Morgunblaðið - 24.09.1959, Síða 22
22
MORCVNBLAÐ1Ð
Fimmfudagur 24. sepf. 1959
Macmillan hylltur og
hrópaður niður
Héraðsmót •
að Hellu
Héraðsmót Sjálfstæðismanna í
Rangárvallasýslu verður haldið
að Hellu, sunnudaginn 37. sept.
fcl. 4 síðdegis.
Ræðiur og ávörp flytja efstu
menn á lista Sjálfstæðisflokksins
í Suðurlandskjördæmi, þeir Ing-
ólfur Jónsson, Guðlaugur Gísla-
son, Sigurður Ó. Ólafsson og Jón
Kjartansson.
Fjölbreytta skemmtidagskrá
annast: Árni Jónsson, óperusöngv
ari og leikararnir Haraldur Á.
Sigurðsson og Ómar Ragnarsson,
Hafliði Jónsson aðstoðar. Að síð-
ustu verður stiginn dans.
Virðuleg útför
Helga frá Breimu
í GÆR fór fram frá Dómkirkj-
unni útför Helga Jónassonar frá
Brennu. Séra Bjami Jónsson
vígslubiskup jarðsöng, við orgel-
ið var dr. Páll ísólfsson, Dóm-
kirkjukórinn söng og Þórarinn
Guðmundsson lék einleik á fiðlu.
Blóm og blómsveigar frá hin-
um mörgu félögum og hópum,
sem hinn látni hafði starfað í,
prýddu kistuna. Við kistuna stóðu
Frímúrarar heiðursvörð, svo og
fánaberi Iþróttafélags Reykja-
víkur, en Helgi var einn af stofn-
endum félagsins, í stjórn um
langt órabil og formaður um eitt
skeið. Fylgdi félagsfáninn lík-
fylgdinni í kirkjugarðinn. Á þann
hátt kvöddu iR-ingar þennan
látna leiðtoga félagsins.
í kirkjuna báru kistuna for-
ystumenn ÍR, úr kirkju Frímúr-
arar, en í kirkjugarði báru fé-
lagar Ferðafélags tslands. Fjöl-
menni var við útförina, sem var
hin virðulegasta.
„íslandsmeistari
vill búa í Ála-
hortf
LONDON 23. sept. (NTB/Reuter)
Macmillan forsætisráðherra var í
dag í kosningaleiðangri í bómull-
arvinnsluhéraðinu Lancashirc.
En í þessu héraði hefur undan-
farin ár gætt nokkurs atvinnu-
leysis, vegna sívaxandi sam-
keppni frá bómullariðnaði ann-
arra landa. Áður en Macmillan
fór í ferð þessa birti brezka
stjórnin áætlun um að verja um
milljarð króna til að endurbæta
vélar og verksmiðjur í bómullar-
íðnaðinum.
Valbjörn — eini íslending-
urinn á afrekskrá.
Valbjörn er í
10—12 sæti í
Evrópu
ÞAÐ er mikið keppikefli hjá
frjálsíþróttamönnum að komast
á afrekaskrá Evrópu -— skrá sem
samin er einu sinni til tvisar í
mánuði og birtist í íþróttablöð-
um í flestum löndum Evrópu.
Oftsinnis hafa ísl. frjálsíþrótta-
menn komist á bessa skrá
Macmillan ferðaðist um hér-
aðið í járnbraut og bílum. Víð-
ast var honum tekið vel, en í
bænum Middleton var ræða hans
á einum kosningafundinum
trufluð með hrópum og hávaða.
Virtist, sem stuðningsmenn
Verkamannaflokksins hefðu
komið í stórum hópum til fund-
arins. „Sendið hann burt“, „5Ó0
bómullarverksmiðjur hafa verið
lagðar niður, — það er íhalds-
mönnum að kenna“.
Þegar Macmillan ók á brot.t,
skiptust á hyllingarhróp og blist-
ur og mótmælasköll.
