Morgunblaðið - 13.10.1959, Blaðsíða 1
24 siður
Er milliliðakostnaður á
landbúnaðarvörum ekki
háður verðlagseffirliti?
SÍS telur bifreiðar
Mjólkurbúsins eign
Kaupfélags Árnesinga
Æ KEMUR betur í ljós, af
hvílíkri ófyrirsynju deilan á
milli bænda og neytenda út
af verði landbúnaðarafurða
var mögnuð með útgáfu bráða
birgðalaga ríkisstjórnarinnar.
Sjálfur segir forsætisráðherra
í bréfi sínu til Stéttarsam-
bands bænda, dagsettu 8. októ
ber, svo:
„Ríkisstjórnin hefur talið, að
eðlilegast sé að bíða með endan-
lega afgreiðslu málsins þangað
til hið nýkjörna þing kemur sam-
an og láta það skera úr. Þetta
er þeim mun eðlilegra, þar sem
upplýst er, að þetta muni ekki
valda neinum töfum að ráði á
greiðslum bóta, ef samþykktar
verða, enda á það fallizt af fundi
stéttarsambandsins að fresta
framkvæmdinni til 15. des.
Að því hlýtur því að verða
stefnt að leysa þessi mál öll með
samkomulagi, þegar hið nýkjörna
þing kemur saman og einn þátt-
urinn í því samkomulagi mun
sjálfsagt verða, að koma á þeirri
skipan verðlagsmála landbúnað-
arins, sem báðir aðilar, frámleið-
endur og neytendur, geta staðið
saman að, eins og verið hefur.“
Það er rétt hjá forsætisráð-
herra að stefna verður að því
að leysa þessi mál öll með sam-
komulagi. Þess vegna mátti nú
ekkert gera, sem líklegt væri til
að spilla því. Á það lögðu Sjálf-
stæðismenn megináherzlu í til-
lögum sínum.
Mestu máli skiptir að finna
frambúðarlausn, sem allir megi
við una. Menn hljóta að spyrja,
hvort ekki sé unnt að halda verð-
lagi landbúnaðarvara niðri,
svo að á hvorugan sé hallað —
bændur eða neytendur. Við at-
hugun þess reka menn þegar aug
un í kostnaðinn við að koma þess
um vörum frá framleiðendum til
neytenda.
„Húsmæðurnar í
Reykjavík ekki of góðar“
Morgunblaðið hefur reynt að
afla sér upplýsinga um, með
hverjum hætti milliliðakostnað-
urinn væri ákveðinn. En erfitt
er að fá fullar skýringar á því.
Eftir því, sem næst verður kom-
izt, kemur verðlagsgæzla ríkis-
ins þar hvergi nærri. Morgun-
blaðið hefur takmarkaða trú á
veðlagseftirliti. En úr því að það
er haft á vöruverðlagi almennt,
þá er að sjálfsögðu fráleitt að
láta það ekki taka til þess milli-
liðakostnaðar, sem hér fellur á.
Því frekari ástæða er til þess,
þar sem lítil eða engin samkeppni
kemst að í þessari vörudreifingu,
t.d. alls ekki á mjólkurafurðum
ylirleitt.
Rík ástæða er til þess að ætla,
að þar megi mörgu koma hag-
kvæmar fyrir en nú er gert. Þjón
usta við neytendur er mjög van-
rækt af Mjólkursamsölunni.
Mjólkin fæst ekki send heim til
þeirra, enda er haft eftir ein-
um af mestu ráðamönnum j þess-
um efnum, að húsmæðurnar í
Reykjavík séu ekki of góðar til
að sækja hana sjálfar í mjólkur-
búðir!
„Stórveldi á landi“
Þá hafa bændur sjálfir mjög
gagnrýnt tilhögun og rekstur á
flutningum fyrir Mjólkurbú Flóa
manna. Sú gagnrýni hefur ætíð
verið að engu höfð, og sem
minnstar upplýsingar gefnar.
Mjólkurbúið mun að vísu eiga
bifréiðarnar, sem til mjólkur-
flutninga eru hafðar, og að nafn-
inu til reka þær. En Kaupfélag
Árnesinga er látið annast allar
viðgerðir bifreiðanna og hjá því
er t. d. allt benzín og olíur til
þeirra keypt. Þó segja kunnugir
menn, að mjólkurbúið eigi um
50 bila, en Kaupfélag Árnesinga
ekki nema um 15 bíla.
t ritinu „Islenzkt samvinnu-
starf“ er hælzt um yfir því, hví-
líkt stórveldi Kaupfélag Árnes-
inga sé í samgöngum. Þar segir:
„Kaupfélag Árnesinga er
stærst á þessu sviði. Á 25 ára af-
mæli félagsins 1955 hafði það
fastar ferðir 7500 km. á degi
hverjum, eða sem svarar vega-
lengdinni suður til Túnis og heim
aftur".
