Morgunblaðið - 21.10.1959, Side 9
Miðvikudagur 21. okt. 1959
MORCjnSBLAfílÐ
9
Fldttinn frá
sdsíalismanum
Dougias Jay einn af foruslu-
mönnum Verkamannaflokksins
vill fella niður siéltabarátiu
ogf þjóonýiingaráform
EINN af forustumönnum
brezka Verkamannaflokksins
hefur krafizt þess opinberlega,
að flokkurinn varpi fyrir borð
öllum hugmyndum um stéttar
skiptingu og þjóðnýtingu. Ef
Verkamannaflokkurinn gerir
það ekki, segir hann, má telja
vonlaust að hann nái nokkurn
tímann þingmeirihluta. íhalds
flokkurinn væri þá öruggur að
halda þingmeirihluta i næstu
40 ár.
>að er Douglas Jay, einn
helzti efnahagsmálasérfræðing
ur Verkamannaflokksins og
náinn samstarfsmaður Gait-
skells, sem hefur sett þessar
skoðanir fram í grein er hann
ritar í tímarit Verkamanna-
flokksins, Forward.
Mr. Jay segir blátt áfram í
grein sinni, að Verkamanna-
flokkurinn verði að losa sig
við tvo þunga bagga, sem
hann hefur veríð að dragast
með og urðu honum sérstak-
lega öriagaríkir í síðustu kosn-
ingum. Þeir eru:
1) Hugmyndin um stétta-
2 baráttu og
í 2) Þjóðnýtingar-draugurinn.
| Greinarhöfundur segir, að
t sú hætta vofi yfir að flokkur-
/ inn fari að berjast undir
J merkjum verkamannastéttar
sem ekki er lengur til.
— Orðið „þjóðnýting", segir
Mr. Jay. — Það er þýðingar-
laust að ætla sér að neita
þessu, jafnvel þótt manni þyk;
það sárt. Hugmyndir almenn-
ings um að við ætluðum að
,,þjóðnýta“ allt hvað eina var
mjög sterk i síðustu kosning-
um. Þessar hugmyndir verð-
Um við að kveða endanlega
niður, annars getum við aldrei
unnið sigur í kosningum.
Greinarhöfundur heldur á-
fram: — Víð verðum að gera
flokkinn þekkilegan fyrir fólk
í öllum greinum þjóðlifsins.
Það sem almenningur vill er
röskur, róttækur og vakandi
umbótaflokkur.
Hagstætt efnahagsástand
hafði svo mikla þýðingu fyrir 1
íhaldsflokkinn til að afla hon- j
um atkvæða, að engin siðferð- ^
isrök eða áróðursherferð gat^
vegið upp á móti því. Með
þessu áframhaldi gæti Verka-
mannaflokkurinn aðeins unn-
ið kosningar cftir alvarleg at-
vinnuleysisár. En það er ólík-
legt, að slíkt komi fyrir
nema foringjar íhaldsflokks-
ins gengju gersamlega af göfl-
unum.
Ef Verkamannaflokkurinn
fylgist ekki með tímanum, þá
er alvarleg hætta á stöðugum
skæruhernaði milli Fr jálsly nda
flokksins og Verkamanna-
flokksins, sem myndi tryggja
íhaldsflokknum völd í næstu
40 ár.
Mr. Jay, segir ennfremur,
Aflabrögð treg
í SÍÐUSTU VIKU lögðu sjö
togarar upp afla í Reykjavík
samtals 1674 lestir af fiski. Geir
kom með 217 lestir, Þormóður
goði 344, Uranus 220, Jón Þor-
láksson 174, Skúli Magnússon
259, Askur 210 og Marz 250.
Heldur hefur verið dauft yfir
veiðunum að undanförnu og afla-
brögð verið misjöfn. Togararnir
eru ýmist á veiðum við Ný-
fundnaland og Grænland eða á
heimamiðum og veiða sumir fyrir
erlendan markað.
Óþægindi Míila-
hverfisbúa
athuguð
Á fundi bæjarráðs er haldinn
var á föstudaginn, var rætt um
óþægindi þau sem ibúar í Múla-
hverfi við Suðurlandsbraut verða
nú fyrir vegna hinna miklu bygg
ingaframkvæmda þar. Var bæjar
verkfræðingi falið að kynna sér
málið og gera þar ráðstafanir
til bóta eftir því sem aðstæður
leyfa.
20 GLÆSIEEGIR VINNINGAR AÐ HEILDARVERÐMÆll
3 1 5. 0 0 0 kr.