RÚMENSKA frjálsþróttastúlk
an Yolanda Balas bætti um
helgina heimsmetið í hástökki
kvenna. Stökk hún 1.84 metra.
Fyrra heimsmetið sem hún
átti var 1.83m. Hið nýja met
var sett á Balkanleikjunum.
Þetta ei í sjöunda sinn sem
Balas bætir heimsmetið í há
stökki Hún hefur bætt það
sentimetra fyrir sentimetra
frá 1.77 til 1.83 m.
Húsnæðisleysi
kemur í veg fyrir
þátttökuna
HANDKNATTLEIKSSAMBAND
íslands hefur nú upplýst, vegna
fréttar hér á síðunni í gær, að
Evrópubikarkeppnin í hand-
knattleik karla hafi verið rædd
innan stjórnar HSÍ. — I bréfi
frá form. HSÍ segir svo:
„HSl barst á sl. ári ýtarleg
greinargerð og boð um þátttöku
í þessari keppni, en þar sem skil-
yrði fyrir þátttöku var löglegur
keppnissalur, var mólið að sjálf-
sögðu neikvætt fyrir okkur. Því
miður“.
Þá liggur það skýrt fyrir. Það
er margt sem húsnæðisleysi
handknattleiksmanna kemur í
veg fyrir.
TÚNIS, 23. september.
— (NTB/Reuter). —
Þ E S S er vænzt, að útlaga-
stjórn Serkja svari allra
næstu daga tillögum de
Gaulles Frakklandsforseta
um lausn Alsír-vandamálsins.
Svarið hefur nú dregizt leng-
ur en ætlað var í fyrstu og
er álitið að drátturinn gefi
nokkrar vonir um að Serkir
hafni tillögum de Gaulles
ekki formálalaust.
Háttsettir embættismenn í
Túnis, sem nú hafa daglega sam-
band við forustumenn Serkja,
láta í það skína, að Serkir muni
leggja áherzlu á tvö atriði:
1 fyrsta lagi vilja þeir fá nón-
ari upplýsingar um það, hvernig
stjórnmálaskilyrði eigi að verða
fyrir þá, sem tekið hafa þátt í
og stjórnað hinni vonpuðu upp-
reisn gegn Frökkum.
Og í öðru lagi muni þeir koma
með nýjar tillögur, þar sem
Valgarð Briem
Forstjóri tnnkaupa-
stofnunnar
bæjarins
Á FUNDI bæjarráðs er haldinn
var ó þriðjudaginn, var ráðinn
forstjóri fyrir Innkaupastofnun
Reyk j avíkurbæ j ar.
Með samhljóða atkvæðum allra
bæjarráðsmanna, var samþykkt
að mæla með þeirri tillögu hinn-
ar nýkjörnu stjórnar stofnunar-
innar, að ráða som forstjóra henn
ar Valgarð Briem, lögfræðing.
ÞAÐ slys vildi til á mánudags-
kvöld, að Jón Valgeirsson bóndi
í Ingólfsfirði á Ströndum hrapaði
í Ingólfsfjarðarbrekku.og meidd-
ist allmikið, viðbeinsbrotnaði og
meiddist innvortis. Sjúkraflug-
vél sótti hann norður í gær, og
liggur Jón sem er 62 ára nú í
Landsspítalanum.
Jón Valgeirsson fór í leit frá
Ófeigsfirði á mánudagsmorgun-
inn og kom geinni hluta dags aft-
ur að Ófeigsfirði. Seint um
kvöldið fór hann ríðandi heim tii
sin yfir Ingólfsfjarðarbrekku,
sem er háls milli Ófeigsfjarðar
og Ingólfsfjarðar, snarbrattur
Ingólfsfjarðar-megin. — Elísabet
Óladóttir, kona Jóns, vissi er mað
ur hennar lagði af stað frá Ófeigs
firði, og er hana fór að lengja
eftir honum, gekk hún út og
heyrði neyðarkall upp í fjallshlíð
inni. Hún gekk á hljóðið og fann
mann sinn. Hafði hann hrapað í
myrkrinu, fram af klettastalli og
lá í urð fyrir neðan.
