Morgunblaðið - 24.09.1959, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 24.09.1959, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 24. sept. 1959 MOJtcrnvnLAÐih 11 enda þaulkunnugur öllum stað- háttum. Óvarinn hópur Evrópu- manna hefur ekki farið um Cas- bah árum saman ,svo þetta er sögufrægur viðburður. Forsalur helvítis Enginn nema Edgar Allan Poe gæti til fullnustu lýst þeirri tveggja tima göngu sem við átt- um fyrir höndum. I>að er engu líkara en maður hafi af slysni rat- að í forsal helvítis! Strætin eru varla meira en tveggja faðma breið og víða mjórri. Þau minna einna helzt á mjóar og illa lýstar kjallaratröppur. Þrepin virðast endalaus í allar áttir, hvergi er meira en tveggja fermetra jafn- slétta. Á báðar hendur rísa há hús og slúta fram yfir strætin, þann- ig að rétt sér í örmjóa rör.d at himinhvelfingunni. Hingað hefur áreiðanlega ekki einn einasti sól- argeisli villzt öldum saman, enda er loftið hlaðið daunillum, köld- um raka sem smýgur inn í beinin. Strætin eru blaut og gierhál a köflum, þakin matarúrgangi og allrahanda rusli. Sums staðar tek ur fyrir alla birtu, og þá fikrar maður sig áfram eins og biind- ingi væntandi þess við hvert fót- mál að hnjóta um hræ af ketti eða líka af helsoltnum vesalingi. Börnin Börnin eru eíns og mý á mykju skán í allra bókstaflegasta skiln- ingi. Þau hópast í allar gættir og hinna tveggja heilögu prinsessa sem tóku sitt eigið líf af hreinleik hjartans. Þær höfðu setið í höll föður síns, firrtar vammi og van- helgum hugrenningum, en einn daginn varð þeim litið út um glugga og komu auga á karl- mann, sem fór hjá höllinni. Þeim varð svo mikið um þessa van- helgun augna sinna, að þær sviptu sig lífi báðar tvær, og eru síðan tilbeðnar og tignaðar af þessum litla hópi hjartahreinna manna í hvítum kuflum. Áður en við kveðjum Casbah heimsækjum við annan helgidóm, stærri, sem helgaður er Sidi Abderamane, heilögum manni frá 15. öld, sem er sérstakur vinur kvenna í bamsnauð. í musteri hans eru nokkrar þung- aðar konur, sem leita verndar hans, og óbyrjur, sem biðja um ávöxt lenda sinna. í musterinu eru tvö rúm uppbúin, rúm hins helga manns og sællar konu hans. En fyrir utan er krökkt af örkumla betlurum. Þetta sama líf sá áreiðanlega sú merka kona Guðríður Símonar- dóttir, sem á að hafa fært okkur krosssauminn frá Algeirsborg. Casbah er í vissum skilningi eins konar frystiklefi fortíðarinnar, þar er allt óbreytt frá í árdaga, nema eymdin vex og getur fleiri börn. Það er komið kvöld þegar við komum á hótelið eftir fullfermd- an dag. Það er lítið á því að Hárið er prýði konunnar, segir gamalt máltæki, og það verður aldrei úrelt. Gljáandi og létt hár, sem mikið loft er í, ber vitni um að það sé burstað oft og oft þvegið. Það er líka alltaf fallegt. Slétt hár, sem ekkert permanent er í, lítur meira að segja vel út, ef það er vel hirt — og vel klippt. Þessar tvær hárgreiðslur eru nú í tízku. Sú til hægri er frönsk og nefnist „snagarnir", vegna þess að hárið stendur út eins og snagar báðum megin í vöngunum. Hin er ítölsk og nefnist „geishu-hárgreiðslan“. Þeirri greiðslu er spáð miklum vinsældum, ekki sízt af því Paola prinsessa, kona Alberts Belgíuprins, hefur oft sést svona greidd. Sumarhöllin í Algeirsborg glufur eða híma upp við húsvegg ina og stara á mann stórum, tóm- um