Morgunblaðið - 24.09.1959, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 24.09.1959, Qupperneq 12
12 MORCTJTSBL 4Ð1L Fimmfudagur 24. sepf IQFÍP iittMaHfr <7tg.: H.t. Arvakur Reykjavlk Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábra.) Bjarni Benediktsson. Sigurður Bjarnason frá Vi""r Matthías Johannessen. Lesbók: Arni Óla, sími 33045. Auglýsirtgar: Arni Garðar Kristinsson Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og aígreiðsla: Aðalstræti 6 Símj 22480. Ask iftargald kr 35,00 á mánuði innaruands I lausasölu kr. 2.00 eintakið. FRAMBOÐSFRESTUR RUNNINN ÚT- KOSNINGAR Á NÆSTA LEITI Þessi laglega litla „fluga“ er dönsk — og það er líka næstum það eina, sem við vitum um hana, fyrir utan það, að hún mun vera frá fyrirtækinu „Danfoss“ — og getur farið með 160 km hraða á klukkustund. F7.AMBOÐSFRESTUR við alþingiskosningar þær, sem fram eiga að fara 25. Og 26. okt. nk. rann út í gær- kvöldi. Var þá vitað að allir hitxir fjórir gömlu stjórnmálaflokkar höfðu boðið fram framboðslista í öllum 8 kjördæmum landsins. Er. eins og kunnugt er kjósa 5 þeirra 5 þingmenn hvert, tvö 6 þing- menn hvort og eitt kjördæmi, höfuðborgin, kýs 12 þingmenn. Jafnframt eru kosnir varaþing- menn fyrir þingmenn í öllum kjördæmum landsins. Er það breyting frá því sem áður var, þegar varaþingmenn voru aðeins kjörnir í Reykjavík, hinum 6 tvímenningskjördæmum og fyrir 11 landkjörna þingmenn. Frambjóðendur hinna fjögurra stjórnmálaflokka, sem fulltrúa áttu á síðasta Alþ., verða þannig samtals 392, eða 98 af hálfu hvers flokks. Þegar þetta er ritað er ekki vitað í hversu mörgum kjördæmum Þjóðvarnarflokkur- inn muni hafa frambjóðendur í kjöri. En kunnugt var um fram- boð hans í Reykjavík, Reykja- neskjördæmi og Norðausturlands kjördæmi. Hefur hann þar sam- tals 46 frambjóðendur í kjöri. Samtals er því, er þetta er ritað, kunnugt um 438 frambjóðendur í kosningunum, sem fram fara síðari hluta októbermánaðar. Framboð Sjálfstæðis- flokksins Sjálfstæðisflokkurinn hefur við þessar kosningar, eins og jafnan áður, í kjöri menn úr öllum stétt- um þjóðfélagsins. Á listum hans eiga sæti bændur, útvegsmenn, verzlunarmenn, sjómenn, verka- menn, iðnaðarmenn og mennta- menn.Enda þótt menn úr flestum Stéttum eigi einnig sæti á fram- boðslistum hinna flokkanna, er það þó staðreynd, sem alþjóð er kunn, að enginn stjórnmálaflokk ur á eins rík ítök I öllum stéttum þjóðarinnar og Sjálfstæðisflokk- urinn. Hann er beinlínis byggður upp af fólki úr hverri einustu stétt og starfshóp þjóðfélagsins. í þessarri uppbyggingu Sjálf stæðisflokksins er fólgin trygg ingin fyrir því, að hann vinn- ur á hverjum tíma fyrst og fremst með alþjóðarhagsmuni fyrir augum. Hann er ekki flokkur neinnar einstakrar stéttar, eða hagsmunahóps inn an þjóðfélagsins, heldur telur hann sér skylt að gæta hags- muna þjóðarinnar í heild. Reynslan af starfi Sjálfstæðis- flokksins sýnir, að hann hefur verið þess megnugur að gegna þessu mikilvæga hlutverki sínu. Hann hefur haft forystu um al- hliða uppbyggingu hins íslenzka þjóðfélags, öllum íslendingum tii hagsbóta. Hann