Hún hraðaði sér aftur heim og
simaði á næstu bæi og beiddist
hjálpar. Fátt manna var heima
í grenndinni, en þó barst hjálp
nqkkuð er slegið af fyrri kröfum
þeirra ef de Gaulle teldi sig þá
fremur geta samið við útlaga-
stjórnina. Telja ráðherrarnir
hugsanlegt, að auðveldara yrði
fyrir de Gaulle að setjast við
samningaborð við þá, ef þeir
kæmu ekki fram sem fulltrúar
útlagastjórnarinnar, heldur sem
fulltrúar uppreisnarhersins.
Víaður slasast
BLÖNDUÓSI, 23. sept. — í gær
dag varð það slys, að Ásum í
Svínavatnshreppi, að 19 ára pilt-
ur, Hreinn Ingvarsson, sonur
Ingvars Ágústssonar bónda þar,
varð undir dráttarvél og slas-
aðist. Var hann fluttur í sjúkra-
húsið hér.
Hreinn var að flytja hey og
kominn með það heim undir bæ,
en þar er nokkuð bratt, og í
brattanum valt dráttarvélin á
hliðina. Varð Hreinn undir vél-
inni, og festist svo hann komst
ekki undan henni hjálparlaust.
Við athugun á meiðzlum Hreins
hér í sjúkrahúsinu kom í Ijós,
að hann hafði meiðzt í baki og
handleggsbrotnað. — Fréttaritari.
Taft Benzon heim-
sækir Rússland
WASHINGTON, 23. september.
— NTB). — Landbúnaðarráð-
herra Bandaríkjanna, Ezra Taft
Benson, lagði í dag af stað til
Evrópu. Hann verður 17 daga í
ferðinni og mun koma til Rúss-
lands, Júgóslavíu og Póllands. —
Auk þess ætlar hann að heim-
sækja Noreg, Svíþjóð og Finn-
land. Með honum fer eiginkona
hans og tvær dætur, fjórir starfs-
menn landbúnaðarráðuneytisins
og með í förinni verða einnig
nokkrir bandariskir blaðamenn.
Félagsstarfsemi
Eyfirðingafél.
EYFIRÐINGAFÉLAGIÐ hefur fé
lagsstarfsemi í vetur eins og und-
anfarin ár, hefst starfsemin næst-
komandi föstudagskvöld í Fram-
sóknarhúsinu, en þar hefur fé-
lagið fengið inni í vetur. Þar
verður margt til skemmtunar, og
mega Eyfirðingar og og félags-
menn taka með sér gesti, meðan
húsrúm leyfir. Fimmtudaginn 1.
október hefjast svo spilakvöld fé
lagsins, verða spilakvöld haldin
einu sinni í hverjum mánuði í
vetur, og glæsileg verðlaun veitt.
furðu fljótt, og var Jón fluttur
heim að Ingólfsfirði. — Læknir
kom frá Djúpavík kl. 4 um nótt-
ina, — og í fyrradag sótti flugvél
manni norður og flutti hingað til •
Reykjavíkur.
Kaffisala Kven-
féla^s Hallp;ríms-
kirkju
KVENFÉLAG Hallgrímskirkju
efnir til hinnar árlegu kaffisölu
sinnar í Silfurtunglinu n.k. laug-
ardag. Þarna verður á boðstólum
heimabakað brauð, sem kvenfé-
lagskonur leggja til sjálfar og
hafa þær innt af höndum mikið
starf við undirbúning þessarar ár
legu kaffisölu, eins og svo oft
áður.
