Morgunblaðið - 13.10.1959, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.10.1959, Blaðsíða 2
2 MORrVNBLAÐlÐ Þriðjudagur 13. okt. 1959 Salan á Hótel Borg fer fram á næstunni Jóhannes d Borg vann mdlið íyrir Hæstarátti í gær Nashyrningur vann sigur í kosningum JÓHANNES bóndi á Borg Jósefsson vann í gærdag mál fyrir Hæstarétti, sem Karó- lína Jósefsson til heimilis að Hótel Borg, höfðaði gegn hon um, vegna fyrirhugaðrar sölu Jóhannesar á þessu stærsta gistihúsi landsins. Er því nú ekkert til fyrirstöðu að hinir nýju eigendur Borg- ar og Jóhannes Jósefsson geri út um kaupin. Mun það trú- lega verða gert á næstunni. Hæstiréttur staðfesti dóm und- irréttar í máli þessu er gekk 17. febrúar 1958. Til réttargæzlu í málinu hafði stefnandi, frú Kárói ína Jósefsson, stefnt veitinga- mönnunum Pétri Daníelssyni og Ragnari Guðlaugssyni, en sem kunnugt er, höfðu þeir leitað eftir kaupum á Hótel Borg. Hinn 4. júnj s.l. undirritaði Jóhannes Jósefsson yfirlýsingu, þess efnis, að hann gefi þeim Pétri Daníelssyni og Ragnari Guðlaugssyni eða hlutafélagi, er þeir kunna að stofna, kost á að kaupa Hótel Borg, lóð bygging- ar og innanstokksmuni og áhöld öll, innanhúss, er gisti- og veit- ingahúsinu tilheyrir fyrir kr. 18.200.000.—. Segja má að málið hafi um það snúizt af hendi frú Karólínu að fá þessari yfirlýsingu rjft með dómi. í undirrétti hafði málið verið sótt af miklu kappi og hafði lög- maður frú Karólínu verið víttur fyrir málatilbúnað. Fyrir undirrétti vann Jóhannes Jósefsson málið og þann dóm staðfesti Hæstiréttur með svo- hljóðandi forsendu: „Aðaláfrýjandi (Karólína Jósefsson) hefur skotið máli þessú til Hæstaréttar með stefnu 18. febrúar 1959 og gert þær dóm kröfur, aðallega að hinn áfrýjaði dómur verði ómerktur og málinu vísað til meðferðar fyrir héraðs- dómi af nýju, en til vara, að yfirlýsing gagnáfrýjanda, dags. 4. júní 1958 verði dæmd ógild og óskuldbindandi fyrir félagsbú málsaðilja. Loks krefst hún máls kostnaðar úr hendi gagnáfrýj- anda bæði í héraði og fyrir Hæsta rétti eftir mati dómsins. Gagnáfrýjandi, (Jóhannes Jós- efsson) sem hefur áfrýjað málinu með stefnu 20. febrúar 1959 krefst þess, að ómerkingarkröf- unni verði hrundið, honum dæmd sýkna og málskostnaður úr hendi aðaláfrýjanda eftir mati dómsin3. Réttargæzlustefndu (veitinga- mennirnir) krefjast staðfestingar á héraðsdómi og málkostnaðar af aðaláfrýjanda éítir mati dóms- ins. Um ómerkingarkröfuna Aðaláfrýjandi reisir kröfu sína um ómerkingu héraðsdóms i fyrsta lagi á því, að héraðsdómar- inn hefði átt að víkja sæti í mál- inu, þar sem hann hafi eigi mátt líta óhlutdrægt á málavexti, en eigi hefur hún fært fram neinar ástæður, sem hald sé í, fyrir þess- ari staðhæfingu sinni, og verður henni því eigi sinnt. í öðru lagi byggir aðaláfrýj- andi ómerkingarkröfuna á því, að héraðsdómari hafi eigi dæmt þá kröfu sína fyrir héraðsdómi, að yfirlýsing gagnáfrýjanda frá 4. júní 1958 yrði dæmd ógild, og vísar hún til þeirra ummæla hér- aðsdóms, að sakarefni málsins sé það eitt, hvort gagnáfrýjandi „hafi haft þann ráðstöfunarrétt á félagsbúi þeirra hjóna sem felst í yfirlýsingu hans frá 4. júní 1958“. Engin rök dómskapaeðlis eru því til fyrirstöðu, að dómur sé lagður á kröfu aðaláfrýjanda, að tilboð gagnáfrýjanda til rétt- argæzlustefndu frá 4. júní 195<S sé dæmd ógild. Hæfa því hin til- vitnuðu ummæli háraðsdómara að vísu eigi í mark, en eigi þykir næg ástæða til að ómerkja héraðs dóm af þessum sökum, þar sem héraðsdómari hefur eigi vísað kröfu aðaláfrýjanda frá dómi, heldur fjallað um málsástæður þær, er efni sakar varðar. Cm efni málsins Gagnáfrýjandi hafði sam- kvæmt 11. gr. laga nr. 3 frá 1900 skýlausa heimild til að gera rétt- argæzlustefndu tilboð um sölu Hótel Borgar ásamt innanstokks- munum og áhöldum innanhúss, það er greinir í yfirlýsingu hans 4. júní 1958, og eigi er í Ijós leidd- ur neinn sá ljóður á ráði hans, er valda eigi ógildingu tilboðs- ins. Ber því að staðfesta héraðsdóm inn að niðurstöðu tiL Eftir þessum úrslitum ber að dæma aðaláfrýjanda til að greiða upp í málskostnað fyrir Hæsta- rétti, kr. 25.000.00 til gagnáfrýj- anda og kr. 5000.00 til réttar- gæzlustefndu.