Morgunblaðið - 21.10.1959, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 21.10.1959, Blaðsíða 1
24 síður 46. árgangur 232. tbl. — Miðvikudagur 21. október 1959 Prentsmiðja Morgunblaðsins Undir forystu Sjálfstœðismanna hafa fram farirnar verið mestar og þjóðinni vegnað bezt Verðbólguskessan skellti V-stjórnínni — Gunnfáni Framsóknar dreginn i hálfa stöng Frá útvarpsumræðunum i gærkvöldi tjTVARPSUMRÆÐURNAR í gærkvöldi einkenndust annars vegar af markvissri sókn ræðumanna Sjálfstæ'ðisflokksins en hins vegar af sundurþykkju og gagnkvæmum ásökunum ræðumanna vinstri fiokkanna hvers á hendur öðrum. Einar Olgeirsson hóf umræðurnar með gamalli plötu, sem hlustendur höfðu oft heyrt í útvarpi áður. Af öðrum ræðumönnum vinstri flokkanna má sérstaklega minna á Hermann Jónasson, formann Framsóknarflokksins, sem var mjög taugaóstyrkur í málflutningi sínum. Reyndi hann að bera blak af V-stjórninni og fullyrti, að hún hefði ýmsu góðu til leiðar komið! Hér fer á eftir stuttur útdráttur úr ræðum Sjálfstæðismanna: Ólafur Thors, formaður Sjálf- stæðisflokksins, talaði fyrstur af Sjálfstæðismönnum. Rakti hann m.a. feril V-stjórnarinnar, sem hefði hafizt með stórum orðum Hermanns Jónassonar, en eftir fimm misseri hefði gunnfáni Framsóknar verið dregnm í hálfa stöng, er sami maður hefði lýst því yfir, að ný verðbólgualda væri skollin yfir. Verðbólguskess an hefði þannig sigrað í þessari Hel j arslóðarorrustu. í lok ræðu sinnar minnti Ólaf- ur Thors á, að reynslan hefði sannað, að undir íorystu Sjálf- stæðismanna hefðu framfarirnar alltaf orðið mestar, víxlsporin fæst og þjóðinni bezt farnazt. .— Ræða Ólafs Thors er birt í heild á bls. 13 í blaðinu í dag. Ræða Ragnhildar Helgadóttur Frú Ragnhildur Helgadóttir, al- þingismaður, vék í upphafi máls síns að því loforði vinstri stjórn- arinnar að ráðast gegn verðbólg- unni. Sú tilraun hefði þó farið í handaskolum hjá þeim ósam- hentu flokkum, sem að V-stjórn- inni stóðu og önnur tilraun þeirra flokka yrði þjóðinni of dýr. Finimburar fæddustíTexas SAN ANTONIO, Texas, 20. okt. — Fimmburar fæddust í San Antonio í dag. Móðirin er frú Hannan, 27 ára gömul. Frú Hannan ól þremur mánuðum fyrir tímann, en öll börnin eru stúlkur. Börnin voru öll sett undir súrefnishjálm strax eftir fæðinguna Faðirinn er foringi í banda ríska flughernum. Þau hjón áttu tvö böm fyrir, drengi, 5 ára og 2 ára. Þetta eru fyrstu fimmbur- arnir, sem fæðast í Bandaríkj- unum. 1934 fæddust fimmbur- ar i Kanada, allt stúlkur, en ein þeirra er nú dáin. Og 1943 fæddust fimmburar í Argentínu, sem lifa enn — tveir drengir og þrjár stúlkur. Það er einkar skemmtilegt, að fimmburarnir bandarísku skyldu einmitt fæðast í Texas, segja menn vestra — og Texas búum finnst það sjálfsagt og eðlilegt. Þá ræddi hún um þær bráða- birgðaráðstafanir, er haldið hefði verðbólgunni niðri nú um skeið, .....en vék síðan að h i n n i ítarlegu | efnahagsmála- || stefnuskrá Sjálf- stæðisflokksins. ^ Sjálfstæðisflokk- % ' * urinn 1 e g ð i á- ■ herzlu á að hér á landi yrði lagt inn á nýja braut frjálslyndis í efnahagsmálum þar sem aðgerðir ríkisvaldsins miðuðu að því að glæða vilja fólksins til athafna. Úrræði sósíalisma og hálfsósíal- isma