Stærsti vinningurinn Rambler-station-bifreið árgerð 1959. —
Aðrir vinningar in. a. heimilistæki fyrir 100 þús. kr., góð-
hestur, farmiðar til útlanda o. fl.
Miðar seldir hjá umboðsmönnum um land allt, úr bifreið-
toni við Útvegsbankann, í skrifstofu Sjálfstæðisflokksins og
í Morgunbláðshúsinu II, hæð. , ■ * ,! i .
að almenningur vilji ekki
fjölgá eða stækka opinber ráð
og nefndir. Við ættum að hlíta
þeim úrskurði almennings og
lýsa því yfir, að við munum
ekki koma með neinar tillögur
í framtíðinni um aukna þjóð-
nýtingu.
Hugmyndin um þjóðnýtingu
stáliðnaðarins var góð segir
Douglas Jay. En það er ekki
þess virði að setja flokkinn og
það sem hann berst fyrir í
hættu vegna deilu um eignar-
form á stáliðnaðinum.
Greinarhöfundur leggur til
að Verkamannaflokkurinn af-
mái öll gömul merki stétta-
baráttunnar. — Við verðum
að endurskoða hvatningarorð
og áróðursræður flokksins.
Þaðan verður að uppræta göm
ul slagorð eins og „hin stríð-
andi verkalýðsstétt“ eða „sam
eining verkalýðsins.“
Þjóðfélagið hefur breytzt.
Verkamennirnir sem stjórna
vélum við smíði íbúðarhús-
anna hafa ekki lengur í
sér neina sameiningarkennd
verkalýðsins, ekki frekar en
launþegarnir sem búa í út-
hverfum borganna.
Að lokum segir Jay, að það
sé að vísu óhugsandi að fella
niður nafn Verkamannaflokks
ins (Labour), en hann gerir
þó tillögur um það, að nafni
hans verði breytt í „Verka-
manna- og Umbóta-flokkur-
inn“ (Labour and Reform).
Jón B. Jónsson við eitt málverk sitt.
Mólverkasýning J. B. Jónassenor
útfæra hlutina. Þótt þessi sýning
Jóns hrífi mig ekki, þá held ég,
að yfirleitt séu þetta betri mynd-
ir en hann sýndi fyrir tveim ár-
um. —
Starfsemi frístundamálara er
sannarlega virðingarverð, og það
er ekki nema gott eitt að segja
um viðureign þeirra við erfiða
listgrein, en það eru sannindi,
sem ekki verða hrakin, að mynd-
listin er miskunnarlaus og gerir
þær kröfur, að vart verður við
hana ráðið nema af þeim, sem
helga henni alla krafta sína.
Föstudaginn 16. október
Valtýr Pétursson.
Skuldar
krafizt á
erfiðum
tsmum
JÓN B. Jónasson er áhugamaður
um myndlist og málar mikið í
frístundum sinum. Nú hefur hann
efnt til sýningar á olíumálverk-
um í húsi Ásmundar Sveinssonar
við Freyjugötu. Sá áhugi, sem
Jón hefur á málverkinu, er sann-
arlega virðingarverður, og þá
ekki síður það, hvað hann hefur
tileinkað sér mikla tækni á sein-
ustu árum.
Allar þær myndir, sem Jón sýn
ir, eru unnar í ströngu abstrakt
formi og byggðar á einfaldari hátt
en flest eldri verk Jóns. Honum
hefur tekizt að koma þessari sýn-
ingu vel fyrir, og hefur hún mjog
snyrtilegt yfirbragð.
Því miður verður ekki með
sanni sagt, að árangur Jóns B.
Jónassonar sé í samræmi við á-
huga hans og vinnugleði. Hon-
um tekst ekki að gera verk sin
heillandi. Litirnir hafa vissan
drunga, þrátt fyrir hressilega
spretti, og hann hefur ekki nægi-
legt vald á byggingu formsins. En
það er skemmtilegt að fylgjast
með því, hvernig þessi áhugamað-
ur leitar fyrir sér um viðfangs-
efni og hvernig honum tekst að
Harold Thomas ^________
Forseti alþjóðasamtaka
Rotary-manna hér
KÖMINN er hingað til lands for-
seti alþjóðafélagsskapar Rotary-
manna, Harold Thomas frá Auck
land í Nýja Sjálandi. Kemur
hann hingað frá Norðurlöndum,
þar sem hann hefur haldið fundi
með forystumönnum Rotary og
heimsótt Rotaryklúbba. Áður var
hann £ Sviss og Frakklandi og
mætti á fundum samtakanna
bæði 1 Zúrich og Cannes. Þetta
er i þriðja sinn, sem forseti
Rotary International kemur til
íslands, en hver forseti gegnir
þessu starfi aðeins eitt ár.