** TOKYO, 12. október. — f lok þessa árs munu 300 þotur verða í notkun í farþegafluginu — og þær munu geta annað jafnmikl- um flutningum og 3.100 farþega- flugvélar af eldri gerðum, sem eru í eigu flugfélaganna. Á næstu tveimur árum bætast 200 þotur í hópinn — og óhætt er að reikna með því, að hver þota geti annazt flutninga til jafns við þrjár flugvélar af DC-7C gerð, en þær hafa á undanförnum ár- um verið stærstu farkostirnir í farþegafluginu. ★ Framkvæmdastjórí alþjóðasam taka flugfélaga (IATA), William P. Hildred, viðhafði þessi um- mæli, er hann setti ársþing sam- takanna í Tokyo í dag. Hann sagði, að næsta skref flugfélag- anna yrði — og yrði að vera — að lækka fargjöldin. Ef fargjöld- in yrðu ekki lækkuð mundu flug- félögin, sem nú eru óðum að eign ast stórar og dýrar þotur, biða mikið tjón. En flutningaþörfin yrði ótæmandi, ef fargjöldin yrðu lækkuð hæfilega mikið, ferða- manna- og sparifargöldin yfir Atlantshafið hefðu þegar leiti í ljós, að eftirspurnin yrði óþrjót- andi við lítilfjörlegustu lækkun. Sagði hann, að nýju þoturnar, sem stærstu félögin hafa á urtd- anförnum árum verið að taka í notkun, hefðu ekki haft undan — og nær undantekningarlaust ver- í VIKUNNI sem leið fóru fram bæjar- og sVeitastjórnarkosning- ar í Brazilíu og kom á daginn, að nashyrningur að nafni Cacareco, sem hefst við { dýragarðinum í Rio de Janeiro, vann glæsilegan sigur í tveim af stærstu borgum landsins, Sao Paulo, stærstu borg í Brazilíu, og Santos mestu kaffi- útflutningsborg heimsins. Fékk Cacareco allt 100.000 atkvæði eða meira magn en nokkur einstak- lingur hefur fengið í kosningum þar, að undanteknum forsetakosn ingum. Nú var Cacareco að vísu ekki í framboði, en málum er svo hátt að í Brazilíu, að séu menn ó- ánægðir með frambjóðendur, geta þeir skrifað hvaða nefn sem ið þéttsetnar. Biðlistinn væri oft- ast langur fyrir hverja ferð. Ea flutningamátturinn mundi marg- faldast á næstu 12 mánuðum — svo mjög, að óhugsandi væri ann að en lækkun fargjalda. Þau 17 IATA-flugfélög, sem halda uppi ferðum yfir Norður- Atlantshaf, milli Evrópu og Ameríku (Loftleiðir eru ekki í IATA) fluttu á síðasta ári 1.292.166 farþega, en það var 26,8% aukning miðað við fyrra ár, enda þótt verkföll flugliða hefðu haft lamandi áhrif á banda rísk flugfélög síðasta árið, en meðan á verkfallinu stóð urðu Sýndar Vatnajök- ulsmyndir á fundi JÖKLARANNSÓKNARÉI^AG Islands heldur fund í Tjarnar- kaffi, uppi, fimmtudaginn 15. október, kl. 20,30. Þar mun Magnús Jóhannsson segja frá haustferðinni á Vatnajökul og sýna litskuggamyndir, einkum úr Kverkfjöllum, og af sigi því, sem þar hefur myndazt í sumar. Hafa ekki í annan tíma verið teknar fegurri litmyndir af kverkfjötl- um en þær, sem Magnús tók í þessari ferð. Einnig verða sýndar nokkrar litskuggamyndir úr ferð unum þremur, sem farnar voru á Vatnajökul síðastliðið vor. er á kjörseðilinn og fær þá um- ræddur aðili atkvæðin, hvort sem honum er það ljúft eða leitt. Kosning Cacarecos var að sjálf sögðu ógild, en hún er tákn um þá óánægju, sem hríðvaxandi dýr tíð hefur skapað í landinu. Vit- að var um þessa óánægju, en það kom stjórnmálamönnum á óvart, hve víðtæk hún var. Þrjú dag- blöð í Rio birtu forustugreinar um málið, og eitt þeirra hélt því fram, að bylting væri yfirvof- andi. Svipaðir atburðir hafa komið fyrir áður