hefði verið hafnað í hverju landi Vestur-Evrópu á fætur öði’u og sama yrði að gerast hér. Þá vék frú Ragnhildur að hlut kvenna í stjórnmálum og kvað ekki að ófyrirsynju að konur létu sig þau mál miklu varða. Hugur þeirra flestra væri bundinn hinni vaxandi kynslóð, og með atkvæði sínu væru þær að ákveða í hvern- ig þjóðfélagi sú kynslóð ætti að lifa. Sama gilti ekki síður um æskufólkið sjálft. En Sjálfstæð- isflokkurinn hefði jafna* sýnt á- huga- og hagsmunamálum kvenna og æskufólks skilning og stuðning. Minnti frú Ragnhildur á, að enginn stjórnmálaflokkur hér á landi hefur í þessum kosn- ingum gert hlut kvenna og æsku- fólks jafn góðan og Sjálfstæðis- flokkurinn og lauk máli sínu með þessum orðum: Æskan og konurnar geta I sameiningu unnið Sjálfstæðis- flokknum þann sigur í kosning um sem hann er verður og þjóðin þarfnast. Framh. á bls. 2. Hvort viljið þið heldur, að SÍS eða 2500 gjaldendur sleppi við útsvar? EF LEYFILEGT hefði verið að leggja á Sambandið eftir sömu reglum og önnur fyrirtæki hér í bænum, mundi út- svar þess hafa orðið 4,5 milj. kr. Eins og frá hefur verið skýrt, voru 22.198 útsvarsskyld- ir einstaklingar að þessu sinni. Af þeim höfðu 2500 tekjur frá 25—36 þús. kr. og útsvör samtals 4,5 millj. kr. Lágmarkstekjur til skatts voru nú 25 þús. kr. Hefði niðurjöfnunarnefnd getað lagt áðyrnefnt út- svar á Sambandið, mundi hún því hafa getað hækkað lágmarkið úr 25 þús. kr. í 36 þús. kr., og mundi þá 2500 af lægst launuðu starfsfólki í bænum hafa orðið útsvarsfrjálst. í gær var sýnt fram á hér í blaðinu, að ef menn hefðu heldur kosið, hefði mátt lækka barnafrádrátt um 220,00 kr. á barn. Hvort vilja Reykvíkingar annað hvort þetta eða halda þeim rangindum, að SÍS sé útsvarsfrjálst? Almennustu mannréttindi fót- & um troðin / Tíbet Samsæri gegn de Gaulle PARÍS, 20. október. — Þær fregnir fljúga í París, að um helgina hafi komizt upp um viðtækt samsæri gegn de Gaullc og stjóm hans. Hafi ofstækisfullir hægrimeim i Alsír átt hér hlut að máli. Af hálfu stjórnarinnar hefur ekki fengizt nein staðfesting. NEW YORK og NYJU DELHI, 20. okt. — Fregnir hafa borizt um að kínversku hersveitirnar, sem réðust frá Tíbet inn yfir ind- versku landamærin í ágúst séu nú að hörfa inn fyrir landamærin aftur. Indverskar hersveitir hafa að svo stöddu ekki fylgt Kín- verjum eftir, en Kínverjar tóku landamæravarðstöð af Indverj- um og hafa haft hana á sínu valdi um skeið. Breyting þykir hafa orðið á framferði kínverskra kommún- ista í garð Indverja. Hroki og hótanir eru nú roknar út í veður og vind — og af hálfu kínverskra sendimanna mæta Indverjar nú einungis vinsemd og brosmildi. Er þetta talið bera vott um að nú hafi Kínverjar komið Tíbet- búum á kné — og þeir óttist ekki lengur að missa undirtök- in í Tíbet. Nú sé kominn tími til að reyna að fá Asíuþjóðir til þess að gleyma harmleiknum í Tíbet. írski fulltrúinn á Alísherjar- þinginu hvatti stjórn kínverskra Þrír hreyflar rifnuðu af þotunni kommúnista til þess að semja við Dalai Lama um friðsamlega lausn Tíbetmálsins — og að bundinn yrði endi á þann harmleik, sem þar hefur farið fram. Tíbetmálið var á dagskrá þings ins í dag. Fulltrúi Malaya sagði, að í Tíbet hefði verið traðkað