Morgunblaðið - 16.10.1959, Blaðsíða 2
2
MORCVJSBLAÐ1Ð
Fösfudagur 16. okt. 1959
Fé er nú sótt ausfur
yfir Mýrdalssand
Við Strandgötu 50 síðdegis í gær. (Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.)
— heldur rauk úr potti
EINS og skýrt var frá í blaðinu
síðastliðinn miðvikudag átti að
gera tilraun til að ssekja slátur-
fé austur yfir Mýrdalssand í
fyrradag. Fréttaritari Mbl. í Vík
símar:
Fjárflutningar vestur yfir Mýr-
dalssand hófust á þriðjudag og
hefur verið flutt síðan. Þetta fé
er úr Skaftártungu og Álftaveri.
í morgun hófust svo flutningar
— Skattarnir
Framh. af bls. 1.
hægara en erlendis að koma í veg
fyrir skattasvik".
Við þessa stefnu hefur flokk-
urinn stöðugt haldið. Til dæmis
var í hinni frægu fjögurra ára
áætlun flokksins 1934 sagt:
„Að breyta skatta- og tollalög-
gjöfinni þannig, að tollum verði
létt af nauðsynjum, en beinir
skattar að sama skapi hækkaðir
af háum tekjum og stóreignum".
♦
Af hverju koma
sinnaskiptin
Um þessa stefnu hafa Sjálf-
stæðismenn og Alþýðuflokks fyrr
og síðar marga hildi háð. Ágrein-
ingur um stefnu í skattamálun-
um hefur e. t. v. skilið fremur
á milli flokka en nokkuð atriði
annað.
Sjálfstæðismenn hafa haldið
því fram, að stefna Alþýðuflokks
ins hlyti að leiða til öfga og
niðurdreps heilbrigðu atvinnu-
lífi og eðlilegri eignasöfnun í
landinu. Fyrir ekkert hefur Al-
þýðuflokkurinn aftur á móti
svívirt Sjálfstæðismenn meira en
þá hlífð við hina ríku, sem fæl-
ist í aðvörunum flokksins og and
stöðu hans gegn sihækkandi
sköttum, ekki síst hinum stig-
hækkandi tekjuskatti.
Nú hefur Alþýðuflokkurinn
skyndilega skipt um skoðun í
þessum efnum. Um þau skoðana-
skipti er í sjálfu sér ekki nema
gott eitt að segja. En menn hljóta
að minnast þess, að loforð sumra
hinna „æfðu stjórnmálamanna"
hafa stundum verið haldlitil. A.
m. k. ætti ekki að þurfa að eyða
orðum að því að betur sé treyst-
andi til efnda í þessu þeim, sem
ætíð hafa fylgt þeirri stefnu, sem
Alþýðuflokkurinn segist nú háfa
snúizt til, en hinum, sem svo
snögglega og óvænt hafa sann-
færzt um réttmæti hennar, og-
bersýnilega reyna að nota sínna-
skipti sin til atkvæðaveiða, eins
og sézt af Alþýðublaðinu í gær.
S j álf stæðisf lokknum
einum treystandi
Um Framsóknarflokkinn er
óþarft að ræða í þessum efnum.
Saga hans — og þá ekki sizt Ey-
steina Jónssonar — er saga um
stöðugar skattahækkanir, þangað
til svo- er komið úr hófi, að Tím-
inn sjálfur á ekki nógu Ijót
orð til þess að fordæma núgild-
andi skattpíningu, þó að þar hafi
engu verið breytt frá því, að Ey
steinn Jónsson skildi við.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
einn sett fram samfelda, ótvíræða
stefnuskrá um lausn efnahags-
málanna, þ. á. m. gerbreytingu á
skattkerfinu. í tillögum sínum
markar flokkurinn stefnu sína til
aðkallandi vandamála skýrar en
fyrr, en í fullu samræmi við það,
sem hann hefur ætíð haldið fram.
Ailir þeir, sem nokkurs meta,
að samræmi sé á milli orða og
athafna, munu þess vegna treysta
Sjálfstæðisflokknum betur ein-
mitt í þessum málum, heldur en
hinum, sem hingað til hafa eytt
meginhluta orku sinnar til að
berjast fyrir því, sem þeir nú
segjast ólmir vilja afnema.
úr Meðallandi til Verzlunarfélags
ins. Við flutningana eru notaðir
tveggjadrifa trukkar og fylgir
þeim jarðýta yfir vatnið á sand-
inum til öryggis. Vegagerðin hef-
ur lánað trukkana til flutning-
anna, sem eru bæði erfiðir og dýr
ir. Flóð þetta á Mýrdalssandi get
ur skapað mikla erfiðleika fyrir
bændur, sem búa fyrir austan,
því allar vistir til vetrarins
eru fluttar yfir sandinn á haust-
in. Einnig er erfiðleikum bund-
ið að koma afurðum frá slátur-
húsinu á Kirkjubæjarklaustri, ef
þetta lagast ekki á næsturihi. —
Vatnið hefur heldur fjarað, en
ómögulegt er að segja á þessu
stigi, hvort úr rætist.