í Brazilíu. í bæjar- og sveitastjórnarkosningunum 1954 var geithafur meðal þeirra sem fengu flest atkvæði í Jaboatao í Pernambuo-fylki. þessi bandarísku félög að greiða 23,3 milljónir dollara í skrif- stofu- og mannahald — og brúttó tekjur 1958 urðu um 200 milljón- um minni en reiknað hafði verið með. ★ 'Samt sem áður varð farþega- aukningin svo mikil sem raun ber vitni — og flugfarþegatalan yfir Atlantshafið varð meiri en þeirra, sem sjóleiðina fóru. Vöru- og póstflutningar jukust þá einn- ig mjög. \ Það sem af er þessu ári hefur einnig sýnt, að enn hafa flutn- ingarnir yfir hafið stóraukizt — og munu vafalaust slá öll fyrri met — og þó eru þetta smámunir miðað við það, sem koma skal, sagði framkvæmdastjórinn. Við verðum að fylla þoturnar, sagði hann — og það gerum við ekki nema með því að lækka far- gjöldin. Hildred benti á það, að enda þótt sparifargjöldin, sem IATA ákvað í fyrra í Atlantshafs fluginu, hefðu ekki verið í gildi nema 9 .mánuði ársins, hefðu 55,5% allra farþega á þeim leið- um 1958 ferðast á „sparifarrými". 783.754 flugu það árið á þessu ódýra farrými, en 178.144 á ferða Frh. á bls. 23 NÆSTKOMANDI föstudag eru væntanlegar hingað til lands nokkrar sjónvarps- og grammó- fónstjörnur frá Norðurlöndum. — Meðal þeirra eru tvö „undra- böm“, 12 ára gömul stúlka, Ilse Bronnley, trompetleikari, sem hefur komið víða fram í Evrópu, og norsk stúlka, Liv Mette, 10 ára gömul, akrobat og syngur þar að auki. Hinir eru Nilli rokkari, danskur piltur, 14 ára að aldri, syngur og leikur á gítar, og Simme og félagar, Færeyingarn- ir, sem frægir urðu fyrir lagið FríÖrík ,,í kallfœri" við Benkö BIÐSKÁKIR á áskorendamótinu i Zagreb voru tefldar í gær. Úr- slit í 19. umferð urðu þessi: Smyslov vann Gligoríc, Keres vann Benkö. I 20. umferð urðu úrslit þessi: Petínsjan vann Benkö, Keres vann Gligoric. — Staðan á mótinu er þá þessi: 1. Tal 1414 2. Keres 13 3. Petrosjan 11 4. Smysiov 1014 5. Gligoric 10 6. Fischer 814 7. Benkö 6i/2 8. Friðrik 6 D-Iista-iundír í Reykjanes- kjördæmi FRAMBJQÐENDUR D-listans í Reykjaneskjördæmi boða til stjórnmálafunda á eftirtöldum stöðum nú í vikunni: í samkomuhúsinu Garðaholti, Garðahreppi miðvikudaginn 14. okt. kl. 8,30. Fundarstjóri: Jó- hann Eyjólfsson. I samkomusal ísbjömsins á Sel- tjarnarnesi miðvikudaginn 14. okt. kl. 8,30. Fundarstjóri: Friðrik Dungal. í Félagsheimilinu Kópavogi fimmtudaginn 15. okt. kl. 8,30. Fundarstjóri Kristinn Wíum. Hlégarði, Mosfellssveit, fimmtu daginn 15. okt. kl. 8,30. Fundar- stjóri Ólafur Bjarnason. Ræður og ávörp flytja: Ólafur Thors, Matthías Á. Matthíasen, Alfreð Gíslason, Sveinn S. Sveinsson, séra Bjarni Sigurðsson, Einar Halldórsson og Axel Jónsson. Allt stuðningsfólk D-listans velkomið. D-lista-fundar í Keflavík FRAMBJÓÐENDUR D-listans í Reykjaneskjördæmi boða til stjórnmálafiundar í Bíóhöllinni í Keflavík í kvöld ki. 8,30 s.d. Ræður og ávörp flytja: Ólafur Thors, Matthías Á. Matt hiasen, Alfreð Gíslason, Sveinn S. Einarsson, sr. Bjarni Sigurðs- son, Karvel ögmundsson og Guð- mundur Gmðmundsson. Fundarstjóri: Eggert Jónsson. Allt stuðningsfólk D-listans velkomið. Rasmus, oh Rasmus. Skemmti- kraftarnir halda hér nokkra hljómleika í Austurbæjarbíói, og hefjast þeir fyrstu föstudaginn 16. þ. m. Fegurðardrottning Islands, Sig- ríður Geirs, mun einnig koma fram á þessum hljómleikum, ásamt Hauki Morthens, sem mun syngja og annast kynningu skemmtiatriða. Hljómsveitin „5 í fullu fjöri“ aðstoðar. Knattspyrnufélagið Þróttur stendur fyrir þessari skemmtun í tilefni af 10 ára afmæli félags- ins. — Allsherjaríœkkun flugfargjalda og aukning flutninga boðui á þingi IATA „Tónar Norðursins" KabaiettsÝning Þróttar í Austurbæjarbíó

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.