Annarstaðar í sama riti er
komizt svo að orði:
„Og eru þá ótaldar samgöng-
urnar, þar sem K. Á. er stór-
veldi á landi. Félagið annast
mjög mikla fólks- og vöruflutn-
inga, á yfir 60 bíla og mikil bif-
reiðaverkstæði, auk annarra
varkstæða, sem nýbúið er að
byggja yfir stórhýsi."
Tilvitnað rit er samið að tilhlut
an SÍS og lýsir skoðun ráða-
manna þar á tengslum Kaupfé-
lags Árnesinga og Mjólkurbús-
ins.
Af þessu verður ekki annað
séð, en SÍS telji Kaupfélag Ár-
nesinga hreinlega eiga bíla Mjólk
urbúsins!
Enda mun ekki fjarri til get-
ið, að Kaupfélag Árnesinga hafi
öðlazt stórveldisaðstöðu sína
vegna forréttinda sinna við
Mjólkurbú Flóamanna. Auk alls
annars er öðrum flutningum en
mjólkurflutningum hagað svo, að
kaupfélaginu er ívilnað umfram
aðra.
Rannsókn nauðsynleg
Auðvitað gefur þetta ekki tæm
andi skýringu á hinum mikla
kostnaði, sem leggst á vöruna,
frá því að hún fer frá bænd-
um þangað til hún kemur í hend-
ur neytenda. En það gefur vissu-
lega ástæðu til þess að kannað
sé til hlítar, hvernig hinum
mikla milliliðakostnaði sé hátt-
að. Óverjandi er, að þetta megin-
atriði sé látið afskiptalaust, en
í stað þess efnt til ófriðar milli
bænda og neytenda um þau efni,
sem allt ríður á, að samkomulag
haldist um þeirra í milli.
Michel Debré
Laos-nefndin fer
til New York
VIENTIANE, 12. okt. NTB-AFP.
Fjórir meðlimir rannsóknarnefnd
ar Sameinuðu þjóðanna í Laos
fóru í dag í kveðjuheimsóknir til
háttsettra embættismanna, áður
en þeir fara frá Vientiane á morg
un áleiðis til New York, en þar
munu þeir gefa Öryggisráðinu
skýrslu um ástandið í Laos. Tveir
fulltrúar nefndarinnar munu
verða eftir í landinu til að fylgj-
ast með þróuninni og gefa skýrsÞ
ur um þær breytingar, sem kunna
að verða.
Alsír-málið tekib
fyrir í franska þing-
inu
PARÍS, 12. okt. NTB-AFP. —
Michel Debré forsætisráðherra
Frakklands lauk í dag undirbún-
ingi sinum undir umræðurnar um
Alsír-málið í fulltrúadeild
franska þingsins, en þær hefjast
á morgun og mun Debré flytja
þingheimi skýrslu um ástandið í
Alsír.
Endanleg úrslit
brezku kosninganna
Tónlist í litum
LONDON, 12. okt. Reuter. —
Ungur rússneskur vísindamaður
hefur smíðað mjög flókna raf-
eindavél, sem breytir hljómum
í marglit ljós. Ljósinu er beint á
sérstakt tjald eða hvítan vegg
í tónlistarsalnum, og þegar hljóm
ar og litir vinna saman, dýpka
þeir skilning hlustandans á inn-
taki og fegurð tónlistarinnar,
sagði sagði Tass-fréttastofan í
dag.
LONDON, 12. okt. Reuter. — Nú
um helgina bárust endanlegar
niðurstöður þingkosninganna í
Bretlandi. Jo Grimond, leiðtogi
Frjálslynda flokksins, hélt þing-
sæti sínu fyrir Orkneyjar og
Hjaltlandseyjar og jók atkvæða-
magn sitt um 619 frá því 1955.
Hann fékk 12.099 atkyæði. Verka
mannaflokkurinn jók einnig at-
kvæðamagn sitt, en íhaldsflokk-
urinn tapaði atkvæðum. Frjáls-
lyndi flokkurinn hefur þannig
sömu þingmannatölu og áður eða
sex þingmenn.
Eftir að niðurstöður höfðu bor-
izt úr Argyll-kjördæmi í Skot-
landi, hafði íhaldsflokkurinn 6,
og óháðir frambjóðendur 1.
Atkvæðatölurnar úr öllum 630
kjördæmunum eru því þannig:
íhaldsflokkurinn og stuðnings-
flokkar hans 13.750.935 atkvæði
eða 49,4%.
Verkamannaflokkur. 12.216.166
atkvæði eða 43,8%.