augum, horuð, föl, skítug, berfætt og klæðlítil og sum þeirra auðsæilega fársjúk af sól- arleysi og næringarskorti. Hér sér maður það betur en viðast annars staðar, hve eymdin er ör- lát á börn. Og samt bregður fyrir brosi á andliti einstaka barns, en það er sólarlaust bros. Þá erum við allt í einu stödd í „verzlunarstræti", þar sem búð- irnar standa hlið við hlið, ein á hverju þrepi, framveggjalausar. Kjöt í öllum hugsanlegum til- brigðum liggur á búðardiskurum, hrátt eða soðið ,en ævinlega urr.- leikið flugnaskara. Þarna má fá kindahausa, bæði hráa og sviðna upp á íslenzkan máta. í surrum búðanna stendur kaupmaðurinn við eldamennsku, og römmum matarilmi slær fyrir vitin, sem er fróiyi, því þá hverfur fúkka- þefurinn um stund. í öðrum búð- um sitja sællegir, óhreinir prang- arar bak við diskana og bíða kaupandans með næstum ójarðn- eskri þolinmæði. Á stöku stað eru börn að háma í sig gumsið með soltinni áfergju. Fyrir kemur að kerling sendir okkur tóninn. Henni finnst sýnilega nóg um þessa hnýsni í einkamál eymdar innar. Og samt kvað enginn hlut- ur vera erfiðari en að fá þetta fólk til að flytjast burt í hollari húsakynni. Helgidómar Og áður en við áttum okkur höfum við verið leidd í friðsælan garð að húsabaki — á helgan stað. Það er föstudagur og nokkr- ir menn á ýmsum aldri sitja flöt- um beinum á mottum sinum í til- beiðsluástandi, þyljandi bænir af bókum. Þeir taka okkur vel og benda á lítið, hvítkalkað, snot- urt hús í horni garðsins. Það er helgidómurinn og geymir leifar græða að líta í bæinn eftir kvöld- matinn. Einasti „næturklúbbur" borgarinnar er dauflegur enda er borgin sofnuð um miðnætti, en klukkustUnd síðar er útgöngu- bann sem stendur til kl. fjögur. Dauð borg að næturlagi, en ið- andi af fjöri og framtaki á dag- inn — enda veltur framtíð lands- ins að verulegu leyti á afdrifum hennar. Stelán Jónsson Irá Galtarholti — minnin^ STEFAN JONS'SON frá Galtar holti var jarðsunginn frá Dóm- kirkjunni mánudaginn 10 ágúst. Hann var fæddur 22. júní 1878 að Galtarholti í Borgarhrepp Mýyasýslu. Faðir hans var Jón hreppstjóri Jór.sson Guðmunds- sonar Björnssonar frá Höfn í Melasveit. Guðmundur var bróð- ir Snorra á Húsafelli, og flutti að Galtarholti. Móðir Stefáns var Þórunn Kristófersdóttir Finnbogasonar bónda á Stóra-Fjalli í Borgar- hrepp, en kona Kristófers var Helga dóttir Péturs Ottesens sýslumanns að Svignaskarði. Stóðu að Stefáni merkar og dug- andi ættir. Stefán átti mörg syst- kin og öll dugnaðar og mann- kostafólk og kvaddi síðastur hér vist. Stefán var sjómaður um fjölda Héra&sfundur Barða- strandarprófasfsdœmis HÉRAÐSFUNDUNDUR Barða strandarprófastsdæmis var hald- inn á Patreksfirði 5. sept. Mætt- ur var meiri hluti presta og safn aðarfulltrúa prófastsdæmisins, auk nokkurra sóknarnefndar- manna. Prófasturinn, séra Jón Kr. ísfeld, Bíldudal, flutti yfirlit yfir helztu kirkjuleg tíðindi, sem gerst höfðu í prófastdæminu frá því síðasti fundur var haldinn. Skákmótið í Firðinum HAFNARFIRÐI. _ Eftir sjöttu umferð á Septembermótinu er Jónas Þorvaldsson efstur með 3% vinning og eina biðskák, en 3% vinning hafa einnig hlotið þeir Jón Pálsson, Eggert Gilfer og Kári Sólmundarson, Stígur Herlufsen, Jón Kristjánsson, Sigurgeir Gíslason og Þórir Sæ- mundsson hafa 3 vinninga, Birg ir Sigurðsson 2 og Skúli Thorar