fruntalega á hinum almennustu mannréttindum. Malaya og írland fluttu í sam- einingu ályktunartillögu þar sem þess var krafizt, að grundvallar- réttindi mannsins yrðu virt í Tíbet. — í Tíbet hefðu gerst þeir atburðir, sem Sameinuðu þjóðirn ar mættu ekki loka augunum fyrir. Ef þær gerðu það mundi álit stofnunarinnar rýrna mikið meðal menningarþjóða. Rússneski fulltrúinn kvaðst vona að Allsherjarþingi'ö skellti skollaeyrum við þvílíku og hætti sér ekki út á braut kalda stríðs- ins með því s'ö íæða Tíbetmálið, sem því í rauninni kæmi ekkert við. Dauðadómur Chessmans enn óbreytfur WASHINGTON 20. okt. — Hæsti réttur Bandaríkjanna frestaði í dag að fella dóm í máli Caryl Chessmans. Samkvæmt dómi á aftaka hans að fara fram í gas- klefa á föstudag og þar sem Brown, fylkisstjóri í Kaliforníu hefur með öllu neitað að sýkna hann, er líf Chessmans í höndum hæstaxéttar. Hinn dauðadæmdi hefur beðið um sýknun en neitað náðun. Verjandi Chessmans hefir bor- ið fram óskir við hæstarétt um það að aftökunni verði frestað til þess að skjólstæðingur hans WASHINGTON, 20. október. — Boeing-707 farþegaþota fórst í gærkveldi í æfingaflugi og biðu fjórir bana, en fjórir komust af. Er þotan var 12,000 feta hæð rifnuðu þrír af fjórum hreyflum af vængjunum, er flugstjórinn var að rétta þotuna við eftir mjög óvenjulega „loftfimleika“, sagði talsmaður verksmiðjunnar. Flugstjóranum tókst þó að hafa stjórn á þotunni, sem er hin stærsta í notkun í farþega- flugi. Reyndi flugstjórinn að nauðlenda í skóglendi án þess að setja hjólin niður, en um leið og þotan nam jörðu varð spreng- ing í henni með fyrrgreindum af- leiðingum. Allir þeir, sem af komust, voru í afturenda þotunn ar, en hinir voru í flugstjórnar- klefanum. Önnur Boeing-þeta fórst í Bandaríkjunum fyrir skemmstu á æfingaflugi — og í vor rifnaði einn hreyfill af Boeing-707, þeg- ar hún var á æfingaflugi skammt frá París. Hörmulegur atburður MERRICK, New York, 20. október. — Sjúk og örvænt- ingarfull móðir lokaöi tvær Iitlar dætur sínar inni í ís- skápi og hengdi sjálfa sig síð- an í svefnherberginu skömmu eftir að eiginmaðurinn fór að heiman til vinnu. Börnin frusu bæði í hel. London 20. október. — íhalds- maður, Harry Hilton-Foster var kjörinn forseti neðri deildar brezka þingsins. geti mætt fyrir rétti vegna málshöfðunar gegn útgefanda bóka þeirra, sem Cliessman hefur skrifað í fangelsinu. Málgagn Vatikansins í Róm lét í dag þá skoðun í ljós, að ef Ohessman yrði líflátinn eftir 11 ára fangelsissetu og baráttu fyr- ir lífi sínu væri um hróplegt ranglæti að ræða. Biðin í dauða- klefanum í þessi 11 ár væri Chess man nóg hegning, hæstiréttur yrði að vera svolítið mannlegur. Miðvikudagur 21. október. Efni blaðsins er m.a.: Bls. 6: Stefna Sjálfstæðisflokksins og sjávarútvegurinn. — 8: Rætt við Maríu Maack sjötuga. — 9: Flóttinn frá sósíalismanum. — 10: Minning dr. Björns Sigurðs- sonar. — 11: Bókaþáttur. — 12: Ritstjórnargreinin: — Baráttu- sætið. — 13: Við þurfum stjórn, sem þjóðin treystir. Ræða Ólafs Thors í gærkvöldi. — 14: Þögn og tár í Ungverjalandi. — 15: Eysteinn notar varaskattstjór- ann fyrir snúningsdreng. — 22: íþróttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.