekki lengur spyrnt á móti frípeði
andstæðingsins.
Fischer leikur, sem áður, hratt
og nákvæmt á móti Keres. Brátt
tekst drengnum að vinna hið
þýðingarmikla peð, sem hann
hefði átt að drepa þegar í 31.
leik, eins og áður segir. Á hann
nú tvö samstæð frípeð og kostar
annað þeirra riddara. í tíma-
þröng og vonlausri stöðu verður
Keres svo mát á miðju borði.
Fallegur endir á mikilli baráttu-
skák milli elzta og yngsta þátt-'
takandans.
Friðrik verður brátt að gefa
mann fyrir hið hættulega frípeð
andstæðingsins. Framhaldið er
auðvelt fyrir Benkö, og Friðrik
gefst upp í 55. leik.
Fischer reynir að verjast
Petrosjan með taktískum brell-
um, en er mjög bundinn sökum
hins hættulega frípeðs. Rússinn
hrekst að vísu með kóng sinn um
hálft borðið, en öðru hverju hef-
ur hann þó tíma til að ýta tveim-
ur nýjum frípeðum áleiðis. Loks
hafa þau lallað upp á sjöttu og
sjöundu línu. Þá berst skyndilega
kliður um salinn Fischer hafði
séð sér leik á borði að vinna eitt
af frípeðum andstæðingsins og
lætur þá ekki bíða boðanna, þar
sem hann er að reyna að pressa
andstæðinginn á tíma. Eftir svar
Petrosjans sér Fischer loks þann
kost . vænstan að gefast upp.
Brosandi stöðvar hann klukkuna
og tekur í höndina á andstæð-
ingnum. Þeir tímar eru liðnir
þegar slíkum athöfnum fylgdu
tár á kinnum.
Keres teflir biðskákina við
Smysloff með sama glæsibrag og
fyrrihlutann. Þegar hann er kom-
inn með nokkur peð yfir í hróks-
endatafli, sér fyrrverandi heims-
meistari að ekki verður feigum
forðað og hættir hinni vonlausu
baráttu.
Radíofónn til sölu
úr haghony, með Garrad 3ja hraða plötuspilara og
„Hifi 3-dimension“ hátalarakerfi, FM-bylgju og
banddreifingu á stuttbylgjum.
Ásvallagötu 46 HI. kl. 20—22. Sími 10461.
Lokað
eftir hádegi í dag vegna jarðarfarar.
Kassagerð Reykjavíkur h.f.
Móðir okkar
ANNA JÖNSDOTTIR
andaðist að heimili sínu Stórholti 30, 15. þ.m.
Börnin.
Dóttir okkar
ÞURÍÐUR ELlN
verður jarðsett frá Fossvogskirkju föstudaginn 18. sept.
Athöfnin hefst kl. 1,30 e.h. Blóm afþökkuð.
Sigríður Gísladóttir, Guðmundur Bjarnason,
Ljósvallagötu 32.
Móðir mín
GUÐRtJN JÓNSDÓTTIR
frá Fáskúrðsfirði,
sem lézt 13. þ.m. verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
föstudaginn 18. þ.m. kl. 10,30 fh. Athöfninni verður
útvarpað. Blóm afbeðin, en þeim sem vildu minnast
hinnar látnu er bent á líknarstofnanir.
Sólveig Bjarnadóttir.
Þakka innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðar-
för systur minnar
RÓSU ELÍNAR VIGFtíSDÓTTUR
Sigurveig Vigfúsdóttir, Óðinsgötu 17.
Hugheilar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu
okkur vináttu við andlát og útför
JÖRUNDAR ODDSSONAR
aðalbókara.
María Pétursdóttir og börn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför
ÓLAFS ÓLAFSSONAR
Ólafsvöllum, Vestur-Landeyjum
Þorgerður Guðmundsdóttir,
Signý Ólafsdóttir, Sigurbjörg Ólafsdóttir,
Sigurgeir Guðjónsson.