ensen 1 vinning og biðskák. Á .sunnudaginn fóru leikar sem hér segir: Eggert Gilfer vann Jón Pálsson og Kári vann Birgi. Jafntefli gerðu Jón Krist- jánsson og Þórir og Sigurgeir og Stígur. ■— G.E. Ennfremur nokkur almenn kirkjutíðindi. Séra Sigurvin Elí- asson var settur prestur 1 Flatey á s.l. ári. Er því aðeins Brjáns- lækjarprestakall óveitt í prófast- dæminu. Tvær kirkjur eru í smíðum, í Breiðuvík og á Reyk- hólum. Ein kirkja er nýbyggð Skálmarnessmúlakirkja, en er óvígð. Margar kirkjur í prófast- dæminu hafa verið endurbættar og málaðar. Þá flutti prófastur yfirlit yfir messur, skírnir, ferm ingar, altarisgöngur o.fl. Að loknu yfirlitinu hófust um- ræður um ýmis mál, svo sem prestskosningar, húsvitjanir, kirkjusókn, kristnidómrfræðslu barna og störf presta í íélags og sveitamálum. Urðu umræður al- mennar og í sumum málum gerðar ályktanir, sem snertu prófastsdæmið aðallega. Fundarmenn sátu kvöldverðar boð prestshjóna staðarins og að loknum fundi um kvöldið bauð sóknarnefndin fundarmönnum í kaffisamsæti. Sunnudaginn 6. sept. voru í sambandi við fundinn messur, bæði á Patreksfirði og í Sauð- lauksdal. Kirkjukór Patreks- fjarðau annaöist söng á báðum stöðunum undir stjórn Stein- gríms Sigfússonar organista. T.Á. ára. Unglingur var hann við sjó- róðra í Engey. Á skútum var hann mörg úthöld og 1916 fór hann á togara og var-við þann starfa miklar vökur og vinna áð- ur en vökulögin voru sett. Á togurum var hann mörg ár dug- legur og skemmtilegur félagi l hké * Stefán var hægur og prúður gleðimaður og með afbrigðum hnyttinn í svörum, sem margir muna sem með honum hafa verið til sjós og lands. Kvæntur var hSnn Ingibjörgu Jónsdóttir ættaðri frá Hömrum í Þverárhlíð og fluttu þau til Reykjavíkur 1904. Þeim varð 11 barna auðið, en misstu eitt i spönsku veikinni. Á lífi eru sjö synir og þrjár dætur. Ingibjörg var með afbrigðum dugleg og góð kona, og oftast var hún ein með stóran barnahóp, Þegar heimilisfaðirinn er oft fjarver- andi eru vandamálin mörg sem konan verður að ráða fram úf. Ingibjörg dó 1943. Stefán dvaldi síðustu árin hjá dóttur sinni og tengdasyni á Hringbraut 52. Föstudaginn 1. ágúst fékk hann slag í svefni missti mál og rænv. Á Landspítalann var hann fluttur laugardaginn 2. ágúst, og var þar gert allt til að honum mætti líða sem bezt. Þar dó hann þriðj u daginn 4. ágúst. Þegar svona var komið er þreyttum og sjúkum hvildin kær. Blessuð sé hans minning. Axel Gunnarsson. íbúð Óska eítir 2ja til 3ja herbergja íbúð. — Góð umgengni. Upp- lýsingar í síma 34393. tJtgefendur, athugið! prófarkalesari vill taka að sér heimavinnu. Tilboð sendist Mbl., merkt: „Prófarkalesari — 4418“. erlausnirt VIKURFÉLAGIÐ? LUÐVIK GIZURARSON héraðsdómslögmaður. Málflutningsskrifstofa, Klapparstíg 29 sími 17677. «6« 6*9 34-3-33 Þunga vinnuvélar DÖNSK HÚSGÖGN til sölu á Njálsgötu 73, uppi. I. O. G. T. St. Andvari nr. 265 Fundur í kvöld kl. 8,30 í G.T.- húsinu. Fundarefni: Inntaka. — Kosning embættismanna. Upplest ur o. fl. — Æ.t. Saumaklúbbur IOGT Saumafundir hefjast í dag kl. 3 e.h. í G.T.-húsinu. Þess er vænzt að reglusystur sæki sauma- fundina. — Nefndin. Samkoamr Fíladelfía Almenn samkoma kl. 8,30. — Allir velkomnir. Hjálpræðisherinn Fimmtudag kl. 20,30: Almenn samkoma. Allir velkou,nir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.