Morgunblaðið - 13.10.1959, Blaðsíða 16
16
MORGVVBLAÐIÐ
Þriðjudagur 13. okt. 1959
STliLKA OSKAST
LEIKHtJSKJALL/VRINIM
Rafmótorar
Nýkomnir ódýrir þýzkir.
RAFMÓXORAR:
0,25 ha. ein-fasa kr.: 1.035,00
0,5 ha. — — 1.292,00
0,75 ha. — — 1.875,00
1,0 ha. þriggja-fasa 1.231,00
Ludvig Sforr & Co.
SkriísZo'uslúlka
Starf skrifstofustúlku er laus til umsóknar. Um-
sóknarfrestur til 20. þ.m.
BÆJARFÓGETINN 1 HAFNARFIRÐI.
Skriísioíuhúsnœði
eða annað hliðstætt er til leigu á góðum stað í bæn-
um. Tilboð merkt: „8887“, sendist blaðinu strax.
Þetta er eftirsóttasta peysan í dag
hneppt og óhneppt.
Verzlunin Dagný
Skólavórðustig 13 — Simi 17710.
Til söfu
íbúðir í smíðum og einnig Raðhús. Glæsilegar 2ja,
3ja og 4ra herbergja íbúðir fokheldar og tilbúnar
undir tréverk. Gott verð.
Komið strax
og athugið.
Austurstræti 14 III. hæð.
Sími 14120
Guðríður
Minningarorð
HINN 29. júlí sl. lézt í Heilsu-
| verndarstöðinni hér í Reykjavík,
frændkona mín, Guðríður Páls-
dóttir, f. 6. júlí 1883 að Vallar-
húsum á Miðnesi. Foreldrar henn
ar voru: Páll bóndi j Vallarhús-
um Jónsson bónda í Prestsbakka-
koti á Síðu eldra, (Jón yngri bjó
á Lónshúsum í Garði) Pálssonar
á Geirlandi, Ásgrímssonar hrepp-
stjóra þar, Pálssonar. Kona Páls
í Vallarhúsum og móðir Guð-
ríðar sál. var Margrét Höskulds-
dóttir, Guðlaugssonar á Sauðhús-
nesi i Álftaveri, Jónssonar á Suð-
urgötum í Mýrdal, Sigurðssonar.
Móðir Margrétar Höskuldsdótíur
var Margrét Símonardóttir frá
Jórvíkurhryggjum í Álftaven,
Jónssonar hreppstjóra á Kirkju-
bæjarklaustri, Magnússonar frá
Auðnum í Öxnadal í Eyjafjarð-
arsýslu, Magnússonar bónda þar.
Albróðir Margrétar Símonardótt-
ur var Markús Símonarson, er dó
voveiflega á Flankastöðum á
Miðnesi 26. ágúst 1885. Sonur
Markúsar var Gísli, er drukknaði
með Sveinbirni Einarssyni í
Sandgerði 11. apríl 1903. Dóttir
Gísla Markússonar er Þuriður,
kona Kristófers skipstjóra og út-
gerðarmanns frá Stöðulkoti á
Miðnesi, Olíverssonar frá Slétta-
bóli á Síðu, Guðmundssonar
bónda þar, Erlendssonar. Eitt af
börnum Jóns hreppstjóra Magr.-
ússonar var Guðríður, síðari
kona Páls prófasts í Hörgsdai,
Pálssonar umboðsmanns á Elliða-
vatni.
Margrét Höskuldsdóttir var
fædd á Hörgsdal 1. okt. 1850, og
ólst þar upp hjá afasystur sinni,
mad. Guðríði, óslitið fram yfir
tvitugt og mun Guðríður sál.
Pálsdóttir hafa borið nafn mad-
ömunnar í Hörgsdal.
Fjölmargir Skaftfellingar fluttu
I til Suðurnesja á síðari hluta 19.
aldar, þar á meðal Páll Jónsson
frá Prestsbakkakoti og Margrét
Höskuldsdóttir frá Hörgsdal,
urðu þau bæði vinnuhjú í Klöpp
á Miðnesi og giftust þar 15 júní
1876, en bjuggu svo að Vallar-
húsum, eignuðust þar átta börn,
hvar af enn lifa tvær yngstu syst-
umar, Rannveig og Helga, giftar
ágætum mönnum, skaftfellskum
að ætt. — Þess má geta, að ein
Pálsdóttir
var hálfsystir þessara systkina,
Guðný Pálína Pálsdóttir f. 2. nóv.
1891 að Hlíðarenda í Fljótshlíð,
ól mestan aldur sinn í Vestmanna
eyjum, en dó 10 dögum fyrr en
Guðríður sál. (Sjá eftirmæli i
Mbl. 24. og Tímann 27. sept. þ. á.)
Margrét Höskuldsdóttir lézt að
Vallarhúsum 13. ágúst 1888, 38
ára að aldri. Stóð þá Páll einn
eftir með öll börnin i ómegð, það
elzta, Sigríði, á 14. ári, örfátæk-
ur, sem flestir aðrir á þeim örð-
uga tíma. Við áratuginn 1880—90
eru bundin nöfnin: Harðivetur,
Mislingasumar, Aflaleysisár. óát -
an. Samskot og gjafakorn erlena-
is frá. Þarf lengra að lýsa? Voru
börnin þá tekin, flest af skaft-
fellskum frændum og vinum
þeirra hjóna, sem fjöldi var af í
þeirri sveit.