hefur verið hið sameinandi afl þessarar þjóðar í hinni hröðu sókn hennar fyrir framförum og uppbyggingu. Valið um steíiiur og menn f kosningunum, sem fram fara 25. og 26. október nk. verður eins og jafnan áðúr valið um stefi.ur og menn í íslenzkum stjórnmál- um. En þessar kosningar eru að ýmsu leyti sérstæðar og merki- legar. Nú er í fyrsta skipti kosið eftir kjördæmaskipun, sem tryggt getur nokkurn veginn rétta mynd af þjóðarviljanum á Alþingi. Eftir stjórnarskrárbreyt- inguna í sumar getur það ekki gerzt, að tiltölulega fámennur flokkur í landinu fái hreinan meirihluta á löggjafarsamkom- unni. Að loknum kosningunum, sem fram undan eru munu stjórn málaflokkamir fá fulltrúatölu á Alþingi, sem nokkurn veginn verður í samræmi við fylgi þeirra meðal íslenzkra kjósenda. í þessu er vissulega mikil og merkileg umbót fengin. UppbyggingarstÍórn Sjálfstæðismanna — eða vinstri stjórn Það liggur nú ljóst fyrir, um hvað verður fyrst og fremst bar- izt í þessum kosningum. Það verð ur barizt um það, hvort að þeim loknum skuli koma til valda dug mikil framkvæmda- og uppbygg- ingastjórn undir forystu Sjá.f- stæðisflokksins eða úrræðalaus og sundurþykk vinstri stjorn undir forystu Framsóknarflokks- ins. Þetta vita íslenzkir kjósendur nú að er það sem valið er á milli. Kommúnistar og Framsóknar- menn hafa undanfarið staðið í samningum um nýja vinstri stjóm. Kommúnistar hafa hrein- lega lýst því yfir, að það sem þeir stefna að, sé ekkert annað en vinstri stjórn, áþekk þeirri, sem fór með völd 1956 til 4. des. 1958. Framsóknarflokkurinn hef- ur einnig lýst því yfir opinber- lega, að hann teldi þá stjórn hafa verið eina þá beztu stjórn, sem hér hefur setið, og að brýna nauð syn beri til þess, að endurreisa hana við fyrsta tækifæri. Hins vegar hefur hann skort hrein- skilni og manndóm til þess að ganga endanlega frá samningum um þetta við kommúnista fyrir kosningar. En énginn þarf að fara í grafgöfhr um, hvað gerast muni eftir kosningarnar, ef þess- ir flokkar fengju aðstöðu til þess. Gegn höftum og skatt- ráni Til þess ber þess vegna höfuð- nauðsyn að allir frjálslyndir kjós endur í landinu, treysti nú sam- tök sín og skipi sér undir merki Sjálfstæðisflokksins, sem einn er fær um það að tryggja íslandi samhenta og athafnasama ríkis- stjórn, er í senn sé fær um það að framkvæma efnahagslega við- reisn eftir sukk og óreiðu vinstri stjórnarinnar, og halda áfram lífsnauðsynlegri uppbyggingu og framkvæmdum í landinu. Frjálslynd og víðsýn athafna stefna annars vegar, en skatt- ránsstefna, höft og kyrrstaða nýrrar vinstri stjórnar hins vegar, en það, sem baráttan stendur um, og íslenzkir kjós- endur taka afstöðu til í kosn- ingunum 25. og 26. okt. nk. I ÞAÐ gerðist nýlega í Kaup- mannahöfn, að 67 ára gamall maður missti konu sína eftir 33 ára sambúð — sem auðvit- að væri ekki í frásögur fær- andi, ef ekki væri annað um það að segja. — Þau hjónin höfðu lifað ákaflega sparlega allt frá því, að þau s,tofnuðu heimili — en eftir dauða kon- unnar fann maðurinn hvorki meira né minna en 72.000 krónur (danskar, vel að merkja) — á víð