Sölur í Þýzkalandi
í FYRHADAG seldi togarinn
Brimnes í Bremerhaven. — Var
hann með 135 lestir og seldi fyrir
90,000 mörk.
í gær seldu í Cuxhaven tveir
togarar: Surprise 136 lestir fyrir
86,571 mörk og svo kom þangað
togarinn Harðbakur, sem á dög-
unum ætlaði að selja í Grimsby.
Var hgnn með 167 lestir af fiski
og seldi fyrir 97,993 mörk.
Lögreglan þarf að
tala við manninn..
í SAMBANDI við frásögn blað-
anna af hinum ægilega bruna í
húsinu Fossvogsbletti 33, þar sem
börnin fórust, var þess getið, að
einhver maður hafi komið fólk-
inu til hjálpar. Hafði hann t. d.
hringt á lögregluna. Rannsóknar-
lögreglunni er ekki kunnugt um
nafn þessa manns. En í sambandi
við rannsókn málsins, er mjög
nauðsynlegt að hún hafi tal af
manni þessum. Er hann því vin-
samlegast beðinn að hafa sam-
band við rannsóknarlögregluna
— Debré
Framhald af bls. 1.
vörðungu fjalla um hernaðarlega
hlið þeirra mála. Ekki yrði rætt
við uppreisnarmenn um stjórn-
málalega hlið málsins, enda við-
urkenndi franska stjórnin hvergi
rétt þeirra, sem stjórnmálalegs
afls í landinu.
Þá svaraði Debré árásum
hægrimanna á Alsír-tillögur de
Gaulles. Hann sagði að þessar
á)rásir væru lltt hugsaðar og
myndu skaða Frakkland, þvf að
þær drægju úr þeim áhrifum
sem ræða de Gaulles ætti að
hafa. að sannfæra aðrar þjóðir
um að Frakkar vildu viðurkenna
SÍálfsákvörðunarrétt Alsír-búa.
★
Umræðurnar um Alsír-málið
voru mjög heitar og harðskeytt-
ar. Höfðu ýmsir öfgafullir hægri
menn sig mjög í frammi og sögðu
að með tillögum de Gaulles væri
verið að stiga fyrsta skrefið til
að aðskilja Alsír frá Frakklandi.
Einna mesta athygli í umræð-
um þessum vakti yfirlýsing eins
fylgismanns de Gaulles, að nafni
Lucien Neuwirth, að öfgaöfl
hefðu gert samsæri um að ráða
ýmsa ráðherra frönsku stjórnar-
innar af dögum. Sgaði Neuwirth
að Rauða höndin, leynihreyfing
franskra landnema í Alsír, hefði
þegar gert krossa við nöfn ráð-
herra í frönsku stjórninni og
myndi hún framkvæma morðtil-
ræði á næstunni. Sagði hann að
væntanlegir launmorðingjar
væru þegar komnir til Frakk-
lands frá Alsír og hefði þeim
verið smyglað gegnum Spán.
Neuwirth var einn af forustu-
mönnum 13. maí-hreyfingarinn-
ar, sem kom de G'UilH *il valda
i fyrrasumar. i
Ekki etdur
HAFNARFIRÐI. — Síðdegis í
gær var slökkviliðinu tilkynnt,
að mikinn reyk legði upp af hús
inu Strandgötu 50, og þar væri
líklegast eldur laus. Liðið fdr
þegar á vettvang, og kom þá í
ljós, að hér var ekki um eld að
ræða, heldur kom reyfeurinn úr
potti eða pönnu, sem stóð á elda
vél. Múgur og margmenni safn-
aðist saman fyrir utan húsið,
eins og jafnan þegar slökkviliðið
gær kom til 2. umræðu tillaga frá
Öddu Báru Sigfúsdóttur um
stofnun byggingarfélags í bæn-
um, er annaðist verulegan hluta
nauðsynlegra íbúðabygginga.
Var einnig í tillögunni lagt til, að
bæjarstjórn fæli bæjarráði að
semja greinargerð um fyrir-
komulag hliðstæðra byggingar-
félaga í höfuðborgum hinna
Norðurlandanna. Hafði flutnings
maður gert grein fyrir tillögunni
á síðasta fundi bæjarstjórnar.