Harold Thomas er þekktur
kaupsýslumaður í heimalandi
sinu og rekur þar umfangsmikla
húsgagnaverzlun. Hann hefur
tekið virkan þátt í margvíslegu
félagsstarfi og í Rotaryfélags-
skapnum hefur hann verið síð-
an 1923, forseti Rotaryklúbbsins
í Auckland og umdæmisstjóri
klúbbana í Nýja Sjálandi og j al
þjóðastjórn Rotary og nú síðast
forseti hreyfingarinnar. í Rotary
hefur hann mjög beitt sér fyrir
alþjóðasamvinnu. Á þessú ári
verður harm á stöðugum ferða-
lögum fyrir Rotary og sinnir ekki
öðrum störfum.
Eins og kunnugt er, er 'Rotary-
’féiagsskapurinn mjög útbreidd-
ur og nær nú til 113 þjóðlanda.
Alls éru stárfandi uhi 10200
klúbbar, víðsvegar um heim, ineð
nær 500 þús. félögum. Höfuð-
markmið þessa félagsskapar er
kynning og þjónusta og hefur
hann komið mörgu góðu til vegar
í þeim efnum. Ber að fagna öllu
því starfi og öllum þeim hreyf-
ingum, sem á einn eða annan
hátt vinna að bættri sambúð
þjóða, friði og bræðralagi manna
um víða veröld.
Harold Thomas nýtur álits og
virðingar allra Rotarymanna.
Hann mætti í gærkvöldi á sam-
eiginlegum fundi íslenzku Rotary
klúbbanna, sem haldin var i
veitingahúsinu Lido og fiutti
þar erindi og gafst íslenzkum
Rotaryfélögum kostur á því að
kynnast þessum merka og vin-
sæla forystumanni Rotarysam-
takanna. f för með Harold Thom-
as er kona hans, frú May Thom-
as, hafa þau ekki áður komið
hingað til lands. enda er langt
á milli íslands og Nýja-Sjálands
þó að þessi lönd hafi ýmislegt
sameiginlegt.
íslenzkir Rotaryfélagar bjóða
þessa góðu gesti velkomna til
landsihs og vona að hin stutta
dyöl hér verði þeim til ánægj u
og árha þeim heilla j merkile^u
starfi á þeim mikiu ferðalögum,
sem jáfnan fyígja hinu þýðingar-
mikla og virðulega starfi forset-
ans. ■
MYKJUNESI, 12 okt. — Það má
segja að hér sé alltaf sama rosa-
tíðin. Undanfarna daga hefur ver
ið austan rok og þá þurrt veður,
en þegar eitthvað lygnir er kom-
in rigning. Margir eiga ennþá
hey úti og verður að telja sumt
af því ónýtt með öllu, a. m. k.
það sem hefur legið flatt síðan
um höfuðdag. Eru ýmsir heldur
illa undir veturinn búnir og vist
er um það að heyin frá í sumar
reynast mjög léleg til fóðurs og
mun þurfa með þeim mikinn fóð
urbæti ef bókstaflega á ekki illa
að fara. Hitt er svo annað mál,
að með því geypilega verði, sem
er á fóðurbæti. geta bændur alls
ekki keypt hann, eins og þörf
væri á. Og víst er um það, að
mjólkurframleiðsla verður mjög
lítil hér á Suðurlandi í vetur.
Ekki bætir það úr skák að sú
litla aðstoð er bændur á þessu
svæði fengu í formi lána eftir
óþurrkasumarið mikla árið 1955
er nú af þeim kölluð. Verður
það að teljast kaldhæðnisleg á-
kvörðun hjá Bjargráðasjóði að
krefjast greiðslunnar nú þegar
hálfgert hallærisástand ríkir á
því svæði sem aðstoðin var veitt
til á sínum tíma. Því óhætt er
að fullyrða það að víða á þessu
svæði er ástandið sízt betra, en
það var árið 1955, því þá var
haustið gott, en nú hefur það ver'
ið eitt hið lakasta er lengi hefur
yfir gengið.
Öpið alla daga
GUFUBADSTOFAN
Kvisthaga 29. — Sími iö976.