Frjálslyndi flokkurinn 1,640.761
atkvæði eða 5,9%.
Aðrir frambjóðendur 254.846
atkvæði eða 0,9%.
íhaldsflokkurinn hefur þannig
102 sæta meirihluta í neðri mál-
stofunni, en hafði áður 56 sæta
meirihluta. Ihaldsflokkurinn
vann 28 sæti af Verkamanna-
flokknum og eitt af Frjálslynda-
flokknum, en tapaði sex sætum.
Debré átti siðasta fund sinn vi0
de Gaulle í dag, áður en umræð-
urnar fara fram, en þær leiða
sennilega til fyrstu atkvæða-
greiðslu'um Alsír-málið í fimmta
lýðveldinu. Debré mun skýra tcá
sjónarmiðum og áætlunum stjóm
arinnar kl. 2 á morgun (ísl. tími),
og má búast við nýjum upplýa-
ingum um málið, þar sem Couve
de Murville utanríkisráðherra
hefur nýlega lýst því yfir í banda
risku sjónvarpsviðtali, að franska
stjórnin sé reiðubúin að ræða um
möguleikana á vopnahléi við upp
reisnarmenn. Murville nefndi f
þessu sambandi i fyrsta sinn
F. L. N.-samtökin, sem standa a0
hernaðaraðgerðum uppreisnar-
manna í Alsír.
Alvarleg tilraun til að semja
vopnahlé
Yfirlýsing Debrés kemur í sama
mund og fram fara miklar og
fjörugar umræður um málið bæði
í Paris, Rabat, Túnis og á Aðal-
stöðvum Sameinuðu þjóðanna 1
Framh. á bls. 23.
Verkfallinu lýkur ekki
með dómsúrskurði
WASHINGTON, 12. okt. Reuter.
— David McDonald, forseti Sam-
taka stáliðnaðarmanna, sagði
rannsóknarnefnd stjórnarinnar í
dag, að verði þeir 500.000 stál-
iðnaðarmenn, sem nú eru í verk-
falli, neyddir til að fara aftur til
vinnu sinnar með dómsúrskurði,
þá mundu þeir sennilega leggja
niður vinnu aftur eftir þá 80
daga, sem dómsúrskurðurinn tek-
ur til.
Eisenrower forseti greip til
þess úrræðis á föstudaginn að
Fundur œðstu manna eftir mánuð?
LONDON, 12. okt. NTB-AFP. —
í morgun hélt brezka stjórnin
fyrsta ráðuneytisfund eftir kosn-
ingarnar. Fréttaritarar búast við
að Macmillan muni mjög bráð-
lega tilkynna breytingar á ráðu-
neyti sínu, ef til þeirra kemur.
Væntanlegar breytingar taka
sennilega til tveggja eða þriggja
ráðherraembætta. Búizt er við að
Duncan Sandys landvarnaráð-
herra láti af þvf embætti, en
verði „vísindaráðherra“. Þá er
gert ráð fyrir að Alan Lennox-
Boyd nýlendumálaráðherra láti
af því embætti eftir fimm ára
setu en við þvi taki Iain McLeod
atvinnumálaráðherra. Þá má bú-
ast við að einhverjar breytingar
verði á flutninga- og flugmála-
ráðuneytinu.
Búizt er við að brezka stjórnin
muni innan skamms gefa banda-
lagsríkjum sinum aðvart um
væntanlegar breytingar á utan-
rikisstefnunni, ef slíkar breyting
ar eru á döfinni. Flestir stjórn-
málafréttaritarar eru þeirrar
unar, að Macmillan forsætisráð-
herra vilji koma á fundi æðstu
manna, sem allra fyrst, annað
hvort í lok nóvember eða byrj-
un desember.
beita Taft-Hartleys-lögunum tH
að fá menrrinætil vinnu aftur, «m
þá hafði verkfallið staðið rúmar
12 vikur.
Þriðjudagur 13. október
Efni blaðsins er m.a.:
Bls. 3: Skilar hafið fleiru?
— 6: Á mettíma frá Ketlavík til San
Francisco.
— 8: „Músagildran**, — Leikfélag
Kópavogs.
Doktorsvörn Róberts A. Ottós-
sonar. — ,
— 10: Frakkar viðurkenna sjálfsá-
kvörðunarrétt Alsír.
— 11: Raunalegt á að horfa.
— 12: Forystugreinarnar: „Nýjar leið-
ir“ og „Alger sviksemi Þórar-
ins“.
Stormar mældir í 13000
fjarlægð (Utan úr heimi).
«— 13: Leiðin til bættra lífskjara —
ræða Birkis Kjaran á
Óðinsfundi.
— 15: Enskir rithöfundar gætu lært
af Snorra Sturlusyni.
— 22: íþréttir.