Gunnar Thoroddsen borgar-
stjóri skýrði frá því á fundinum
í gær, að fyrir lægi frá Páii
Líndal skrifstofustjóra bráða-
birgðagreinargerð um afskipti
bæjarfélaga á Norðurlöndum,
sem hann kvaðst vænta að væri
svipaðs eðlis og farið væri fram
á í tillögunni. Vék hann síðan að
opinberum afskiptum bæjarfé-
lagsins að íbúðabyggingum í
höfuðborgum Norðurlanda. Kvað
hann rikið sjálft taka mjög veni-
legan þátt í að leysa húsnæðis-
Fjölsóttur fundur
Sjálfstæðismanna
á Bíldudal
BÍLDUDAL, 15. okt. — Fram-
bjóðendur Sjálfstæðisflokksins
héldu almennan stjórnmálafund
í Félagsheimilinu á Bíldudal
mánudaginn 11. október. Frum-
mælendur á fundinum voru Þor-
valdur Garðar Kristjánsson þing
maður Vestur-ísfirðinga og Kjart
an J. Jóhannsson, þingmaður ís-
firðinga. Fundurinn var mjög vel
sóttur og var ræðumönnum vel
tekið. Kom fram einhuga áhugi á
íundinum að gera sigur Sjálfstæð
ismanna í komandi kosningum
sém ailra glæsilegastan.
— Fréttaritari.
er kallað út, en slíkt getur að
sjálfsögðu haft mjög slæmar
afleiðingar í för með sér, — taf-
ið fyrir að slökkviliðsmenn kom
ist að starfi sínu, en eirinig geta
slys hæglega hlotizt af þegar
börn og unglingar gerast of nær-
göngul að brennandi húsum.
Hús það, sem haldið var að
kviknað væri í, er eitt hið elzta
hér í Hafnarfirði, ásamt Brydes
húsinu, sem Bjarni riddari Sí-
vandamál fólks á hinum Norður-
löndunum með því að tryggja
fbúðalán. í Danmörku færu þessi
byggingalán upp í 97% af kostn-
aðarverði, en í Svíþjóð væru
dæmi til þess að byggingarlánin
næmu allt að 100% af kostnaðar-
verði. Algengast mundi þó vera
að lánin væru sem svaraði
80—90%.
Hér á landi væri lánsfjárskort
urinn aftur á móti lang stærsti og
erfiðasti þröskuldur á vegi þeirra,
sem væru að koma yfir sig þaki.
vertsen lét reisa við Vestur-
götu. Var það múrhúðað fyrir
nokkrum árum og hefir jafnan
verið búið í því.
Mjög rólegt hefir verið hjá
Slökkviliðinu í haust, og það
ekki kallað út nema einu sinni,
í september, þegar kviknaði í
Kaupfélaginu. Liðið hefur yfir
þremur bílum að ráða: einum
nýlegum með háþrýstidælu, og
tveimur eldri. — G. E.
Varðandi afskipti bæjarfélag-
anna sjálfra kvað borgarstjóri
sér mundi óhætt að fullyrða, að
ekkert bæjarfélag á Norðurlönd-
um hefði látið sig íbúðabyggi'ng-
ar éins miklu skipta og Reykja-
vík.
Borgarstjóri sagði að lokum,
að hann drægi mjög í efa, að það
væri rétt spor að ætla að koma
sem mestum byggingarfram-
kvæmdum í bænum á eina hönd.
þar, sem annarsstaðar mundi
frjáls samkeppni vera til bóta.
Lagði.hann til að tillögu Öddu
Báru Sigfúsdóttur yrði vísað til
bæjarráðs. Var það samþykkt
með 10 atkvæðum gegn 5.
Frd fulltrúaráði Sjalfstæðis-
_ félaganna í Reykjavík
í DAG verða opnaðar á vegum Fulltrúaráðs Sjálfstæðisíé-
laganna hverfaskrifstofur á eftirtöldum stöðum í Reykjavík:
VESTURBÆJARHVERFI,
Aðalstræti 6 (Morgunblaðshúsinu),
sími 23113.
MIÐBÆ J ARH VERFI,
Breiðfirðingabúð (uppi),
sími 24176.
AUSTURBÆJARHVERFI,
Skólavörðustíg 22 A,
sími 24175.
NORÐURMÝRARHVERFI,
Skátaheimilið við Snorrabraut,
sími 24177.
HLÍÐA- OG HOLTAHVERFI,
Skipholti 15,
sími 10628.
LAUGARNESHVERFI,
Sigtúni 23,
sími 35240.
LANGHOLTS- OG VOGAHVERFI,
Langholtsvegi 165,
sími 35241.
SMAÍBÚÐA-, bústaðavegs- og
BLESU GRÓFARHVERFI,
Breiðagerði 13,
sími 35242.
Allar skrifstofurnar verða opnar daglega kl. 16—22 og veita
ailar venjulegar upplýsingar um kosningarnar.
Lánsfjárskorturinn er erfiðasti þrösk
uldur húsbyggjenda
Frá umrœðunum á bœjarstjórnarfundi
Á BÆJARSTJÓRNARFUNDI í