og dreif um íbúðina. — Hann tók upp nýja lifnaðarhætti — og að hálfu ári liðnu voru allir pen- ingarnir horfnir eins og dögg fyrir sólu. En rétt í sama mund lézt maðurinn, svo að hann losnaði við frekari fjár- hagsáhyggjur. ! ♦ Maðurinn var eyðslusamur að eðlisfari og bar lítið skyn á fjár- mál. Það var því ekki óeðlilegt, að konan tæki að sér, allt frá fyrsta degi hjónabandsins að sjá um peningamál heimilisins. Hún var ákaflega sparsöm — svo spar- söm, að varla gat heilbrigt taí- izt. — Hún hirti t.d. kjötbein úr sorptunnum — og sauð af þeim súpu, og annað eftir því. Fatnað sníkti hún sér út hjá hjálpar- stofnunum fyrir fátæklinga. Á hverjum föstudegi skilaði maðurinn launaumslagi sínu ó- opnuðu til konunnar. Fyrstu 20 ár hjónabandsins lét hún hann hafa 2 krónur á viku í vasa- peninga, en eftir stríðið hækkaði hún við hann „launin“ — upp í 5 krönur. Þessi „launahækkun" var þó veitt með því skilyrði, að hann „sóaði ekki peningunum í óþarfa“. Og maðurinn var reyndar hæstánægður. Konan sá fyrir öllu. — e — t En svo kom að því, að eigin- konan gaf upp öndina. — Þá þurfti maðurinn í fyrsta skipti í 33 ár að leita sér sjálfur að nær- fötum og skyrtu. Þegar hann opnaði fyrstu skúff una rakst hann á fimmhundruð- króna-seðil undir einni skyrtunni — og svo hvern af öðrum. Hann fór nú að leita um íbúðina hátt og lágt — og fann peninga á hin- um ólíklegustu stöðum. Undir gólfteppinu , í þvottaborðinu, undir rúmdýnunum o. s. frv. — Allur „fengurinn" nam 22.000 kr. í reiðu fé — og þar að auki fann hann bankabók, með 50.000 kr. innstæðu. ♦ Hinn nýbakaði „auðjöfur" breytti nú brátt um lifnaðarhætti — Hann byrjaði raunar ósköp „smátt' — með einum bolla af kaffi og fjórum vínarbrauðum, á lítilli veitingastofu. Áður hafði hann látið sér nægja tvær sneið- ar af þurru fransbrauði til morg- unverða'r. — Eftir þttta færði hann sig smám saman upp á skaft ið. Um kvöldið fór hann á veit- ingastað og bað um heilan skammt af lambasteik — og eitt glas af ávaxtavíni með. — Hann minntist þess frá sextugsafmæii konunnar, að ávaxtavín var býsna góður drykkur. Að afloknum kvöldverði fékk hann sér nokkra „pilsnera" — og brátt komst hann að raun um, að konur geta verið ákaflega ástúðlegar við þann, sem á nóga peninga. — Eftir því sem hann „spanderaði" meira — þeim mun vingjarnlegri og elskulegri urðu „blessaðar dúfurnar . . .“ ♦ Hinn 67 ára gamli ekkjumað- ur keypti sér ný föt — í fyrsta skipti í mörg, ár. Þegar þau •— á tæpri viku — voru orðin dálítið kryppluð og illa útlítandi, keypti Framh. á bls. 14. Einn kennarinn við barnaskóla nokkurn í Wickham í Englandi á í mestu crfiðleikum að þekkja nemendur sína í sundur. Ekki er það þó vegna þess, að hann sé neitt sérstaklega ómannglöggur. 1 bekknum, sem hann kennir, eru 25 nemendur en 25 þeirra eru tvíburar. Það er ekki undar- legt þó að kennarinn ruglist stundum í ríminu. Og hér er mynd af þessum sérstæða nemenda- hópi — og kennaranum. Ekkjumaðurinn, sem skemmti sér fyrir 33 ára sparifé eigin konunnar, og lézt síðan — skuldlaus

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.