Guðríður fór þá 5 ára gömul ti!
afabróður síns í föðurætt, Páls
bónda á Býjaskerjum Pálssonar
á Geirlandi, og hans góðu konu
Þórunnar Sveinsdóttur, Björns-
sonar í Vörum í Garði. Ólst hún
þar upp við sama kost og kjör,
sem þeirra eigin börn. Tvítug að
aldri fór Guðríður til Reykjavik-
ur og var um hríð á sama verk-
stæði eða í vistum, unz hún giít-
ist 9- nóv. 1907. Lárusi Jónssyni
sjómanns Jónssonar, og Ólafar
Maríu Ólafsdóttur, er voru hjón
búandi á Garðhúsum í Garða-
MOHAIR kápur
— kjólar
húfur
— vetthngar
MOHAIR er tízkuefnið í ár.
MmAÐURIN
Laugaveg 89.
hverfi á Álftanesi, var Lárus þar
fæddur. Um fermingaraldur flutt
ist hann til Reykjavíkur með for-
eldrum sínum, bjuggu þau lengi
að Vatnsstíg 16 hér í bæ.
Þau hjónin Guðríður og Lárus
bjuggu lengst á Bergstaðastíg 17,
eignuðust 5 böm, hvar af fjögur
komust til aldurs, en þau eru:
Jón, vélstjóri, giftur Mörtu Hann.
esdóttur frá Vestmannaeyjum.
Pétur, verkamaður, giftur Sig-
ríði Einarsdóttur frá Hömrum 1
Grímsnesi, Sveina Pálfríður, gift
Jóni bifreiðastjóra Friðbjarnar-
syni frá Vík í Fáskrúðsfirði og
Margrét er dó 25 ára gömul, ógift.
Eftir um 30 ára sambúð, varð
aðskilnaður þeirra hjónanna, mun
það mest hafa framfarið í leynum
hjartans, en með ró og spekt á
yfirborði, enda mátti í mörgu sjá
og finna, að neistinn forni hefir
aldrei slokknað. Þau bjuggu
mörg ár eftir það í sama húsi,
mitt á meðal barna sinna, og voru
jafnan hvort öðru innan handar,
ef á lá eða að þrengdi.
Guðríður var tryggiynd, átt-
hagakær og gleymdi ógjarnan
vinum sínum frá æskudögum þar
syðra, vel gefin, greind og hugs-
andi kona. Einn vottur þess er
það að, hún safnaði minningai-
greinum og öðru því er hún taldi
sig varða nokkru, gjörlas það og
lagði á minnið, sér til fróðleiks.
Gjafmild var hún snauðum af
iitlum efnum. Hrein og bein í
skoðunum og því talin dálítið geð
rík, en sjaldan er gagn að þeim,
sem geðlaus er. Hún var myndar-
leg húsmóðir og góð fyrirmynd
barna sinna, prúð og stillt í dag-
legri framgöngu, og vildi aldrei
vamm sitt vita.
Vertu sæl kæra frændkona, við
sjáumst síðar og tölum þá rflaust
um gamla daga.
Magnús Þórarinsson.
Einmuna góð tíð
' C* 1 í*
i digluiiroi
SIGLUFJÖRÐUR, 10. okt. —
Hér hefur verið einmuna góð tíð
það sem af er þessu hausti og
gæftir góðar. Allmargar. trillur
stunda héðan róðra með hand-
færi og hafa fiákað sæmilega.
Tveir dekkbátar eru gerðir
héðan út með línu hefur aflinn
verið 3—4 tonn í róðri. Þetta er
frekar stutt sótt eða á svonfend
Fljótamið.
Bæjartogararnir Elliði og Haf-
liði losnuðu hér í þessari viku,
rúm 450 tonn samanlagt og fór
sá afli í frystihúsin. Skreiðar-
aflann fengu þeir á heimamiðum
og eru báðir farnir á veiðar aft-
ur.
Talsverð vinna he/ur verið í
haust við síldina, við pökkun og
fl. og er hún alltaf að fara.
Hér má til frétta færa, að
varla sést nokkur snjór j nær-
liggjandi fjöllum á þessum tíma
árs. — Guðjón.
Vegagerð að hætta
á þessu hausti
í N-k
ÞÚFUM, N.-ÍS.. 8. okt.— Vega-
gerð ríkisins er nú að hætta
störfum. Var búið að ýturyðja
veg að Látrum, fullbera ofan í
veg út fyrir Lægurð i Mjóafirði,
og jarðýta búin að fylla að tveim
brúm á Reykjafjarðará og Þúfna-
á. Jarðýtan er nú að ryðja veg
úti á Snæfjallaströnd, milli Un-
aðsdals og Mýrar, en verður ekki
lengi úr þessu.
Tíðarfar hefir verið nú um
langt skeið óhagstætt vegagerð
sökum rigninga og af þeim sök-
um orðið minna ágengt. — PP.