Kvenfélag Hallgrímskirkju hef
ur um langt árabil unnið mikið
og ómetanlegt starf til styrktar
kirkjunni og verður það ekki sízt
konunum og lifandi áhuga þeirra
á málefninu að þakka ef þetta
myndarlega Guðshús kemst upp
innan tíðar.
Hér með er skorað á alla safn-
aðarmeðlimi og aðra, sem unna
góðu málefni og virða óeigin-
gjarnt starf, að styrkja þessa
kaffisölu á laugardaginn. Munu
menn í senn njóta þar góðra veit-
inga og styrkja gott málefni.
Kennsla í vefnaði
og snyndvefnaði
UNDANGENGIN tvö ár hefur
Handíða- og myndlistarskólinn
haldið uppi kennslu í vefnaði.
Verður þessi kennsla nú aukin að
mun. Kennt verður á námskeið-
um siðdegis og á kvöldin.
I haust hefst einnig kennsla í
vefnaði fyrir stúlkur, er hafa í
hyggju að gerast vefnaðarkenn-
arar. v
Kennarar í vefnaði eru frú
Margrét Ólafsdóttir og frú Sig-
riður Halldórsdóttir.
I nóvember n.k. byrjar kennsla
í myndvefnaði og mun frú Vig-
dís Kristjánsdóttir kenna þá
grein vefnaðar.
Athygli skal vakin á því, að
innritun nemanda fer fram alla
virka daga í skrifstofu skolans,
Skipholti 1 kl. 5—7 síðd.
I DANSKA blaðinu „Dagens Ny-
heder“ var á íþróttasíðu 22. sept-
ember svohljóðandi frétt.
„Aalborg Kammeraterna" munu
innan skamms fá góðan liðsstyrk
frá íslandi. Það er Islandsmeist-
arinn og landsliðsmaðurinn í
sleggjukasti (á sennilega að vera
kringlukasti — aths. Mbl.) Þor-
steinn Löwe, sem hefur tekið þá
ákvörðun að flytjast til Danmerk
ur. Kammeratarnir búast við að
þeir geti útvegað honum vinnu
sem bílstjóra í Aalborg. Þor-
steinn Löwe er 54 metra kastari“.
Þannig var klausan orðrétt. Við
seljum ekki dýrar en við keypt-
um. En við höfum líka heyrt að
Þorsteinn sé að reyna að fá fram
tíðarstöðu hér í Reykjavík. Ekki
tókst að ná í Þorstein í gær — en
málið upplýsist vonandi þótt
síðar verðL
stundum verið þar 2—3 samtímis
í ýmsum greinum.
í sumar hefur aðeins einum fs-
lending tekizt að vinna það afrek
sem nægir til að komast í röð
12 beztu í Evrópu. Það er Val-
björn Þorláksson ÍR. Síðasta út-
gfna afrekaskráin í stangarstökki
það sem af er árinu, lítur þannig
út.
Bulatoff Rússlandi
Garin Rússlandi
Roubanis Grikklandi
Landström Finnlandi
Beljalev Rússlandi
Jeitner Þýzkalandi
Krasovskis Rússlandi
Petrenko Rússlandi
Hristov Búlgaríu
Wazny Póllandi
Hlebarov Búlgariu
Valbjörn Þorláksson ísl. 4.45
1.
2.
3.
4.
5.
9.
10.
4.64
4.55
4.53
4.52
4.50
4.47
Hugheilar þakkir öllum þeim, er sýndu mér hlýhug
og vinsemd á 60 ára afmæli mínu.
Lifið heil.
Guðjón A. Sigurðsson, Gufudal
Innilega þakka ég þeim, sem sýndu mér vinarhug á
75 ára afmæli mínu 16. þ.m., með heimsóknum, gjöfum,
blómum og skeytum. Lifið heil.
Stefán Jónsson, Hlíð.
Ganga þeir til móts við
de Gaulle
Konan fann bónda sinn
slasaðan' / grjóturð